Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 21.–23. janúar 2010 Helgarblað
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Birgitta Jónsdóttir:
„Eins og í James
Bond-myndunum“
„Ég var að lesa að hún ætti að eyða
öllu þegar hún væri aftengd. Þetta er
bara eins og í James Bond-myndun-
um,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þing-
maður Hreyfingarinnar, um meinta
njósnatölvu sem uppgötvaðist í
húsakynnum Alþingis í fyrra.
Birgitta segist fyrst hafa frétt af
málinu á fimmtudag en Morgun-
blaðið greindi frá því að einn af
þingvörðum Alþingis hefði fundið
tölvuna. Forsætis-
nefnd Alþingis
fjallaði um málið
á fundi sínum á
fimmtudagsmorg-
un og segir Birgitta
að þar hafi komið
fram að formenn
Sjálfstæðisflokks
og Samfylking-
ar hefðu vitað af
málinu.
„Ef það er rétt
sem kom fram á fundinum, þá finnst
mér skrýtið að við, sem erum með
þetta meinta njósnatæki í næsta
herbergi, fáum ekki að vita af þessu,“
segir Birgitta í samtali við DV en
tölvan fannst í auðu herbergi við
hliðina á skrifstofum þingmanna
Hreyfingarinnar. Hafa varaþing-
menn Hreyfingarinnar og Sjálfstæð-
isflokks haft afnot af herberginu.
Samkvæmt frétt Morgunblaðs-
ins skoðuðu starfsmenn tölvudeild-
ar þingsins vélina og vöknuðu strax
grunsemdir um að henni hefði verið
komið fyrir þar í vafasömum til-
gangi. Búið var að afmá öll einkenni
af tölvunni og ekki reyndist unnt
að rekja hver átti hana. Var tölvan
þannig stillt, að því er segir í Morg-
unblaðinu, að öll gögn eyddust út af
henni þegar slökkt var á henni.
Birgitta segir að frétt Morg-
unblaðsins byggi að miklu leyti á
vangaveltum. Í fréttinni er tekið fram
að grunur hafi leikið á að tölvuþrjót-
ar, sem kynnu að vera á vegum upp-
ljóstrunarvefjarins Wikileaks, hefðu
komið tölvunni fyrir í herberginu.
Birgitta segir það hins vegar ekki
vera í anda Wikileaks.
„Það er ekki í anda Wikileaks að
gera þetta. Þeir eru milliliðurinn
sem tekur við umslaginu en þeir fara
ekki að sækja það. Alla vega ekki svo
ég viti til. Þetta eru miklar vangavelt-
ur því að það getur hver sem er kom-
ist þarna upp,“ segir Birgitta.
Birgitta
Jónsdóttir
Andri Sveinsson, starfsmaður
Novator og fyrrverandi bankaráðs-
maður í Landsbankanum, bauð
Stefáni Ingimar Bjarnasyni að taka
1.600 milljóna króna lán til að kaupa
hlutabréf í bankanum í septemb-
er 2008, samkvæmt heimildum DV.
Tilboðið mun hafa komið símleið-
is frá Andra til Stefáns Ingimars.
Landsbankinn veitti Stefáni lán-
ið nokkrum vikum fyrir fall Lands-
bankans.
Stefán Ingimar, sem er fjármála-
stjóri varahlutaverslunarinnar Still-
ingar og sonur stofnanda hennar,
hefur verið yfirheyrður í tengslum
við rannsóknina á lánveitingunni.
Ekki er talið að Stefán Bjarni hafi
gerst brotlegur við lög í málinu held-
ur er verið að rannsaka þátt Lands-
bankans í því. Verið er að rann-
saka mögulega markaðsmisnotkun
Landsbankans. Stefán Ingimar er
því frekar eins konar fórnarlamb
Landsbankans í málinu eftir því sem
DV kemst næst.
Félagið sem fékk lánið, Hunslow
S.A., er skráð í Lúxemborg. Stefán er
bróðir Bjarna Bjarnasonar, þáver-
andi forstöðumanns fyrirtækjaráð-
gjafar Landsbankans. Stefán Bjarni
hefur ekki viljað ræða við DV um
málið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Náinn Björgólfsfeðgum
Andri Sveinsson hefur um langt
skeið verið náinn Björgólfsfeðgum.
Hann vann í verðbréfadeild Búnað-
arbankans á sínum tíma og byrjaði
að vinna fyrir Björgólfsfeðga áður
en þeir keyptu Landsbankann og
aðstoðaði þá við kaupin á honum.
Andri sat meðal annars í banka-
ráði Landsbankans frá einkavæð-
ingu hans 2003 og fram til ársins
2007 þegar hann gerðist varamaður
Björgólfs Guðmundssonar í stjórn-
inni. Hann sat einnig á sínum tíma í
stjórn lyfjafyrirtæksins Actavis, sem
er í eigu Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, og starfaði hjá fyrirtækinu í
Bandaríkjunum.
Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona
Björgólfs Thors og Novator, seg-
ir að embætti sérstaks saksóknara
hafi ekki haft samband við Björgólf
Thor til að boða hann í skýrslutöku.
Björgólfur Thor er staddur í London
um þessar mundir ásamt föður sín-
um, Björgólfi Guðmundssyni. Ætla
má að embætti sérstaks saksóknara
muni yfiheyra Björgólf eldri þegar
þar að kemur. Hann er væntanlegur
til landsins í lok mánaðarins.
Stefán þáði boðið
Heimildir DV herma að Andri, sem var
hættur í stjórn Landsbankans
þegar þetta var, hafi hringt
í einhverja viðskipta-
vini bankans og boðið
þeim að kaupa hluta-
bréf í bankanum með
lánveitingu frá hon-
um. „Andri Sveinsson
hringir í Stefán og seg-
ir við hann: Við viljum
endilega lána þér 1.600
milljónir. Hann hring-
ir í menn fyrir Sigurjón
til að bjóða þeim lán til
að kaupa hlutabréf í
bankanum. Og Stef-
án tók þessu
boði,“ seg-
ir heimildarmaður DV. Hugsanlegt
er að hinar þrjár lánveitingarnar sem
sérstakur saksóknari skoðar hafi verið
tilkomnar með svipuðum hætti.
Andri Sveinsson er í fríi erlend-
is ásamt fjölskyldu sinni um
þessar mundir og náði
DV ekki sambandi við
hann. Hann er búsettur
í London þar sem hann
starfar hjá Novator með
Björgólfi Thor. DV hef-
ur ekki heimildir fyrir
því að rætt hafi verið við
Andra vegna málsins.
STARFSMAÐUR BJÖRG-
ÓLFS BAUÐ STEFÁNI LÁN
n Starfsmaður Novator bauð viðskiptavini Landsbankans lán til að kaupa
hlutabréf í bankanum n Viðskiptin áttu sér stað í september 2008 n Starfs-
maðurinn er náinn Björgólfi Thor og hefur unnið með honum um árabil
„Andri Sveinsson
hringir í Stefán og
segir við hann: Við viljum
endilega lána þér 1.600
milljónir.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Bauð lán og bréf Andri hringdi
í viðskiptavini Landsbankans og
bauð þeim að kaupa bréf í Lands-
bankanum með lánveitingu frá
bankanum.
Náinn Björgólfi Thor Andri
Sveinsson, sem bauð Stefáni Ingimar
lánið, hefur um langt árabil verið náinn
Björgólfi Thor. Hann bauð viðskiptavini
Landsbankans 1.600 milljóna króna
lán til að kaupa hlutabréf í bankanum
skömmu fyrir hrun.
Hæstiréttur Íslands hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir konu vegna
gruns um að hún hafi kveikt í íbúð á
jarðhæð í Hafnarfirði aðfaranótt 14.
janúar.
Í úrskurði héraðsdóms kemur
fram að skömmu eftir miðnætti 14.
janúar hafi lögregla og slökkvilið
verið kölluð að húsinu vegna elds-
voða. Þegar lögreglumenn komu á
vettvang voru íbúar í húsinu bún-
ir að slökkva eldinn. Íbúðin var full
af reyk og var lögreglumönnum tjáð
að kona væri inni í íbúðinni. Vitni
sögðu hana hafa komið út úr íbúð-
inni eftir að eldurinn kviknaði en
farið á ný inn í hana. Í skýrslu rann-
sóknarlögreglumanna kom fram að
eldfimum vökva hefði verið hellt á
sófa í íbúðinni sem brann. Á gólfi í
holi íbúðarinnar fannst svo tómur
bensínbrúsi.
Konan mun hafa látið mann
vita sem fékk að gista á sófanum í
íbúðinni að hún ætlaði að kveikja
í henni. Hann tók hins vegar ekki
mark á orðum hennar. Konan var
handtekin á staðnum vegna rann-
sóknarhagsmuna og þarf að sitja
í gæsluvarðhaldi til 15. febrúar. Í
gæsluvarðhaldsúrskurðinum segir
að lögreglustjóri telji brotið í eðli
sínu vera svo svívirðilegt að gæslu-
varðhald sé nauðsynlegt með vís-
an til almannahagsmuna. Konan á
yfir höfði sér að lágmarki tveggja ára
fangelsi en allt að ævilöngu fangelsi,
verði hún fundin sek.
valgeir@dv.is
Kona úrskurðuð í gæsluvarðhald fyrir íkveikju:
Á yfir höfði sér þungan dóm
Eldsvoði Konan kveikti í íbúð í Hafnarfirði. Brotið er svívirðilegt að mati lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu.