Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Side 16
Helgarblað 10.–13. janúar 201416 Fréttir
mjaðmabeinin
n Tröllasaga um baðfatabrýr afhjúpar vandamál n Daðrað við átröskunarmenningu
A
lvöru karlar byggja brýr.
Alvöru konur eru með brýr.“
Svona hljóma hvatningar-
orð til kvenna á ljósmynd
sem sýna svokallaða bað-
fatabrú, eða „Bikini bridge.“ Mynd-
ir sem þessa má finna á netinu, en
fyrir þá sem ekki þekkja til hugtaksins
er um að ræða bil sem myndast við
mjaðmabein kvenna þegar þær klæð-
ast baðfatabuxum, eða bikiníi.
Á fimmtudag kom í ljós að bað-
fatabrúar „æðið“ var ginnungaleikur
nafnlausra netnotenda á vefsíðunni
4chan. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
notendurnir koma slíku efni í loftið
og tekst að skapa öngþveiti á netinu.
Skipulagður leikur
Það sem hér er um að ræða er
skipulagður tröllaleikur hópsins,
eða „trolling“ eins og það heitir á
ensku. Á nokkrum dögum tókst þeim
að gera baðfatabrúna alræmda á
vefnum. Það gerðu þeir með því að
senda út gríðarlegt magn af mynd-
um á heimasíður, myndir þar sem
konur sáust mynda „brú“ á milli
mjaðmabeina sinna. Á sama tíma
dældu þeir út upplýsingum um skað-
semi þess að reyna að mynda bað-
fatabrú og fordæmdu það. Með þessu
vildu þeir skapa vandræði og öng-
þveiti sem vatt svo sannarlega upp á
sig. Fjallað var um málið í öllum helstu
erlendu fjölmiðlum í vikunni þar sem
það var fordæmt og mikið rætt um
mikilvægi þess að konur, sérstaklega
ungar stúlkur, fengju upplýsingar um
skaðsemi þess að reyna að sækjast eft-
ir óheilbrigðum útlitsstöðlum.
Flaug hratt
Hlutirnir undu hratt upp á sig og fór
málið eins og eldur í sinu um netheima
og var notað sem megrunarhvatn-
ing fyrir marga. Það virkaði sérstak-
lega vel þar sem konur voru margar
hverjar að hefja matar- og hreyfingar-
átak í takt við áramótaheitin. Þá flaug
það sérstaklega hátt á samfélagsmiðl-
um og gripu margar konur og stúlkur
það á lofti, líkt og lærabilið sem rætt
er um hér til hliðar. Líkt og DV greinir
frá voru tvær íslenskar konur búnar að
kynna sér málið og hafði vinur einn-
ar þeirra sent henni mynd og ráðlagði
henni að gera þetta að markmiði sínu
fyrir sumarið og náði því fiskisagan að
fljúga til Íslands.
Raunverulegt vandamál
Á stuttum tíma varð þetta því orðið
að raunverulegu vandamáli þar sem
ungar konur reyndu að uppfylla óheil-
brigða staðla útlitsdýrkunar. Í banda-
rískum fjölmiðlum var á fimmtudag
bent á hversu megnugir samfélags-
miðlar eru í að koma slíkum málum
á framfæri og skapa vandamál. Líkur
séu á því að konur taki baðfatabrúnni
sem einhverju raunverulegu mark-
miði og að það verði, líkt og lærabilið,
að eftirsóknarverðu líkamlegu atriði.
Þeir segja það skelfilegt að á stuttum
tíma hafi það orðið að stóru vanda-
máli og hafi í raun sprungið í loft
upp. Það sé sérstaklega varhugavert á
tímum þar sem átröskunarsjúkdómar
séu mjög algengir og valdi miklum
vandamálum hjá ungu fólki.
Ef einhver ætlaði sér að mynda
slíkar brýr þurfa konurnar almennt
að vera mjög grannar, en algengt
virðist vera að ungar stúlkur reyni
að kalla fram slíkan líkamsvöxt eða
halda í hann, eins og margoft hefur
áður komið fram. Myndirnar sem
ganga á vefnum, skipta þúsundum.
