Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Síða 13
Fréttir 13Helgarblað 10.–13. janúar 2014
ford.is
Ford Fiesta.
„Besti smábíllinn“
Beinskiptur frá 2.450.000 kr.
Sjálfskiptur frá 2.790.000 kr.
Ford Fiesta, bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3l/100 km. CO2 99 g/km. Ford Fiesta, EcoBoost bensín 100 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9l/100 km.
CO2 114 g/km. Tökum allar tegundir bíla uppí nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Ekki enn sannfærð/ur? Hér eru fleiri staðreyndir um Ford Fiesta:
Hiti er í framsætum og 3,5 tommu upplýsingaskjár í mælaborði. Farangursrýmið er einstaklega rúmt (290 lítra). CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur.
Ford MyKey, brekkuaðstoð og EasyFuel er staðalbúnaður. Öryggispúðarnir eru óvenju margir eða 7 talsins, þar af einn fyrir hné ökumanns. Sérstakt hitaelement er í miðstöð og er hann því mjög fljótur
að hitna sem er afar hentugt á köldum vetrarmorgnum!
Ford Fiesta var valinn besti smábíllinn árið 2013 af
sérfræðingum eins vinsælasta bílablaðs heims, Auto
Express.
Brimborg fagnar 50 árum í bílgreininni og af því tilefni
fylgja ný Nokian vetrardekk að verðmæti 120.000 kr.
öllum Ford Fiesta í janúar. Nýttu tækifærið.
Komdu og prófaðu þennan snilldar bíl.
Ford_Fiesta_5x18_30.12.2013.indd 1 7.1.2014 10:39:44
Atburðarásin
18. nóvember
Pari tvístrað
DV fjallar um að taka eigi Tony Omos frá
óléttri barnsmóður sinni og senda hann
úr landi.
19. nóvember
Mótmæli skipulögð
Boðað er til mótmæla fyrir utan
innanríkis ráðuneytið vegna málsins.
20. nóvember
Minnisblaði lekið
Fréttablaðið og Morgunblaðið birta fréttir
sem byggja á röngum upplýsingum úr
minnisblaði innanríkisráðuneytisins. Fáir
mæta á mótmælin.
21. nóvember
Aðstoðarmaður tvísaga
Lögmenn Tonys og Evelyn gagnrýna
ráðuneytið harðlega. Gísli Freyr Valdórs-
son, aðstoðarmaður ráðherra, gefur í
skyn að óbreyttir starfsmenn hafi afhent
minnisblaðið en dregur yfirlýsingar sínar
til baka eftir að reiði grípur um sig innan
ráðuneytisins.
22. nóvember
Þingmenn taka við sér
Farið er fram á að Hanna Birna svari
fyrir lekann á fundi stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar.
3. desember
Spurt á þingi
Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata, spyr
Hönnu Birnu um lekann í óundirbúnum
fyrirspurnatíma á Alþingi. Hanna Birna
bendlar Útlendingastofnun og lögregluna
við lekann. Þessir aðilar voru þó ekki með
umrætt minnisblað undir höndum.
10. desember
Kölluð fyrir þingnefnd
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ræðir við
Hönnu Birnu vegna málsins.
13. desember
Tony gefur sig fram
Tony gefur sig fram vegna stöðugra
lögregluheimsókna til Evelyn. Hann mætir
í innanríkisráðuneytið en lögreglan neitar
að sækja hann þangað. Tony er handtek-
inn síðar sama dag.
16. desember
Spurt aftur á þingi
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri
grænna, spyr Hönnu Birnu um lekann í
óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi.
Hanna Birna bendlar Rauða krossinn við
lekann.
18. desember
Vísað úr landi
Tony Omos er sendur fyrirvaralaust úr
landi án vitneskju lögmanns. Starfsmaður
Rauða krossins gagnrýnir málflutning
Hönnu Birnu í viðtali við DV. Orð hans eru
dregin til baka í tilkynningu frá Rauða
krossinum. Hanna Birna var í húsakynnum
samtakanna skömmu áður en tilkynningin
var send út.
20. desember
Tony á götunni
DV ræðir við Tony Omos sem heldur til á
lestarstöð í Sviss.
