Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Page 24
Helgarblað 23.–26. maí 201424 Umræða
Fjölnir Baldursson Af hverju
er verið að selja Stöð 2 rétt á
leikjum á HM, þannig að allir
landsmenn geti ekki séð leikina? RÚV
fengi líklega sama pening í
auglýsingar og fyrir að selja Stöð 2
réttinn þannig, að það er ekki hægt að
svara þessu eins og þú hefur svarað
þessu áður.
Magnús Geir Þórðarson RÚV
mun sinna HM afar vel í sumar, þar
sem allir leikirnir verða í boði fyrir
landsmenn alla á RÚV. Langflestir
leikirnir verða í beinni útsendingu
hjá RÚV en þeir 18 leikir sem Stöð
2 mun sýna í beinni útsendingu
verða strax í kjölfarið sýndir í
Sjónvarpinu. Þannig verða ætíð
að minnsta kosti tveir leikir á dag í
beinni útsendingu og þar á meðal
allir leikirnir í 16 liða úrslitum. Af
þessum 16 leikjum er helmingur
á meðan RÚV er að sýna beint
frá öðrum leikjum. Tekjurnar sem
fást af sölu leikjanna skipta máli
fyrir RÚV en eins og allir vita var
rekstur RÚV erfiður á síðasta ári.
Tekjurnar sem af þessu hljótast
duga fyrir nokkrum stöðugild
um á ársgrundvelli – og slíkt
telur, en eins og flestir muna var
ráðist í sársaukafullar uppsagnir
á síðasta ári. En hið mikilvæga
er auðvitað það að þjóðin mun
geta notið HM veislunnar á RÚV í
sumar.
Jón Magnússon Hvað verður
um þá þætti sem RÚV hefur
framleitt í gegnum árin. Er
hægt að opna aðgengi almennings að
þessum þáttum hvort sem það er í
gegnum myndbandaleigu eða opnun
nýrrar stöðva þar sem gamlir þættir
eru sýndir? Hvað er það sem stendur í
vegi fyrir því að RÚV geti opnað dyrnar
að safninu sínu?
Magnús Geir Þórðarson Góð
spurning. RÚV situr á mikilli gull
kistu efnis sem safnast hefur upp
frá upphafi. Þetta efni er í raun
þjóðararfur og afar mikilvægt í
mínum huga að varðveita hann,
koma á aðgengilegt form og opna
aðgengi almennings að honum.
Það sem stendur í veginum er fjár
mögnun og ákveðin réttindamál.
Ný framkvæmdastjórn er komin til
starfa og er þegar byrjuð að vinna
í þessu máli. Það er einlæg von
okkar að á næstu misserum takist
að sinna þessu brýna máli.
Ingi Guðnason Er eitthvað
hæft í fréttaflutningi BB.is í
dag um að til standi að taka
niður allan tækjabúnað RÚV á Ísafirði
og þar með leggja algjörlega niður
aðstöðu stofnunarinnar á Ísafirði? Þar
með yrði væntanlega endanlega kippt
fótunum undan starfsemi RÚV á
svæðinu. Hvernig samrýmist þetta
áherslum sem þú boðaðir, fljótlega
eftir að þú tókst við starfi útvarps
stjóra, um að of mikið hafi verið skorið
niður á landsbyggðinni og að þar með
geti stofnunin ekki sinnt skyldum
sínum við landsbyggðina?
Magnús Geir Þórðarson Þegar
ég tók við starfi útvarpsstjóra
fyrir tveimur mánuðum þá boðaði
ég aukna áherslu á dagskrárgerð
á landsbyggðinni. Það stendur.
Að mínu mati þarf RÚV að sinna
landsbyggðinni betur en það hefur
gert. Að því verður sannarlega
unnið. Ég þekki sjálfur hvað
starfsemi RÚV á landsbyggðinni
er mikilvæg, eftir að hafa búið
og starfað á Akureyri um árabil.
