Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 2
Spessi ljósmyndari, réttu nafni Sigurþór Hall- björnsson, messaði yfir helstu forkólfum atvinnulífsins eftir að hann laumaði sér inn á fund í félagsmálaráðuneytinu. Félags- málaráðherra lokkaði hann út úr ráðuneyti með loforði um fund með sér og ljósmyndarinn útilokar ekki að ryðjast inn á fleiri ráðherra þurfi hann að koma skoðunum sínum á framfæri. hitt málið Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni afskrifaði tugi milljarða Samkvæmt heimildum DV var lán 1998 ehf. verðmetið á um 17 milljarða króna af starfsmönnum skilanefnd- ar Kaupþings þegar lánið fór yfir í Nýja Kaupþing sem í dag ber nafnið Arion banki. 1998 ehf., sem er móðurfélag Haga, var stofnað sumarið 2008 og fékk þá 30 milljarða króna lán í evrum hjá Kaupþingi sam- kvæmt lánabók Kaupþings sem birt- ist á vefsíðunni Wikileaks. Miðað við lækkun krónunnar stæði það lán í 48 milljörðum í dag. Ef Arion banka tekst að fá meira en 17 milljarða króna fyrir lánið fer mismunurinn til skilanefnd- ar Kaupþings. Bæði Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, og Jóhannes Jónsson kaupmaður þræta fyrir afskriftir 1998 ehf. í samtali við DV. rassía saksóknara Fyrrverandi stjórnarmenn í Byr sparisjóði sæta rannsókn hjá sérstökum saksóknara vegna láns sem Byr veitti Tæknisetri Arkea/Exeter Holding til að kaupa stofnfjár- bréf sem voru í eigu þeirra. Sjálf- ir höfðu þeir áður tekið lán hjá MP Banka til að kaupa bréfin og voru í per- sónulegum ábyrgðum. Með sölu bréf- anna sluppu þeir við að eiga á hættu að verða gjaldþrota ef MP Banki gengi að þeim vegna skuldanna. Embætti sérstaks saksóknara, Ólafs Hauksson- ar, gerði húsleit hjá sparisjóðnum Byr í Borgartúni og hjá MP Banka í Skip- holti á mánudag í tengslum við rann- sóknina á Exeter-málinu svokallaða. Áður hafði ekki komið fram að embættið væri einnig að rannsaka MP Banka í rannsókninni. leyndarleikur yfirvalda Fjármálaeftirlitinu bar að sjá til þess að inn- herjaupplýsingar um grafalvarlega stöðu Landsbankans á miðju árinu 2008 yrðu birtar. Fulltrúar Fjármálaeftirlitsins sátu sömu fundi og Baldur Guðlaugs- son, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, síðastliðið sumar. Fram kemur í bók Styrmis Gunnarssonar að Landsbankinn hafi nánast verið við dauðans dyr í lok júlí í fyrra. Ætla má að Baldur, fulltrúar Fjár- málaeftirlitsins og aðrir í sam- ráðshópi um fjármálastöðugleika hafi fjallað um svo alvarlegar upplýsingar, sem þeim bar þá að greina frá. Gegn þessu stendur að hvorki FME, Seðlabankinn né stjórnvöld þóttust með góðu móti geta birt svo alvarlegar upplýsingar vegna hættu á áhlaupi á Landsbankann og um leið sett aðra banka í stórhættu. Fjármálaeftir- litið hafði enga heimild í lögum til þess að halda þeim upplýsingum leyndum. 2 3 1 6 miðvikudagur 25. nóvember 2009 fréttir Þorgríms Þráinssonar Þorgrímur drekkti Evu Joly Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksókn- ara vegna bankahrunsins, hefur ver- ið drekkt. Morðið átti sér stað í Bláa lóninu og er kveikjan að sakamála- þræði nýjustu unglingabókar Þor- gríms Þráinssonar, 009. Í bókinni glíma íslenskir ungling- ar við gátuna bak við morðið á ráð- gjafanum í lóninu. Ekki nóg með það heldur þurfa þeir einnig að leysa gát- una bak við ránið á tónlistarmannin- um Björk