Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 68
68 Föstudagur 27. nóvember 2009 Jólablað
Lófatölvur og snjallsímar
Lófatölva eða snjallsími er kannski eitthvað sem þú
ákveður að gefa sjálfum þér því verðið er töluvert
hærra en tíðkast fyrir hefðbundna jólagjöf. Hér getur
að líta hinn nýja iPhone 3GS frá Apple sem byrjað er að
selja á Íslandi og nýja Android-síma frá HTC, Motorola
og LG.
tæki og tól í
jólapakkann
Það vantar alltaf hugmyndir að jólagjöfum, stórum
eða smáum. tæknivörur geta verið ágætis valkost-
ur þegar annað þrýtur, óhætt er að segja að margir
óski sér einhvers af því sem hér er talið upp. DVD-ferðaspilarar
DVD-ferðaspilarar eru vinsælir meðal yngri kynslóðarinnar, bæði til
að hafa í herberginu og svo einnig í ferðalagið eða bústaðinn. Flestir
spilararnir eru með rafhlöðu sem dugir í tvær til þrjár klukkustundir
og aðra er hægt að tengja beint við vindlakveikjara í bifreið.
USB-geymslulykill
Geymslulykla er hægt að fá allt
uppí 32 GB eða stærra og er
ótrúlega hagstæð leið til að flytja með
gögn á milli staða. Hægt er að smella
svona lyklum beint á kippuna með
húslyklunum og hafa þá þannig alltaf við
höndina þegar þörf er á.
iPod beint í bílgræjurnar
FM-sendar fyrir iPod-spilara eru skemmtileg jólagjöf fyrir þá sem vilja
hlusta á uppáhaldstónlistina sína í bílnum. Þegar sendirinn hefur verið
tengdur við spilarann er einfaldlega fundin samsvarandi rás í útvarpi
bílsins og spilarinn virkar þá eins og hver önnur útvarpsstöð.
iPod-
armband fyrir
ræktina og skokkið
Það eru margir sem vilja hlusta á tónlist þegar
þeir eru í ræktinni eða úti að skokka. Þá er betra
að hafa ekki iPodinn sinn skoppandi út um allt í
hamaganginum heldur kirfilega fyrir komið
með svona armbandi.
Góð heyrnartól eru gulli betri
Það er óvitlaus hugmynd að eiga fjölnota heyrnartól, bæði fyrir
tónlistina en einnig til að geta talað í gegnum tölvuna við aðra með
forriti eins og Skype og lækkað aðeins símreikninginn. Heyrnartól
með áföstum hljóðnema fást í öllum helstu tölvubúðum.
Stafræn myndavél
Myndavélin er nauðsynlegur hluti af lífi okkar allra, með hjálp
hennar safna ungir sem aldnir góðum minningum og
sérstökum augnablikum sem ljúft er að skoða saman um jólin.