Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 20
20 föstudagur 27. nóvember 2009 helgarblað Rannsókn sérstaks saksóknara efna- hagshrunsins, Ólafs Haukssonar, í Exeter-málinu beinist að töluverðu leyti að MP Banka. Þetta er öfugt við áherslurnar í málinu, samkvæmt fjölmiðlum, áður en saksóknari fór í húsleitir hjá MP Banka og Byr á þriðjudaginn og fjölmargir voru yfir- heyrðir. Margeir Pétursson, stjórnar- formaður MP Banka, segir aðspurður að bankinn hafi skipulagt fjármögn- unina fyrir stofnfjárbréfakaupunum frá Byr fyrir hönd Exeter. „Ég staðfesti að við höfðum milligöngu um þessi viðskipti og að þau voru boðin með fjármögnun,“ segir Margeir en af orð- um hans að dæma voru MP Banki og Byr búnir að gera með sér samkomu- lag um hvernig selja ætti bréfin enda þjónaði það hagsmunum beggja að- ila. Rannsóknin snýst um að kanna sölu stjórnarmanna og stjórnenda Byrs á stofnfjárbréfum í sparisjóðn- um til eignarhaldsfélagsins Exeter Holding á seinni hluta árs 2007 fyrir 1,4 milljarða króna. Lánið sem Exet- er notaði til að kaupa bréfin var feng- ið frá Byr að langmestu leyti en MP Banki tók einnig þátt í fjármögnun- inni að litlu leyti. Bréfin í sparisjóðn- um höfðu þá lækkað mikið í verði eftir bankahrunið og það var ljóst að verðmæti þeirra nægði ekki til að standa skil á skuldunum sem stofnað var til hjá MP til að fjármagna stofn- fjárbréfakaupin. Stjórnarmennirn- ir og starfsmenn Byr gerðu því upp skuldir sínar við MP Banka með því að veita eignarhaldsfélagi lán til að kaupa bréf sem þeir áttu sjálfir og hafði lánveitandi þeirra, MP Banki, milligöngu um viðskiptin. Fleiri hjá Byr persónulega ábyrgir Salan fór fram með milligöngu MP Banka sem seldi bréf- in til Exeter, sem var í eigu Ágústs Sindra Karlssonar lög- fræðings. Ágúst Sindri kom að Ex- eter-málinu fjár- mögnuðu, sam- kvæmt Margeiri, þannig að hann leitaði ekki sjálfur eftir lánafyrirgreiðslu frá Byr. MP Banki hafði því komist að sam- komulagi við Byr um lánveiting- una til stofnfjárbréfakaupanna áður en Exeter keypti bréfin því honum var kynnt að hann gæti fengið fjármögnun til að kaupa. Lánið frá Byr til Exeter var ein- göngu með veði í bréfunum. Ástæðan fyrir milligöngu MP Banka var sú að bankinn hafði lánað stjórnarmönnum, meðal annars Jóni Þorsteini Jónssyni, og stjórnendum Byrs fyr- ir stofnfjárbréfakaup- unum. MP átti því á hættu að tapa fjár- munum ef bankinn hefði leyst bréf Byrs- fólksins til sín auk þess sem heim- ildir DV herma að einhverjir lán- takendanna hafi verið í persónu- legum ábyrgðum fyrir lánunum og ekki verið skráðir fyrir þeim í gegn- um einkahlutafélög heldur persónulega. Byrsfólkið átti því á hættu að MP Banki gengi að því væru lánin ekki gerð upp. Með lánveit- ingunni til Exet- er var þetta hins vegar tryggt. Sú stað- reynd að lán- takendurnir hjá Byr voru að einhverju leyti í persónulegum ábyrgðum fyrir lánunum frá MP Banka og hafi í ein- hverjum tilfellum verið skráðir fyrir þeim sjálfir er lykilatriði í málinu þar sem það kann að útskýra hvata þeirra til að ganga frá lánunum með lán- veitingunni frá Byr. Ef lántakendurn- ir hefðu allir verið með lánin inni í einkahlutafélögum án allra persónu- legra ábyrgða hefðu þeir getað sleppt því að gera upp lánin og MP Banki hefði eingöngu setið uppi með veð í verðlitlum stofnfjárbréfum. Stjórn Byrs gat því bjargað sér, og starfs- mönnum sparisjóðsins, fyrir horn með lánveitingunni en á sama tíma