Guðmundsdóttur í Rúss- landi og koma í veg fyrir að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sé sprengdur í loft upp á Ráðhústorginu á Akureyri, nánar tiltekið á þjóðhá- tíðardegi Bandaríkjamanna. Þessi nýja bók Þorgríms er sjálf- stætt framhald bókanna Svalasta 7an og Undir 4 augu. Aðspurður telur Þor- grímur það hafa verið nauðsynlegt að myrða Evu Joly til að koma boðskap sínum áleiðis til unglinga. „Það er al- veg rétt að Eva Joly finnst myrt í Bláa lóninu. Það sem ég er að gefa í skyn í bókinni er að það er miklu meira í gangi í þjóðfélaginu heldur en blasir við. Með bókinni vonast ég til að fá unglingana til að hugsa að ekki sé allt sem sýnist. Þannig blanda ég raun- verulegum persónum inn í söguna og þurfti því miður á fórna Joly, þó svo að ég hafi gríðarlega mikið álit á henni,“ segir Þorgrímur. „Mér þykir gaman að geta bland- að spennandi söguþræði inn í at- burði sem eru að gerast hjá okkur í dag. Því miður þurfti Eva Joly bara að láta lífið fyrir málstaðinn. Hún finnst myrt og undir grun liggja nokkrir út- rásarvíkingar. Á sama tíma er Björk rænt í Rússlandi og rússneskri stelpu rænt hér á landi. Þetta er svona James Bond-spennusaga fyrir unglinga sem gerist hér á Íslandi.“ trausti@dv.is Myrt Eva Joly finnst myrt í Bláa lóninu og íslenskir unglingar rannsaka málið. Mynd Heida Helgadottir Mikil spenna Þorgrími fannst tilvalið að blanda saman raunverulegum atburðum og spennu í bókinni 009. Fáklæddar kven- félagskonur Kvenfélag Biskupstungna stend- ur fyrir óvenjulegri fjáröflun þetta árið. Kvenfélagið gefur út dagatal innan skamms þar sem kvenfélagskonurnar sitja naktar fyrir á fallegum listræn- um myndum. Ein af kvenfé- lagskonunum, Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir, segir uppátæk- ið vera til fjáröflunar fyrir félagið sem styrkir ýmis góð málefni og vildu þær einnig gera fjáröflun- ina skemmtilega í ár. „Flest allar myndirnar eru í þessum dúr. Svo eru myndir af kvenfélagskon- um einum og sér í leik og starfi ásamt öðrum hópmyndum,“ segir Sigríður Jónína í samtali við DV. Hún segir ágóðann af sölu dagatalsins fara í tækjakaup fyrir íþróttahúsið í Reykholti og til annarra góðgerðarmála. Daga- talið er til sölu á garn.is. Samkvæmt heimildum DV var lán 1998 ehf. verðmetið á um 17 milljarða króna af starfsmönnum skilanefndar Kaupþings þegar lánið fór yfir í Nýja Kaupþing sem í dag ber nafnið Arion banki. „Þegar stóru lánin voru flutt frá gamla bankanum yfir í nýja bankann voru þau öll verðmetin. Það var í raun áætlun um hvað fengist fyrir þau. Lán fyrirtækja voru metin út frá sjóðs- streymi, undirliggjandi eignum, fast- eignum ef því var að skipta, líkum á endurgreiðslu og EBIDTU margföld- urum,“ segir heimildarmaður DV sem vill ekki láta nafns síns getið. Ef Arion banka tekst að fá meira en 17 millj- arða króna fyrir lánið fer mismunur- inn til skilanefndar Kaupþings. 