Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2014, Side 60
52 Menning Helgarblað 23.–26. maí 2014 Eins og klaufabárðarnir í sprengjuleit Mun betri en stórskrímslamynd síðasta sumars, Pacific Rim M argt hefur breyst síðan síð- asta Godzilla-mynd kom út árið 1998. Meiriháttar ham- farir á meginlandi Banda- ríkjanna virtust þá óhugsandi, en eftir 11. september og fellibylinn Katrinu vitum við mun meira um hvernig slíkar hamfarir myndu líta út í raun- veruleikanum. Hin nýja Godzilla- mynd sækir í minni um flóttamenn í íþróttaleikvöngum eins og við höfum séð í New Orleans, fellibylinn í Fukus- hima og jafnvel kjarnorkutilraunirnar í Bikini-eyjum árið 1954. Og eðli skrímslisins hefur líka breyst. Á 10. áratugnum álitu sumir að Japan væri helsti samkeppnisað- ili Bandaríkjanna og allir verða að taka höndum saman þegar asíska ófreskjan stígur á land. En á 21. öld er það ekki Japan sem þeim stend- ur stuggur af heldur Kína. Er því ekki að undra að í þetta sinn er þessi tákn- mynd japanskrar poppmenningar með Bandaríkjaflota í liði gegn nýjum og hættulegri ófreskjum úr austrinu. Uppbygging myndarinnar er afar lofandi. Í stað Ferris Bueller í hlut- verki drekabanans er hér hópur valinkunnra leikara á ferð, svo sem Juliette Binoche, Bryan Cranston úr Breaking Bad, David Strathairn og Ken Watanabe, og aldrei að vita hver lifir af. Hugmyndin að láta skrímslin nærast á kjarnorku er ágæt og vísar í Godzilla-hefðina. Í hvert sinn sem skrímslin ætla að takast á er þó klippt eins og á klámsíðu sem er að reyna að gera mann að áskrifanda, og maður samþykkir þessa tækni með semingi í von um að þolinmæðin borgi sig að lokum. En í seinni hálfleik fer allt úrskeið- is. Viðbrögð Bandaríkjahers eru fyrst að senda sprengju eitthvert með lest og síðan senda sérsveit til að ná í sprengjuna aftur þegar þetta reyn- ist slæm hugmynd. Eru þeir því pínu eins og klaufabárðarnir í sprengjuleit með einhver skrímsli í bakgrunnin- um. Ráð japanska vísindamanns- ins eru ekki mikið gáfulegri: „Leyfið skrímslunum að berjast.“ Ekki síður kjánalegt er að hetjan segir konu og barni að vera um kyrrt í borg sem er verið að leggja í rúst vegna þess að hann sé á leiðinni. Og síðan sjáum við loksins skrímslin berjast eftir for- skrift japanskra vísinda, sem er ágætt en maður er orðinn fullvanur að sjá borgir lagðar í rúst. Godzilla er þó mun betri en stórskrímslamynd síðasta sumars, Pacific Rim. En ennþá eiga Banda- ríkjamenn eftir að ná fyllilega utan um það fyrirbæri sem Kyrrahafs- skrímslamyndir eru. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmynd Godzilla IMDb 7,4 Leikstjórn: Gareth Edwards. Aðalhlutverk: Aaron Taylor-Johnson, Elizabeth Olsen og Bryan Cranston. Handrit: Max Borenstein. 123 mínútur Elizabeth Olsen Uppbygging myndar- innar er afar lofandi. Í stað Ferris Bueller í hlutverki drekabanans er hér hópur valin- kunnra leikara á ferð. Meðal þeirra sem fara með hlutverk í myndinni eru Juliette Binoche og Elizabeth Olsen. Sigursæll í Boston Gísli Örn Garðarsson var valinn besti leikstjórinn á Elliot Norton- verðlaunahátíðinni í Boston og sýning hans The Heart of Robin Hood vann að auki til verðlauna fyrir bestu sviðshönnun, en þar var fremstur í stafni Börkur Jóns- son. Á síðasta ári var sýningin Hamskiptin valin besta gestasýn- ing ársins, svo Vesturport hefur verið sérlega sigursælt í Boston undanfarin misseri og engin ástæða til að ætla annað en að leikhópurinn eigi sífellt auð- veldara með að hasla sér völl þar ytra. Leikgerðin er skrifuð af David Farr og leikkonan og leikstjórinn Selma Björnsdóttir hefur aðstoð- að Gísla við leikstjórn og séð um kóreógrafíu í verkinu. Högni Eg- ilsson samdi tónlist verksins og Björn Helgason hannaði lýsingu. Fjórða bók Elí Elí Freysson gefur út í sumar- byrjun sína fjórðu bók, Kistuna. Áður hafa komið út Meistari hinna blindu, Ógnarmáni og Kallið. Allt eru þetta bækur í þeim flokki sem kallast fantasíusög- ur, þær gerast allar í sama heimi, eru allar sjálf- stætt framhald af Meistara hinna blindu, þannig að ekki þarf að vera búið að lesa fyrri bækur til að njóta næstu. Seríuna kallar Elí Þögla stríðið. Í síðustu bók Elís var aðal- söguhetjan unglingsstúlkan Katja. Hún er einnig í forgrunni í Kistunni. „Nú er eitt ár liðið frá atburðum fyrri bókarinnar þar sem unglingsstúlkan Katja komst að því að hún er ein þeirra sem fæðast með náðargjafir og skyldu til þess að sporna við yfirnáttúru- legum ógnum, undir leiðsögn lærimeistar síns Serdru. Hún er komin inn í nýjan heim og hefur lifað af fyrstu eldraunina, en er enn