Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 21
helgarblað 27. nóvember 2009 föstudagur 21
Konur í Kvenfélagi Biskupstungna sitja naktar fyrir á nýju
dagatali í fjáröflunarskyni. Svava Theódórsdóttir, gjaldkeri fé-
lagsins, segir dagatalið hafa verið umdeilt innan félagsins. Hún
segir það besta við dagatalið vera að það sýni konur eins og þær
eru í raun og veru.
BERRASSAÐAR
Í TUNGUNUM
„Þessi hugmynd er búin að vera á
sveimi síðan árið 2006 og sjálfsagt
lengur án þess að ég viti það því ég
gekk í kvenfélagið árið 2005. Fyrst
þegar ég heyrði af henni var hún sett
fram í algjöru gríni og það datt eng-
um í hug að hún yrði að veruleika.
Þetta er hugmynd sem hefur kom-
ið upp aftur og aftur og mér skilst
að það sama sé uppi á teningnum
í öðrum kvenfélögum,“ segir Svava
Theódórsdóttir, gjaldkeri Kvenfélags
Biskupstungna. Kvenfélagið gefur út
sérstakt dagatal í ár. Þar sitja kvenfé-
lagskonurnar naktar fyrir á fallegum
myndum, annaðhvort saman eða
einar sér.
Rífandi stemning
„Í haust var dimmt fram undan í
þjóðmálunum, maður var svo depp-
aður, og hugmyndin að dagatalinu
kom upp einu sinni enn. Ég greip
hana á lofti og hugsaði að núna yrð-
um við að gera eitthvað skemmti-
legt í mótvægi við þetta allt saman.
Ég setti þetta fram á fundi og það
var svona líka rífandi stemning fyrir
því. Miklu betri en mér hefði dottið í
hug,“ segir Svava.
Dagatalið kostar fimmtán hund-
ruð krónur og rennur ágóðinn til
tækjakaupa fyrir íþróttahúsið í Reyk-
holti sem og annarra mætra mála.
„Við ætlum að styrkja líkamsrækt-
araðstöðuna í Reykholti. Svo keypti
Heilbrigðisstofnun Suðurlands són-
arbekk fyrir ári sem kostaði tíu millj-
ónir og það er alltaf verið að safna
fyrir honum. Hann er mikið hugð-
arefni hjá okkur líka. Við vonum að
við seljum nógu vel til þess að safnist
einnig nóg fyrir honum.“
Sumar á móti þessu
„Dagatalið heitir Tvær úr Tungun-
um. Það er hálfpartinn í takt við
húmorinn í dagatalinu,“ segir Svava.
Hún segir að ekki hafi allar kvenfé-
lagskonurnar verið á eitt sáttar þegar
ákveðið var að gefa út dagatalið.
„Það voru ekki allir sammála um
þetta. Ég veit svo sem ekkert hvern-
ig það var utan félags en innan félags
var ekki eining um það. Það var búið
að tala um þetta svo lengi og ég vissi
að það þyrfti einhver að gera þetta.
Þetta myndi ekki gerast nema ein-
hver tæki þetta að sér. Það er búið
að vera ansi erfitt á köflum að vera
sá sem drífur þetta áfram því það
voru konur sem voru virkilega á móti
þessu. En það ógnaði okkur ekki.
Við hefðum alltaf gefið dagatalið út
hvernig sem það var.“
Berrassaðar fyrirsætur
Alls eru rúmlega fimmtíu konur í
kvenfélaginu og voru það þrettán
sem tóku þátt í myndatökunni. Svava
segir þessa upplifun draumi líkasta.
„Myndatakan tók tvo daga og var
ofboðslega skemmtileg. Það sem var
svo skemmtilegt í þessu var að gera
eitthvað sem við varla þorðum. Er
þetta ekki líka draumur hjá okkur
að sitja svona fyrir? Við vorum farð-
aðar, greiddar flott og svo var okkur
stillt upp.
Þetta þjappaði okkur líka rosa-
lega vel saman. Það er ekki á hverj-
um degi sem maður eyðir tíma með
konunum í kvenfélaginu berrassað-
ur einhvers staðar,“ segir Svava. Hún
segir nokkrar gagnrýnisraddir hafa
sagt að dagatalið samræmdist ekki
kvenfélagsandanum.
„Við vildum meina það að kven-
félagsandinn mætti kannski bara
breytast. Svo er hægt að spyrja sig
hvernig þessi kvenfélagsandi sé. Eru
það konur á peysufötum? Við reikn-
uðum alveg með þessu. Við hefðum
getað tekið myndir af okkur kapp-
klæddum en hver hefði nú nennt að
kaupa það?“
Venjulegar konur
Hugmyndin er upprunalega feng-
in frá Calendar Girls, hópi breskra
kvenna sem sat fyrir á nektardagatali
til að safna fé fyrir baráttunni gegn
hvítblæði. Mynd um konurnar var
gerð árið 2003 og sló í gegn. Svava
eignaðist aldrei slíkt dagatal en hefði
viljað það. Hún segir það skemmti-
lega við dagatal kvenfélagsins líka
vera að það sýni ósköp venjulegar
konur.
„Við erum bara ofsalega venjuleg-
ar konur. Ég er að verða fimmtug og
sit fyrir á einni mynd þar sem hengi-
maginn sést ágætlega. Það er bara
allt í lagi. Mér finnst það ekki asna-
legt. Við erum bara svona.“
Dagatalið er selt á garn.is og víðs
vegar á Suðurlandi. Konurnar stefna
einnig á að selja það í Kringlunni ein-
hverjar helgar en engin föst dagsetn-
ing er komin á það.
lilja KaTRín gunnaRSdóTTiR
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Við hefðum getað
tekið myndir af okk-
ur kappklæddum en
hver hefði nú nennt að
kaupa það?“
Kvenfélag með húmor Guðfinna Jóhannsdóttir sá um að
greiða konunum og Auður Kjartansdóttir farðaði en þær eru
báðar heimakonur. ljóSmyndaRi: íRiS jóhannSdóTTiR
Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt
af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi
17-26 okt.
Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32
Opið til 22:00 alla daga
Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð
KOMIÐ ÚT