30 milljarða afskriftir 1998 ehf., sem er móðurfélag Haga, var stofnað sumarið 2008 og fékk þá 30 milljarða króna lán í evrum hjá Kaupþingi samkvæmt lánabók Kaup- þings sem birtist á vefsíðunni Wiki- leaks. Miðað við lækkun krónunnar stæði það lán í 48 milljörðum í dag. Því er ljóst að skilanefnd Kaupþings þarf væntanlega að afskrifa um 30 milljarða króna af skuldum 1998 ehf. en það tjón mun væntanlega leggj- ast á erlenda kröfuhafa. Á mánudag fékk Arion banki tilboð frá Jóhannesi Jónssyni kaupmanni, erlendum fjárfest- um og stjórnend- um Haga um fjárhagslega endurskipu- lagningu 1998 ehf. sem er móð- urfélag Haga. Í yf- irlýsingu frá Arion banka kom fram að samkvæmt tilboðinu komi ekki til neinna afskrifta á skuldum 1998 ehf. Þræta fyrir afskriftir Í samtali við DV sagðist Finnur Svein- björnsson, bankastjóri Arion banka, ekki mega tjá sig um það hvort lán 1998 ehf. hefði farið yfir í Nýja Kaup- þing, nú Arion banka, á 17 milljarða króna. Bæði Finnur og Jóhannes Jóns- son hafa fullyrt að ekkert verði afskrif- að af skuldum 1998 ehf. DV sagði frá því á mánudag að talið væri að erlend- ir fjárfestar kæmu með sjö til tíu millj- arða króna í nýtt hlutafé til 1998 ehf. og fengju fyrir það 60 prósenta hlut í fyrirtækinu. Ef þeir fá 60 prósenta hlut fyrir tíu milljarða króna þá er fyrirtæk- ið metið á 16,7 milljarða króna. „Ég ansa ekki svona helvítis bulli. Þetta á ekki við rök að styðjast og ég ansa þessu ekki,“ segir Jóhannes Jóns- son kaupmaður þegar blaðamaður spyr hann hvort það sé ekki rétt að skilanefnd Kaupþings hafi metið lán 1998 ehf. á 17 milljarða króna þeg- ar það fór yfir í Nýja Kaupþing. End- urskoðandi sem DV ræddi við taldi ógerlegt fyrir 1998 ehf. að standa und- ir 48 milljarða króna skuldum. „Þú verður bara að fara eftir þeim,“ seg- ir hann þegar hann er spurður hvort ekki sé rétt að 1998 ehf. geti ekki stað- ið undir 48 milljarða króna skuldum. Fráleitt að þræta Heimildarmaður DV segir það sæta furðu að Finnur haldi því fram að ekki komi til neinna afskrifta. Samkvæmt skýrslu fyrir kröfuhafa Kaupþings sem var uppfærð í október síðastliðn- um kemur fram að mismunur á milli eigna og skulda Nýja Kaupþings, nú Arion banka, er áætlaður 38 millj- arðar króna. Er um að ræða svokall- að verðmatsbil. Heimildarmaður DV segir að ef lán 1998 ehf. hefði farið yfir í Nýja Kaupþing á 48 milljarða króna en raunvirðið væri ekki nema 17 millj- arðar króna myndi bara þetta einstaka lán nánast sprengja verðmatsbilið fyr- ir öll lán bankans. Það sé því fráleitt af Finni að halda því fram að ekkert verði afskrifað af skuldum 1998 ehf. „Regl- an var sú að meta lán á sem réttustu verði miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir þegar þau voru voru metin. Auðvitað vildi Arion banki hafa þetta sem lægst svo að hann þyrfti ekki að fara í afskriftir. Skilanefnd er hins vegar að vinna fyrir erlenda kröfu- hafa og þarf að sýna þeim að hún hafi fengið sanngjarnt verð fyrir lánin,“ segir heimildarmaðurinn. Óraunhæfur frestur Samkvæmt yfirlýsingu frá Arion banka er niðurstöðu vegna tilboðs frá Jóhannesi Jónssyni og aðilum tengd- um honum að vænta um miðjan jan- úar. Heimildarmaður DV segir að það sé í raun ótrúlegt að bankinn ætli að taka sér svona langan tíma til að fara yfir málefni 1998 ehf. „Það er ekki eðlilegt, ef það þarf ekkert að afskrifa af skuldinni, að taka svona langan tíma. Ef þetta er sömu aðilarnir ættu þeir að vita hvað þeir eiga fyrir. Ef það koma nýir aðilar segir í verklagsregl- um bankans að eigendur megi koma inn með nýtt fé. Þá eru komnir ein- hverjir allt aðrir aðilar. Eiga þeir ein- hvern rétt á tveggja mánaða áreiðan- leikakönnun. Verðmat liggur fyrir og það hefur verið framkvæmt af mörg- um mismunandi aðilum. Það þarf