Ný framkvæmdastjórn vinnur nú
að því að útfæra hvernig þessari
áherslubreytingu verður hrint í
framkvæmd. Við munum nálgast
þetta, eins og annað í starfsemi
RÚV, reyna að tryggja að sem
mest af fjármagni nýtist beint í
dagskrá, í innihaldið sjálft – en
minna fari í umbúðir og umgjörð.
Ný tækni gerir okkur kleift
að framleiða gæðaefni með
léttari búnaði en áður tíðkaðist.
Ákvörðun um að leggja niður fasta
starfstöð á Ísafirði var tekin fyrir
nokkrum árum en tímabundinn
leigusamningur rennur út nú í
sumar. Þessar ákvarðanir voru að
sjálfsögðu teknar af fyrri stjórn
endum. RÚV hefur ekki haft fasta
starfsmenn á Ísafirði undanfarin
ár – en haft öflugan verktaka
sem hefur sinnt dagskrárgerð á
svæðinu. Hann mun vinna fyrir
RÚV áfram og sinna dagskrárgerð
á svæðinu. Ný framkvæmdastjórn
er að setja sig inn í málin og finna
leiðir til að auka við dagskrárgerð
á Vestfjörðum, eins og öðrum
landshlutum. Tryggt verður að
allar tengingar og tækjabúnaður
verði til staðar til dagskrárgerðar,
útsendinga o.þ.h. Okkar markmið
er að þeir viðbótarfjármunir sem
við munum setja í dagskrárgerð
á landsbyggðinni nýtist beint í
dagskrána – en fari ekki í dýrt
leiguhúsnæði og umgjörð. RÚV er
og verður útvarp allra lands
manna!
Finnbogi Sjöfn Sæll Magnús
Geir. Er það rétt að lokað verði
fyrir útsendingar RÚV í
gegnum Thor þann 31. júlí n.k? Þetta
er mikið hagsmunamál fyrir okkar
sjómannastétt. Kv. Finnbogi J.
Þorsteinsson
Magnús Geir Þórðarson Sæll
Finnbogi. Hið opinbera hefur stað
ið fyrir dreifingu í gegnum gervi
hnött um árabil. Þar hefur verið
hægt að nálgast útsendingar RÚV
ásamt öðru. Ríkisstjórn ákvað
fyrir nokkru að hætta þessum
útsendingum. Við teljum afar
mikilvægt að þessar útsendingar
haldi áfram enda afar mikilvægar
fyrir marga, ekki síst þá sem njóta
dagskrár RÚV á hafi úti. Við höfum
vakið athygli á þessu og hvatt
til þess að þessi þjónusta haldi
áfram enda afar mikilvæg. Verið er
að vinna í þessu máli og er það von
okkar að góð lausn finnist, þó það
sé ekki á færi RÚV að taka að sér
þennan viðbótarrekstur.
Jóhann Sigurbjörnsson Af
hverju getur RÚV ekki tryggt
sér útsendingarréttinn á
handboltanum, alltaf, svo að öll
þjóðin geti horft á þetta og hvatt sína
menn? Ekki bara 23.000 áskrifendur
Stöðvar 2?
Magnús Geir Þórðarson Sæll
Jóhann. Það er sannarlega okkar
ósk að geta sent út stórmót í
handbolta enda ljóst að stór
hluti þjóðarinnar fylgist spenntur
með íþróttinni. Okkar fólk gerir
sitt besta til að tryggja aðgengi
þjóðarinnar að þessari þjóðar
íþrótt. Vonum það besta!
Kristján Hrafn Arnarsson
Verður leikjunum sem ekki er
hægt að sýna í beinni í
sjónvarpinu streymt á ruv.is?
Íþróttaviðburðir eins og HM eru
viðburðir sem sýna á í beinni
útsendingu og í opinni dagskrá. Er ekki
löngu kominn tími á RÚVapp svipað
og iPlayer BBC?
