Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Síða 54
54 Lífsstíll Helgarblað 10.–13. janúar 2014
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Pistill
Hinn fullkomni
matur
Samloka er hinn fullkomni
matur. Hún getur verið ná-
kvæmlega það sem þú vilt að
hún sé; einföld og fljótlega
eða vegleg og full af ástríðu.
Íslendingar hafa þó lengst af
hundsað þessa matargerðarlist,
smellt tveimur franskbrauð-
sneiðum með osti og skinku
á milli í misvönduð samloku-
grill og látið gott heita. Sem
betur fer er þetta að breytast
hægt og rólega. Á undanförn-
um mánuðum höfum við séð
nokkra veitingastaði skjóta
upp kollinum sem bjóða upp á
vandaðar og góðar samlokur.
Þá ber helst að nefna Coocoo’s
Nest á Granda í Reykjavík og
líka Joe and the Juice, Lemon
og Bergsson delí og djús.
Hægt er að rekja sögu
samlokunnar aftur til átjándu
aldar þó að brauð með áleggi
og vefjur eigi sér lengri sögu.
Samlokan náði fyrst almennri
hylli í hinum vestræna heimi
en hefur með árunum fikrað sig
áfram og unnið sér sess í matar-
menningu heimsbyggðarinnar
allrar. Enn eru þó til staðir þar
sem samloka er ekki algeng-
ur matur. Á þessum tíma höf-
um við lært eitt og annað um
hvernig góð samloka er búin til.
Meðal þess sem við höfum lært,
og hefur nú verið sýnt fram á
með aðstoð stærðfræðinnar, er
að beikon gerir samloku betri.
Bandaríska tímaritið Wired
athugaði allar uppskriftir á vef-
síðunni Food Network (samtals
49.733 uppskriftir) og allar um-
sagnir um uppskriftir á síðunni
(samtals 906.539). Niðurstaðan
var sú að beikon gerir samlokur
– og flestan annan mat – betri.
En hvernig gerir maður góða
beikonsamloku? Brauðið er
auðvitað mikilvægt og mæli
ég sérstaklega með súrdeigs-
brauði. Bæði er hægt að smyrja
aðra hliðina á hvorri brauð-
sneið með alvöru smjöri
og skella því á heita pönnu
(smurðu hliðina niður) eða
skella sneiðum á grind og inn
í ofn í smá tíma. Á meðan eru
þrjár til fjórar beikonsneið-
ar látnar stikna á pönnunni og
síðan ostsneiðum, til dæmis
maríbóosti, skellt ofan á og lát-
inn bráðna. Beikoninu og ostin-
um er svo skellt á aðra brauð-
sneiðina, ferskt lambhaga salat
sett ofan á það. Þessu er
svo lokað með hinni brauð-
sneiðinni sem þó skal smyrja
með góðu sinnepi (alls ekki
pylsusinnepi). Þetta er hinn
besti matur og enginn þarf að
skammast sín fyrir að borða
þetta, sama hvort það sé hádegi
eða kvöld. n
Beikon gerir samlokuna betri
Gerir allt betra Wired hefur sýnt fram
á með aðstoð stærðfræðinnar að beikon
gerir samlokur betri. Mynd BAcons of the World
„ Íslendingar hafa
þó lengst af
hundsað þessa
matargerðarlist.
Hvernig verður kíví til?
n 23 staðreyndir um ávexti og grænmeti
V
issir þú að ananas vex
á lítilli plöntu rétt við
jörðina? Og að spergill
vex beint upp úr mold-
inni? En að kakóbaunir
vaxa inn í ljósum baunabelgjum
og kíví vex á vínvið og er tínt eins
og vínber?
Á vefmiðlinum buzzfeed.com
er listi yfir uppruna grænmetis
og ávaxta þar sem margt kem-
ur á óvart. Eflaust veistu eitthvað
af þessu en það er alltaf hægt að
bæta við sig smá visku, þótt til-
gangslaus sé. n
1 Rósakál er í rauninni litlir hnúðar sem vex á stórum stilkum. 2
Ananas vex á lágri plöntu við
jörðina. 3
Kasjúhneta er þetta litla brúna
sem hangir á endanum á þessum ávexti.
4 Þistilhjörtu eru í rauninni ytra lag krónublaðs blóms. 5
Granatepli vaxa á trjám. 6 Spergill vext beint upp úr moldinni. 7
Kíví vex á vínvið og er tínt eins og
vínber.
8 Graslaukurinn ber falleg fjólublá blóm. 9
Döðluplóma vex á stóru tré. 10 Kakóbaunir fyrir súkkulaði vaxa inn í ljósum baunabelgjum. 11
Seljurót er stór blóm- og lauf-
skrýdd jurt.
12 Sykurrófa er rót sem vex ofan í jörðinni með litlum laufskrýddum toppi. 13
Saffran er inni í blómi ákveðinna
tegunda dverglilja, lítið og appelsínugult.
16 Negulnaglar eru þurrkaðir blóm-hnappar negultrésins.
20 Spergilkál er einnig lokaður blómknappur. 21
Svartur pipar er búinn til úr þurrk-
uðum piparávöxtum sem vaxa á vínvið. 22
Avókadóávöxtinn fáum við af
háu tré. 23
Ólífur vaxa á greinum kræklóttra
trjáa.
14 Bananar vaxa ekki á trjám heldur í hávöxnum jurtum í kringum langt blóm. 15
Jarðhnetur hanga á rótum
þessarar plöntu ofan í jarðveginum.
17 Kantalópur vaxa í jörðinni eins og grasker. 18
Kapers eru lokaðir knappar á
fallegu blómi. 19
Trönuber vaxa á lágum runna.