ekki svona langan tíma vegna þess,“ segir heimildarmaðurinn. Finnur Sveinbjörnsson Jóhannes Jónsson SkilaneFnd kaupþingS aFSkriFaði 30 milljarða annaS SigMundSSon blaðamaður skrifar: as @dv.is Helvítis bull Jóhannes Jónsson kaupmaður segir að það sé helvítis bull að skilanefnd Kaupþings hafi metið lán 1998 ehf. á 17 milljarða króna. tjáir sig ekki Finn- ur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, segist ekki mega tjá sig um hvað lán 1998 ehf. var verðmetið á. 30 milljarða afskriftir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, og starfsmenn hans þurfa væntanlega að afskrifa 30 milljarða króna af skuldum 1998 ehf. katrín fyrirgefur klámbúlluheimsókn „Þetta er þeirra niðurstaða og þeir reka þarna sjálfstæð samtök. Ég hef komið mínum sjónarmiðum á framfæri og samtökin hafa beðist afsökun- ar,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menningar- og menntamála- ráðherra. Stjórn KSÍ hefur beðið þjóðina afsökunar á för Pálma Jónssonar, fjármálastjóra KSÍ, á klámbúllu í Sviss. Formlegar siðareglur verða settar hjá KSÍ. Femínistafélag Íslands, Samtök um kvennaathvarf og Stígamót fordæma niðurstöðuna. Selur helming í Skeljungi Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. annast mögulega sölu á 49% hlut í Skeljungi hf., S fasteignum ehf., Ö fasteignum og Birgða- stöðinni Miðsandi ehf. sem eru í dag í eigu Miðengis ehf., dóttur- félags Íslandsbanka hf. Hentu Molotov- kokteil í skilti Á sunnudagskvöldið barst lögreglunni í Vestmanna- eyjum tilkynning um að upplýsingaskilti, sem er við útsýnispallinn í hlíðum Eld- fells, stæði í ljósum logum. Var ljóst að kveikt hefði verið í skiltinu. Við rannsókn lög- reglu bárust böndin fljótlega að þremur mönnum um tví- tugt sem höfðu keypt bensín fyrr um kvöldið á einni af bensínstöðvum bæjarins. Í framhaldi af því voru þeir boðaðir á lögreglustöð þar sem þeir viðurkenndu við yfirheyrslu að hafa kveikt í skiltinu með því að henda svokölluðum Molotov-kokteil í skiltið. Gáfu þeir þá skýr- ingu á hegðun sinni að þeir hefðu verið í leit að spennu. 8 miðvikudagur 25. nóvember 2009 fréttir Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi 17-26 okt. Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32 Opið til 22:00 alla daga Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari, segir ekkert benda til þess að embætti saksóknara hafi lekið upplýs- ingum til fjölmiðla um mál Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneyt- isstjóra. Karl Axelsson, lögfræðingur Bald- urs, ritaði langa grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann sakaði bæði Fjár- málaeftirlitið og embætti sérstaks sak- sóknara um að leka upplýsingum til fjölmiðla. „Sá ítrekaði leki hefur svo alltaf átt sér stað á þeim tímapunkti þegar það hentaði ímyndarherferð viðkomandi embætta best en Baldri verst.“ Gunnar Andersen, forstjóri FME, og sér- stakur saksóknari neita þessum áburði. Ólafur Þór Hauks- son, sérstakur sak- sóknari, segir í yfir- lýsingu að um tugur manna hafi verið yf- irheyrður í tengslum við rannsókn málsins. Óskað var eftir kyrrsetningu eigna Baldurs í tengslum við rannsókn á meintum innherjasvikum hans er hann seldi hlutabréf sín í Landsbank- anum fyrir um 180 milljónir króna dagana 19. og 22. september síðast- liðinn. Kyrrsetningarmálinu lauk 13. nóvember síðastliðinn og hófst um- fjöllun fjölmiðla eftir það, segir í yfir- lýsingu Ólafs. „Rannsókn málsins var því orðin á vitorði fjölda manna utan embættis sérstaks saksóknara og því hæpið að fullyrða að um sé að ræða leka frá embættinu.