Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Qupperneq 28
um helgina
eitt af þeim bestu Útvarpsleikhúsið á Rás 1 flytur
Augu þín sáu mig eftir Sjón í útvarpsleikgerð og leikstjórn Bjarna
Jónssonar á sunnudaginn klukkan 14. Leikritið var á dögunum valið
eitt af bestu útvarpsleikritum ársins í samkeppni evrópskra útvarps-
stöðva, Prix Europa. Á meðal leikenda eru Víðir Guðmundsson,
Birgitta Birgisdóttir, Sigurður Skúlason, Kristján Franklín Magnús og
Ólafur Darri Ólafsson. Tónlist og hljóðmynd gerði hljómsveitin múm.
Djammvika
Dansflokksins
Djammvika Íslenska dansflokksins
hófst á miðvikudaginn og stend-
ur fram á laugardag. Um er að ræða
dansveislu þar sem frumflutt eru
fjögur ný verk í vinnslu.
Þetta eru Cardiac Strain (Hjarta-
streita) eftir Tony Vezich, Shit eftir
Kristján Ingimarsson, Heilabrot eft-
ir Brian Gerke og Steinunni Ketils-
dóttur og Kjúklingur í sauðargæru
eftir Peter Anderson. Með Djamm-
viku er dansflokkurinn að gefa nýjum
höfundum tækifæri til að vinna með
flokknum og einnig er þetta vettvang-
ur til að þróa og prófa nýja tækni og
aðferðir við sköpunina. Nánar á id.is.
framhalD
leitarinnar
að rajeev
Regnboginn hefur sýningar á
heimildarmyndinni Rajeev revis-
ited eftir Birtu Fróðadóttur í dag,
föstudag. Myndin er sjálfstætt
framhald myndarinnar Leitin að
Rajeev frá árinu 2002. Að þessu
sinni heldur Birta til Indlands í
brúðkaup indverska æskuvinar
síns, Rajeevs. Átta ár eru liðin frá
því þau hittust síðast þegar Birta
leitaði Rajeev uppi á Indlandi og
fann hann við dapurlegar aðstæð-
ur. Greinilegt er að margt hefur
breyst á þeim tíma í lífi þeirra
beggja. Í gegnum umfangsmikið
brúðkaup Rajeevs varpar myndin
ljósi á þann gríðarlega menning-
armun sem æskuvinirnir Birta og
Rajeev búa við í dag.
Árni tekur
lagið Í kirkju
Alþingismaðurinn Árni Johnsen ætl-
ar að þakka fyrir gjafir Guðs með því
að syngja lagið vinsæla „Í kartöflu-
görðunum heima,“ í kartöflmessu
í Grafarvogi á sunnudag. Lagið er
þekktasti slagari Árna og hefur að
því best er vitað ekki verið sungið í
kirkju áður. Fjölmargir landsmenn
eru að taka upp kartöflur nú þegar
haustið er að taka yfir. Félagar úr
Kartöflufélaginu lesa ritningarlestra
og fyrir messu ætlar Hildur Hákon-
ardóttir að flytja stuttan fyrirlestur
um kartöfluna í sögu og samtíð.
Leitin að jólunum sýnd á aðventunni í fimmta sinn í röð:
Enn leitað að jólunum
28 föstuDagur 27. nóvember 2009 fókus
leiðrétting
Á metsölulista Hagkaups sem birtur
var á fókussíðu DV síðastliðinn mið-
vikudag féll út bókin Svörtuloft eftir
Arnald Indriðason. Hún situr í öðru
sæti listans og bækurnar sem voru
þar fyrir neðan eru því í raun einu
sæti neðar en listinn gaf til kynna.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Ævintýrið Leitin að jólunum eftir
Þorvald Þorsteinsson fer á fjalirn-
ar í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn.
Þetta er fimmta sinn sem sýningin
er sett upp á aðventunni en verkið
hlaut Grímuna, Íslensku leiklistar-
verðlaunin, sem barnasýning árs-
ins árið 2006. Leitin að jólunum
hefur alla tíð notið fádæma vin-
sælda og uppselt hefur verið á nær
því hverja einustu sýningu frá því
að verkið var fyrst sýnt en sýningin
á sunnudag verður númer hundrað
í röðinni.
Tveir skrýtnir og skemmtilegir
náungar taka á móti litlum leikhús-
gestum í anddyri Þjóðleikhússins.
Með þeim í för eru tveir hljóðfæra-
leikarar og saman leiða þeir börn-
in með leik og söng um leikhúsið.
