Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Síða 54
54 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað
„Markmið okkar er að gefa fleiri
börnum tækifæri á að njóta sumar-
og helgardvalar í Reykjadal,“ segir
Berglind Sigurgeirsdóttir, markaðs-
stjóri Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra, sem nú fyrir jólin selur Kær-
leikskúluna í sjöunda sinn. Á hverju
ári efnir Styrktarfélagið til samstarfs
við nýjan listamann um hönnun
Kærleikskúlunnar, en allur ágóði af
sölu hennar rennur óskiptur til fatl-
aðra barna og starfsins í Reykjadal.
Í ár er það listamaðurinn Hreinn
Friðfinnsson sem skreytir kúluna
en hann er margverðlaunaður lista-
maður. Kærleikskúlan er munn-
blásin og gerð í takmörkuðu upp-
lagi og er hver kúla einstök. Kúlunni
er síðan pakkað af starfsmönnum á
vinnustofunni Ás, sem er verndaður
vinnustaður. Líkt og síðustu ár verð-
ur kúlan seld í takmörkuðu upplagi
frá 5. til 19. desember.
Í Reykjadal dvelja fötluð börn og
ungmenni í sumarbúðum auk þess
sem boðið er upp á helgardvöl á vet-
urna. Berglind segir sölu Kærleiks-
kúlunnar skipta miklu fyrir starfið í
sumarbúðunum. „Starfið í Reykja-
dal er virkilega mikilvægt, bæði fyrir
foreldra og börnin sem hlakka til að
komast þangað til að njóta ævintýra
í samveru við jafnaldra og eignast
vini,“ segir Berglind.
Starfsemin í Reykjadal er hins
vegar kostnaðarsöm og hefur um 50
milljónum króna verið varið í fram-
kvæmdir þar síðustu ár. Meðal ann-
ars hafa verið unnar endurbætur á
sundlauginni og margt fleira. Unn-
ið er eftir því markmiði að láta eng-
ar hindranir stöðva sig. „Í Reykja-
dal er reynt að gera það sama og
allir krakkar gera. Ef þau vilja fara
í fjallgöngu, þá gera þau það í sér-
stökum útivistarhjólastólum. Þau fá
að upplifa ævintýri tilverunar eins
og öll önnur börn. Börnin eru mjög
ánægð og við finnum greinilega fyr-
ir þakklætinu og gleðinni sem fylgir
dvölinni,“ segir Berglind.
valgeir@dv.is
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra selur Kærleikskúluna fyrir jólin:
Íslensk list í þágu góðs málefnis
Snerting „Við erum í sífellu að snerta
hluti sem á vegi okkar verða. Manneskj-
an skilur eftir sig slóð af fingraförum í
gegnum lífið,“ segir í umsögn Hreins
Friðfinnssonar um kærleikskúluna í ár.
Jólin eru tíminn til að gefa, þar sem
kærleik og vináttu skal hafa í háveg-
um. Íslendingar geta flestir verið sam-
mála um að íslensk jól eru einstök en
sinn er siður í hverju landi. Með opn-
ari landamærum hefur Íslendingum
gefist færi á að læra nýja hluti og er-
lend áhrif flæða frjálsar um áður og
hafa áhrif á niðurnjörvaðar hefðir og
venjur landans. Samtökin Alþjóðleg
fræðsla og samskipti (AFS) hefur haft
það sem eitt af sínum aðalviðfangs-
efnum hér á landi undanfarin ár að
hafa milligöngu um nemendaskipti
unglinga á aldrinum 15-18 ára þar sem
markmiðið er að auka kynni og skiln-
ing milli þjóða heims og fólks af ólík-
um uppruna. Nú er svo búið að hér á
landi eru staddir fjórir erlendir skipti-
nemar sem AFS er í vandræðum með
að finna fósturfjölskyldur fyrir, í fyrsta
skipti um árabil. Rætur þessa eru rakt-
ar til efnahagsástandsins hér á landi
en framkvæmdastjóri AFS sér mikla
möguleika fyrir íslenskar fjölskyldur
í að taka að sér erlendan skiptinema,
sérstaklega um jólin.
4 af 40 í vanda
Eyrún Eyþórsdóttir, framkvæmda-
stjóri AFS, segir 40 nema hafi komið
hingað til lands í ágúst síðastliðnum.
