Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Qupperneq 64
64 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað
Faxafeni 8 108 Reykjavík
Sími: 534 2727 www.alparnir.is
SNJÓBRETTAPAKKAR
SOFTSHELL BUXUR
KERRUPOKAR
NOTAÐ UPP
Í NÝTT
DÚNÚLPUR
M/LOÐKRAGA NORD BLANC
UNDIRFATNAÐUR
Termo Deluxe
TANGIR
YUMA GÖNGUSKÓR SKÍÐAPAKKAR
MEÐ 20% AFSLÆTTI
SNJÓBRETTA- OG
SKÍÐAHJÁLMAR
Pakki 1
TILBOÐ: Kr. 43.188
Bretti 108 og 110
Skór 35 og 37
JR. bindingar
Pakki 2
TILBOÐ: Kr. 59.268
Bretti 125 til 155cm.
Skór 39 til 46
SR. bindingar
Dömu og herra,
Treyja 5.995.-
Buxur 4.995.-
Verð frá: 9.995.- á börn
Verð frá 12.995.- S.M.L
Vatnsheldar
Dömur frá kr. 24.995
Herra frá kr. 29.995.-
Kerrupoki/svefnpoki. 100cm
Fyrir þau allra minnstu
-8 til +5
Verð: 5.995.-
Hinar sívinsælu
Softshell buxurnar komnar
aftur fyrir gönguferðina,
skíðaferðina og
allt í öllu...
Vatnsheldar í strets
Verð: 19.995.-
Fjölnota tangir
í tösku, flott jólagjöf
Stór: 4.995.-
Lítil: 3.995.-
Tökum notuð heilleg
Carving skíði í stærðum 60 til 170
upp í bestu skíði fyrir þig
GÓÐAR JÓLAGJAFIR
Göngustafapar:
3-skiptur með hertum oddi
Svamphandfangi
Verð 9.995.-
Jólatilboð
7.995.-
Hitabrúsar í öllum
stærðum 0,5. 0,7. 1L
GÖNGUSTAFIR OFL.
Vibram botn og gúmmíkantur
Simpatex vatnsvörn
Stærð 38 til 44
Verð: 34.995.-
Jólatilboð 29.995.-
Göngusokkar frá 1.995.-
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir, blómaskreytir í blómabúðinni Árbæjarblómi, útbýr ýmsar tegundir af aðventu-
krönsum fyrir jólin. Allt frá mjög einföldum og ódýrum skreytingum þar sem vínglös eru undirstaðan yfir í
íburðarmikla kransa sem henta vel á stórum borðum. Fjólublár er litur aðventunnar og snjór er einnig áber-
andi í skreytingum Bryndísar í ár, líklega af því að snjórinn hefur ekkert látið kræla á sér ennþá.
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir blóma-
skreytir er önnum kafin við að útbúa
jólakransa og annað jólaskraut nú
þegar aðventan er að ganga í garð.
Bryndís starfar í blómabúðinni Ár-
bæjarblómi í Hraunbæ, þar sem fólk
getur bæði keypt efni í eigin krans
eða einhvern af tilbúnu krönsunum
sem Bryndís og aðrir önnum kafnir
blómaskreytar í búðinni hafa gert.
„Þetta er okkar tími. Það er mest að
gera hjá okkur í jólámánuðinum og
mikið álag á okkur, en þetta er líka
uppáhaldstíminn okkar,“ segir hún.
Bryndís bendir á að fólk geti sjálft
orðið sér úti um jólaskraut í náttúr-
unni. „Það er mjög sniðugt að fara í
göngutúr með fjölskyldunni út í skóg,
taka með sér poka og safna könglum,
sem falla af trjánum,“ segir Bryndís.
Aðspurð hvort allir megi fara í skóga
landsins og safna könglum, segir
hún svo vera, enda nóg af könglum.
Bryndís segir að fólk þurfi ekkert að
príla upp í trén, heldur sé hægt að
týna þá beint af jörðinni. Hún mælir
með því að fólk þurrki könglana vel
áður en þeir eru notaðir í skreyting-
ar. „Ég þurrkaði könglana með því að
setja þá á dagblaðabunka og leyfði
þeim að þorna í nokkra daga. Köngl-
anir bólgna upp og verða svolítið
stökkir þegar þeir þorna.“
Fjólublár litur er áberandi í
skreytingum Bryndísar þessa dag-
ana. „Fjólublár er aðventuliturinn,
þannig að mig langaði að gera eitt-
hvað í kringum það. Snjór einkenn-
ir líka skreytingarnar mínar núna,
sennilega af því að okkur vantar
snjóinn,“ segir hún.
valgeir@dv.is
Bryndís Eir Þorsteinsdóttir „Fjólublár
er aðventuliturinn, þannig að mig
langaði að gera eitthvað í kringum það.
Snjór einkennir líka skreytingarnar mínar
núna, sennilega af því að okkur vantar
snjóinn.“ Myndir róBErt rEynisson
Vínglös í nýju
hlutverki „Þetta
er skreyting sem
hægt er búa til
með því sem fólk
tekur út úr
skápunum sínum.
Þarna eru notuð
fjögur rauðvíns-
glös og þessi krans
sýnir að maður
þarf ekki alltaf að
hlaupa út í búð.
Þetta er skemmti-
legt innlegg og
mjög ódýrt. Þetta
er hálfgerður
kreppukrans.“
stór aðventu-
krans „Þessi er
voðalega fallegur,
hann er í aðventu-
litnum og er
hugsaður til að vera
á ílöngu stofuborði.
Þessi er meira svona
grand. En það er
hægt að nota hann
aftur og aftur, ef
maður skiptir um
greinarnar og
kertin.“
skemmtilegasti
tími ársins Jólatré „Þetta er mjög sniðugt og er hugsað fyrir fólk sem er með lítið pláss hjá sér og getur ekki haft jólatré. Þetta hentar fyrir fólk sem er á sjúkrahúsum og
elliheimilum og má ekki vera
með híasintur og kerti. Þessi
skreyting er líka falleg í
eldhúsglugga og það er
einfalt að gera hana. Þetta er
allt til hjá okkur og líka efnið
ef fólk vill gera þetta sjálft.“