Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 88

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2009, Page 88
SjálfSmorð fyrirSætu Kóreska fyrisætan Daul Kim, sem nýverið fannst látin í íbúð sinni, er talin hafa framið sjálfsmorð. Þessi upprennandi stjarna, sem hefur unnið fyrir stærstu nöfnin í bransanum og var í uppáhaldi hjá Karl Lagerfeld, er sögð hafa átt í ofbeldisfullu ástarsambandi og átt erfitt með að höndla pressuna sem fylgdi því að vera fyrirmynd heimalands síns. TÍSKA: HeLgA KriSTjánSDóTTir - www.Dv.iS/bLogg/TizKAn 88 föStudagur 27. nóvember 2009 lífSStíll Beth Ditto er ólíkleg tískugyðja. Til að byrja með er hún tæplega hundr- að kíló. Hún er lesbískur femínisti og rífur óspart kjaft. En hún er einnig óneitanlega þvílíkur talent og virki- lega ferskt blóð bæði í tónlistar- og tískuheimi dagsins í dag. Síðustu þrjú árin hefur Beth siglt úr hallæri til heimsfrægðar og er orðin fyrir- mynd kvenna um allan heim. Hún hefur setið fyrir nakin á forsíðum tímarita og látið í sér heyra varðandi óánægju sína að tískuföt í hennar stærð séu ekki framleidd. Hún tók málið í sínar hendur þegar henni var boðið að hanna línu fyrir fatakeðj- una Evans, sem selur föt fyrir konur í stærri stærðum. Í dag er Beth boð- ið á allar helstu tískusýningarnar og situr á fremsta bekk. Karl Lagerfeld, hönnuður Chanel og Fendi, er afskaplega hrifinn af henni og fékk hana til að syngja í eftirpartíi Fendi. Þar söng hún nýjustu lög- in sín og afklæddi sig smám saman þang- að til hún stóð eftir á nærfötum einum fata og lét sig falla í áhorf- endahópinn. Fyrirsæt- an Kate Moss hjálpaði henni hlæjandi á fæt- ur aftur. Beth Ditto er kúl og fær mann til að hugsa um hvað ímynd tískubransans getur verið brengluð. Hún fær tískuprik í kladdann! Beth Ditto, söngkona Gossip, ólst upp við mikla fátækt: Sjokkerandi tíSkugyðja forSetafrú frakka í Woody allen-mynd ofurfyrirsætan og forsetafrú Frakka, Carla bruni, hefur samþykkt að leika í nýjustu mynd woodys Allen. Frú bruni er þekkt fyrir að vera blátt áfram og oft á tíðum sjokkerandi en spurningin á allra vörum er hvort leiklistarhæfileikar hennar muni valda hneykslan. VinSæl ofur- fyrirSæta Fyrirsætan natalia vodianova hefur nóg að gera þessa dagana. Hún situr fyrir í vorherferðum fyrir heimsþekkt vörumerki eins og Yves Saint Laurent, givenchy, Stella McCartney, guerlain, etam-undirfatnað og í ilmvatnsauglýsingum fyrir Calvin Klein. Victoria‘S Secret á 10 milljónir dala efnahagsástandið virðist ekki hafa mikil áhrif á undirfatarisann victoria‘s Secret. árlegu tískusýningunni þeirra var sjónvarpað fyrir örfáum vikum þar sem Heidi Klum var kynnir, en fyrirsæturnar voru 35 talsins, meðal annarra Miranda Kerr í brjóstahald- ara upp á tvær milljónir bandaríkja- dala. Sýningin í heild kostaði um tíu milljónir dala. Rumi Neely er einn vinsælasti tískubloggarinn í dag. Á hverjum degi smella milljónir stúlkna á síðuna hennar og fyllast tískuinnblæstri. DV forvitnaðist örlítið um þessa tískusinnuðu stúlku. VinSæll tískubloggari Rumi segist hafa verið ótrúlega dug- leg við að skoða tískublogg og einn daginn velt því fyrir sér hvers vegna hún væri ekki með sitt eigið. Hún ákvað að fá kærasta sinn til að taka af sér myndir í dressi dagsins og póst- aði myndum upp frá því á hverjum degi. Vinsældirnar létu ekki á sér standa en nú er hún ein þeirra allra vinsælustu í sívaxandi hópi tísku- bloggara. HveRNig myNDiRðu lýsa stíl þíNum? „Ég held að það sem sé augljósast við minn stíl er að ég kaupi fötin mín hvar sem er. Hvar sem er, allt frá mexí- könskum markaði upp í stærri keðjur. Þannig blanda ég saman nýju og not- uðu og dýru og ódýru. Ég hef án efa orðið fyrir áhrifum frá ströndum Kali- forníu og finnst best að vera ekki of mikið til höfð. Mér finnst til að mynda gaman að breyta áhrifum sparilegs kjóls með því að fara í sjúskuð stígvél við. Skelli stórum karlmannsjakka við kvenlegan blómakjól, það er svolítið mikið ég. Þegar ég er hugmyndasnauð skelli ég mér oftast í lausan stutterma- bolskjól og fer í einhverja sjúklega hæla við.Mér finnst líka rosalega gaman að taka eitthvað eins og kragalausa karlmannsgalla- skyrtu og athuga hvort ég get fengið hana til að virka.“ HveRjiR eRu uppáHalDs HöNNuðiRNiR þíNiR? „Í dag er ég heltekin af öllu frá Balmain, Isa- bel Marant og Givenchy.“ HveRjaR eRu Helstu tískufyRiRmyNDiRNaR? „Fyrirsæturnar Erin Wasson og Daria Wer- bowy eru með frábæran stíl sem lítur alltaf svo náttúrulega út á þeim. Eins og þær séu ekki að reyna of mikið og ætli 90´s -tískan líti ekki einna best út á þeim. Annars eru götu- bloggsíður oftast mesti innblásturinn þegar kemur að því að finna eitthvað nýtt og spenn- andi. „Alvöru“ fólk er oft miklu meira kúl en það sem maður sér framleitt í tískuþáttum glanstímaritanna.“ af HveRju HelDuRðu að Blogg- síðuR séu svoNa viNsælaR í Dag? „Því blogg geta verið skrifuð af hverjum sem er. Bloggheimurinn er risastór leikvöllur hugmynda, skoðana og innblásturs og er allt annað en þau fáu tískutímarit sem við flest ólumst upp við. Ég er alltaf svakalega spennt á morgnana að kíkja á uppáhaldsbloggsíð- urnar mínar, það er eitthvað svo spennandi við að fá þetta svona ferskt og nýtt, tískuna beint í æð.“ Hvaða síðuR eRu í uppáHalDi Hjá þéR? „Ég hefði aldrei trúað því að ég ætti eftir að sjá eftir því að kunna ekki sænsku, en það er eins og bestu tískubloggin séu á sænsku! Ég get þó allavega aðeins reddað mér á þeim frönsku. Hér eru mín helstu: thecherryblossomgirl. com, garancedore.fr, blogs.lexpress.fr/cafe- mode/.“ Þess má geta að bloggsíðu Rumi má finna á slóðinni fashiontoast.com. Rumi Neely er fyrirmynd margra stelpna. tískuBloggaRiNN er gullfalleg stelpa. ekki leiðiNlegt Finnst ekki leiðinlegt að pósa fyrir myndavélina. uNgfRú Ditto Sleikir á sér tærnar! BetH Ditto nakin á forsíðu Love. eR vel í HolDum og syngur eins og engill.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.