Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 20
20 föstudagur 27. nóvember 2009 helgarblað
Rannsókn sérstaks saksóknara efna-
hagshrunsins, Ólafs Haukssonar, í
Exeter-málinu beinist að töluverðu
leyti að MP Banka. Þetta er öfugt við
áherslurnar í málinu, samkvæmt
fjölmiðlum, áður en saksóknari fór
í húsleitir hjá MP Banka og Byr á
þriðjudaginn og fjölmargir voru yfir-
heyrðir. Margeir Pétursson, stjórnar-
formaður MP Banka, segir aðspurður
að bankinn hafi skipulagt fjármögn-
unina fyrir stofnfjárbréfakaupunum
frá Byr fyrir hönd Exeter. „Ég staðfesti
að við höfðum milligöngu um þessi
viðskipti og að þau voru boðin með
fjármögnun,“ segir Margeir en af orð-
um hans að dæma voru MP Banki og
Byr búnir að gera með sér samkomu-
lag um hvernig selja ætti bréfin enda
þjónaði það hagsmunum beggja að-
ila.
Rannsóknin snýst um að kanna
sölu stjórnarmanna og stjórnenda
Byrs á stofnfjárbréfum í sparisjóðn-
um til eignarhaldsfélagsins Exeter
Holding á seinni hluta árs 2007 fyrir
1,4 milljarða króna. Lánið sem Exet-
er notaði til að kaupa bréfin var feng-
ið frá Byr að langmestu leyti en MP
Banki tók einnig þátt í fjármögnun-
inni að litlu leyti. Bréfin í sparisjóðn-
um höfðu þá lækkað mikið í verði
eftir bankahrunið og það var ljóst
að verðmæti þeirra nægði ekki til að
standa skil á skuldunum sem stofnað
var til hjá MP til að fjármagna stofn-
fjárbréfakaupin. Stjórnarmennirn-
ir og starfsmenn Byr gerðu því upp
skuldir sínar við MP Banka með því
að veita eignarhaldsfélagi lán til að
kaupa bréf sem þeir áttu sjálfir og
hafði lánveitandi þeirra, MP Banki,
milligöngu um viðskiptin.
Fleiri hjá Byr
persónulega ábyrgir
Salan fór fram með milligöngu
MP Banka sem seldi bréf-
in til Exeter, sem var í
eigu Ágústs Sindra
Karlssonar lög-
fræðings. Ágúst
Sindri kom að Ex-
eter-málinu fjár-
mögnuðu, sam-
kvæmt Margeiri,
þannig að
hann leitaði
ekki sjálfur eftir
lánafyrirgreiðslu
frá Byr. MP Banki
hafði því
komist að
sam-
komulagi við Byr um lánveiting-
una til stofnfjárbréfakaupanna
áður en Exeter keypti bréfin því
honum var kynnt að hann gæti
fengið fjármögnun til að kaupa.
Lánið frá Byr til Exeter var ein-
göngu með veði í bréfunum.
Ástæðan fyrir milligöngu MP
Banka var sú að bankinn hafði
lánað stjórnarmönnum, meðal
annars Jóni Þorsteini Jónssyni,
og stjórnendum Byrs fyr-
ir stofnfjárbréfakaup-
unum. MP átti því á
hættu að tapa fjár-
munum ef bankinn
hefði leyst bréf Byrs-
fólksins til sín auk
þess sem heim-
ildir DV herma
að einhverjir lán-
takendanna hafi
verið í persónu-
legum ábyrgðum
fyrir lánunum og
ekki verið skráðir
fyrir þeim í gegn-
um einkahlutafélög
heldur persónulega.
Byrsfólkið átti því á
hættu að MP Banki
gengi að því væru
lánin ekki gerð
upp. Með lánveit-
ingunni til Exet-
er var þetta hins
vegar tryggt.