þjónað hagsmunum MP Banka. Rannsókn sérstaks saksóknara mun því beinast að því að átta sig á þátttöku MP Banka í Exeter-fléttunni og hvort hann kunni að vera ábyrg- ur. Verið er að rannsaka hvort um umboðssvik, brot á auðgunarbrota- kafla almennra hegningarlaga, hafi verið að ræða í viðskiptunum. Eins og er virðist saknæmið í Exeter-mál- inu fyrst og fremst liggja hjá þeim stjórnendum Byrs sem tóku þá ákvörðun að veita Exet- er lánið til að kaupa stofn- fjárbréfin af þeim en eins og áður segir þarf að kort- leggja betur aðkomu MP Banka að málinu, nú þeg- ar alveg ljóst er að bank- inn kom í veg fyrir mikið tap með Exeter-viðskipt- unum. Ágúst Sindri: MP Banki sá um fjármögnunina Ágúst Sindri Karlsson, eigandi Exeter, sendi frá sér til- kynningu á þriðju- daginn eftir að greint hafði ver- ið frá húsleit- unum hjá Byr og MP Banka þar sem hann sagði með- al annars: „Stofnbréfin voru keypt af MP-banka sem jafnframt sá um fjármögnun kaupanna. Mér var ekki kunnugt um hverjir voru fyrri eigendur stofnfjárbréfanna fyrr en mörgum mánuðum síðar.“ Ágúst Sindri var því ekki sá sem leitaði til Byrs eftir fjármögnun til að kaupa stofnfjárbréfin heldur var það MP Banki sem seldi bréfin með fjár- mögnuninni frá Byr. Viðskiptin þjón- uðu því bæði hagsmunum stjórn- enda Byrs, sem losnuðu við bréfin sín og gátu greitt upp lánin hjá MP Banka, og eins MP Banka sem fékk greitt upp í kröfurnar sem voru útistand- andi á hendur Byrsfólkinu. Lántakend- urnir losnuðu jafnframt við að þurfa að sitja undir mögulegum innheimtu- aðgerðum MP Banka. BYR OG MP LÖGÐU Á RÁÐIN UM LÁNIÐ IngI F. VIlhjÁlMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Margeir Pétursson segir að MP Banki hafi haft milligöngu um viðskiptin á milli stjórnenda hjá sparisjóðn- um Byr og Exeter Holding. Byr og MP Banki voru búnir að ganga frá samkomulagi um fjármögnunina áður en kaupandi að bréfunum fannst. Stjórnendur Byrs voru sumir hverjir skráðir persónulega fyrir lánunum frá MP Banka. Þeim var bjargað fyrir horn með lánveitingunni frá Byr. 2 miðvikudagur 25. nóvember 2009 fréttir Fyrrverandi stjórnarmenn í Byr spari- sjóði sæta rannsókn hjá sérstökum saksóknara vegna láns sem Byr veitti Tæknisetri Arkea/Exeter Holding til að kaupa stofnfjárbréf sem voru í eigu þeirra. Sjálfir höfðu þeir áður tekið lán hjá MP Banka til að kaupa bréfin og voru í per- sónu- leg- um ábyrgðum. Með sölu bréfanna sluppu þeir við að eiga á hættu að verða gjaldþrota ef MP Banki gengi að þeim vegna skuldanna. Embætti sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, gerði húsleit hjá sparisjóðnum Byr í Borgartúni og hjá MP Banka í Skipholti á mánudag í tengslum við rannsóknina á Exeter- málinu svokallaða. Áður hafði ekki komið fram að embættið væri einnig að rannsaka MP Banka í rannsókn- inni. Yfirheyrslur í málinu hófust í gær og munu standa yfir næstu daga. Rannsóknin beinist með- al annars að fyrr- verandi stjórnar- mönnum í Byr, Jóni Þorsteini Jónssyni og Birgi Ómari Har- aldssyni, og MP Banka. Fullyrða má að Jón og Birgir verði yfirheyrðir vegna máls- ins. Jón Þorsteinn er ekki á landinu sem stendur, hann býr í Bretlandi ásamt fjölskyldu sinni. En eins og kemur fram í tilkynningu sérstaks saksóknara beinist rannsóknin að fjölda manns og því eru fleiri til rann- sóknar en þeir, hugsanlega einnig einhverjir starfsmenn Byrs sem áttu bréf í Byr sem þeir losuðu sig við. Greint var frá því í lok október