æru annars manns með móðgun í
orðum eða athöfnum“ sæta sektum
eða fangelsi allt að einu ári og 235.
grein snýst einnig um aðdróttanir
og mannorðshnekki.
Skömmu eftir að Tony gaf sig
fram í innanríkisráðuneytinu þann
13. desember var hann yfirheyrð-
ur af lögreglunni á Suðurnesjum.
Lögmaður hans, sem viðstaddur var
yfirheyrslurnar, staðfestir að ekk-
ert hafi verið spurt um mansal, né
heldur meintar þvinganir gagnvart
Evelyn. Yfirheyrslan snerist fyrst
og fremst um það hvort Tony hefði
gerst brotlegur við útlendingalög
með því að aðstoða systur sína, unn-
ustu og aðra nákomna við ólöglega
komu til Íslands. Tony er ekki lengur
með stöðu grunaðs manns í neinu
mansalsmáli enda hefði þurft að
leiða svo alvarlegt sakamál til lykta
fyrir íslenskum dómstólum áður en
unnt væri að vísa honum á brott. DV
hefur sent ítrekaðar fyrirspurnir til
lögreglunnar á Suðurnesjum vegna
meintrar aðildar Tonys að mansals-
máli en engin svör fengið.
Fékk inni hjá vini í Basel
Tony gaf sig sjálfviljugur fram
skömmu fyrir jól eftir að lögregla
var farin að áreita samfélag flótta-
manna við leitina að honum. Gerð
var húsleit hjá barnsmóður hans og
henni hótað daglegum heimsókn-
um þar til Tony kæmi í leitirnar. Þá
var afganski flóttamaðurinn Yusuf
Mahdavi handtekinn við leitina og
látinn dúsa í einangrun í fjórtán
tíma án þess að fá tækifæri til þess
að ræða við lögmann. Að minnsta
kosti einn annar maður var hand-
tekinn og enn fleiri hafa upplýst DV
um áreiti lögreglunnar í þeirra garð.
Tony var fluttur fyrirvaralaust úr
landi að næturlagi þann 18. desem-
ber án þess að lögmaður hans fengi
vitneskju um það. Tveir íslensk-
ir lögreglumenn fylgdu honum til
Sviss. Þarlend útlendingayfirvöld
tjáðu honum að hælisumsókn hans
yrði ekki tekin fyrir þar sem hann
hefði dvalist í tvö ár á Íslandi og væri
því á ábyrgð íslenskra yfirvalda. DV
náði tali af Tony sem hafði kom-
ið sér fyrir á lestarstöð í Bellinzona.
„Ég á í engin hús að venda. Ég er
bara á götunni núna,“ sagði hann.
Nú dvelst Tony í Basel þar sem gam-
all kunningi hans hefur skotið yfir
hann skjólshúsi.
„Búið að rústa mannorði mínu“
„Ég er enn að fela mig fyrir lög-
reglunni vegna þess að ef þeir finna
mig þá veit ég að þeir senda mig til
Nígeríu,“ sagði Tony í samtali við DV
í vikunni. Eins og fram hefur kom-
ið óttast hann að ásakanir ráðuneyt-
isins kunni að hafa alvarlegar af-
leiðingar fyrir hann í heimalandinu.
Fréttir íslenskra fjölmiðla, sumar
þeirra á ensku, hafa að undanförnu
ratað til fólks í Nígeríu. Það eitt að
vera grunaður um glæp þar í landi
getur haft í för með sér áralanga
fangelsisvist. Meira en helming-
ur fanga í Nígeríu hefur aldrei ver-
ið leiddur fyrir dómstóla að því er
fram kemur í gögnum á vef Amne-
sty International. Aðstæður í fang-
elsum landsins eru hörmulegar en
tæplega þúsund fangar týndu þar
lífi á fyrri helmingi þessa árs. „Það
er í rauninni búið að rústa mann-
orði mínu. Ég skil ekki hvernig ráðu-
neytið gat gert mér þetta, ég skil ekki
Ísland,“ sagði Tony í samtali við DV
áður en hann gaf sig fram. n
„Ég er enn að fela
mig fyrir lög-
reglunni vegna þess að ef
þeir finna mig þá veit ég
að þeir senda mig til
Nígeríu.