Sú stað-
reynd að lán-
takendurnir
hjá Byr voru að
einhverju leyti í
persónulegum
ábyrgðum fyrir
lánunum frá MP Banka og hafi í ein-
hverjum tilfellum verið skráðir fyrir
þeim sjálfir er lykilatriði í málinu þar
sem það kann að útskýra hvata þeirra
til að ganga frá lánunum með lán-
veitingunni frá Byr. Ef lántakendurn-
ir hefðu allir verið með lánin inni í
einkahlutafélögum án allra persónu-
legra ábyrgða hefðu þeir getað sleppt
því að gera upp lánin og MP Banki
hefði eingöngu setið uppi með veð
í verðlitlum stofnfjárbréfum. Stjórn
Byrs gat því bjargað sér, og starfs-
mönnum sparisjóðsins, fyrir horn
með lánveitingunni en á sama tíma
þjónað hagsmunum MP Banka.
Rannsókn sérstaks saksóknara
mun því beinast að því að átta sig á
þátttöku MP Banka í Exeter-fléttunni
og hvort hann kunni að vera ábyrg-
ur. Verið er að rannsaka hvort um
umboðssvik, brot á auðgunarbrota-
kafla almennra hegningarlaga, hafi
verið að ræða í viðskiptunum. Eins
og er virðist saknæmið í Exeter-mál-
inu fyrst og fremst liggja hjá þeim
stjórnendum Byrs sem tóku
þá ákvörðun að veita Exet-
er lánið til að kaupa stofn-
fjárbréfin af þeim en eins
og áður segir þarf að kort-
leggja betur aðkomu MP
Banka að málinu, nú þeg-
ar alveg ljóst er að bank-
inn kom í veg fyrir mikið
tap með Exeter-viðskipt-
unum.
Ágúst Sindri: MP Banki sá
um fjármögnunina
Ágúst Sindri Karlsson, eigandi
Exeter, sendi frá sér til-
kynningu á þriðju-
daginn eftir
að greint
hafði ver-
ið frá
húsleit-
unum
hjá Byr
og MP
Banka þar sem hann sagði með-
al annars: „Stofnbréfin voru keypt
af MP-banka sem jafnframt sá um
fjármögnun kaupanna. Mér var
ekki kunnugt um hverjir voru fyrri
eigendur stofnfjárbréfanna fyrr en
mörgum mánuðum síðar.“
Ágúst Sindri var því ekki sá sem
leitaði til Byrs eftir fjármögnun til að
kaupa stofnfjárbréfin heldur var það
MP Banki sem seldi bréfin með fjár-
mögnuninni frá Byr. Viðskiptin þjón-
uðu því bæði hagsmunum stjórn-
enda Byrs, sem losnuðu við bréfin
sín og gátu greitt upp lánin hjá MP
Banka, og eins MP Banka
sem fékk greitt upp
í kröfurnar sem
voru útistand-
andi á hendur
Byrsfólkinu.
Lántakend-
urnir losnuðu
jafnframt við
að þurfa að
sitja undir
mögulegum
innheimtu-
aðgerðum MP
Banka.
BYR OG MP LÖGÐU
Á RÁÐIN UM LÁNIÐ
IngI F. VIlhjÁlMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Margeir Pétursson segir að MP Banki hafi haft milligöngu um viðskiptin á milli stjórnenda hjá sparisjóðn-
um Byr og Exeter Holding. Byr og MP Banki voru búnir að ganga frá samkomulagi um fjármögnunina áður
en kaupandi að bréfunum fannst. Stjórnendur Byrs voru sumir hverjir skráðir persónulega fyrir lánunum
frá MP Banka. Þeim var bjargað fyrir horn með lánveitingunni frá Byr.
2 miðvikudagur 25. nóvember 2009
fréttir
Fyrrverandi stjórnarmenn í Byr spari-
sjóði sæta rannsókn hjá sérstökum
saksóknara vegna láns sem Byr veitti
Tæknisetri Arkea/Exeter Holding
til að kaupa stofnfjárbréf sem voru
í eigu þeirra. Sjálfir höfðu þeir áður
tekið lán hjá MP Banka til að kaupa
bréfin og voru í
per- sónu-
leg-
um
ábyrgðum. Með sölu bréfanna
sluppu þeir við að eiga á hættu að
verða gjaldþrota ef MP Banki gengi
að þeim vegna skuldanna.