“ Glæpur FME meiri en Baldurs Kyrrsetning eigna Baldurs er fengin í tengslum við rannsóknarhagsmuni og byggist á lögum um meðferð sakamála. Í 88. grein laganna segir að til tryggingar greiðslu sektar, sakarkostnað- ar og upptöku ávinnings, sem aflað hefur ver- ið með broti, getur lögregla krafist kyrrsetn- ingar hjá sakborn- ingi ef hætta þykir á að eignum verði ella skotið undan eða þær glatist eða rýrni að mun. Karl Axelsson, lögfræðingur Bald- urs, vísar til laga um verðbréfavið- skipti, en þar eru margvísleg ákvæði um innherjaviðskipti og upplýsinga- skyldu. Hann vekur athygli á ákvæð- um um upplýsingaskyldu og segir að í þeim lagaákvæðum felist að innherja- upplýsingar um félög, sem skráð eru á verðbréfamarkaði, séu „ ...upplýsing- ar sem skylt er að gera opinberar fyr- ir almenningi. Teljast upplýsingarnar til innherjaupplýsinga þangað til þær hafa verið birtar.“ Rík skylda er með öðrum orðum til þess að birta upp- lýsingar opinberlega og tímanlega þannig að almenningur hafi virkan og jafnan aðgang að þeim. Baldur á að hafa fengið innherja- upplýsingar á fundum starfs- hóps um fjár- málastöð- ugleika sem hann átti sæti í. Karl bendir á að hafi Bald- ur fengið þar í hendur innherjaupp- lýsingar hafi verið skylt að birta þær. Í starfs- Baldur Guð-laugsson Styrmis Gunnarssonar Stjórnvöld leyndu innherjaupplýSingum Jóhann haukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Fyrrverandi forstjóri FME Jónas Fr. Jónsson hlaut að hafa sömu upplýsingar og aðrir um grafalvarlega stöðu Landsbankans síðastliðið sumar. FME bar að birta þær. Meintur innherji Baldur Guðlaugsson er grunaður um innherjasvik. Margt bendir til þess að hann hafi selt hlutabréf í skjóli afglapa sem FME framdi. fréttir 25. nóvember 2009 miðvikudagur 9 „Við höfum engar áhyggjur af þessu. Staða World Class hér hefur ekkert breyst þó að einhverjar kennitölur hafi breyst í rekstrinum. Það skipt- ir okkur engu máli og kemur okkur ekkert við,“ segir Haukur Geirmunds- son, yfirmaður íþrótta- og æskulýðs- mála Seltjarnarneskaupstaðar. Vegna greiðsluþrots rekstrarfé- lags World Class, Þreks ehf., hefur rekstur líkamsræktarstöðvanna ver- ið færður yfir til móðurfélags World Class, Lauga ehf. Viðskiptamannahópur og leigu- samningar hafa verið færðir til bjarg- ar rekstrinum. Líkamsræktarstöð World Class á Nesinu færist einnig yfir á aðra kennitölu en samkvæmt upplýsingum frá bænum eru kenni- tölur beggja fyrirtækja, annars veg- ar hins greiðsluþrota fyrirtækis Þreks ehf. og hins vegar móðurfélags World Class, Lauga ehf., að finna í samstarfssamningi. Haukur staðfestir að World Class hafi tilkynnt bæjarfélaginu kenni- tölubreytingu. „Okkar samskipti hafa ekki breyst enda erum við með sam- starfssamning við bæði félögin. Í dag er staðan ósköp eðlileg en ef eitthvað annað kemur í ljós fáum við lögfræð- ing til að skoða það,“ segir Haukur. trausti@dv.is World Class óbreytt á Nesinu hópnum sat einnig fulltrúi Fjármála- eftirlitsins. FME var lögum samkvæmt skylt að tryggja að slíkar upplýsingar yrðu birtar. Sé sá möguleiki raunverulega fyr- ir hendi að tilkynningaskyldar upp- lýsingar hafi komið fram á fundi umrædds starfshóps um fjármála- stöðugleika ber sérstökum saksókn- ara, að mati Karls, að hefja rannsókn á því hvort starfsmenn Fjármálaeftir- litsins hafi sinnt starfsskyldum sínum á fundum sem þeir sátu sjálfir. „Þetta sakarefni sýnist vera miklu brýnna en sakirnar á hendur ráðuneyt- isstjóranum fyrrverandi.