Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Side 25
Hver er maðurinn? „Stefán Ingi
Stefánsson, framkvæmdastjóri
UNICEF.“
Hvað drífur þig áfram?„Hamingju-
leit. Það drífur mig einna helst áfram
og áhuginn á að vinna með góðu
fólki að góðum verkefnum.“
Hvar ertu uppalinn? „Í Hlíðunum.“
Hvað er í jólamatinn hjá þér?
„Hnetusteik.“
Hvað hefur þú starfað lengi sem
framkvæmdastjóri UNICEF á
Íslandi? „Það eru komin sex ár.“
Í hverju felst starf þitt aðallega?
„Það er að kynna starf UNICEF og afla
því stuðnings.“
Af hverju rauð nef? „Slagorðið er:
Notið grín og spé til þess að safna fé.
Þetta er byggt á módeli frá Bretlandi,
Red Nose Day, og hefur gefist vel.“
Hvað hafa selst mörg nef hingað
til og hvar er hægt að fá þau?
„Það er hægt að kaupa nefin í Bónus
og Hagkaupum. Þau fóru í sölu í
fyrradag og ég er því miður ekki með
nákvæmar tölur. En það fóru 1200
strax á fyrsta degi og það er nóg til.“
Hversu miklu máli skiptir hvert
nef? „Hvert nef skiptir mjög miklu
máli því ekki þarf háa fjárhæð til að
breyta og bæta líf barna. Fyrir hvert
nef er til dæmis hægt að sjá 114
börnum sem þjást af ofþornun fyrir
lífsnauðsynlegri saltupplausn. Svo
skiptir líka máli að sem flestir taki
þátt og horfi á sjónvarpsþáttinn 4.
desember á Stöð 2.“
Eru Íslendingar duglegir við að
leggja UNICEF lið? „Já, mjög
duglegir. Þegar eru rúmlega 14.000
Íslendingar sem eru heimsforeldrar.
Það eru miðað við höfðatölu
hlutfallslega flestir heimsforeldrar
hér í heiminum öllum sem er mjög
ánægjulegt.“
Hvað langar þig helst í í jólagjöf?
„Þetta er frábært tækifæri til þess að
birta óskalistann en því miður er ég
ekki búinn að hugsa neitt út í það.“
Hefur þú verslað í Kosti?
„Hef verslað þar einu sinni og leist vel
á.“
GUðNý BjörG jENsdóttIr,
48 áRa SJúkRalIðI
„Nei.“
GUðjóN sIGtryGGsoN,
EFtIRlaUNaÞEgI
„Já, já, ég hef farið þangað nokkrum
sinnum.“
MAttHANA sUkvAI,
40 áRa vERSlUNaRkoNa
„Ég fór og kíkti á verslunina og leist vel
á það sem ég sá.“
dAGNý GUðMUNdsdóttIr,
vINNUR á BRáðamóttökU BaRNa
Dómstóll götunnar
UNICEF á ÍslANdI
selur nú rauð nef til styrktar
samtökunum. Íslendingar eru með
hlutfallslega flesta heimsforeldra í
heiminum og Stefán Ingi Stefánsson,
framkvæmdastjóri samtakanna á
Íslandi, er ánægður með landsmenn
þó að alltaf megi gera betur.
Hlutfallslega
flestir Heims-
foreldrar Hér
„Nei, það hef ég ekki gert.“
HrANNAr jóNssoN,
46 áRa atvINNUlaUS
maður Dagsins
Á Karl-Johan í Ósló er annar hver
maður klæddur í appelsínugult. Hér
er þó ekki búsáhaldabylting á ferð-
inni, heldur úrslitakeppnin á milli
Molde og Álasunds í fótbolta þar
sem annað liðið klæðist bláu og hitt
appelsínugulu.
Það er lítil hætta á að Norðmenn
taki upp á því að steypa stjórnvöld-
um sínum í bráð. Vissulega eru
vandamál í Noregi, eins og annars
staðar. Vasamaðurinn svokallaði er
á leiðinni fyrir dóm eftir fjölmörg
áreitismál. Svo mörg nauðgunar-
mál hafa komið upp vegna leigubíl-
stjóra í Stafangri að konum þar er
ráðið frá því að ferðast einar í taxa.
Sextándi einstaklingurinn er látinn
af völdum svínaflensu, en hlutfalls-
lega hefur Noregur komið illa út úr
faraldrinum.
Hér eru þó engin dæmi þess að
ráðamenn sjálfir hafi komið land-
inu í stórfelld vandræði. Helsta
spillingarmálið er það að meðlimir
konungsfjölskyldunnar fengu bólu-
setningu á undan hinum almenna
borgara. Norðmenn þola það illa
þegar gert er upp á milli fólks með
þessum hætti. Eigi að síður mættu
15.000 manns til að hlusta á Mörtu
prinsessu ræða um engla á ráð-
stefnu í Lilleström, en flestir brosa
út í annað þegar minnst er á þetta
áhugamál hennar.