Embætti sérstaks saksóknara,
Ólafs Haukssonar, gerði húsleit hjá
sparisjóðnum Byr í Borgartúni og hjá
MP Banka í Skipholti á mánudag í
tengslum við rannsóknina á Exeter-
málinu svokallaða. Áður hafði ekki
komið fram að embættið væri einnig
að rannsaka MP Banka í rannsókn-
inni.
Yfirheyrslur í málinu hófust í gær
og munu standa yfir næstu daga.
Rannsóknin
beinist með-
al annars
að fyrr-
verandi
stjórnar-
mönnum
í Byr, Jóni
Þorsteini
Jónssyni
og Birgi
Ómari Har-
aldssyni,
og
MP Banka. Fullyrða má að Jón og
Birgir verði yfirheyrðir vegna máls-
ins. Jón Þorsteinn er ekki á landinu
sem stendur, hann býr í Bretlandi
ásamt fjölskyldu sinni. En eins og
kemur fram í tilkynningu sérstaks
saksóknara beinist rannsóknin að
fjölda manns og því eru fleiri til rann-
sóknar en þeir, hugsanlega einnig
einhverjir starfsmenn Byrs sem áttu
bréf í Byr sem þeir losuðu sig við.
Greint var frá því í lok október að
Fjármálaeftirlitið hefði sent rann-
sókn málsins til sérstaks saksókn-
ara, ákæruvalds, en DV sagði fyrst
fjölmiðla frá rannsókn málsins í lok
mars. Einungis um mánuður er því
liðinn frá því Fjármálaeftirlitið sendi
málið til sérstaks saksóknara og þar
til embættið fer út í þessa viðamiklu
rassíu. Þetta bendir til að málvextir
liggi nokkuð ljósir fyrir.
Lánuðu Exeter; voru í persónu-
legum ábyrgðum
Embættið rannsakar hvort auðgun-
arbrot og umboðssvik hafi átt sér
stað í málinu sem snýst um tvær lán-
veitingar upp á 1,4 milljarða króna
sem stjórn Byrs samþykkti til eignar-
haldsfélagsins Tæknisetur Ark-
ea/Exeter Holding í október
og desember 2008. Lánið
til Arkea var notað til að
kaupa stofnfjárbréf stjórn-
armanna Byrs í spari-
sjóðnum, meðal annars
bréf stjórnarformannsins
Jóns Þorsteins og Birgis
Ómars, á yfirverði sem og bréf sem
MP Banki hafði leyst til sín með veð-
köllum frá starfsmönnum Byrs. Veð-
ið fyrir láni Exeter var að öllu leyti í
stofnfjárbréfunum sem keypt voru.
Bréfin í Byr höfðu lækkað gríð-
arlega í verði eftir bankahrunið og
þjónaði það hagsmunum eigend-
anna að losa sig við þau. Einn-
ig þjónaði það hagsmun-
um MP Banka að Exeter
Holding keypti bréfin þar
sem bankinn hafði veitt
eigendunum lán til að
kaupa stofnfjárbréf-
in upphaflega. Veðið
fyrir lánum stjórnar-
og starfsmanna Byrs
voru í bréfunum sjálf-
um en þeir voru einnig
í persónulegum ábyrgð-
um, samkvæmt heimild-
um DV. MP Banki stóð því
frammi fyrir því að leysa til
sín verðlítil stofnfjár-
bréf með veð-
köllum og
hugsan-
lega að
ganga
að
þeim
starfs- og stjórnarmönnum í Byr sem
tekið höfðu lán til að kaupa stofnfjár-
bréfin og setja þá í þrot. MP Banki
hefði því tapað miklu á lánveiting-
unum sem og lántakendurnir per-
sónulega ef MP Banki hefði gengið
að þeim tryggingum og ábyrgðum
sem voru fyrir hendi utan stofn-
fjárbréfanna sjálfra.
Eins og málið lítur
út í dag virðast stjórn-
armenn og starfs-
menn í Byr því hafa
tekið ákvörðun um
að veita Exeter lán
til að kaupa stofn-
fjárbréf í Byr sem
þeir áttu sjálfir en
með milligöngu
MP Banka og Ág-
ústs Sindra Karls-
sonar og Exeter
Hold-
SLUPPU VIÐ GJALDÞROT
MEÐ ÞVÍ AÐ LÁNA EXETER
IngI F. VILhjáLmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
jón Þorsteinn jónsson ágúst sindri Ka
rlsson
Tilkynning sérstaks
saksóknara á þriðjudag:
„Í tengslum við rannsókn embættis sérstak
s saksóknara á kaupum félagsins
Exeter ehf á stofnbréfum í BYR sparisjóði h
austið 2008 fóru fram húsleitir á
tveimur stöðum í dag að undangengnum
úrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur.
Yfirheyrslur í málinu hófust á sama tíma og
standa enn.
Til rannsóknar er grunur um brot á auðgun
arbrotakafla almennra hegningarlaga
í tengslum við umrædda sölu á stofnbréfu
m og lánagerningum þeim tengdum
. Um er að ræða verulega fjárhagslega hag
smuni og rannsóknin tengist fjölda
manns.
Aðgerðirnar í dag voru nokkuð víðtækar o
g hófust með leit á tveimur stöðum
samtímis kl. 10 í morgun. Af 22 starfsmönn
um embættisins tóku flestir þátt í
aðgerðunum auk tæknimanna frá embætt
i lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu.“
Rannsóknin í fullum gangi
Rannsókn Ólafs Haukssonar,
sérstaks saksóknara, á Exeter-mál-
inu er í fullum gangi. Tvær húsleitir
voru gerðar í gær auk þess sem
fjöldi yfirheyrslna fór fram.
stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson
var stjórnar-
formaður í sparisjóðnum Byr þegar Exeter
Holding var veitt
lánið í desember í fyrra. Hugsanlegt er að h
ann hafi átt hluta
þeirra stofnfjárbréfa sem keypt voru. Jón Þ
orsteinn er einn
þeirra sem verður yfirheyrður við rannsókn
málsins.Leitað hjá mP Banka Sérstakur saks
óknari
gerði húsleit hjá MP Banka og sparisjóðnu
m Byr á
þriðjudaginn út af rannsókninni á Exeter-m
álinu.
Margeir Pétursson er stjórnarformaður ban
kans.
ing. Því má segja að allir hafi grætt
á viðskiptunum, stofnfjáreigendur
í Byr sem áttu í hlut og MP Banki,
nema þá auðvitað hinn almenni
stofnfjáreigandi í Byr sem vissi ekki
af viðskiptunum fyrr en greint var frá
þeim í fjölmiðlum í vor.
Þegar þetta gerðist var MP Banki
þegar búinn að leysa til sín bréf í
eigu starfsmanna Byrs, meðal annars
Ragnars Z. Guðjónssonar, sparisjóðs-
stjóra hjá Byr, og annarra stjórnenda
hjá Byr. Þessi bréf sem MP Banki var
búinn að leysa til sín voru þau bréf
sem MP seldi inn í Exeter.
Næst ekki í Birgi og Jón
Þorstein
Birgir Ómar sagði í samtali við DV
í mars að hann væri enn stofnfjár-
eigandi í sparisjóðnum en að hann
hefði selt hluta bréfa sinna á síðasta
ári. Hann vildi ekki gefa upp hversu
stóran hlut hann átti né hversu stór-
an hlut hann hefði selt. DV náði ekki
í Birgi á þriðjudag.
DV náði ekki heldur í Jón Þorstein
þar sem hann er í Bretlandi - breskt
talhólf hans kom á eftir að hringt
hafði út. Jón Þorsteinn er sömuleiðis
einn af barnalánsforeldrunum sem
tóku lán hjá Glitni fyrir hönd barna
sinna til að kaupa stofnfjárbréf í Byr
í lok desember 2007. Fullyrða má að
Jón Þorsteinn verði yfirheyrður í mál-
inu þar sem hann er lykilmaður í því.
