Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Blaðsíða 50
50 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað Þrjár listakonur á Akureyri ætla að skapa skemmtilega jólastemmingu á Eyrinni en þær vilja sjá hverfið þró- ast og verða blanda af atvinnustarf- semi og íbúðarbyggð. Sameina kraftana fyrir jólin Þrjár norðlenskar listakonur starfa allar á „Eyrinni“ á Akureyri en þetta eru þær Auður Skúladóttir, Hugrún Ívarsdóttir og Margrét Jóns- dóttir. Vinnustofur þeirra eru í sama hverfinu og ætla þær stöllur að sam- eina krafta sína fyrir jólin og skapa þannig skemmtilega jólastemningu með nokkurs konar jólamarkaði. laufabrauðið var alþýðuliSt Auður bjó og lærði skreytilist og gamla málningartækni í Danmörku á sínum tíma og eru verkin henn- ar undir dönskum áhrifum. „Það er svolítil nostalgía í mínum verkum en ég var dugleg við að fara á jóla- markaði þegar ég bjó úti og vildi reyna að búa mér til mína eigin jóla- stemningu þegar heim var kom- ið. Enda jólabarn í mér,“ segir Auð- ur sem býr meðal annars til fallega kransa, púða, hjörtu úr mosa og lítil jólatré. „Mér finnst jólin afskaplega skemmtilegur tími og ég þarf allt- af að vera að búa eitthvað til í und- irbúningi þeirra. Ég bý til dæmis til meiri hluta jólagjafanna,“ segir Auð- ur sem er þessa dagana að framleiða jólasokka og púða úr textíl. Hugrún Ívarsdóttir rekur Laufa- brauðssetrið og snýr hennar hönnun því alfarið að jólavörum og þá sér í lagi laufabrauðsmunstrinu. Hugrún segir laufabrauðsskurð alþýðulist og hún segir frekar vakningu í fram- leiðslunni heldur en hitt. „Við Ís- lendingar tengjum laufabrauðið svo sterkt við jólin en í gamla daga gaf skurðurinn alþýðunni tækifæri á að reyna á hæfileika og listsköpun sína enda þarf ekki mikið af verkfærum til að skera laufabrauð heldur frek- ar hugmyndaflug.“ Hugrún verður með opið hús í Laufabrauðssetrinu á laugardaginn en seinna sama dag er laufabrauðsdagur hjá fjölskyldu og vinum. „Þá komum við saman, skerum laufabrauð, borðum hangi- kjöt og kveðum rímur. Margir telja að ég sé snillingur í laufabrauðsgerð en það er alls ekki tilfellið. Ég fékk bara áhuga á því að nota þjóðararf- inn í mína hönnun. Sjálf ólst ég upp við þennan sið og ég held að hann fari vaxandi. Nú heyrir maður af því um allt land að fólk sé að skapa sínar hefðir í kringum laufabrauðið í jóla- undirbúningnum þótt oftast séu það kannski brottfluttir Norðlendingar.“ þefa af jólunum heima Aðspurðar segja þær stöllur mikla vakningu í norðlensku handverki. „Það er fjöldinn allur af galleríum hér á Akureyri og mín tilfinning er að listsköpun og hönnun hafi far- ið stigvaxandi síðustu fimm árin. Nú er bara að vona að Íslendingar hugsi sér nær og ég held að krepp- an hafi kennt okkur að meta hlut- ina svolítið öðruvísi. Íslenskt hand- verk verður vonandi jólagjöfin í ár,“ segir Auður. Margrét Jónsdóttir leirlistakona hefur starfað við keramik í 25 ár. Hún tekur undir orð vinkvenna sinna og segist finna fyrir miklum áhuga á íslenskum listmunum. „Fyrir jólin finna flestir hjá sér löng- un til að skreyta og gera fínt og mér finnst fleiri vera farnir að kaupa listmuni til að fegra híbýli sín og auðvitað líka til að gefa,“ segir Mar- grét og bætir við að það sé ánægju- leg þróun í allri neikvæðninni að Íslendingar virðast vera farnir að eyða peningunum á Íslandi. „Í dag fara ekki jafn margir til útlanda til að versla og þeir sem eru svo heppnir að hafa vinnu og eiga pen- ing vilja vonandi eyða honum hér heima í staðinn. Það væri líka gam- an að sjá höfuðborgarbúa sem hafa farið til útlanda til að þefa af jólun- um koma hingað norður í staðinn. Hér er nóg um að vera í desember, bærinn er fallega skreyttur og fullur af flottu listafólki, hægt er að fara í göngutúr í Kjarna, kíkja í jólahúsið og svo erum við þrjár hérna á Eyr- inni svo það er margt hægt að finna sér til dundurs,“ segir Margrét. Styrkur í fjöldanum Auður, Hugrún og Margrét ætla að samstilla afgreiðslutíma sína í desember og skapa þannig skemmtilega jólastemmingu á Eyr- inni. „Við verðum allar með opið tvær fyrstu helgarnar í desem- ber svo nú er þreföld ástæða til að koma á Eyrina,“ segir Auður bros- andi og Margrét bætir við: „Eyrin er ekki stór og fólk getur gengið á milli. Þetta hverfi er gamalt smá- iðnaðar- og hafnarhverfi og það væri skemmtilegt að sjá það þró- ast enn frekar og verða blanda af atvinnustarfsemi og íbúðarbyggð.“ Aðspurður segjast þær ekki ótt- ast samkeppnina frá hver annarri. „Þetta er samkeppni með broskall á eftir orðinu. Það er styrkur í fjöld- anum og það væri gaman að fá enn fleiri listamenn með okkur.“ indiana@dv.is Þrjár listakonur á Akureyri ætla skapa skemmtilega jólastemmingu á Eyrinni en þær vilja sá hverfið þróast og verða blanda af atvinnustarfsemi og íbúðarbyggð. sameina kraftana fyrir jólin Norðlensk jól Auður, Hugrún og Margrét ætla að búa til skemmtilega jólastemmningu á Eyrinni fyrir jólin. MYNDir Þórhallur PeDróMYNDir laufabrauð Hugrún segist ekki snillingur í laufabrauðsgerð, hún hafi einungis fengið áhuga á að nota þjóðararfinn í sína hönnun. leirlistakona „Fyrir jólin finna flestir hjá sér löngun til að skreyta og gera fínt og mér finnst fleiri vera farnir að kaupa listmuni til að fegra híbýli sín og auðvitað líka til að gefa,“ segir Margrét sem hefur búið til muni úr keramik í 25 ár. Dönsk áhrif Auður lærði í Danmörku en hér er hún með jólasokk sem hún er að búa til þessa dagana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.