“ Karl er þó ekki viss um að fram hafi kom- ið innherjaupplýs- ingar á umræddum fundum fyrir og eftir 1. september í fyrra aðrar en þær sem allir höfðu. Landsbankinn í öndunarvél á miðju sumri Upplýsingar, sem birtar eru í Umsá- trinu, nýrri bók Styrmis Gunnarsson- ar fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðs- ins, vísa flestar til þess að stjórnvöld, en fyrst og fremst Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið, hafi vitað meira um alvarlega stöðu bankanna og mun fyrr en talið hefur verið. FME dró þó held- ur úr vandanum þótt alvarlegar at- hugasemdir hefðu komið frá breska fjármálaeftirlitinu. Þannig liggja fyrir upplýsingar um mjög hörð og afdrátt- arlaus samskipti milli breska fjármála- eftirlitsins og Mervyn King, seðla- bankastjóra Englandsbanka, annars vegar og Seðlabanka Íslands og FME hins vegar. Þá liggur einnig fyrir að aðrir seðlabankar og fjármálaeftirlit- ið í Hollandi höfðu allt á hornum sér enda byrjaði Landsbankinn að safna sparifé í Hollandi svo seint sem 29. maí 2008, innan við þremur mánuð- um áður en í óefni var komið. Að því er fram kemur í bók Styrmis voru Landsbankamönnum settir úr- slitakostir af hálfu Breta um að flytja yrði Icesave í dótturfélag Landsbank- ans í Bretlandi og þar með í þarlenda lögsögu fyrir lok ágústmánaðar í fyrra. „Náist ekki samkomulag verði starf- semi Landsbankans í Bretlandi stöðv- uð.“ Ótrúverðugur Seðlabanki Samkvæmt upplýsingum Styrmis fylgdi sá böggull skammrifi að flytja þurfti fimmtung eiginfjár Landsbank- ans til Bretlands sem tryggingu á móti Icesave-innstæðunum. Bankinn þurfti því á hundraða milljarða króna láni að halda sem vonlaust virtist vera að fá erlendis. Í frásögn Styrmis höfðu eftirfar- andi boð komið frá breska fjármála- eftirlitinu þegar í lok júlí í fyrra: „Efna- hagsástandið á Íslandi er að okkar mati verra en þið viljið halda fram og í því felst að áhættan fyrir breska innstæðueigendur í Landsbankan- um er meiri. Við teljum ekki að Seðla- banki Íslands geti verið lánveitandi til þrautavara eða að hann geti fjármagn- að innstæðukerfið íslenzka.“ Leyndu stjórnvöld innherjaupp- lýsingum? Karl Axelsson getur ekki um upplýs- ingar Styrmis í grein sinni. Fullyrða má hins vegar að Baldur hafi haft þær undir höndum. Hafi þær bent sterk- lega til þess að Landsbankinn væri í vonlausri stöðu og því sem næst kom- inn í öndunarvél var um innherjaupp- lýsingar að ræða sem Fjármálaeftir- litinu var skylt að birta en gerði ekki. Augljóslega var þarna um að ræða upplýsingar sem gátu haft áhrif á gengi hlutabréfa í bankanum. Allir hluthafar eiga lögum samkvæmt að standa jafn- ir frammi fyrir slíkum upplýsingum, hvort sem þær hafa áhrif til hækkunar eða lækkunar á gengi hlutabréfa. Gegn þessu stendur að hvorki FME, Seðlabankinn né stjórnvöld þóttust með góðu móti geta birt svo alvarlegar upplýsingar vegna hættu á áhlaupi á Landsbankann og um leið sett aðra banka í