Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 22
22 föstudagur 27. nóvember 2009 fréttir www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Nálastungudýnan gefur þér aukna orku og vellíðan Verslunin er opin virka daga frá kl. 9 -18 Opið laugardaga fram að jólum frá kl. 11-16 • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Hefur góð áhrif gegn streitu • Er slakandi og bætir svefn Shakti Original 10.750 kr. Shakti Light 9.750 kr. „Þetta er mikill heiður og það er ótrú- lega gaman að fá svona viðurkenn- ingu. Það er gaman að fá að vera í hópi þessara flottu kvenna sem fengu viðurkenningu,“ segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, sem á miðvikudag var veitt jafnréttisvið- urkenning Stígamóta fyrir ötul skrif í ýmsa fjölmiðla um kynbundið of- beldi. Í umsögn Stígamóta segir að Ingibjörg hafi af hugrekki og skiln- ingi skrifað þrátt fyrir að tilraunir hafi verið gerðar til þess að þagga niður í henni, meðal annars með dómi í réttarkerfinu sem nýst hafi fólki illa. Ingibjörg var fyrr á þessu ári dæmd í Hæstarétti fyrir umfjöllun sína um meint mansal á Goldfinger. „Það var áfall þegar dómurinn féll. Við vorum dæmd fyrir að nota ákveðna skilgreiningu á mansali. Í dómn- um var stuðst við aðra skilgreiningu en þá sem við notuðum. Skilgrein- ing okkar er þekkt og viðurkennd al- þjóðlega. Þetta var skref aftur á bak í baráttunni gegn mansali, það er að það megi ekki fjalla um það í neinu raunverulegu samhengi við íslensk- an veruleika. Þess vegna er ákaflega gaman að finna að það er hópur sem metur þetta þrátt fyrir dóminn. Samstillt átak kvenna Stígamót veitti viðurkenningar í tveimur flokkum til kvenna sem lagt hafa baráttuni lið á árinu. Aðgerð- arviðurkenningar Stígamóta fengu Ragna Árnadóttir dómsmálaráð- herra og lögreglukonurnar Sigríður Björk Guðjónsdóttir, Alda Hrönn Jó- hannsdóttir og Berglind Eyjólfsdótt- ir. Stígamót veitti viðurkenninguna fyrir samstillt átak dómsmálaráð- herra og lögreglukvennanna í man- salsmálum. Auk Ingibjargar fengu Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman og Fríða Rós Valdimarsdóttir jafnréttisviður- kenningar Stígamóta. Þórdís sendi nýverið frá sér bókina Á mannamáli og segir í umsögn Stígamóta að bóin sé mikilsverð tilraun til þess að eyða fordómum og fáfræði. „Hún ætti að vera aðhald fyrir stjórnvöld og leið- arljós fyrir okkur hin.“ Stjórnvöld að taka við sér Fríða Rós fékk viðurkenningu fyrir umfjöllun sína um mansal og segir í umsögn Stígamóta að hún hafi með skrifum sínum dregið fram í dags- ljósið skuggahliðar íslensks samfé- lags sem ekki verið lengur afneitað. „Það er hvetjandi að fá viður- kenningu frá Stígamótum sem gefast aldrei upp í baráttunni gegn ofbeldi á konum og það er mikill heiður að það sé tekið eft- ir þeirri vinnu sem maður vinn- ur. Þetta er hvatning til að halda áfram og gefast aldrei upp,“ seg- ir Fríða. Hún segir að stjórnvöld hafi upp á síðkastið tekið við sér í mansals- málum og það sýni sig í viðurkenn- ingunni sem dómsmálaráðherra og lögreglukonurnar hlutu. „Þessi mál eru komun á skrið og Stígamót hefði ekki veitt kon- unum þessar viðurkenn- ingar nema af því þær hafa ver- ið að sinna þessum mál- um af krafti.“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir „Það er gaman að fá að vera í hópi þessara flottu kvenna sem fengu viðurkenningu.“ Stígamót heiðraði á miðvikudag nokkrar konur fyrir framlag þeirra til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi og mansali. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, segir viðurkenninguna mikinn heiður. Fríða Rós Valdimarsdóttir segir stjórnvöld hafa tekið við sér í baráttunni gegn mansali. „Þetta er hvatning til að halda áfram“ ValgeIR öRn RagnaRSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Fríða Rós Valdimarsdóttir „Það er hvetjandi að fá viðurkenningu frá Stígamótum sem gefast aldrei upp í baráttunni gegn ofbeldi á konum og það er mikill heiður að það sé tekið eftir þeirri vinnu sem maður vinnur.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.