Á margar hverjar þeirra eru skrif-
uð hvatningarorð til kvenna um að
gefast ekki upp, þeim sagt að strák-
ar kunni að meta slíkan vöxt og það
bendlað við aukin lífsgæði að ná slíku
takmarki.
Varasöm þróun
En þó svo að baðfatabrúin hafi reynst
vera tröllasaga, er útlitsdýrkun alvar-
legt vandamál í samfélaginu.
Sigrún Daníelsdóttir, sálfræðingur
og formaður Samtaka um líkams-
virðingu bendir á að þrýstingurinn á
fólk um að vera mjög grannt sé mikill
og mjög skaðlegur.
„Allt sem ýtir ungu fólki út í
að setja sér öfgafull markmið um
breytingar á líkamsvexti, er mjög
varasamt,“ segir Sigrún. Slík þróun
er hættuleg enda getur slíkt ýtt undir
neikvætt sjálfsmat, vanlíðan og jafn-
vel alvarlegan vanda líkt og átröskun.
Öfgafull markmið um breytingar
„Það er eins og margir líti framhjá því,
í okkar megrunarsjúku menningu,
hvað átraskanir eru gríðarlega alvar-
legir geðsjúkdómar. Þetta eru geð-
raskanir sem getur tekið langan tíma
að ná sér af og þær hafa mikil áhrif
á líkamlega heilsu, jafnvel varan-
leg áhrif, sem og á öll lífsgæði og lífs-
gleði. Þau öfl í samfélaginu sem ýta
undir þennan vanda ættu að sæta
mikilli gagnrýni. Það er alveg ljóst
að þáttur umhverfisins við að stuðla
að átröskunum er mjög stór. Það má
ekki vanmeta hann eða eða líta svo
á að geðsjúkdómar séu bara líffræði-
legar raskanir og ekki undir áhrifum
frá umhverfinu. „Það er alveg ljóst að
umhverfið hefur mikil áhrif á tíðni
átraskana í samfélaginu,“ segir hún.
Misvísandi skilaboð
En skilaboðin sem fólk fær geta
einnig verið misvísandi. Í fjölmiðlum
má gjarnan lesa greinar þar sem bent
er á megrun eða útlitsdýrkun sem
vandamál í fréttadálki en á sama tíma
er fjallað um leiðir til að grennast í
lífsstíls dálkum.
„Fjölmiðlar og samfélagsmiðlar
hafa mikil áhrif á okkur. Það eru rann-
sóknir sem benda til þess að stúlkur
sem eyða miklum tíma á slíkum miðl-
um séu í aukinni hættu gagnvart því
að þróa með sér vanda,“ segir Sigrún
og bendir á auglýsingaiðnaðinn.
„Ef þú birtir ákveðin skilaboð nógu
oft þá síast þau inn. Neytandinn, sá
sem verður fyrir þessum endurteknu
skilaboðum, áttar sig ekki á því að
það sé verið að breyta hugarfari hans.
Fólk upplifir sig frjálst eins og það eigi
sjálft allar sínar hugmyndir, skoðanir
og langanir. Fólk upplifir það því oft
þannig að áherslan og löngunin í
grennri vöxt eða megrun komi frá því
sjálfu. En þetta er eitthvað sem er allt í
kringum okkur og hefur ótvíræð áhrif
á það hvernig við hugsum.“
Sigrún telur þó, þrátt fyrir allt, að
siðferðisleg meðvitund almennings
sé að aukast og að fólk sé gagnrýnna.
„Núna eru þessir hlutir mjög áber-
andi allt í kringum okkur, bæði í fjöl-
miðlum og samfélagsmiðlum. Já-
kvæð afleiðing þess er kannski sú
að fólk verður þar af leiðandi með-
vitaðra um þessi skilaboð og fer að
hugsa á gagnrýnni máta um þau og
afleiðingar þeirra á okkur og börnin
okkar,“ segir hún.