Ágætlega hafi gengið að finna fjöl-
skyldur fyrir flesta en fjórir þeirra hafi
þurft að vera í bráðabirgðagistingu
vegna þess hversu erfiðlega hafi geng- ið fyrir samtökin að finna fjölskyldur
sem reiðubúnar séu að taka þá að sér.
Það sé nýtt vandamál fyrir samtökin.
Um er að ræða nema frá Ítalíu,
Hong Kong, Bandaríkjunum og Belgíu
á aldrinum 16-18 ára, bæði pilta og
stúlkur. Þrír eru búsettir á höfuðborg-
arsvæðinu og einn á Akureyri en þeir
stunda allir framhaldsskólanám.
„Við vonum að það sé fólk, sem
tengist ekki samtökunum, sem vilji
fræðast um hvernig sé að vera fóstur-
fjölskylda erlends skiptinema og víkka
þannig sjóndeildarhringinn,“ seg-
ir Eyrún. Hún segir skiptinemakerfið
ganga út á grunnhugsjón samtakanna
sem starfrækt hafa verið hér á landi
í fimmtíu ár. Þau voru upphaflega
stofnuð af amerískum sjúkrabílstjór-
um eftir síðari heimsstyrjöldina sem
ákvaðu að koma á nemendaskiptum
milli Evrópu og Bandaríkjanna til að
auka skilning milli þjóða og koma í
veg fyrir stríð.
Skilningur milli
menningarheima
„Hugsjónin hefur alltaf verið þessi,
að stuðla að friði með því að bæta
skilning milli menningarheima. Þeir
sem taka að sér skiptinema er fólk
sem hefur áhuga á að kynnast fólki
frá öðrum menningarheimi og það
er mikil upplifun að vera fósturfjöl-
skylda. Það er mikil upplifun að fá að
lifa með einstaklingi sem kemur úr
annarri menningu,“ bætir Eyrún við.
Hún segir fólk ekki einungis læra á sitt
eigið samfélag heldur læri það líka á
önnur. Fólk verði víðsýnna og skiln-
ingsríkara fyrir vikið.
einStök upplifun
jóla og áramóta
Eyrún segir það geta verið gríðarlega
áhugavert fyrir fólk að upplifa hátíð-
ir eins og jól, sem séu í mjög föstum
skorðum hér á landi, með fólki frá
öðrum menningarheimi. „Og jafn-
vel blanda saman hefðum og siðum.
Það er gaman að fylgjast með krökk-
unum og sjá hvernig þeir upplifa ís-
lensk jól. Þannig að þetta er ekki síður
mikil upplifun fyrir skiptinemana en
fósturfjölskyldurnar,“ segir Eyrún og
bætir við að gefandi sé fyrir alla þeg-
ar fólk af ólíkum uppruna búi saman.
Hún bendir þá einnig á að íslensku
áramótin með allri sinni flugeldadýrð
sé sérstaklega eftirsótt fyrirbæri.
Áhugasömum fjölskyldum er bent
á að hafa samband við skrifstofu AFS
í síma 552-5450, á skrifstofu samtak-
anna að Ingólfstræti 3, eða á heima-
síðu samtakanna www.afs.is. Jólin
eru tími til að gefa og nú gefst fjórum
heppnum fjölskyldum tækifæri á að
kynna erlenda skiptinema fyrir alís-
lenskum jólum, hefðum og venjum
og kannski að læra eitthvað nýtt að
auki.
mikael@dv.is
Fjóra erlenda skiptinema á vegum AFS vantar fósturfjölskyldur.
Samtökin hafa um áratugaskeið útvegað erlendum skiptinemum
hýsingu hjá íslenskum fjölskyldum en vegna ástandsins sem rík-
ir nú í þjóðfélaginu er það mjög erfitt. Einstakt tækifæri til að
upplifa hátíðarnar með einstaklingi úr annarri menningu, lær-
dómsríkt og gefandi, að sögn framkvæmdastjóra AFS.
upplifðu jólin gegnum
„Það er gaman að
fylgjast með krökk-
unum og sjá hvern-
ig þeir upplifa ís-
lensk jól. Þannig að
þetta er ekki síður
mikil upplifun fyr-
ir skiptinemana en
fósturfjölskyldurn-
ar.“
aðra menningu
Áhugasöm fjölskylda Heppin fjölskylda í Hafnarfirði sést hér með skiptinemanum
sem þau tóku upp á sína arma í ágúst síðastliðnum. Á myndinni eru: Guðmundur,
Alice, skiptinemi frá Ítalíu, Brynja, Ingibjörg og bræðurnir Óskar og Axel.