að læra,“ segir Elí. Ferðalag inn um afturenda hvals n Viðamikil listsýning við höfnina n Margrét Vilhjálmsdóttir leiðir samstarf fjölda listamanna Ú t um glugga skrifstofunnar hefur blaðamaður fylgst með ævintýralegum tilfæringum við Brimhúsið við höfnina í Reykjavík. Risastór hvalsporð- ur liggur út um hlið hússins. Á öðr- um stað sést glitta í eldrautt ginið. Undarleg hljóð berast stöðugt frá svæðinu og fjölmennt lið listamanna frá Grænlandi, Færeyjum, Íslandi og Danmörku stikar um svæðið í undir- búningi. Fyrir þeim fer Margrét Vil- hjálmsdóttir leikkona íklædd lopa- peysu og grófum skóm. Lífið er lyginni líkast Þegar til stendur að setja á flot risakrækling við höfnina daginn fyrir setningu Listahátíðar geta blaða- maður og ljósmyndari ekki á sér setið og ákveða að fá að fylgjast bet- ur með undirbúningnum. Á planinu fyrir utan Brimhúsið stendur Mar- grét og er meira en til í að leiða þá inn í iður hvalsins. „Lífið er lyginni líkast,“ segir Mar- grét og segir ferðalagið sem hefst í gini hvalsins af andlegum toga þar sem lygi og sannleikur flétt- ast saman. „Ferðalag í gegnum iður hvals er þekkt minni í þjóðsögum landanna í kringum okkar, en líka í trúarbrögðum og skáldsögum.“ Ólíkt metið Við byrjum á öfugum enda. Laum- umst framhjá sporðinum og inn í Brimhúsið þar sem hefur orðið til heill heimur. Margrét og listamenn hafa lagt undir sig helming hússins. Starf- semi fer enn fram í hinum helmingi þess og það er forvitnilegt að fylgj- ast með daglegum verkum í iðnaði úr maga hvalsins, „Við ákváðum að vinna með rýmið og þess vegna eru skil- rúmin gagnsæ,“ segir Margrét. Blaða- maður kemst ekki hjá því að hugsa að vinnusemin skili víst jafn miklu til þjóðarbúsins en sé ólíkt metin til virðingar í samfélaginu. Frelsun eftir ferðalag Út um sporð hvalsins renna gestir sér eftir ferðalagið og Margrét lofar því að þeir sem renni sér út fái við það nokkra frelsun. „Ferðalagið á að fela sér auðmýkt og iðrun, hvalurinn er líka tákn endurfæðingar,“segir Mar- grét. Við fetum áfram öfuga leið. Enginn þjóðsaga segir frá ferða- lagi sem hefst í aftari enda hvals. Það væri enda fremur skrýtin saga. Ákveðið stílbrot, en hvað um það, áfram heldur Margrét um iður hvals- ins og segir frá þessu lygilega ferða- lagi. Verkið kallast Fantastar sem er nokkurs konar skáld. Það eru eyj- arnar þrjár, Grænland, Færeyjar og Ísland, sem eru í brennidepli hvað varðar sögur og spádóma. Margrét hefur fengið til liðs við sig spákon- ur sem verða með lýsingar af Skype. „Við verðum með nokkrar spákonur sem miðla sýnum sínum.“ Hjarta dýrsins Við förum úr maga hvalsins þar sem er tilkomumikið verk. Alls staðar leika umhverfishljóð, tónlist, sjón- hverfingar og brellur ýmiss konar hlutverk. Það er ekki alveg óhætt að segja frá öllum smáatriðum. Það er svo margt sem þarf að koma á óvart. Óhætt er þó að segja frá hjarta dýrsins, sem er tilkomumikið. Þang- að er erfitt að feta sig eftir ísilagðri braut. Sérstakir bjargvættir leiða gesti þá hættubraut (ekki neitt svo svakalega erfitt fyrir þá sem geta fót- að sig á svelli). Af ísnum blasir svo risastórt hjartað við gestum, situr á stórri skipsskrúfu. Þegar okkur ber að eru tónlistarmenn að undirbúa tónsmíðar við hjartað. Gestir eiga magnaða upplifun í vændum. Spil- að er á skipsskrúfuna með einstök- um áhrifum. Heilagir og leyndardómsfullir hvalir Við endum svo á tungu hvalsins, rétt innan við rauðmálað ginið, þar er lygamælir sem Margrét er þögul um. „Hvalurinn er svo merkileg skepna. Hann er álitinn heilagur í ýmsum trúarbrögðum. Alla vega hafa hvalirnir ver- ið sveipaðir leyndardómsfullum blæ frá aldaöðli og átt mikinn þátt í ýmiss konar kynjasögum.“ Sýningin mun ekki eingöngu vera inni í Brimhúsinu því sjósettur risakræklingur er í höfninni hjá Brimhúsinu og fljótandi hljóðfæri er hluti af sýningunni. Þótt lýsingin sé dramatísk þá er hún fyrir bæði börn og fullorðna, ævintýri fyrir átta ára og eldri. Á sýn- ingunni fá gestir að kynnast lista- mönnum og túlkun nágranna okkar frá Grænlandi og Færeyjum og áætl- að er að ferðast með sýninguna til Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Á tungu hvalsins Margrét Vilhjálmsdóttir og liðsmenn hennar í Fantastar hafa útbúið ævintýraheim við höfnina. MynDIr SIGtryGGur ArI umbreyting Inni í Brimskálanum er orðin til heil veröld risaskepnu. Gestir ganga inn í hvalinn og leið þeirra liggur um maga hans, hjarta og höfuð þar til þeir renna sér út um sporðinn upplýstir og reynslunni ríkari. „Lífið er lyginni líkast

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.