Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 8
„Þetta er alveg skelfilegur atburður
og við erum öll í sjokki. Eftir atvikið
settumst við niður með drengjunum
til að ræða þetta. Við minnumst mjög
góðs drengs,“ segir Hörður Heiðar
Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri
Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR.
Á miðvikudagskvöld lést átján ára
knattspyrnumaður á æfingu hjá ÍR.
Hann hné niður skyndilega þegar
æfingin var nýhafin og missti þegar
meðvitund. Þjálfari flokksins, og yfir-
þjálfari ÍR, hófust þegar handa við líf-
gunartilraunir sem því miður skiluðu
ekki árangri. Á leiðinni með sjúkra-
bíl á Landspítalann var ungi knatt-
spyrnumaðurinn úrskurðaður lát-
inn. Að svo stöddu þykir hjartaáfall
sökum leynds hjartagalla líklegasta
dánarorsökin.
Stutt milli gleði og sorgar
Æfingin var samstundis flautuð af og
liðsfélagar piltsins í öðrum flokki ÍR
fóru inn í búningsklefa í miklu upp-
námi. Þangað var prestur kallaður til
sem, ásamt yfirþjálfara ÍR, ræddi við
piltana um atvikið. Á fimmtudags-
kvöld fór svo fram minningarstund
í ÍR-heimilinu þar sem hið efnilega
ungmenni var syrgt af vinum og
vandamönnum.
Stutt er síðan að drengirnir í
flokknum fögnuðu saman en annar
flokkur karla í ÍR fékk nýverið titilinn
Haustmeistarar Reykjavíkurliða er
strákarnir sigruðu í fjörugum úrslita-
leik. Nú syrgja leikmennirnir góðan
vin og efnilegan ungan knattspyrnu-
mann. Það er því stutt á milli gleði og
sorgar.
Knattspyrnumaðurinn ungi var
einnig aðstoðarþjálfari hjá yngri
flokkum ÍR. Ungum knattspyrnu-
mönnum flokkanna var á fimmtudag
tilkynnt um hið sviplega fráfall að-
stoðarþjálfarans.
Þriðja áfallið
Mótanefnd Handknattleikssam-
bands Íslands ákvað í gær, að beiðni
ÍR, að leikjum félagsins í meistara-
flokki til og með fjórða flokki sem
fram eiga að fara frá og með deginum
í dag og fram yfir helgi, verði frestað
um óákveðinn tíma.
Forsvarsmenn Knattspyrnusam-
bands Íslands, KSÍ, eru slegnir yfir
atburðinum. „Öll knattspyrnuhreyf-
ingin er í sorg. Hugur okkar er hjá
fjölskyldu drengsins og vinum,“ seg-
ir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.
Hann segir samtökin hafa boðið fram
alla sína hjálp.
Þetta er í annað sinn sem ungur
knattspyrnumaður hjá ÍR hnígur nið-
ur á æfingu. Fyrir fjórum árum síðan
fékk ungur drengur hjartaáfall á æf-
ingu en lifði það af. Þá missti félagið
þjálfara meistarflokks karla í knatt-
spyrnu úr hjartaáfalli yrir tveimur
árum.
Allir í sjokki
Eyþór K. Einarsson, formaður
Knattspyrnudeildar ÍR, segir alla
hjá íþróttafélaginu í algjöru sjokki.
„Þetta tekur mjög á okkur hjá félag-
inu. Drengurinn ungur og í topp-
formi. Við áttum ekki von á því að
svona gæti gerst en því miður gerist
stundum það sem maður hélt að gæti
ekki gerst. Atburðurinn er algjörlega
hræðilegur í alla staði. Það eru hérna
allir í áfalli, allt starfsfólkið og allir í
kringum félagið,“ segir Eyþór.
Halldór Þ. Halldórsson, yfirþjálfari
barna- og unglinga hjá ÍR, segir liðsfé-
lagana vitanlega í miklu áfalli eftir at-
burðinn. Hann á von á því að erfitt geti
reynst að fá þá aftur út á knattspyrnu-
völlinn. „Þetta eru ofsalega erfiðir
tímar því ég hef lengi þjálfað þennan
góða dreng. Hann var virkilega efni-
legur að öllu leyti. Þessi upplifun er
ákaflega erfið og við höfum orðið fyrir
rosalegu sjokki,“ segir Halldór.
Alltaf erfitt
„Því miður vorum við ekki að ganga
í gegnum þetta í fyrsta skipti. Strák-
arnir í flokknum voru vitanlega
sjokkeraðir en við fórum með þá í
burtu til að draga úr sjokkinu. Þetta
verður mjög erfitt næstu daga. Við
hjá ÍR sendum fjölskyldu piltsins
okkar innilegustu samúðarkveðjur,“
bætir Halldór við.
Séra Valgeir Ástráðsson, sóknar-
prestur í Seljakirkju, veitti liðsfélög-
unum sáluhjálp eftir fráfallið og hélt
utan um minningarstundina í gær-
kvöldi. „Þarna lætur fílhraustur strák-
ur lífið og það er alltaf erfitt. Þetta var
duglegur, félagslyndur og vel gerður
drengur og það er fjölskylda hans öll.
Atburðurinn er skelfilegur því dauð-
inn er alltaf erfiður,“ segir Valgeir.
Sandkorn
n Óljóst er hvort verður af ráð-
herraskiptum um áramótin.