að Fjármálaeftirlitið hefði sent rann- sókn málsins til sérstaks saksókn- ara, ákæruvalds, en DV sagði fyrst fjölmiðla frá rannsókn málsins í lok mars. Einungis um mánuður er því liðinn frá því Fjármálaeftirlitið sendi málið til sérstaks saksóknara og þar til embættið fer út í þessa viðamiklu rassíu. Þetta bendir til að málvextir liggi nokkuð ljósir fyrir. Lánuðu Exeter; voru í persónu- legum ábyrgðum Embættið rannsakar hvort auðgun- arbrot og umboðssvik hafi átt sér stað í málinu sem snýst um tvær lán- veitingar upp á 1,4 milljarða króna sem stjórn Byrs samþykkti til eignar- haldsfélagsins Tæknisetur Ark- ea/Exeter Holding í október og desember 2008. Lánið til Arkea var notað til að kaupa stofnfjárbréf stjórn- armanna Byrs í spari- sjóðnum, meðal annars bréf stjórnarformannsins Jóns Þorsteins og Birgis Ómars, á yfirverði sem og bréf sem MP Banki hafði leyst til sín með veð- köllum frá starfsmönnum Byrs. Veð- ið fyrir láni Exeter var að öllu leyti í stofnfjárbréfunum sem keypt voru. Bréfin í Byr höfðu lækkað gríð- arlega í verði eftir bankahrunið og þjónaði það hagsmunum eigend- anna að losa sig við þau. Einn- ig þjónaði það hagsmun- um MP Banka að Exeter Holding keypti bréfin þar sem bankinn hafði veitt eigendunum lán til að kaupa stofnfjárbréf- in upphaflega. Veðið fyrir lánum stjórnar- og starfsmanna Byrs voru í bréfunum sjálf- um en þeir voru einnig í persónulegum ábyrgð- um, samkvæmt heimild- um DV. MP Banki stóð því frammi fyrir því að leysa til sín verðlítil stofnfjár- bréf með veð- köllum og hugsan- lega að ganga að þeim starfs- og stjórnarmönnum í Byr sem tekið höfðu lán til að kaupa stofnfjár- bréfin og setja þá í þrot. MP Banki hefði því tapað miklu á lánveiting- unum sem og lántakendurnir per- sónulega ef MP Banki hefði gengið að þeim tryggingum og ábyrgðum sem voru fyrir hendi utan stofn- fjárbréfanna sjálfra. Eins og málið lítur út í dag virðast stjórn- armenn og starfs- menn í Byr því hafa tekið ákvörðun um að veita Exeter lán til að kaupa stofn- fjárbréf í Byr sem þeir áttu sjálfir en með milligöngu MP Banka og Ág- ústs Sindra Karls- sonar og Exeter Hold- SLUPPU VIÐ GJALDÞROT MEÐ ÞVÍ AÐ LÁNA EXETER IngI F. VILhjáLmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is jón Þorsteinn jónsson ágúst sindri Ka rlsson Tilkynning sérstaks saksóknara á þriðjudag: „Í tengslum við rannsókn embættis sérstak s saksóknara á kaupum félagsins Exeter ehf á stofnbréfum í BYR sparisjóði h austið 2008 fóru fram húsleitir á tveimur stöðum í dag að undangengnum úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur. Yfirheyrslur í málinu hófust á sama tíma og standa enn. Til rannsóknar er grunur um brot á auðgun arbrotakafla almennra hegningarlaga í tengslum við umrædda sölu á stofnbréfu m og lánagerningum þeim tengdum . Um er að ræða verulega fjárhagslega hag smuni og rannsóknin tengist fjölda manns. Aðgerðirnar í dag voru nokkuð víðtækar o g hófust með leit á tveimur stöðum samtímis kl. 10 í morgun. Af 22 starfsmönn um embættisins tóku flestir þátt í aðgerðunum auk tæknimanna frá embætt i lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð- inu.