Spurningin er þá sú hvort hann verð-
ur kallaður heim til Íslands til þess á
næstunni.
Ágúst og tengslin við MP
Sá sem er skráður fyrir Exeter Hold-
ing heitir Ágúst Sindri Karlsson, en
hann hefur starfað sem lögmaður
MP Fjárfestingarbanka og er einn
af stofnendum og hluthöfum í MP
Verðbréfum sem síðar urðu að MP
Fjárfestingarbanka. Eignarhaldsfé-
lagið er alfarið í eigu Ágústs, að hans
sögn, og á það tæplega tveggja pró-
senta hlut í bankanum eða 306 millj-
ón hluti.
Afar líklegt er að sérstakur sak-
sóknari hafi í húsleitinni í MP Banka
meðal annars verið að reyna að afla
gagna sem tengjast Ágústi Sindra
Karlssyni og lántakendunum frá Byr
auk gagna sem tengjast bankanum
sjálfum. MP banki gaf það reynd-
ar út á þriðjudag að húsleit sérstaks
saksóknara tengdist ekki bankan-
um sjálfum eða starfsmönnum hans
heldur ákveðnum viðskiptavinum
hans. Heimildir DV herma hins veg-
ar að þetta sé einfaldlega hefðbund-
in „krísustjórnun“ hjá bankanum og
að aðkoma bankans sé meiri.
Ágúst sagðist, í samtali við DV
í mars síðastliðnum þegar blaðið
byrjaði að reyna að viða að sér upp-
lýsingum um málið, ekki muna ná-
kvæmlega hvenær hann keypti hlut-
inn í Byr. „Ég þori ekki að segja til
um það,“ sagði Ágúst en það var eftir
bankahrunið í byrjun október. Ágúst
sagðist hafa keypt hlutinn í gegnum
MP Banka, sem hafði umsjón með
markaði fyrir stofnfjárhluti í spari-
sjóðnum.
DV náði ekki í Ágúst Sindra á
þriðjudaginn til að ræða við hann
um málið og spyrja hvernig hon-
um hefði dottið í hug að kaupa slíkt
magn stofnfjárbréfa eftir að bréfin
höfðu lækkað mikið í kjölfar banka-
hrunsins. Afar ólíklegt er að maður
með mikla reynslu af verðbréfamark-
aði taki slíka ákvörðun á viðskipta-
legum forsendum.
Rannsóknin beinist að MP
Banka
Þrátt fyrir tilkynningu MP Banka
herma heimildir DV að rannsókn
sérstaks saksóknara á Exeter-mál-
inu beinist einnig mjög að MP
Banka sjálfum. Ein af spurningun-
um sem svara þarf í rannsókninni
er hvers eðlis aðkoma MP Banka að
Exeter-málinu var. Bankinn lánaði
stjórnarmönnunum og þeim starfs-
mönnum sem keyptu stofnfjárbréf-
in í Byr fyrir bréfunum á sínum tíma.
Veðið fyrir lánunum var í bréfunum
sjálfum og eins voru lántakend-
urnir í persónulegum ábyrgðum,
líkt og komið hefur fram. Bankinn
hafði því mikilla hagsmuna að gæta
í málinu.
Það sem embætti sérstaks sak-
sóknara þarf meðal annars að kom-
ast að er hvort MP Banki hafi átt þátt
í að stofna til viðskiptanna með bréf-
in sem Exeter keypti, en ekki bara
stjórn og stjórnendur Byrs. Hér þarf
meðal annars að athuga hver það var
sem græddi á viðskiptunum. Í þessu
tilfelli voru það bæði lántakendurnir,
eins og Jón Þorsteinn Jónsson, sem
hugsanlega sluppu við að vera sett-
ir í þrot af MP Banka út af viðskipt-
unum, og eins MP Banki sem fékk
greitt á yfirverði í peningum fyrir bréf
sem orðin voru verðlítil auk þess sem
bankinn slapp við að þurfa að ganga
að öðrum veðum og lántakendunum
sjálfum.