Myndlíkingar um bankahrun
Annars er almennt allt í lukkunn-
ar velstandi. Olíusjóðurinn hækk-
aði um 13 prósent á síðasta árs-
fjórðungi þegar verðbréfamarkaðir
fóru að taka við sér. Matvara hefur
lækkað lítillega í verði. Þegar Eva
Joly (með plástur á nefinu) birtist í
fjölmiðlum er hún ekki að ræða um
spillingu í fjármálalífinu, heldur að
kynna nýja bók.
Það berast þó stærri fréttir frá
Íslandi. Fyrr í haust gerði helg-
arblað VG ítarlega úttekt á mál-
um þar. Greinin er myndskreytt
með útmáluðum bíl Björgólfs
Thors, tóma húsinu að Fríkirkju-
vegi 11, fólki að versla í Bón-
us og rapparanum 50 Cent.
Fyrir ofan mynd af KB
Banka er fyrirsögn-
in „Glitnir, Lands-
banki og Kaupþing
eru meðal stærstu
gjaldþrota sem
heimurinn hef-
ur séð.“ Samlík-
ingar eru not-
aðar óspart.
Efnahagnum
er líkt við eld-
gos sem nú
hafi kólnað
niður í frost-
mark. Lands-
lagið fyrir
utan Leifs-
stöð er sagt
vera eins og
ofsteikt brauð með sprunginni
skorpu og er talið táknrænt fyr-
ir ástand mála. Björgólfur Thor er
sagður hafa lagt stöðugt meira und-
ir og skemmt sér eins og þynnkan
myndi aldrei koma. Þetta er góður
tími til að vera skáld og talað er við
Einar Má Guðmundsson sem segir:
„Þeir sem bera ábyrgð haga sér eins
og drukkinn ökumaður sem hefur
keyrt á ljósastaur og kennir ljósa-
staurnum um.“
Blaðið segir að tapið af banka-
hruninu sé um 40 milljarðar Banda-
ríkjadala, svo stór upphæð að það
sé erfitt að skilja hana. Það sem Ís-
lendingar hins vegar sjái er
að þeir þurfa nú að borga
tvöfalt verð fyrir tó-
matsósu, að mik-
ið af ellilífeyr-
inum er horfið
og að það muni
líða mörg ár þar til efnahagurinn
verði kominn aftur á fæturna.
Björgólfur thor og Hávamál
Blaðið spyr sig hvernig standi á því
að lítil 300.000 manna sjómanna-
þjóð hafi gengið svona af göflun-
um og svarar því svona: „Lykilinn
er að finna í þéttum böndum á milli
bankanna og örfárra nýríkra við-
skiptamanna. Fyrst græddu þeir á
því að hjálpa hver öðrum, en þegar
þeir voru komnir út á hálan ís drógu
þeir hver annan niður.“
Myndin sem hér er dreginn upp
minnir á atriðið úr kvikmyndinni
Veiviseren, sem kom út fyrir rétt
rúmum 20 árum. Þar gerir ættbálkur
Tsjúda, sem Íslendingurinn Helgi
Skúlason fer fyrir, árás á byggð-
ir Sama í Norður-Noregi. Einn
Saminn gerist leiðsögumað-
ur og platar þá fram á hengi-
flug. Þar sem þeir eru bundnir
saman leiðir fall eins þeirra til
falls allra. Á Íslandi höfðu ræn-
ingjarnir bundið sig við alla þjóð-
ina, sem hlaut því að fara fram af
með þeim í fallinu.
Í VG er vísað til þess
þegar Björgólfur Thor
árið 2007 vitnaði í Háva-
mál og sagði: „Pening-
ar og völd eru bara leið
til þess að fá virðingu.
Deyr fé, deyja frændur,
og maður deyr sjálfur.
En orðsporið er eft-
ir.“ Blaðið bætir því
við að andlitsmynd
hans í pissuskálinni
á skemmtistaðnum
Sódómu setji þessi orð
í nýtt samhengi.
„Ísland er eins og ofsteikt brauð með sprunginni skorpu“
mynDin
Horfðu til himins Flugið hefur heillað mannkynið öldum saman þó sjaldan hafi það verið jafn auðvelt og núna. MyNd sIGtryGGUr ArI
kjallari
umræða 27. nóvember 2009 föstudagur 25
vAlUr
GUNNArssoN
rithöfundur skrifar
„Peningar og
völd eru bara
leið til þess að fá
virðingu.“