“ Rannsóknin í fullum gangi Rannsókn Ólafs Haukssonar, sérstaks saksóknara, á Exeter-mál- inu er í fullum gangi. Tvær húsleitir voru gerðar í gær auk þess sem fjöldi yfirheyrslna fór fram. stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson var stjórnar- formaður í sparisjóðnum Byr þegar Exeter Holding var veitt lánið í desember í fyrra. Hugsanlegt er að h ann hafi átt hluta þeirra stofnfjárbréfa sem keypt voru. Jón Þ orsteinn er einn þeirra sem verður yfirheyrður við rannsókn málsins.Leitað hjá mP Banka Sérstakur saks óknari gerði húsleit hjá MP Banka og sparisjóðnu m Byr á þriðjudaginn út af rannsókninni á Exeter-m álinu. Margeir Pétursson er stjórnarformaður ban kans. ing. Því má segja að allir hafi grætt á viðskiptunum, stofnfjáreigendur í Byr sem áttu í hlut og MP Banki, nema þá auðvitað hinn almenni stofnfjáreigandi í Byr sem vissi ekki af viðskiptunum fyrr en greint var frá þeim í fjölmiðlum í vor. Þegar þetta gerðist var MP Banki þegar búinn að leysa til sín bréf í eigu starfsmanna Byrs, meðal annars Ragnars Z. Guðjónssonar, sparisjóðs- stjóra hjá Byr, og annarra stjórnenda hjá Byr. Þessi bréf sem MP Banki var búinn að leysa til sín voru þau bréf sem MP seldi inn í Exeter. Næst ekki í Birgi og Jón Þorstein Birgir Ómar sagði í samtali við DV í mars að hann væri enn stofnfjár- eigandi í sparisjóðnum en að hann hefði selt hluta bréfa sinna á síðasta ári. Hann vildi ekki gefa upp hversu stóran hlut hann átti né hversu stór- an hlut hann hefði selt. DV náði ekki í Birgi á þriðjudag. DV náði ekki heldur í Jón Þorstein þar sem hann er í Bretlandi - breskt talhólf hans kom á eftir að hringt hafði út. Jón Þorsteinn er sömuleiðis einn af barnalánsforeldrunum sem tóku lán hjá Glitni fyrir hönd barna sinna til að kaupa stofnfjárbréf í Byr í lok desember 2007. Fullyrða má að Jón Þorsteinn verði yfirheyrður í mál- inu þar sem hann er lykilmaður í því. Spurningin er þá sú hvort hann verð- ur kallaður heim til Íslands til þess á næstunni. Ágúst og tengslin við MP Sá sem er skráður fyrir Exeter Hold- ing heitir Ágúst Sindri Karlsson, en hann hefur starfað sem lögmaður MP Fjárfestingarbanka og er einn af stofnendum og hluthöfum í MP Verðbréfum sem síðar urðu að MP Fjárfestingarbanka. Eignarhaldsfé- lagið er alfarið í eigu Ágústs, að hans sögn, og á það tæplega tveggja pró- senta hlut í bankanum eða 306 millj- ón hluti. Afar líklegt er að sérstakur sak- sóknari hafi í húsleitinni í MP Banka meðal annars verið að reyna að afla gagna sem tengjast Ágústi Sindra Karlssyni og lántakendunum frá Byr auk gagna sem tengjast bankanum sjálfum. MP banki gaf það reynd- ar út á þriðjudag að húsleit sérstaks saksóknara tengdist ekki bankan- um sjálfum eða starfsmönnum hans heldur ákveðnum viðskiptavinum hans. Heimildir DV herma hins veg- ar að þetta sé einfaldlega hefðbund- in „krísustjórnun“ hjá bankanum og að aðkoma bankans sé meiri. Ágúst sagðist, í samtali við DV í mars síðastliðnum þegar blaðið byrjaði að reyna að viða að sér upp- lýsingum um málið, ekki muna ná- kvæmlega hvenær hann keypti hlut- inn í Byr. „Ég þori ekki að segja til um það,“ sagði Ágúst en það var eftir bankahrunið í byrjun október. Ágúst sagðist hafa keypt hlutinn í gegnum MP Banka, sem hafði umsjón með markaði fyrir stofnfjárhluti í spari- sjóðnum. DV náði ekki í Ágúst Sindra á þriðjudaginn til að ræða við hann um málið og spyrja hvernig hon- um hefði dottið í hug að kaupa slíkt magn stofnfjárbréfa eftir að bréfin höfðu lækkað mikið í kjölfar banka- hrunsins. Afar ólíklegt er að maður með mikla reynslu af verðbréfamark- aði taki slíka ákvörðun á viðskipta- legum forsendum. Rannsóknin beinist að MP Banka Þrátt fyrir tilkynningu MP Banka herma heimildir DV að