Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 30
30 föstudagur 27. nóvember 2009 helgarblað
Verður maður ekki að vera ánægður með þetta? Það er alltaf gaman þegar einhverjum finnst maður gera eitthvað rétt og ég er sérstaklega ánægður með að sigra Loga Bergmann,“ segir
Sigmar Guðmundsson, nýkjörinn besti sjónvarpsmað-
ur Íslands. Álitsgjafar DV segja Sigmar oftast vel undir-
búinn og að hann setji viðmælendur sína í aðalhlutverk
frekar en sjálfan sig. Sigmar segir eitthvað til í því en að
hvert viðtal sé sérstakt. „Þetta fer eftir umræðuefninu og
viðmælandanum hverju sinni, stundum þarf að spyrja
meira og stundum minna,“ segir hann og bætir við að
honum líki vel að stjórna jafnólíkum þáttum og Kastljósi
og Útsvari. „Ég er ánægður með að hafa þetta tækifæri,
að stjórna svona ólíkum þáttum. Mér finnst þetta tvennt
fara vel saman en veit að sumum finnst það ekki. Kast-
ljósið er svo fjölbreytilegur þáttur en þar er ég kannski að
ræða við skemmtikraft í upphafi þáttar en tek svo viðtal
við forsætisráðherra svo það er ekki eins og ég sé steyptur
í sama formið þar.“
Sigmar byrjaði ungur að starfa á fjölmiðlum en árið
1992 var hann á Aðalstöðinni, þaðan fór hann á útvarps-
stöðina X-ið en svo lá leiðin á Rás 2. „Alveg frá því ég var
unglingur hef ég ætlað að starfa við fjölmiðla. Ég byrjaði
í útvarpinu en sjónvarpið er allt öðruvísi miðill. Eftir smá
tíma á X-inu fann ég að ég gæti ekki verið þar til frambúð-
ar enda hefur stefnan alltaf verið á fréttir. Ég hef mest-
an áhuga á umfjöllum um samfélagið í heild sinni,“ segir
besti sjónvarspmaður landsins að lokum. indiana@dv.is
1. sæti
sigmar guðmundsson
„Vel undirbúinn og jafngóður hvort sem hann er að lesa
texta eða spinna í Útsvari. Getur verið mjög beittur spyrill og
gefur fólki ekki möguleika á að teygja lopann. Er vel að sér í
málum. Kemur eins fram við alla. Passar að vera ekki sjálfur í
aðalhlutverki.“
„Virðist hafa meiri áhuga á viðmælandanum og umræðuefninu
en sjálfum sér sem er mikill kostur fyrir fjölmiðlafólk en á
því miður ekki við um alla. Undirbýr sig nokkuð vel, sem á
heldur ekki við um alla og alls ekki í Kastljósinu. Hefur vaxið á
undanförnum árum og er einn af okkar bestu.“
„Tekur vel á viðmælendum ef svo ber undir. Kemur á óvart á
köflum, það er alltaf skemmtilegt.“
„Alveg stórkostlegur spyrjandi, góð týpa. Enginn hefur
tærnar þar sem hann hefur hælana þegar kemur að lýsingu á
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.“
2. sæti
logi bergmann eiðsson
„Sá albesti sem sést hefur í íslensku
sjónvarpi. Stekkur á milli þess að vera
fréttalesari og stjórnandi í skemmti-
þætti og ferst hvort tveggja mjög vel
úr hendi. Í fréttalestri er hann þessi
ábyrgi þulur en í skemmtiþættinum
sér maður að hann er mannlegur og
getur gert grín að sjálfum sér.“
„Hress og skemmtilegur sjónvarpsmaður, er léttur og
húmorískur.“
„Hress og kátur. Gaman að horfa á hann.“
„Sá flottasti. Alþýðlegur, nær vel til fólks og með góðan
húmor, ekki síst fyrir sjálfum sér. Skemmtilega gleyminn
og utan við sig. Forvitinn, gerir heimavinnuna sína vel. Það
er náttúrlega bara unun að horfa á hann enda gullfallegur
karlmaður og með dýra rödd.“
3.-4. sæti
Þóra tómasdóttir
„Þóra er alveg með þetta, í öllum skilningi.