Rannsókn embættisins mun
væntanlega leiða í ljós hvar ábyrgð-
in, og þar með saknæmið, í Exeter-
málinu liggur. En eins og er virðist
ábyrgðin liggja að mestu hjá stjórn
Byrs sem veitti lánið og eins hjá MP
Banka.
Yfirheyrslur í málinu munu halda
áfram hjá sérstökum saksóknara
næstu daga.
fréttir
25. nóvember 2009 miðvikudagur 3
fréttirdv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
þriðjUdagUr 31. mars 2009 dagblaðið v
ísir 54. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
LeigUbíLstjóri
sakaðUr Um
mannrán
Dularfull viðskipti með stofnfjárhluti:
STJoRNENDUR
BYRS SÆTA
RANNSoKN
Ævintýraeggið
frá freyjU er best
matgÆðingar dv smökkUðU öLL pásk
aeggin neytendUr
LÆsti eLdri mann inni í bíLnUm
sparissjóðsstjórinn tiL rannsóknar
fjármáLaeftirLitið kaLLar eftir töLv
UpóstUm
byr Lánaði 1,4 miLLjarða vegna stofn
fjárbréfa
Lánaði féLagi sem keypti bréf stjórn
enda byrs
mp banki gjaLdfeLLdi Lán og gerði ve
ðkaLL
metUr
sönginn
meira en
stjórn-
máLin
fóLk
geir óLafs var
hvattUr í framboð
bankamaðUr
grÆddi á vatni
Undir jökLi
fréttir
dv gefUr
páskaegg
31. mars 2009.
Karl Karlsson
Karl Karlsson, 48 ára íslenskur
maður búsettur í Noregi, var á leið
heim til sín í Gol í Hallingsdal frá
Ósló á sunnudagskvöldið. Hann
tók rútu en var hent út á miðri leið,
um það bil áttatíu eða níutíu kíló-
metrum frá áfangastaðnum, vegna
ofurölvunar. Hann fannst um há-
degisbil á mánudaginn látinn í
stöðuvatni í Krøds-héraði.
Gerði bílstjórinn rétt?
Málið hefur vakið mikla athygli í
Noregi og fjölluðu fjölmiðlar mikið
um það á mánudag. Tugir manna
leituðu að Karli með hjálp leitar-
hunda, þyrlna og báta.
Málið vakti ekki síst athygli
vegna þess að Karli var hent út
úr rútunni og fannst síðan látinn.
Margir norskir bloggarar velta því
fyrir sér hvort rútubílstjórinn hafi
gert rétt með því að henda Karli út
í ljósi þess að hann var í mjög ann-
arlegu ástandi.
Lét lögreglu vita
Að sögn Stein Arild Gjestemoen,
lögreglustjóra í Krøds-héraði,
setti rútubílstjórinn sig í sam-
band við lögregluna vegna þess
að Karl var of ölvaður til að fá að
ferðast lengra.
„Þegar rútan stöðvaðist hjá
rútuskýlinu í Noresund hringdi
bílstjórinn í lögregluna og sagð-
ist ætla að henda honum út.
Hann vildi ekki hafa hann í rút-
unni lengur,“ segir Gjestemoen í
samtali við Dagbladet. Lögregl-
an gaf grænt ljós á að Karli yrði
hent út úr rútunni þó að skyggni
væri slæmt, hann klæddur í
dökkan klæðnað og mjög ölv-
aður. Lögreglan kom á staðinn
um hálftíma seinna en fann Karl
ekki. Gjestemoen telur bílstjór-
ann hafa gert það eina rétta í
stöðunni.
„Hann lét lögregluna vita og
gerði það sem hann átti að gera
í þessari stöðu.“
Að sögn Stian Hårklau, yfir-
manns rútubílstjórans, hefur bíl-
stjórinn það fínt eftir atvikum.