Meðal viðkomustaða á ferðalagi
þeirra eru Kristalsalurinn, Leikhús-
loftið og Leikhúskjallarinn. Börnin
fara inn í ævintýraveröld jólanna og
sjá leikþætti um jólin í gamla daga
og í nútímanum.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son og leikarar þau Arnbjörg Vals-
dóttir, Þórunn Clausen, Ólafur Egill
Egilsson, Valur Einarsson, Guðrún
Gísladóttir, Elma Lísa Gunnars-
dóttir, Sindri Birgisson og Álfrún
Örnólfsdóttir. Sýningin er ríkulega
hljóðskreytt með tónlist Árna Egils-
sonar við Jólasveinavísur Jóhann-
esar úr Kötlum en hljóðfæraleikar-
ar eru Darri Mikaelsson og Vadim
Federov.
Að jafnaði verða þrjár sýningar
hvern laugardag og sunnudag allar
helgar til jóla. Nánar á heimasíðu
Þjóðleikhússins.
Vel tenntArnbjörg Valsdóttir og Ólafur Egill Egilsson í hlutverkum sínum. MYND
Þjóðleikhúsið/eDDi
„Mér fannst vanta svona bók á mark-
aðinn. Mig langaði líka að styrkja
fræðandi umfjöllun og sá fyrir mér
að þessi bók gæti nýst bæði almenn-
ingi og fagfólki,“ segir Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir, höfundur bókarinnar
Kynlíf – Heilbrigði, ást og erótík sem
kom út í vikunni. Þetta er fyrsta viða-
mikla fræðibókin á þessu sviði sem
kemur út á Íslandi, ef frá er talin Ís-
lenska kynlífsbókin eftir Óttar Guð-
mundsson sem kom út fyrir tæpum
tuttugu árum.
„Sú bók fjallaði á vissan hátt um
þetta viðfangsefni en ég fer kannski
víðar og dýpra í þetta,“ segir Jóna sem
hefur viðað að sér mikilli þekkingu
um kynlíf og málefni því tengd. Hún
er lærður hjúkrunar- og kynfræðing-
ur og er sérfræðingur í klínískri kyn-
fræði. „Í bókinni er svona brot af því
besta sem ég hef verið að viða að mér
í gegnum árin og ég veit að nýtist
fólki.“
Njóta frekar en að leita
Jóna er fyrsti sérfræðingurinn sem
fjallaði nokkuð reglulega um kynlíf
á opinberum vettvangi hér á landi,
sem má segja að hafi byrjað árið
1988. „Ég fór einhvern veginn í það
hlutverk án þess að ég hefði ætlað
mér það. Kannski benti það bara til
óuppfylltra þarfa hjá fólki til að hafa
aðgang að fagmenneskju sem gat
frætt það og svarað ýmsum spurn-
ingum.“
Eitt af markmiðum Jónu með
skrifum bókarinnar er að leiða um-
ræðuna um kynlíf á aðeins meira
fræðandi og viti bornar leið. Spurð
hvort henni finnist Íslendingar al-
mennt vera fastir í sömu barna-
legu spurningunum um kynlíf seg-
ir Jóna svo ekki vera. „Við getum
ekki sett alla Íslendinga undir sama
hatt. Og það er afskaplega mismun-
andi af hvaða hvötum fólk spyr og
við hvaða aðstæður. Ef við erum að
tala um spurningar sem heyrast oft
þá finnst mér íslenskir karlmenn
stundum fastir í g-bletta leitinni.
Þeir mega alveg fara að hvíla sig á
henni og fara bara að njóta,“ segir
Jóna og hlær.
Hún setur þessa spurningu karl-
anna í samhengi við leit þeirra eftir
staðfestingu á að þeir séu góðir elsk-
hugar. „En ef þeir eru góðir menn
inn við beinið þá eru þeir nógu góðir
elskhugar. Þetta er ekki spurning um
að ýta á einhverja rétta takka.“
Vandamálið er heilbrigði
Í bók Jónu kemur meðal annars fram
að vandamál Íslendinga á kynlífs-
sviðinu séu jafn algeng og af svipuð-
um toga og hjá flestum öðrum þjóð-
um. „Við erum ekkert öðruvísi en
Kynfræðingurinn jóna ingibjörg jónsdóttir er höfundur bókarinnar Kynlíf – Heil-
brigði, ást og erótík sem kom út í vikunni. Hún segir kynferðisleg vandamál Íslend-
inga af svipuðum toga og nágrannaþjóðanna og að þau virðist vera nokkurn veginn
jafn algeng. Jónu finnst kynheilbrigði órjúfanlegur hluti heilbrigðis og lífsgæða, en
íslensk heilbrigðisþjónusta eigi nokkuð í land með að taka undir það.
Mega hvíla sig á g-bletta leitinni
jóna ingibjörg jónsdóttir kynfræðingur Var fyrsti kynfræðingurinn sem talaði reglulega opinberlega um kynlíf og vandamál
því tengd. Ekki voru allir jafn sáttir við þá framgöngu hennar hér á árum áður. MYND BoNNi