Magnús Geir Þórðarson Sæll
Kristján. Hafin er vinna við að stór
bæta ruv.is með það að markmiði
að hin fjölbreytta dagskrá verði
aðgengilegri á vefnum og öðrum
nýmiðlum. Breytingarnar verða
sjáanlegar áður en langt um líður
– og hver veit nema RÚVapp fylgi
þeim.
Jóhann Sigurbjörnsson
Hvenær ætlar RÚV að hafa
almennilegan skemmti/
grínþátt á laugadagskvöldum? RÚV
hefur ekki viljað fylla skarð
Spaugstofunnar og er ekki komin tími
á það? T.d. fá Ara Eldjárn, eða
einhverja unga og efnilega til að semja
þátt? Samt ekki Hringekjuna takk :/
Magnús Geir Þórðarson Sæll.
Það er klárlega okkar markmið að
bjóða upp á fjölbreytta, metnað
arfulla og skemmtilega dagskrá
í öllum miðlum. Innihaldið er
það sem öllu máli skiptir. Þær
breytingar sem við vinnum að
miða að því að meiri áhersla í
starfseminni fari í innihald og
minna í umbúðir. Afar fjölbreytt og
skemmtileg dagskrá verður kynnt
í haust – og ég vona sannarlega að
þú verðir ánægður með skemmti
efnið sem þar verður boðið upp á.
Ég sé að við erum sammála um að
Ari Eldjárn er alger snillingur, hann
hefur verið á skjánum hjá okkur í
vetur og ég vil fyrir alla muni sjá
meira af honum!
Eyþór Jóvinsson Hvenær
fáum við fréttir af góðu veðri
á Vestfjörðum, líkt og við
fáum reglulega af Austurvelli?
Magnús Geir Þórðarson Er ekki
bara kominn tími á það? Ég heyrði
áðan að veðrið á Vestfjörðum
sé jafn dásamlegt og í borginni.
Auðvitað ættum við að heyra af
því í útvarpi allra landsmanna.
Kristján Hrafn Arnarsson
Þar sem þú svaraðir ekki
spurningunni um streymi á
HMleikjunum er þá hægt að skilja
það þannig að það sé betri kostur að
bjóða okkur upp á að kaupa áskrift að
365 en að bjóða okkur upp á horfa á
aukaleikina í beinni á ruv.is?
Magnús Geir Þórðarson Sæll
Kristján. Þessum leikjum getum
við ekki streymt beint á ruv.is – en
þeir eru allir sendir út í sjónvarpinu
strax að leik loknum. Þess má
geta að það er algengast hjá öðr
um almannaþjónustum í Evrópu
að þær sýni aðeins hluta leikja á
HM beint og gera gjarnan sam
bærilega samninga og við höfum
gert við 365. Við sýnum megnið
af mótinu beint og þeir leikir eru
allir einnig aðgengilegir í gegnum
streymi á ruv.is. Við munum sýna
tvo leiki á dag í beinni útsendingu
og þar á meðal alla leikina í 16 liða
úrslitum.
Sigurður Ingi R Guðmunds-
son Sæll. Væri það möguleiki
að nýta betur íþróttarás RÚV
og leyfa öðrum dagskrárliðum eins og
menningu og listum að njóta hennar,
eða að leyfa fleira fólki aðgang á þeirri
rás t.d. ungu fólki?
Magnús Geir Þórðarson
Íþróttarás RÚV hefur ekki náð
fullri dreifingu og því getum við
ekki nýtt hana nema takmarkað
enn. Þegar hún hefur náð fullri
dreifingu opnast auknir möguleik
ar en á hinn bóginn ber að nefna
að við þurfum að fjármagna
þessar útsendingar áður en í þær
er ráðist. Eins og kunnugt er hefur
verið mikið verið skorið niður hjá
RÚV að undanförnu og fjármögn
un nýrrar rásar hefur ekki verið
tryggð.
