Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Síða 27
Helgarblað 23.–26. maí 2014 Umræða 27
Hin hliðin á oddvitunum
n Hafa flest verið nakin í óbyggðum n Fæðing barnanna toppar allt n Björn bragðar ekkert strerkara en te n Ætla að standa við loforðin
1. Hvað gerðir þú síðasta laugardags-
kvöld? Fór í partí hjá ungum sjálfstæðis-
mönnum í Reykjavík.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í
morgun? Af hverju er byrjað svona
snemma að mala grjót við Einholtið?
(Húsið titraði aðeins).
3. Hvað lýsir þér best? Áhugasamur, að
öllu jöfnu geðgóður og langar alltaf til að
gera mitt besta.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
Standandi milli sætanna í Rússajeppan-
um hjá pabba. Já, engin öryggisbelti.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti
kossinn? Í grunnskólanum, sennilega í 5.
eða 6. bekk. Furðulegt en spennandi.
6. Hefur þú einhvern tímann fengið
sæluhroll? Ef já, hvenær og af hverju?
Oft fengið svona sælukast. Oftast í
óbyggðum á kajak eða gangandi. Líka
með krökkunum þegar maður upplifir
hamingjustundirnar og man eftir því að
njóta augnabliksins.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur
gert? Ætli það sé ekki bjargsig og slíkt.
Ég er lofthræddur.
8. Hefur þú verið nakinn í óbyggðum?
Já, ég hef baðað mig upp úr lækjum og
ám í löngum óbyggðaferðum.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en
áfengi? Til dæmis kannabis? Annað?
Nei, ég hef aldrei gert það.
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Ekki
í klóm þeirra en það hefur verið brotist
inn í bílinn minn og hreinsað úr honum.
11. Hefur þú verið tekinn af lög-
reglunni? Já, fyrir of hraðan akstur. Svo
hef ég verið í lögreglunni og tekið aðra
fyrir eitt og annað.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi,
hvar væri það? Ég væri karlinn í tunglinu.
13. Hvað er það sem þú myndir helst
vilja prófa? Mig langar að róa á kajak
frá Reykjavík til Ísafjarðar. Mig langar að
hjóla hringinn. Mig langar til Afríku.
14. Hver er besta stundin sem þú hefur
upplifað? Klárlega fæðing barnanna.
Klisja já, en satt.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
Björk Vilhelmsdóttur, við vorum saman
á fundi áðan. Rifumst ekki, kysstumst
bara.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi
einhvers sem skiptir þig máli? Já, ég
hef gert það en fjölskylda mín æsir sig
ekki upp yfir slíkum hlutum.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu
síðast? Hvaða barni? Ég mætti sinna
þeim miklu meira. En ég hef ekki gleymt
þeim úti í bíl eða slíkt.
18. Hver er einmanalegasta stundin
sem þú hefur upplifað? Einmanaleikinn
og söknuðurinn eftir andlát foreldra
minna.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hef-
ur fengið? Það er holugrillað lambalæri
norður í Lónafirði, Jökulfjörðum, eftir
barning á kajak í eina átta klukkutíma í
skítaveðri.
20. Hefur þú svikið einhvern? Það hefur
komið fyrir, þó án þess að ætla mér það.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum
þínum? Ef já, hvernig? Já, af einlægni.
22. Hvað er það fyndnasta sem
þú hefur séð eða heyrt? Uppátæki
barnanna og orðatiltæki. Sumt er til á
myndbandi.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Það er
tannburstun.
24. Hvað er það versta sem þér hefur
tekist að fyrirgefa? Ég á auðvelt með
að fyrirgefa.
25. Hvert er eftirminnilegasta ferða-
lagið sem þú hefur farið í? Ætli það
sé ekki Kínaferð vegna þess hversu allt
er ólíkt öðru. Ekki endilega jákvætt allt
saman þó.
26. Hver er stærsta stundin í lífi þínu?
Ég verð að segja aftur fæðing barn-
anna, það er stærsta stundin. Man líka
hvað fyrsti skóladagurinn var rosalega
merkilegur.
27. Hver er þín mesta eftirsjá? Ég er
ekki í því að velta mér upp úr hlutunum.
Hefði þó gert margt með öðrum hætti
gæti ég gert það aftur.
28. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni
þegar þið vaknið á morgnana? Með því
að bjóða góðan daginn. Það var algjör
skylda í mínum uppvexti að ávarpa
pabba og mömmu og systkini. Mamma
lagði mikla áherslu á þetta. Sagði að það
gerði daginn bjartari.
29. Hvert yrði þitt fyrsta verk í
hlutverki hins kynsins ef það myndi
breytast? Velta fyrir mér hvað sterkar
kvenfyrirmyndir gera og hvernig. Við
eigum margar sterkar konur sem eru
öðrum fyrirmynd.
30. Hversu mörg kosningaloforð
telur þú að þú getir staðið við? Ég tel
mig geta staðið við þau kosningaloforð
sem við setjum fram. Samheiti þeirra er
breytinga er þörf.
31. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlut-
verki borgarstjóra ef til þess kæmi?
Setja stefnumálin í tímasetta fram-
kvæmd. Passa upp á að borgin sé hrein og
til fyrirmyndar fyrir borgarbúa og gesti.
32. Í þremur orðum: Fyrir hvað stendur
þú? Vinnusemi, reynslu, breytingaþörf.
Hefur verið tekinn af
lögreglu og tekið aðra
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja
prófa? Að vera borgarfulltrúi.
14. Hver er besta stundin sem þú hefur
upplifað? Það er engin ein besta stund til.
Þær eru allar jafngóðar ef maður lifir í núinu.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast?
Sama svar og við fyrsta kossinum.
16. Hefur þú gleymt afmælisdegi
einhvers sem skiptir þig máli? Já, of oft.
Þetta er samt orðið skárra með tilkomu
Facebook.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu
síðast? Hvaða barni? Á ekki barn.
18. Hver er einmanalegasta stundin sem
þú hefur upplifað? Þær voru of margar á
tímabili þegar ég var unglingur til að ég geti
nefnt eina sérstaka.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur
fengið? Lambalærið hjá pabba.
20. Hefur þú svikið einhvern? Já, það hef-
ur komið fyrir. Ekki þó í seinni tíð og ég stefni
á að gera sem minnst af því í framtíðinni.
21. Biðst þú afsökunar á mistökum
þínum? Ef já, hvernig? Nei, ekki nema
mistökin komi einhverjum illa, þá bið ég
viðkomandi auðvitað afsökunar. Mistök eru
í sjálfu sér ekkert til að skammast sín fyrir.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur
séð eða heyrt? Internetið.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á
kvöldin áður en þú ferð að sofa? Fæ mér
kex og mjólk.
24. Hvað er það versta sem þér hefur
tekist að fyrirgefa? Sennilegast er það
ákveðið atvik sem ég lenti í þegar ég var
krakki. Þar voru ókunnugir eldri drengir að
verki þannig að ég hef ekki hitt þá aftur og
veit ekkert hverjir eru í rauninni – en ég hef
fyrirgefið þeim í mínum eigin huga.
25. Hvert er eftirminnilegasta ferðalag-
ið sem þú hefur farið í? Til borgarinnar
Fíladelfíu 2006. Ég gekk mikið um borgina
og sá margar söguslóðir sem tengjast
frelsisbaráttu Bandaríkjamanna.
26. Hver er stærsta stundin í lífi þínu?
Þessi sem ég er að upplifa núna, að vera
oddviti í framboði til borgarstjórnar.
27. Hver er þín mesta eftirsjá? Að hafa
ekki verið góður við alla, alltaf.
28. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni
þegar þið vaknið á morgnana? Ég bý einn,
en ég heilsa kettinum með klappi.
29. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlutverki
hins kynsins ef það myndi breytast? Að
skreppa í kaffi til transvinkonu minnar og
bera saman bækur.
30. Hversu mörg kosningaloforð telur þú
að þú getir staðið við? 42.
31. Hvert yrði þitt fyrsta verk í hlutverki
borgarstjóra ef til þess kæmi? Að halda
almennan opinn íbúafund í Ráðhúsinu,
þann fyrsta af mörgum.
32. Í þremur orðum: Fyrir hvað stendur
þú? Heiðarleika, sanngirni og kærleika.
Halldór Halldórsson oddviti Sjálfstæðisflokks
Framhald á næstu síðu
„Það er engin ein
besta stund til.
Þær eru allar jafngóðar ef
maður lifir í núinu.