stórhættu. Þannig má álykta að embættis- menn og stjórnvöld hafi talið sig hafa upplýsingar í höndum sem þau neyddust með ólög- legum hætti til þess að halda leyndum. Lögfræðingar, sem DV hefur leitað til, telja enga heimild í lögum til þess að víkja frá lagabókstafn- um í þessu efni. Hafi þær bent sterk- lega til þess að Lands- bankinn væri í von- lausri stöðu og því sem næst kominn í öndun- arvél var um innherja- upplýsingar að ræða sem Fjármálaeftirlit- inu var skylt að birta en gerði ekki. Alvarlegri staða en menn héldu Styrmir Gunnarsson birtir í bók sinni upplýsingar sem sanna að stjórnvöld máttu vita fyrir víst um mitt sumar í fyrra að Landsbankinn var á heljarþröm. Sérstakur saksóknari Ólafur Þór Hauksson vísar á bug ásökunum um að hafa lekið upplýsingum um kyrrsetningu eigna Baldurs. 2 föstudagur 27. nóvember 2009 fréttir Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Laugavegi 178, 105 Rvk sími 551-3366 www.misty.is opið mán-fös 10-18, lau 10-14 Teg. Suzanna - virkilega flottur “push up” í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.885,- Teg. Amelia - glæsilegur “push up” í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.885,- Teg. Melange - rosa fallegur “push up” D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 6.885,- Teg. Suzanna Teg.Amelia Teg. Melange F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð Stjórnvöld leyndu innherjaupplýSingum löggan vaktar fjögur vændishús 17.000 þrælar í Banda- ríkjunum Bækur fréttir þorgrímur drekkti evu joly fréttir neytendur tuBorg BeStur erlent húsrannsókn á BYR og MP Banka: BækurSíðaSta fullnægingin 31 milljarður afSkrifaður dv.is miðvikudagur og fimmtudagur 25. – 26. SEPTEMBER 2009 dagBlaðið víSiR 156. TBl. 99. áRg. – vERð kR. 395 Slapp við gjaldþrot jón þorSteinn jónSSon og fleiri fyrrverandi Stjórnarmenn grunaðir jón var einn nóatúnS- manna Sem tóku Barnalán Byr lánaði til að kaupa Bréf af Stjórnarmönnum Stjórnendur Sluppu við perSónulegar áByrgðir mp Banki loSnaði við Bréf fréttir dv Bragðar jólaBjórinn fréttir naut góðS af viðSkiptunum rannSakar lán ByrS til exeter var Búinn að miSSa Bréf Sín Bók aBl að RUDDIST INN Á FUND RÁÐHERRA Sigurþór Hallbjörnsson ljósmyndari, oftast kallaður Spessi, ruddist inn á f d félagsmálaráðherra, Árna Páls Ár so ar, og hélt yfir honum þrumu- ræðu. Ræðuna lét hann ekki aðeins gossa á ráðherrann heldur sátu fund- inn allir helstu forystumenn atvinnu- lífsins hér á landi. Atburðurinn átti sér stað í síðustu viku þegar Spessi, ásamt félaga sín- um, vonaðist til að hitta á Yngva Örn Kristinsson, fyrrverandi forstöðu- mann hagfræðisviðs Landsbankans og starfsmann félagsmálaráðuneyt- isins, og veita honum siðbót. Siðbót þessi er í formi bótar sem hægt er að sauma á fatnað og eru skilaboð til við- komandi um að bæta ráð sitt siðferð- islega. Yngvi Örn krefst 230 milljóna króna í laun frá þrotabúi Landsbank- ans og hefur verið gagnrýndur talsvert fyrir kröfu sína. Félagarnir tveir voru óheppnir að þessu sinni því hann var ekki staddur í ráðuneytinu. Hafði ekki tíma „Við félagarnir vorum þarna komnir til að gefa Yngva Erni siðbót, eiginlega siðbót til að sauma á fötin sín. Þegar við kom- um í ráðuneytið var hann ekki við og fyrir til- viljun hitti ég á ráðherrann. Ég skammaði hann sam- stundis fyr- ir það að hafa ráðið til