rannsókn sérstaks saksóknara á Exeter-mál- inu beinist einnig mjög að MP Banka sjálfum. Ein af spurningun- um sem svara þarf í rannsókninni er hvers eðlis aðkoma MP Banka að Exeter-málinu var. Bankinn lánaði stjórnarmönnunum og þeim starfs- mönnum sem keyptu stofnfjárbréf- in í Byr fyrir bréfunum á sínum tíma. Veðið fyrir lánunum var í bréfunum sjálfum og eins voru lántakend- urnir í persónulegum ábyrgðum, líkt og komið hefur fram. Bankinn hafði því mikilla hagsmuna að gæta í málinu. Það sem embætti sérstaks sak- sóknara þarf meðal annars að kom- ast að er hvort MP Banki hafi átt þátt í að stofna til viðskiptanna með bréf- in sem Exeter keypti, en ekki bara stjórn og stjórnendur Byrs. Hér þarf meðal annars að athuga hver það var sem græddi á viðskiptunum. Í þessu tilfelli voru það bæði lántakendurnir, eins og Jón Þorsteinn Jónsson, sem hugsanlega sluppu við að vera sett- ir í þrot af MP Banka út af viðskipt- unum, og eins MP Banki sem fékk greitt á yfirverði í peningum fyrir bréf sem orðin voru verðlítil auk þess sem bankinn slapp við að þurfa að ganga að öðrum veðum og lántakendunum sjálfum. Rannsókn embættisins mun væntanlega leiða í ljós hvar ábyrgð- in, og þar með saknæmið, í Exeter- málinu liggur. En eins og er virðist ábyrgðin liggja að mestu hjá stjórn Byrs sem veitti lánið og eins hjá MP Banka. Yfirheyrslur í málinu munu halda áfram hjá sérstökum saksóknara næstu daga. fréttir 25. nóvember 2009 miðvikudagur 3 fréttirdv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 31. mars 2009 dagblaðið v ísir 54. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 LeigUbíLstjóri sakaðUr Um mannrán Dularfull viðskipti með stofnfjárhluti: STJoRNENDUR BYRS SÆTA RANNSoKN Ævintýraeggið frá freyjU er best matgÆðingar dv smökkUðU öLL pásk aeggin neytendUr LÆsti eLdri mann inni í bíLnUm sparissjóðsstjórinn tiL rannsóknar fjármáLaeftirLitið kaLLar eftir töLv UpóstUm byr Lánaði 1,4 miLLjarða vegna stofn fjárbréfa Lánaði féLagi sem keypti bréf stjórn enda byrs mp banki gjaLdfeLLdi Lán og gerði ve ðkaLL metUr sönginn meira en stjórn- máLin fóLk geir óLafs var hvattUr í framboð bankamaðUr grÆddi á vatni Undir jökLi fréttir dv gefUr páskaegg 31. mars 2009. Karl Karlsson Karl Karlsson, 48 ára íslenskur maður búsettur í Noregi, var á leið heim til sín í Gol í Hallingsdal frá Ósló á sunnudagskvöldið. Hann tók rútu en var hent út á miðri leið, um það bil áttatíu eða níutíu kíló- metrum frá áfangastaðnum, vegna ofurölvunar. Hann fannst um há- degisbil á mánudaginn látinn í stöðuvatni í Krøds-héraði. Gerði bílstjórinn rétt? Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi og fjölluðu fjölmiðlar mikið um það á mánudag. Tugir manna leituðu að Karli með hjálp leitar- hunda, þyrlna og báta. Málið vakti ekki síst athygli vegna þess að Karli var hent út úr rútunni og fannst síðan látinn. Margir norskir bloggarar velta því fyrir sér hvort rútubílstjórinn hafi gert rétt með því að henda Karli út í ljósi þess að hann var í mjög ann- arlegu ástandi. Lét lögreglu vita Að sögn Stein Arild Gjestemoen, lögreglustjóra í Krøds-héraði, setti rútubílstjórinn sig í sam- band við lögregluna vegna þess að Karl var of ölvaður til að fá að ferðast lengra. „Þegar rútan stöðvaðist hjá rútuskýlinu í Noresund hringdi bílstjórinn í lögregluna og sagð- ist ætla að henda honum út. Hann vildi ekki hafa hann í rút- unni lengur,“ segir Gjestemoen í samtali við Dagbladet. Lögregl- an gaf grænt ljós á að Karli yrði hent út úr rútunni þó að skyggni væri slæmt, hann klæddur í dökkan klæðnað og mjög ölv- aður. Lögreglan kom á staðinn um hálftíma seinna en fann Karl ekki. Gjestemoen telur bílstjór- ann hafa gert það eina rétta í stöðunni. „Hann lét lögregluna vita og gerði það sem hann átti að gera í þessari stöðu.