Greind, vel máli farin og flott kona.“
„Sjarmerandi töffari, minnir á Noomi
Rapace. Þyrfti að fá innihaldsríkari
tækifæri.“
„Fær auðsjánlega ekki að fjalla um það
sem hún vill en gæti gert mjög vel ef hún
fengi frjálsar hendur.“
3.-4. sæti
egill helgason
„Það er eitthvað svo einlægt og blátt áfram
við framkomu Egils á skjánum.“
„Sá besti að mínu mati. Ótrúlega naskur
að næla í fólk sem kemur með fræðandi
innlegg í mjög svo lókal umræðu um
hrunið. Mínusinn við Egil er að hann
hefur ekki bætt ráð sitt varðandi fjölgun
kvenna í þáttinn. Þar stendur hann sig illa
þrátt fyrir harða gagnrýni sem á algjörlega rétt
á sér.“
„Þessum þykka krullupinna líður svo vel á skjánum að það er
ekki annað hægt en að hrífast með. Mjúkur og harður, gáfaður
og alþýðlegur, fjölfróður og forvitinn.“
5.-7. sæti
sölvi tryggvason
„Óttaleg vitleysa hjá Stöð 2 að láta hann
hætta. Er með fæturna á jörðinni.”
„Hlýr og þægilegur sjónvarpsmaður,
spyr réttu spurninganna og fær þau
svör sem hann leitast eftir.“
„Hlustar á viðmælendur sína. Tranar sér ekki
fram með eigin skoðanir. Vel upp alinn og grípur ekki fram í.“
5.-7. sæti
sverrir Þór sverrisson
„Einlægur, það fleytir honum ótrúlega langt. Einlægur í öllum
þeim verkum sem hann tekur sér fyrir
hendur á skjánum.“
„Ávallt skemmtilegt að horfa á það
sem hann gerir. Gleðigjafi.“
„Sveppi er svo fyndinn, það er alltaf
gaman að horfa á hann. Kemur manni í
gott skap. Með þeim fyndari sem ég hef
séð.“
5.-7. sæti
helgi seljan
„Ber af svona oftast. Á sín klúðurmóment
en er fylginn sér og oftast vel undirbúinn.
Hann er dúllurass.“
„Eini maðurinn í sjónvarpi sem heldur
áfram að þora að spyrja menn krefjandi
spurninga.“
„Aggressífur og með skemmtilega blöndu af sjarma og frekju.
Þorir að spyrja erfiðara spurninga og þess vegna vilja ekki allir
mæta í viðtal til hans. Ber nafnbótina „litli Eiríkur“ með sóma.“
8. sæti
edda andrésdóttir
„Besti fréttalesari sem Ísland hefur alið af sér.“
„Alltaf jafnsolid. Traustur lesari, skýrmælt
og kemur vel fyrir. Það er alltaf svo
heimilislegt að sjá hana á skjánum.“
„Háklassakona. Gæti verið fréttaþulur
í sjónvarpi í USA. Alltaf glæsileg og les
óaðfinnanlega. Mjög pró.“
9. sæti
inga lind Karlsdóttir
„Hefur mjög afslappaða og fágaða
framkomu. Talar við fólk af áhuga.
Frábært vald á íslenskri tungu og mjög
skýrmælt! Lætur manni líða eins og
hún sé að tala beint til þín.“
„Fegurðin bræðir mann.“
Ánægðastur með
a sigra LogaHelgarblað DV leitaði til fjölbreytts hóps álitsgjafa í leit að besta sjón-varpsmanni landsins. Mörg kunnug-leg andlit komust á blað en það var Kastljósfélaginn og Útsvarsspyrillinn Sigmar Guðmundsson sem sigraði
að lokum. Fréttalesarinn og grín-
istinn Logi Bergmann Eiðsson og
sjónvarpskonan Þóra Tómasdóttir úr
Kastljósinu eru þó ekki langt undan.
Álitsgjafar DV telja Sigmar vel und-
irbúinn og beittan spyril. Þau segja
Sigmar koma eins fram við alla auk
þess sem hann telst hafa meiri áhuga
á viðmælandanum en sjálfum sér
sem sé kostur.