Vissi ekki hvar hann var
Rúmum hálftíma eftir að Karli var
hent út úr rútuni hringdi hann í
sambýliskonu sína en gat ekki út-
skýrt fyrir henni hvar hann var.
Hún heyrði ekki í honum aftur og
um fjögurleytið þá nótt tilkynnti
hún um hvarf hans. Lögreglan hóf
ekki leit strax því samkvæmt upp-
lýsingum frá rútubílstjóranum var
Karl í góðu standi og gat séð um sig
sjálfur.
Á sunnudag fór umfangsmikil
leit að Karli í gang.
Tveggja barna faðir
Um hádegisbilið á mánudag fannst
lík Karls í stöðuvatni í Krøds-hér-
aði, fimm til sex hundruð metrum
norður af staðnum þar sem hon-
um var vísað út úr rútunni. Leitar-
þyrla fann Karl og fundust skilríki
í klæðum hans sem staðfestu að
þetta var hann.
Karl skilur eftir sig norska konu
og tvö börn. Í gær bauðst fjölskyldu
hans áfallahjálp.
Karl verður krufinn á hefðbund-
inn hátt en dánarorsök er ekki enn
kunn.
Síðasta myndin Þessi mynd var tekin um hál
f eitt aðfaranótt sunnudags
af Karli. Nokkrir höfðu samband við lögreg
luna og töldu sig hafa séð hann
gangandi meðfram þjóðveginum. Hann fa
nnst látinn á hádegi á mánudag.
Sviplegt andlát
föður í Noregi
Umfangsmikil leit Eins og sést á
þessu skjáskoti af norsku fréttasíðunni
DT var leitin að Karli umfangsmikil.
Síðustu klukkustundirnar í
lífi Karls:
Aðfaranótt sunnudags:
00.11: Karli er hent út úr rútunni.
00.28: Mynd tekin af Karli af öryggis
myndavél á bensínstöð í
Noresund.
00.57: Karl hringir til sambýliskonu
sinnar en getur ekki útskýrt
fyrir henni hvar hann er. Hún
heyrði ekki í honum aftur.
03.30: Sambýliskona Karls tilkynnir
hvarf hans.
Á sunnudag fer umfangsmikil leit
í gang.
Mánudagur:
11.55: Karl finnst látinn í stöðuvatni.
ÞóRaRiNN ÞóRaRiNSSoN
fréttastjóri skrifar toti@dv.is
fréttir
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjUdagUr 31. mars 2009 dagblaðið vísir 54. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
LeigUbíLstjóri
sakaðUr Um
mannrán
Dularfull viðskipti með stofnfjárhluti:
STJoRNENDUR
BYRS SÆTA
RANNSoKN
Ævintýraeggið frá freyjU er bestmatgÆðingar dv smökkUðU öLL páskaeggin
neytendUr
LÆsti eLdri mann inni í bíLnUm
sparissjóðsstjórinn tiL rannsóknarfjárm L eftirLitið kaLLar eftir töLvUpóstUmyr Lán ði 1,4 miLLjarða vegna stofnfjárbréfaLánaði féLagi sem keypti bréf stjórnenda byrsmp anki gjaLdfeLLdi Lán og gerði veðkaLL
m tU
s ngi
m a en
stjórn-
máLin
fóLk
geir óLafs var hvattUr í framboð
bankamaðUr
grÆddi á vatni
Undir jökLi
fréttir
dv gefUr
páskaegg
lánið skráð á hann Lán Jóns
Þorsteins Jónssonar frá MP Banka var
skráð á hann persónulega og var hann
því ábyrgur fyrir því. Hagsmunir Jóns
af að losna við lánið voru því miklir því
bankinn hefði getað gengið að honum.
Sá um fjármögnunina Margeir Pétursson,
stjórnarformaður MP Banka, segir að bank-
inn hafi séð um milligöngu um stofnfjárvið-
skiptin á milli Byrs og Exeter Holding.
30. mars Fyrsta fréttin
um málið birtist í DV í mars.
25. nóvember Sérstakur
saksóknari með rassíu.