“ Að sögn Stian Hårklau, yfir- manns rútubílstjórans, hefur bíl- stjórinn það fínt eftir atvikum. Vissi ekki hvar hann var Rúmum hálftíma eftir að Karli var hent út úr rútuni hringdi hann í sambýliskonu sína en gat ekki út- skýrt fyrir henni hvar hann var. Hún heyrði ekki í honum aftur og um fjögurleytið þá nótt tilkynnti hún um hvarf hans. Lögreglan hóf ekki leit strax því samkvæmt upp- lýsingum frá rútubílstjóranum var Karl í góðu standi og gat séð um sig sjálfur. Á sunnudag fór umfangsmikil leit að Karli í gang. Tveggja barna faðir Um hádegisbilið á mánudag fannst lík Karls í stöðuvatni í Krøds-hér- aði, fimm til sex hundruð metrum norður af staðnum þar sem hon- um var vísað út úr rútunni. Leitar- þyrla fann Karl og fundust skilríki í klæðum hans sem staðfestu að þetta var hann. Karl skilur eftir sig norska konu og tvö börn. Í gær bauðst fjölskyldu hans áfallahjálp. Karl verður krufinn á hefðbund- inn hátt en dánarorsök er ekki enn kunn. Síðasta myndin Þessi mynd var tekin um hál f eitt aðfaranótt sunnudags af Karli. Nokkrir höfðu samband við lögreg luna og töldu sig hafa séð hann gangandi meðfram þjóðveginum. Hann fa nnst látinn á hádegi á mánudag. Sviplegt andlát föður í Noregi Umfangsmikil leit Eins og sést á þessu skjáskoti af norsku fréttasíðunni DT var leitin að Karli umfangsmikil. Síðustu klukkustundirnar í lífi Karls: Aðfaranótt sunnudags: 00.11: Karli er hent út úr rútunni. 00.28: Mynd tekin af Karli af öryggis myndavél á bensínstöð í Noresund. 00.57: Karl hringir til sambýliskonu sinnar en getur ekki útskýrt fyrir henni hvar hann er. Hún heyrði ekki í honum aftur. 03.30: Sambýliskona Karls tilkynnir hvarf hans. Á sunnudag fer umfangsmikil leit í gang. Mánudagur: 11.55: Karl finnst látinn í stöðuvatni. ÞóRaRiNN ÞóRaRiNSSoN fréttastjóri skrifar toti@dv.is fréttir dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjUdagUr 31. mars 2009 dagblaðið vísir 54. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 LeigUbíLstjóri sakaðUr Um mannrán Dularfull viðskipti með stofnfjárhluti: STJoRNENDUR BYRS SÆTA RANNSoKN Ævintýraeggið frá freyjU er bestmatgÆðingar dv smökkUðU öLL páskaeggin neytendUr LÆsti eLdri mann inni í bíLnUm sparissjóðsstjórinn tiL rannsóknarfjárm L eftirLitið kaLLar eftir töLvUpóstUmyr Lán ði 1,4 miLLjarða vegna stofnfjárbréfaLánaði féLagi sem keypti bréf stjórnenda byrsmp anki gjaLdfeLLdi Lán og gerði veðkaLL m tU s ngi m a en stjórn- máLin fóLk geir óLafs var hvattUr í framboð bankamaðUr grÆddi á vatni Undir jökLi fréttir dv gefUr páskaegg lánið skráð á hann Lán Jóns Þorsteins Jónssonar frá MP Banka var skráð á hann persónulega og var hann því ábyrgur fyrir því. Hagsmunir Jóns af að losna við lánið voru því miklir því bankinn hefði getað gengið að honum. Sá um fjármögnunina Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka, segir að bank- inn hafi séð um milligöngu um stofnfjárvið- skiptin á milli Byrs og Exeter Holding. 30. mars Fyrsta fréttin um málið birtist í DV í mars. 25. nóvember Sérstakur saksóknari með rassíu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.