Jón Jónsson Fyrir um 15–20
árum þá var í sjónvarpinu
mjög fræðandi barnaefni sem
hét Einu sinni var og fjallaði t.d. um
heimssöguna og hvernig líkaminn
virkaði. Hvernig væri að sýna fleiri
þætti handa börnum sem eru
fræðandi en snúast ekki um að dráp
og slagsmál? Svo í sambandi við
íþróttafréttir af hverju er ekki jafnt
hlutfall umfjöllunar um karla og
kvennasport? Er vilji hjá þér og stjórn
RÚV til að breyta þessu?
Magnús Geir Þórðarson Sæll
Jón. Eitt helsta metnaðarmál mitt
sem útvarpsstjóra er að sinna
börnum og ungu fólki betur. Við
viljum bjóða upp á vandað og
uppbyggilegt efni og dreifa því
með leiðum sem ná eyrum og
augum nýrrar kynslóðar. Annað
sem ég hef lagt ríka áherslu á er
jafnrétti á víðum grunni. RÚV er
ein mikilvægasta lýðræðis og
menningarstofnun þjóðarinnar og
við höfum ríkar skyldur í þessum
efnum. Eitt fyrsta verk mitt sem
útvarpsstjóri var að skipta út í
öllum helstu stjórnunarstöðum
RÚV. Það var mikill kynjahalli í
fyrri framkvæmdastjórn en í nýrri
stjórn eru jafn margar konur og
karlar. Þetta er eitt skref – en ég
vona að við höldum áfram á sömu
braut og RÚV verði í fararbroddi
í jafnréttismálum. Við viljum
sjá jafnvægi milli kynja meðal
dagskrárgerðamanna, meðal við
mælenda og hvað umfjöllunarefni
varðar.
Sigríður Gísladóttir Hefur þú
hugsað þér að efla starfsemi
RÚV utan Reykjavíkur og
Akureyrar og taka t.d. byggðastefnu
NRK til fyrirmyndar? Ef svo er, getur þú
gert grein fyrir hvaða skref í þá átt eru
fyrst á dagskrá?
Magnús Geir Þórðarson Sæl
Sigríður. Ég hef boðað að RÚV
muni sinna landsbyggðinni betur
en verið hefur. Þessa dagana
er verið að vinna að því í hvaða
skrefum og með hvaða hætti það
verður gert. Nýir stjórnendur hafa
hug á að þetta gerist eins hratt og
mögulegt er.
Kristbjörn Egilsson Fagna að
heyra á ný í Lönu Kolbrúnu og
Illuga á Rás 1. Getum við átt
von á fleiri frábærum þáttastjórnend
um aftur t.d. Steinunni Harðar, Pétri
Halldórssyni (en þau fjalla um náttúru
og vísindi) og Höllu Steinunni,
sérfræðingi í barokktónlistinni?
Magnús Geir Þórðarson Nú vinn
ur starfsfólk RÚV að því að stilla
upp dagskrá næsta vetrar. Ég get
ekki upplýst enn nákvæmlega
hvað þar verður á boðstólum en
get þó sagt að það er full ástæða
til að fara að hlakka til!
Elsa Ólafsdóttir Hvenær
megum við eiga von á
almennilegri dagskrá á
föstudags og laugardagskvöldum á
Rás 2? Það er skandall að vera með
eldgamalt endurtekið efni á þessum
tíma.
Magnús Geir Þórðarson Nýr
dagskrárstjóri Rásar 2 er nýtekinn
til starfa. Hann vinnur nú að því
að móta áherslubreytingar í dag
skránni með öðru frábæru fólki á
rásinni. Vonandi mun þér líka það
sem þú munt heyra.
Kris Bee Hvernig hyggst þú
rækja öryggishlutverk RÚV?
Magnús Geir Þórðarson
Þetta er stór spurning. RÚV
sinnir þessu hlutverki með afar
fjölbreyttum hætti. RÚV er
með öflugt dreifikerfi og ýmsar
áætlanir til að bregðast við ólíkum
aðstæðum. Það hefur sýnt sig í
gegnum tíðina að þegar þjóðin
stendur frammi fyrir alvarlegum
atburðum þá er RÚV sá miðill sem
þjóðin reiðir sig á. Við munum
kappkosta, hér eftir sem hingað
til, að sinna þessu hlutverki af
öryggi og festu.
