Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Blaðsíða 52
52 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað
Ævisaga Árna Heimis Ing-ólfssonar um tónskáld-ið Jón Leifs er eina bók-in sem fengið hefur fullt
hús hjá gagnrýnendum DV í uppgjör-
inu við jólabókaflóðið síðustu vikurn-
ar. Um þá bók sagði gagnrýnandinn
Jón Viðar Jónsson í ritdómi sínum:
„Um Jón Leifs hefur verið gerð vinsæl
bíómynd, sænskur fræðimaður skrif-
aði um hann bók fyrir tíu árum og
sitthvað annað hefur verið um hann
ritað. En allt hverfur það í skuggann
af þessari metnaðarfullu og vönduðu
ævisögu. Jón Leifs hefur fengið þá
umfjöllun sem hann verðskuldar.“
Bók Árna Heimis hefur fengið
sams konar gagnrýni í öllum fjöl-
miðlum og má því reikna með að
hún verði vinsæl í jólapakkana hjá
pabba og mömmu, og kannski afa
og ömmu, því af dómunum um bók-
ina tekst Árna Heimi að skrifa áhuga-
verða bók um manninn Jón Leifs ekki
síður en tónskáldið. Bókin ætti því
einnig að geta höfðað til fólks sem
ekki endilega hefur mikinn áhuga á
tónlist heldur áhuga á að kynna sér
ævi merks Íslendings sem lifði tím-
ana tvenna og kynntist meðal annars
Þýskalandi nasismans.
Skiptar Skoðanir um Snorra
Þrátt fyrir að bókin um Jón Leifs
skeri sig úr hópnum hefur árið ver-
ið verið gjöfult í útkomu vel heppn-
aðra bóka. Af öðru bitastæðu í ævi-
sagnaflokknum má nefna bókina um
Snorra Sturluson eftir Óskar Guð-
mundsson, sem reyndar hefur feng-
ið misjafna dóma, þó engum dyljist
að útkoma bókarinnar flokkist sem
tíðindi. Þannig mærði Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra bók-
ina mjög og kallaði „meistaraverk“
á meðan gagnrýnandi DV, Jón Þ.
Þór, var ekki mjög hrifinn og sagði:
„Ævisaga Snorra Sturlusonar, sem
hér er til umfjöllunar, er eljuverk en
að mínu mati er hún því miður ekki
vel heppnuð. Sagan byggist á næsta
fáum og fábreytilegum heimildum
og þess vegna verður sú aðferð höf-
undar að segja söguna í tímaröð til
þess að frásögnin verður of lang-
dregin og óáhugaverð.“ Sitt sýnist því
hverjum um „eljuverk“ Óskars en þó
má vera ljóst að bókin mun án efa
njóta vinsælda hjá kaupendum enda
um klassíska „pabbabók“ að ræða en
eins og ýmsir kannast við getur verið
erfitt að finna jólagjafir handa körl-
um á miðjum aldri og eldri.
ÆviSagnaþjóðin
Önnur bók sem fallið gæti vel í „pabba-
bókaflokkinn“ er svo seinna bindið af
ævisögu Þórbergs Þórðarsonar eftir
Pétur Gunnarsson sem margir bíða ef-
laust eftir með nokkurri eftirvæntingu
en fyrra bindið, Í fátæktarlandi, hlaut
nokkuð lof þegar hún kom út fyrir
tveimur árum. Þar er á ferðinni sam-
spil tveggja manna sem þjóðin kann
að meta.
Af öðrum ævisögum ber auðvitað
að nefna bók Páls Valsonar um Vigdísi
Finnbogadóttur en sú bók gæti höfðað
til breiðs hóps meðal þjóðarinnar enda
er Vigdís líklega ein af fáum persón-
um hér á landi sem flokkast getur sem
þjóðhetja. Hún er óumdeild og dáð líkt
og svo oft hefur komið fram þegar við-
horf landsmanna til þekktra einstakl-
inga er kannað. Sú bók mun án efa
verða vinsæl fyrir jólin en Íslendingar
eru þekktir fyrir nánast ástríðukennd-
an áhuga sinn á ævisögum ýmiss kon-
ar og þó sérstaklega sögum um þekkta
og dáða einstaklinga eins og Vigdísi.
Fimm stjörnu Jón Bókin um ævi
tónskáldsins Jóns Leifs eftir Árna Heimi
Ingólfsson er sú eina sem fengið hefur fimm
stjörnur hjá gagnrýnendum DV síðustu
vikurnar og mánuðina. Hún er ein af
mörgum áhugaverðum ævisögum sem
koma út fyrir þessi jól.
Jón Leifs
sker sig úr
Útlit er fyrir að árið verði gjöfult í
útkomu góðra bóka. Sérstaklega er
mikið af áhugaverðum ævisögum
þekktra Íslendinga. Eins eru margir
helstu skáldsagnahöfundar þjóðarinn-
ar með pennann á lofti fyrir þessi jól.
DV leit yfir þá umfjöllun um jólabæk-
urnar sem birst hefur í blaðinu upp á
síðkastið og birtir hér brot af því sem
hæst ber í ár.