Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Blaðsíða 48
Helgarblað 10.–13. janúar 201448 Lífsstíll
U
ndanfarið hefur verið til um-
ræðu hversu miklum mat-
vælum er sóað en talað er
um að þriðjungur þeirra
mætvæla sem framleidd eru,
endi í ruslinu. Sé nóg eftir af matnum
er gott ráð að taka afganga með sér í
nesti í skóla eða vinnu daginn eftir.
Annað sniðugt ráð er líka að frysta af-
gangana. Margir henda afgöngunum
því þeir telja sig ekki munu geta not-
að þá síðar en það er fjarri lagi því þá
er hægt að nýta á ýmsan hátt. Hér eru
nokkur dæmi:
n Afgang af fiski er sniðugt að frysta
og nota síðar í súpu. Það sama má
segja um pasta og grjónaafganga sem
henta einnig vel í súpur og gera þær
matarmeiri.
n Það má nota afganga af hafragraut
og grjónagraut til þess að búa til klatta.
n Grænmeti sem er orðið slappt er
gott í súpu. Sellerí, gulrætur, kartöflur,
laukur, rauðlaukur, kartöflur og rófur
henta t.d. vel í súpugerð.
n Ávextir sem eru orðnir mjúkir henta
vel til þess að búa til ávaxtaþeytinga
(smoothie). Það er einnig sniðugt að
nota ávexti eins og banana, epli og
perur í möffins sem er er svo hægt að
frysta og taka með sér í skóla/vinnu.
n Svartir bananar sem flestum þykja
ólystugir henta einka vel til þess að
baka gómsætt bananabrauð.
n Vera hugmyndaríkur!
Eldað úr afgöngum
Sex góð ráð til að nýta matarleifarnar á heimilinu
Gott í súpur Gott er að
nota hina ýmsu afganga í
súpur.Mynd Photos
viktoria@dv.is
F
ólk getur sparað sér bæði
töluverðan pening í matar-
innkaupum en líka tíma sem
færi í að ákveða hvað eigi að
vera í matinn og finna allt sem
vantar í búðinni,“ segir Valur Her-
mannsson, einn eigenda nýs fyrir-
tækis, eldumrett.is, sem selur matar-
pakka sem innihalda allt hráefni sem
þarf í þrjár fyrirfram ákveðnar mál-
tíðir. Fyrirtækið fer formlega í gang
næstkomandi mánudag en hann á
það ásamt mági sínum, Kristófer Júl-
íusi Leifssyni, kærustu sinni, Hönnu
Maríu Hermannsdóttur, og systur,
Hrafnhildi Hermannsdóttur. Auk
þess er kokkurinn Pétur Brynjar Sig-
urðsson með þeim í rekstrinum og
Guðrún Jóhannsdóttir en þau hafa
hannað réttina.
Að erlendri fyrirmynd
„Við féllum fyrir þessari hugmynd
þegar við heyrðum fyrst af þessu árið
2009 og okkur hefur langað að setja
svona fyrirtæki á laggirnar síðan. Við
létum svo verða af því núna,“ segir
Valur. „Þetta er að erlendri fyrir-
mynd en svona fyrirtæki er að finna
víða í löndunum í kringum okkur.“
Eldum rétt sér um að kaupa í
matinn fyrir fólk. Inni á síðunni er
hægt að panta þrjár máltíðir fyrir
vikuna. Maturinn í máltíðirnar er
keyptur fyrir mann og hann er hægt
að fá annaðhvort sendan heim eða
sækja hann sjálfur. „Við erum með
matarpakka fyrir 2 og 4 – þrjár mál-
tíðir. Fólk fær heilan poka með mat
í þrjá kvöldverði. Í pokanum er allt
sem þarf í hverja máltíð.“
Engin sóun
Valur segir þetta geta sparað fólki
töluverðan pening í matarinn-
kaupum þar sem mjög oft þegar
verið er að kaupa í rétti þurfi mað-
ur að kaupa meira en þarf í rétt-
inn. „Við finnum til og kaupum
það besta hverju sinni í réttina hjá
heildsölum og innflutningsaðilum
og endurpökkum þannig að ekkert
verði eftir. Þannig sóum við engum
mat og það kemur út í verðinu hjá