sín siðleys- ingja í ráðu- neytið en hann hafði engan tíma til að tala við mig. Árni Páll gekk því í burtu og inn á fund. Ég varð pínu reiður og ákvað bara að ryðjast inn á fundinn en laumaði mér inn um aðrar dyr,“ segir Sigurþór. „Ég elti ráðherrann þannig inn á fundinn og þegar þangað var komið sat öll félagsmálaelítan fyrir framan mig. Þarna voru allir forkólfar atvinnu- lífsins. Ég ákvað að nota tækifærið og messaði bara yfir þeim öllum. Ég lét þá bara heyra það og tók mér nokkrar mínútur í það.“ Jaðrar við dónaskap Á fundinum voru meðal annars, fyr- ir utan félagsmálaráðherra, Gylfi Arn- björnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins. Sigurþór segir fundarmenn hafa tekið innrásinni með ró en gefur lítið fyrir svör þeirra við þrumuræðu sinni. Aðspurður telur hann eðlilegt að allir helstu gerendur bankahrunsins verði að víkja. „Svörin sem ég fékk voru þau að þeir væru allir að vinna í þessum málum en staðreyndin er sú að það er nánast ekkert búið að gera. Nú er fólk að missa húsin sín úti um allt og stað- an er virkilega slæm. Menn eru ekki alveg vaknaðir eftir hrunið því flestir gerendurnir eru enn á sínum stöðum í kerfinu. Í bönkunum eru ennþá sömu gerendurnir og þeir verða að fara að sýna fólki þá virðingu að það voru þeir sem klúðruðu málunum en ekki fólkið í landinu. Mér finnst framkoma í garð almennings jaðra við dónaskap,“ segir Sigurþór. Gerir það sem þarf Eftir að hafa hellt úr skálum reiði sinn- ar var Sigurþór vísað á dyr en félags- málaráðherra tókst að lokka hann út úr húsinu með loforði um fund á næst- unni. Sigurþór útilokar ekki að ryðjast inn á fleiri fundi hjá ráðherrum. „Ég sagði bara við þá; ég fer ekki neitt því ég þarf að ræða aðeins við ykkur. Eftir að hafa hellt úr skálum reiðinnar í smá stund var mér vísað út. Þegar ég var búinn að messa smá yfir þeim sagði Árni Páll við mig að hann vildi hitta mig. Þannig að ég fékk út úr þessu fund með ráðherra og ég vona að hann standi við það loforð í næstu viku. Ég er ánægður með að fá þann fund því eftir þann fund vonast ég til þess að allt muni breytast,“ segir Sigurþór. „Mér fannst mjög flott, ekki bara að hitta á ráðherra fyrir tilviljun, að hitta á alla elítuna á einu bretti. Ég viðurkenni að ég var svolítið reiður en þannig líður mér bara. Ég nenni ekki lengur að hanga stöðugt á einhverj- um stöðum heldur er miklu betra að ryðjast bara inn á fundina. Ég mæli með því. Fólk á til dæmis að fara bara beint inn í bankana og heimta aðgerð- ir. Sjálfur geri ég bara það sem ég þarf til að koma mínum skilaboðum áleið- is. Ég er ekki búinn að plana að ryðj- ast inn á fleiri ráðherra en ef ég þarf að ræða við einhvern fer ég bara beint á staðinn.“ TrauSTi HafSTeinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Ég sagði bara við þá; „ég fer ekki neitt því ég þarf að ræða aðeins við ykkur.“ Eftir að hafa hellt úr skál- um reiðinnar í smá stund var mér vís- að út.“ uppreisnarmaður Spessi helti úr skálum reiði sinnar á fundi félagsmálaráðherra á dögunum. Hann vonast til þess að fundur með ráðherra breyti öllu. Vísað út Eftir nokkurra mínútna þrumu- ræðu ljósmyndarans náði Árni Páll honum út úr ráðuneytinu með loforði um fund. Á fullu Vilhjálmur og aðrir fundar- menn sögðust vera að vinna í málunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.