Það hefur þótt vera forgangs-
verkefni að koma Ögmundi
Jónassyni alþingismanni aftur
inn í ríkisstjórn eftir að hann
gekk eftir-
minnilega
úr skaftinu
á sínum
tíma. Því
hefur verið
fleygt að
Jón Bjarna-
son sjávar-
útvegsráð-
herra yrði
látinn víkja til að rýma fyrir
Ögmundi. Nú er vandinn sá að
Jón hefur verið að slá í gegn,
sérstaklega á landsbyggðinni,
með því að taka skötusel út
úr kvótakerfinu og ná þannig
auðlindinni til baka.
n Vinsældir Jóns Bjarnasonar
sjávarútvegsráðherra vegna
breytinga á kvótakerfinu eru
ekki hans eigin hugmynda-
auðgi að þakka. Mönnum ber
saman um
að hug-
mynda-
smiðurinn
að baki sé
Guðjón
A. Krist-
jánsson,
formaður
Frjálslynda
flokksins
og verktaki sjávarútvegsráð-
herra. Á vef Frjálslynda flokks-
ins mun því hafa verið haldið
á lofti að Guðjón stæði að
baki málinu. Þetta mun fara
óskaplega í taugar ráðherrans.
Hermt er að það fari að styttast
í starfslok Guðjóns í ráðuneyt-
inu.
n Það hefur legið í loftinu að
utanþingsráðherrarnir, Gylfi
Magnússon og Ragna Árna-
dóttir, yrðu látin víkja til að
leysa ráð-
herradrama
vinstri
grænna.
Ungliðum
og róttæk-
lingum
innan VG
er sérlega
í nöp við
Rögnu sem
hefur ekki hikað við að senda
flóttamenn úr landi. Hún ligg-
ur því frekar lágt. Aftur á móti
er Gylfi sagður vera í miklum
metum vegna yfirburðaþekk-
ingar sinnar á sviði viðskipta
og efnahagsmála. Menn eru
sammála því að annaðhort
fari báðir ráðherrarnir eða
hvorugur. Gylfi gæti því orðið
bjarghringur Rögnu.
8 föstudagur 27. nóvember 2009 fréttir
Örugg og góð þjónusta í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207
www.ljosmynd.is
Pantaðu
jólamyndatökuna
tímalega
Átján ára gamall knattspyrnuleikmaður hjá ÍR lét lífið á æfingu á miðvikudagskvöld.
Talið er að hann hafi fengið hjartaáfall með þeim sorglegu afleiðingum að hann var
úrskurðaður látinn við komuna á spítala. Þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem
forsvarsmenn félagsins glíma við hjartaáföll ungra leikmanna.
SVIPLEGT FRÁFALL
EFNILEGS UNGMENNIS
MIKILL HARMUR
Þann níunda september 2007
lést knattspyrnuþjálfarinn Ásgeir
Elíasson, 57 ára að aldri. Hann varð
bráðkvaddur á heimili sínu eftir að
hjartað hafði gefið sig. Ásgeir var þá
starfandi þjálfari meistarflokks karla
í knattspyrnu hjá ÍR. Áður hafði
hann þjálfað Þrótt í Reykjavík, Fram
og íslenska karlalandsliðið með afar
góðum árangri. Undir hans stjórn
vann Fram fjölda titla og lands-
liðið náði hæst á styrkleikalista
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA. Ásgeir átti einnig farsælan feril
sem leikmaður með Fram.
„Þetta verður mjög erf-
itt næstu daga. Við hjá
ÍR sendum fjölskyld-
unni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.“
VERULEGA BRUGÐIÐ
Sveinbjörn Brandsson, læknir íslenska
karlalandsliðsins í knattspyrnu
„Þetta er alveg hræðilegt og allir eru
verulega slegnir hjá íþróttahreyfing-
unni. Því miður eru þetta þekkt hér á
landi og því til önnur dæmi um slíkt. Yf-
irleitt eru þarna undirliggjandi hjarta-
vandamál, hugsanlega leyndur galli,
sem leiða til svona sorglegra atburða.
En það þarf hins vegar ekki að vera.
Undir álagi geta algjörlega heilbrigðir
einstaklingar orðið fyrir því að hjartað
kemst í óreglu og sleglarnir flökta. Við
það getur viðkomandi misst meðvit-
und og látið lífið, því miður. Þetta er
alls ekki bundið við fótboltavöllinn því
svona getur gerst hvar sem er ef fólk er
undir álagi. Knattspyrnuyfirvöld þurfa
að taka svona atburði mjög alvarlega
og ég tel nauðsynlegt að breiða út
reglur um læknisskoðanir leikmanna.
Með því gætum við vonandi komist að
einhverjum leyndum göllum. Í flestum
tilfellum þar sem svona hefur orðið
eru leikmenn komnir yfir þrítugt og
því er mér verulega brugðið að átján
ára fótboltamaður láti lífið hér á landi.
Þetta er meiriháttar sjokk fyrir okkur
öll. Ég sendi fjölskyldu drengsins mínar
dýpstu samúðarkveðjur.“
TRAUSTI HAfSTEInSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Mikil sorg Knattspyrnumað-
urinn ungi var vinamargur
og ákaflega félagslyndur.
Fjölmenni syrgði við minning-
arathöfnina í gær.