Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 21.–23. janúar 2010 Helgarblað Tæplega þriggja milljarða króna skuldir eru gjaldfallnar inni í eignar- haldsfélagi fjárfestisins Skúla Þor- valdssonar, Imis ehf., samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2009. Skúli er oftast kenndur við Hótel Holt við Bergstaðastrætið í Reykjavík en hann rak hótelið á árum áður. Eigið fé Imis er neikvætt um rúm- lega 2,7 milljarða króna og má segja að félagið sé tæknilega gjaldþrota. Í skýrslu endurskoðanda frá Deloitte í byrjun ársreikningsins er gerður fyr- irvari við rekstrarhæfi félagsins sem byggir á því að það takist að bæta fjárhagsstöðu félagsins: „Forsenda áframhaldandi rekstrar er að það takist að bæta fjárhagsstöðu félags- ins.“ Imis á 235 milljóna króna eignir á móti þessum skuldum. Fékk hæstu lánin Skúli, sem er búsettur í Lúxemborg, var sá einstaklingur sem fékk hæst lán allra viðskiptavina Kaupþings í Lúxemborg, samkvæmt lánayfir- litinu frá bankanum sem lak á net- ið árið 2008. Samtals námu skuld- ir Skúla 142 milljörðum króna þegar Kaupþing féll um haust- ið 2008. Tryggingar fyrir lánunum voru í flestum tilfellum í hlutabréf- um Skúla í Kaupþingi og Exista. Fé- lag Skúla, Holt Investment, átti um þriggja prósenta hlut í Kaupþingi og 0,7 prósent í Exista. Viðskipti Kaupþings við Skúla hafa verið til rannsóknar hjá sérstök- um saksóknara efnahagshrunsins, Ólafi Haukssyni, en grunur leikur á að viðskipti bankans við Skúla hafi verið markaðsmisnotkun. Húsleitir sérstaks saksóknara í Lúxemborg í fyrra tengdust meðal annars rann- sókn embættisins á lánveitingum til félags í eigu Skúla sem heitir Holly Beach. Ekki er vitað til þess að Skúli hafi verið yfirheyrður í rannsókninni. Fjárfesti í Símanum og SPRON Auk fjárfestinganna í Kaupþingi og Exista fjárfesti Skúli í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis. Imis átti 7 prósenta hlut í sparisjóðnum eftir hlutafélagavæðingu hans í októ- ber 2007 og var einn stærsti hluthafi sjóðsins eftir skráningu hans á mark- að. Hugsanlegt er að skuldir félags- ins séu tilkomnar út af fjárfestingu Imis í sparisjóðnum. Almennt séð má segja að á síðustu árum hafi Skúli fjárfest í fyrirtækjum sem tengdust Exista og Kaupþingi og virðist í reynd hafa verið viðskipta- félagi Bakkabræðra og stjórnenda Kaupþings. Imis ehf. átti til dæmis tveggja prósenta hlut í Exista í árslok 2005 þegar félagið gekk frá kaupum á Landssíma Íslands. Í fréttilkynn- ingunni sem Exista sendi frá sér þeg- ar búið var að ganga frá kaupunum kom fram að Imis væri meðal hlut- hafa félagsins. Bakkabræður, Kaup- þing, Skúli og aðrir fjárfestar Exista voru kynntir til sögunnar á þann hátt að „traustir langtímafjárfestar“ væru að koma að kaupunum. Ljóst er hins vegar nú að kröfu- hafar Skúla og eignarhaldsfélaga hans munu sitja eftir með afskriftir upp á marga milljarða króna vegna viðskipta við hann. Allar umrædd- ar eignir Skúla, eignarhlutirnir í áð- urnefndum fjármálafyrirtækjum og félögum, urðu verðlausir eða -litlir í hruninu um haustið 2008. Á móti þessum glötuðu eignum standa hins vegar miklar skuldir. MILLJARÐA SKULDIR SKÚLA GJALDFÉLLU n Skúli Þorvaldsson var mjög