Magnús Skúlason Er
möguleiki á því að RÚV taki
upp á því að endursýna
daglega gamalt innlent efni á
hliðarrás? Annað þessu tengt, er
möguleiki á því að þið getið endursýnt
gömlu þættina um Einar Áskel sem
sýndir voru á RÚV fyrir um 25–30
árum?
Magnús Geir Þórðarson Ég
vonast til að við getum opnað
Gullkistuna í auknum mæli – og
þá með því að endursýna efni. Góð
hugmynd með Einar Áskel. Ég kem
þessari hugmynd áleiðis. Takk.
Ásta Einarsdóttir Fáum við
ekki Guðna Má aftur í
útvarpið ?
Magnús Geir Þórðarson Guðni
Már á marga aðdáendur víða um
land – og þú ert augljóslega einn
af þeim. Vonandi muntu heyra í
honum í útvarpinu þínu áður en
langt um líður.
Fundarstjóri Þú hefur nefnt
að núverandi húsnæði
Ríkisútvarpsins sé óhentugt.
Hvað getur þú sagt um stöðu þeirra
mála? Flytur RÚV úr Efstaleiti? Eru
þessi mál í forgangi?
Magnús Geir Þórðarson Við
höfum sett húsnæðismál RÚV á
dagskrá. Fyrir því eru tvær ástæð
ur. Í fyrsta lagi er húsnæðið eins og
það er nú á margan hátt óhentugt
fyrir núverandi starfsemi. Það er
of stórt og hentar ekki óbreytt
fyrir nýja tækni. Í öðru lagi eru há
langtímalán sem RÚV ber afar
íþyngjandi fyrir starfsemina og
takmarka mjög möguleika RÚV
til að sinna hlutverki sínu – að
bjóða upp á framúrskarandi
gæðaefni fyrir þjóðina. Starfsemi
RÚV á að snúast um innihald en
ekki umbúðir. Það má segja að í
dag sé RÚV í spennitreyju hárra
langtímalána. Því þarf að breyta.
Vinna er í fullum gangi við að
endurskoða þessi mál með það
að leiðarljósi að tækla þessa tvo
þætti. Við viljum losna undan
íþyngjandi lánum og komast
í hentugra húsnæði. Enn er
óljóst hvaða leiðir eru að þessu
markmiði. Það kann að vera að
starfsemin flytjist annað en það
kann líka að vera að við flytjum
okkur í minni hluta núverandi
húsnæðis og lögum það að nýjum
þörfum. Við viljum að okkar kraft
ar og fjármunir nýtist beint í það
sem þjóðin heyrir og sér. Fyrsta
skrefið í þessa átt verður tekið nú
strax í sumar þegar við þéttum
starfsemina í Efstaleiti, losum
efstu hæðirnar og leigjum þær út.
Ávinningurinn verður nýttur beint í
dagskrána.
Pálmi Óskarsson Er ekki
kominn tími til að setja á
laggirnar Rás 3 til að yngja
hlustendahópinn?
Magnús Geir Þórðarson RÚV
er útvarp allra landsmanna. Við
viljum ná betur til nýrrar kynslóð
ar. Það getum við gert ýmsum
hætti og Rás 3 er alls ekki galin
hugmynd. Setjum hana í pottinn!
Tveir leikir á dag í beinni
Útvarpsstjóri boðar HM-veislu á RÚV í sumar og vill efla starfsemi á landsbyggðinni
Nafn: Magnús Geir Þórðarson
Aldur: 40 ára
Starf: Útvarpsstjóri
Menntun: MBA frá Há skól
an um í Reykja vík árið 2005
og árið 2003 lauk hann
meistara námi í leik hús fræði
frá Uni versity of Wales.