okkur. Það er 100% nýtni hjá okkur,
við notum allt upp til agna sem við
kaupum. Við náum að hafa þetta
á lágu verði vegna þessa með-
al annars. Þú færð ekki meira en
þú þarft í máltíðina og ert þannig
ekki að henda neinu,“ segir hann
og bendir á að þetta komi í veg fyr-
ir sóun á mat. Auk þess sé matur í
matvörubúðum oft seldur í tölu-
vert stærri einingum en þarf í eina
máltíð. „Síðan þarf kannski að
kaupa nokkur hráefni í réttinn og
oft verður töluvert afgangs. Þetta er
því líka umhverfisvænt því það er
engin sóun í gangi.“
spennt fyrir framhaldinu
Síðan fer formlega í gang núna á
mánudaginn og verður þá hægt
að panta mat fram í tímann. „Við
erum bara rétt að byrja og erum
spennt. Við vitum náttúrlega ekk-
ert hvernig fólk tekur þessu en við
ákváðum að kýla á þetta. Við höf-
um verið að gera prufupakka og
höfum rekið okkur á nokkur atriði
sem við höfum lagað. Við höfum
lagt mikla vinnu í þetta og erum
spennt fyrir framhaldinu.“ n
Sjá um matarinnkaup
n Vilja koma í veg fyrir sóun á mat n Gert að erlendri fyrirmynd
Paprikufyllt nautabuff Hérna má sjá
einn af réttunum, paprikufyllt nautabuff.
Langa Valur segir réttina vera hugsaða út
frá íslenskum neytendum.
Kjúklingur Hér er einn af réttunum sem
Eldar rétt býður upp á.
Viktoría hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Einn inn,
einn út
Samkvæmt nýrri rannsókn eru
takmörk sett á félagsleg samskipti
okkar þrátt fyrir alla þá samfé-
lagsmiðla sem bjóðast. Í niður-
stöðum rannsóknarinnar, sem
framkvæmd var af alþjóðlegu
teymi, sem birtust í tímaritinu
Proceedings of the National
Academy of Sciences, kemur
fram að fjöldi þeirra sem við eig-
um náin samskipti við með hjálp
tækni helst sá sami þrátt fyrir að
til nýrra sambanda sé stofnað.
Það er að segja við setjum ómeð-
vitað einn einstakling til hliðar
um leið og við bætum öðrum inn
í okkar innsta hring. Fjöldi þeirra
sem eru í innsta kjarna þegar
kemur að félagslegum samskipt-
um er þó mismunandi á milli
einstaklinga.
Eldum rétt Hér er hópurinn
sem stendur að baki Eldum
rétt. Sjálf heyrðu þau fyrst
af sams konar þjónustu árið
2009 og heilluðust um leið.
Mánuður í
áhyggjur
Ný bresk rannsókn sýnir að að
meðaltali eyða breskar konur
mánuði árlega í að hafa áhyggj-
ur af útliti sínu. Um 2.000 breskar
konur tóku þátt í rannsókninni
sem sýndi fram á að að meðaltali
eyða konurnar 627 klukkustund-
um og 28 mínútum í áhyggjurn-
ar. Áhyggjur kvennanna snúa að-
allega að því hverju þær eigi að
klæðast og svo spá þær í það yfir
daginn hvernig útlitið er. Að vera
í ofþyngd er helsta áhyggjuefnið
en að meðaltali eyddu konurn-
ar klukkutíma og 46 mínútum
vikulega í áhyggjur af þyngdinni.
Bólur, bólgur, úfið hár og að vera
of föl kom næst á eftir í áhyggju-
röðinni.
Borðaðu
avókadó til að
seðja hungrið
Viltu hætta að borða óhollustu
milli mála? Borðaðu þá avókadó
með hádegismatnum þínum.
Að borða hálft avókadó með há-
degismatnum ýtir undir seddu-
kennd og minnkar líkurnar á því
að þú freistist til að fá þér óhollt
á milli mála. Í rannsókn sem var
gerð á þessu kom í ljós að þeir
sem fengu avókadó með matnum
urðu síður svangir en þeir sem
gerðu það ekki. Þeir fundu minni
þörf til þess að borða eitthvað
milli mála og voru lengur saddir.