umsvifamikill fjárfestir n Átti hlut í Exista, Kaupþingi og Sampo n Skúli var stærsti lántakandi Kaupþings í Lúx n Batt trúss sitt við Kaup- þingsmenn og Bakkabræður n Íslenskt eignarhaldsfélag Skúla er nánast gjaldþrota Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Hver er Skúli Þorvaldsson? Skúli er sonur Þorvaldar Guðmundssonar sem oftast var kenndur við Síld og fisk sem hann stofnaði árið 1944. Þorvaldur var um árabil einn ríkasti maður landsins en hann lést árið 1998. Þorvaldur byggði Hótel Holt árið 1965. Skúli varð hótelstjóri á Holtinu árið 1973 og tók alfarið við rekstrinum af föður sínum árið 1979. Umsvif Skúla erlendis voru lítil framan af en jukust eftir að faðir hans lést. Samkvæmt heimildarmanni DV var Skúli einn af þeim fyrstu hérlendis sem komu nálægt skattaskjólum á aflandseyjum, það var í gegnum bandaríska fyrirtækið NTS sem Skúli kom að á síðasta áratug síðustu aldar. Skúli fjárfesti mikið í félögum sem tengdust Kaupþingi og Exista, meðal annars í þessum tveimur félögum, sem og Símanum og finnska tryggingafélaginu Sampo. „Forsenda áfram- haldandi rekstrar er að það takist að bæta fjárhagsstöðu félagsins. Imis nánast gjaldþrota Eignarhaldsfélag Skúla Þorvaldssonar, Imis, er nánast gjaldþrota og skilur eftir sig nærri þriggja milljarða króna skuldir á móti ríflega 230 milljóna króna eignum. Bröns alla laugardaga og sunnudaga Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is Verð aðeins 1.795 með kaffi eða te Meirihluti vill ekki veggjöld Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að sett verði veggjöld til að fjármagna nýframkvæmdir í samgöngumálum. Þetta er niður- staða könnunar MMR á afstöðu al- mennings. 890 manns svöruðu könnuninni sem framkvæmd var dagana 11. til 14. janúar. Mikill meirihluti, eða 82 prósent, sagðist andvígur veggjöld- um. Lítill munur reyndist á afstöðu fólks eftir því hvort það býr á höfuð- borgarsvæðinu eða úti á landi. Andstaðan við veggjöld reyndist mest á meðal sjálfstæðismanna, en tæplega 89 prósent þeirra sögðust frekar eða mjög andvígir hugmynd- um um veggjöld. Krapaflóð á Fáskrúðsfirði Töluvert tjón varð á húsum og görð- um á miðvikudag eftir krapaflóð sem varð í Nýjabæjarlæk á Fáskrúðsfirði. Hreinsun stóð yfir allan fimmtudag- inn eftir flóðið. Að sögn íbúa varð tjón á húsum og görðum við innanverða Skólabrekku og eru íbúar þar víst orðnir ansi þreyttir á úrræðaleysi Fjarðabyggðar á þessu árlega vandamáli. Sérstaklega í ljósi þess að engar tryggingar virðast taka til tjóns af þessum toga og sitja tjónþolar uppi með skaðann. Munu fá að hafa hund Fatlaðir og blindir munu fá heimild til að halda leiðsögu- og blindrahunda í fjölbýlishúsum, ef nýtt frumvarp, sem Guðbjartur Hannesson velferðarráð- herra lagði fyrir, nær fram að ganga. Frumvarpið er lagt fram í kjölfar umræðu um hjálparhunda fyrir fatl- aða og sambýli þeirra við aðra í blokk- um. Samkvæmt núgildandi reglum þurfa allir íbúar í fjölbýlishúsi að sam- þykkja að fatlaðir og blindir megi hafa hund í íbúð sinni. Tilgangurinn með þessu frumvarpi er að hindra að einn íbúi geti komið í veg fyrir að fatlaðir og blindir geti haft hunda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.