Þráhyggja
Sigrún bendir á að skaðlega þrá-
hyggju varðandi mat, útlit og
líkams vöxt sé ekki síður að finna
í líkamsræktargeiranum. „Sumir
þjálfarar, einkaþjálfarar og ráðgjafar
eru sjálfir ofurseldir þessari matar-
og þyngdarþráhyggju. Það er mjög
stórt ábyrgðaratriði að þessir aðil-
ar séu svo að ráðleggja ungu fólki og
hvetja það til hegðunar sem þeim
finnst kannski eðlileg, miðað við
hversu uppteknir þeir eru sjálfir af
þessum hlutum, en eru svo kannski
mjög varhugaverðir út frá sjónarmið-
um um andlega og líkamlega vel-
ferð,“ segir Sigrún. „Fólk getur orðið
mjög blint á það hvar mörkin liggja
enda er búið að selja okkur þá hug-
mynd að heilbrigði felist í ákveðnu
útliti sem síðan er reynt að framkalla
með öllum tiltækum ráðum, jafnvel
á þversagnarkenndan hátt á kostnað
heilsunnar.“ n
„Öfundsjúkir and-
stæðingar“ „Gerðu ástmenn
þína stolta, andstæðinga öf-
undsjúka,“ segir á þessari mynd,
en hvatningarorðin sem sett
eru á myndirnar hvetja konur til
þess að betrumbæta sig fyrir
aðra, svo sem ástmenn sína.
Grínið varð
markmið
„Vinkonur mínar töluðu um þetta og
ég gúglaði þetta,“ segir 16 ára nýnemi í
menntaskóla. „Það er kannski ekki beint
pressa, en það eru samt
rosalega margir að tala
um þetta,,“ segir hún
„Ég heyrði af þessu
frá vini mínum,“
segir 22 ára kona
og nemandi við
Háskóla Íslands.
„Hann benti mér á
að gúgla þetta og setja á
markmiðalistann minn. Ég ræddi þetta
við vinkonur mínar og var að grínast með
þetta og hélt að þær tækju því þannig. Það
mistókst eitthvað og ein ákvað að þetta
væri markmið fyrir sumarið,“ segir hún og
segist vona að vinkonunni snúist hugur.
Hættuleg lærabil
Sem áður sagði er netið sterkur miðill
þegar kemur að því að miðla upplýsingum.
Þeir sem eru virkir á samfélagsmiðlum, þá
sérstaklega í hópum sem snúast að miklu
um líkamsrækt eða útlitsdýrkun, verða
því sérstaklega varir við þrýstinginn.
Fyrir skemmstu var mjög algengt að sjá
myndir sem sýndu bil á milli læra kvenna
á samfélagsmiðlum. Fylgdu myndunum
gjarnan hvatningarorð þar sem konum var
uppálagt að gefast ekki upp, halda áfram
og ná markmiði sínu, það er að segja,
auknu bili á milli læranna. Hugmyndin
um lærabilið var tengd við þvengmjóar
fyrirsætur á tískusýningum og áttu sem
flestar konur að reyna að herma eftir
líkamsvexti þeirra.
Myndirnar og þessi hugmyndafræði sættu
mikilli og harðri gagnrýni og bentu fjöl-
margir á að ekki væri hægt að brenna fitu
sérstaklega á ákveðnum stöðum líkamans,
þó vissulega væri hægt að þjálfa ákveðna
líkamshluta sérstaklega. Var bent á að
myndirnar minntu mikið á myndbirtingar á
sérstökum átröskunarvefsíðum sem hafa
verið mjög umdeildar og þykja hættulegar.
Myndirnar þóttu skaðlegar, sérstaklega
gagnvart ungum áhrifagjörnum konum og
stúlkum sem gætu með því reynt að upp-
fylla óraunhæfa staðla varðandi útlit sitt.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Það er alveg
ljóst að
umhverfi okkar
hefur mikil áhrif
á tíðni átraskana
í samfélaginu
Endurtekin skaðleg
skilaboð „Ef þú birtir ákveðin
skilaboð nógu oft þá síast þau
inn,“ segir Sigrún Daníelsdóttir
sálfræðingur. Hún hefur um
árabil barist fyrir líkamsvirðingu
og gegn megrunarmenningu.
Hún er formaður samtaka um
líkamsvirðingu.
Svelta sig fyrir