Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 86

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 86
86 föstudagur 27. nóvember 2009 NafN og aldur? „Guðmundur Óskarsson, 30 ára.“ atviNNa? „Rithöfundur og skrifstofumaður hjá Landsbankan- um.“ Hjúskaparstaða? „Sóló.“ fjöldi barNa? „Barnlaus.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já, tíkina Heru. Hún var látin fara vegna ofnæmis á heimilinu. Við vorum góðir vinir og lengi vel var brotthvarfið harmleikur lífs míns; lífið var svo áfalla- lítið framan af.“ Hvaða tóNleika fórst þú á síðast? „Ég man ómögulega hvað daman hét sem spilaði ein og söng á Kaffibarnum snemma í október, en ég man að hún var svo góð að ég ætlaði að setja Myspace- síðuna hennar í favorites á tölvunni. Ég gleymdi því líka.“ Hefur þú komist í kast við lögiN? „Nei.“ Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju? „Bláleitur tweed-jakki sem Tinna, vinkona mín, saumaði frá grunni í Iðnskólanum. Hann er verulega klæðskerasaumaður.“ Hefur þú farið í megruN? „Í fyrravetur hætti ég að borða smjörugt brauð með hádegismatnum og léttist. Síðar hætti ég því og nú passar bláleiti tweed-jakkinn aftur fullkomlega.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl- um? „Já. Þátttaka er, sem betur fer, teygjanlegt orð.“ trúir þú á framHaldslíf? „Ekkert frekar en fyrirframlíf.“ Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa Haldið upp á? „All That She Wants með Ace of Base kemur mér mest á óvart sem gamalt uppáhaldslag.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Long Face með Mínus.“ til Hvers Hlakkar þú NúNa? „Að lesa upp úr Bankster á uppskeruhátíð útgefand- ans, Ormstungu, í Þjóðleikhúskjallaranum næst- komandi fimmtudag klukkan 20.“ Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur? „Das Leben der Anderen.“ afrek vikuNNar? „Að hafa náð að plögga uppskeruhátíð Ormstungu í þessu spjalli.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei, framtíðin er best í smáum skömmtum, sek- úndu í senn.“ spilar þú á Hljóðfæri? „Tæplega. Ég blæs stundum ómarkvisst í munn- hörpu sem bróðir minn gaf mér í jólagjöf fyrir tveim- ur árum. Hljóðfærið er gott – heitir Hermann eða Merlin eða Harmo – en það koma aldrei nein lög.“ viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið? „Nei, mér hugnast náið samstarf betur.“ Hvað er mikilvægast í lífiNu? „Þessi spurning er býsna mikilvæg, að spyrja sig hennar reglulega gæti teymt mann á góðan stað.“ Hvaða ráðamaNN muNdir þú vilja Hella full- aN og fara á trúNó með? „Dominique Strauss-Kahn.“ Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst vilja Hitta og af Hverju? „Evu Mendes. Ég er mjög hrifinn af kúbönskum bók- menntum, sérstaklega smásögunum.“ Hefur þú ort ljóð? „Já, tvö. Annað var um foss og Marilyn Monroe en hitt um handleggi, ákveðna tvo kvenmannshand- leggi, ekki útlimina almennt.“ Nýlegt prakkarastrik? „Ég faldi lesgleraugu vinnufélaga mjög vandlega – þá búinn að borða helling af Djúpum og orðinn mjög ör af sykrinum – en gleymdi að lenda gríninu, mundi eftir því þegar ég kom heim. Þessi góði maður var víst lengi að leita þegar hann kom aftur að borðinu sínu. Gleraugun voru jafnlengi teipuð við lampa- arminn.“ Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest? „Ég hef heyrt um einhvern leikara í Bandaríkjunum en man aldrei hvað hann heitir. Hann er líklega ekki mjög frægur einstaklingur.“ ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika? „Munnhörpuleikurinn er mjög leyndur hæfileiki. Ég ætla samt ekki að gefast upp í leitinni að öðrum slíkum og um leið og ég finn hann mun ég hampa honum.“ á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi? „Já.“ Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN? „Reykjavík.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú ferð að sofa? „Ég þreifa á vekjaraklukkunni.“ Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi? „Leið Íslendinga í vinnuna sérhvern dag næstu fimmtán árin.“ Guðmundur Óskarsson er höfundur skáldsögunnar Bankster sem kom út á dögunum. Hann er starfsmaður Landsbankans og byggir söguna að mörgu leyti á reynslu sinni af bankahruninu síðastliðið haust. Guðmundur sýnir á sér hina hliðina þessa vikuna. orti ljóð um marilyN moNroe og HaNdleggi Dalvegi 2, Kóp. | Dalshrauni 13 Hfj. | S: 577 3333 | www.castello.is Höfum opnað nýjan stað á Dalshrauni 13, Hfj. 20 % afsláttur af sóttum pizzum KOMIÐ ÚT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.