Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 21
Erlent | 21Helgarblað 21.–23. janúar 2010
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Einnota latex hanskar
Tilboð á stærð XL
Verð 499 kr. án vsk.
n Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ræddi við forseta Kína, Hu Jintao, í Washington
n Efnahagsmál ofarlega á baugi n Obama vék máli sínu að mannréttindamálum í Kína
Hu Jintao, forseti Kína, snæddi
kvöldverð með Barack Obama, for-
seta Bandaríkjanna, á miðviku-
dagskvöld. Kvöldverðurinn var
hluti af opinberri heimsókn Jinta-
os til Bandaríkjanna, en hann kom
ásamt föruneyti sínu til Washington
á þriðjudagskvöld. Í föruneyti Jinta-
os voru valdamiklir kínverskir emb-
ættismenn ásamt lykilmönnum úr
kínversku viðskiptalífi. Í Bandaríkj-
unum hefur mikið verið rætt og rit-
að um heimsókn Jintaos, og talið að
útkoma þeirra viðræðna sem fara
fram milli forsetanna tveggja eigi
eftir að hafa mótandi áhrif á fram-
tíðarsamskipti þessara tveggja stór-
velda.
Síðast þegar leiðtogarnir hittust, í
opinberri heimsókn Obama til Pek-
ing árið 2009, sigldu viðræður þeirra
í strand. Bandarísk stjórnvöld hafa
sakað kínversk stjórnvöld um að
halda gengi kínverska gjaldmiðils-
ins, renmimbi, of lágu, til að tryggja
forskot kínverskra útflutningsvara á
alheimsmarkaði.
Árangur í efnahagsviðræðum
Eitt helsta málið sem þeir Obama
og Jintao ræddu voru efnahagsmál.
Hu Jintao mun hafa fallist á að gera
gengi renmimbisins sveigjanlegra,
en genginu er stýrt af stjórnvöld-
um en ekki af sveiflum á heims-
markaði eins og tíðkast í hinum
vestræna heimi. Obama á þá ósk
heitasta að Kínverjar láti gengi sitt
einnig stjórnast af markaðnum, en
ljóst er að honum mun ekki verða
að ósk sinni – ekki um sinn í það
minnsta. Einnig ræddu leiðtogarn-
ir tveir um samkeppnisaðstöðu er-
lendra fyrirtækja innan Kína. Vegna
ört hækkandi kaupmáttar í Kína,
og sérstaklega í þéttbýli, er ljóst að
Kína verður brátt stærsti markað-
ur neytenda í heimi. Kínverjar hafa
í auknum mæli opnað fyrir aðgang
erlendra fyrirtækja að kínversk-
um markaði, en áður fyrr greiddu
stjórnvöld með kínverskum fyr-
irtækjum sem gerði samkeppnis-
stöðu fyrirtækja ósanngjarna. Hu
Jintao lofaði Obama að bandarísk-
um fyrirtækjum yrði gert hærra
undir höfði í framtíðinni, en það er
talið báðum ríkjum til góða – þar
sem kínversk fyrirtæki hafa ekki
undan við að metta innanlands-
markað eins og sakir standa.
Timothy Geithner, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að gott
viðskiptasamband við Kína skipti
höfuðmáli. „Viðskipti milli Kína og
Bandaríkjanna námu 100 milljörð-
um dollara á síðasta ári og við sjá-
um fyrir okkur að Kína verði okkar
helsti viðskiptaaðili innan 10 ára.“
Bandarísk stjórnvöld vonast til þess
að betra aðgengi að kínverskum
markaði muni virka sem vítamín-
sprauta fyrir bandarískt atvinnulíf,
en þar er nú rúmlega 10 prósent at-
vinnuleysi.
Obama ræddi Liu Xiaobo
Á fundi leiðtoganna spurði Obama
kínverska forsetann út í Liu Xiaobo,
kínverska andófsmanninn og hand-
hafa friðarverðlauna Nóbels 2010,
sem nú situr í fangelsi fyrir bar-
áttu sína fyrir tjáningarfrelsi. Jint-
ao svaraði því til að ekki væri hægt
að líkja saman aðstæðum í Kína
og í hinum vestræna heimi. Hann
sagði að Kínverjar létu sér mann-
réttindi ekki í léttu rúmi liggja. Hins
vegar hafði hann um stöðuna að
segja: „Kína er þróunarland sem
hefur á að skipa gífurlegum fjölda
fólks. Landið er í miðju breytingar-
ferli og þróast hratt, efnahagslega
og félagslega. Margt er enn ógert í
mannréttindamálum.“
Þó að spurningar Obama varð-
andi mannréttindi í Kína hafi víða
ratað á forsíður vestrænna miðla,
þarf vart að taka fram að þær voru
hvergi sjáanlegar í Kína.
Leiðtogafundur
stórveLdanna
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Kína er þróunar-
land sem hefur
á að skipa gífurlegum
fjölda fólks. Landið er í
miðju breytingarferli og
þróast hratt.
Glæsilegur kvöldverður Hu Jintao, for-
seti Kína, stendur hér á milli forsetahjónanna
bandarísku, Michelle og Baracks Obama.
Smári McCarthy opnaði netgáttir fyrir utan Túnis:
Íslendingur lagði hönd á plóginn í Túnis
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins staðfesti í vikunni, að áætl-
anir um að banna snyrtivörur sem
eru prófaðar á dýrum standi enn. Til
stendur að banna allar snyrtivörur
sem eru prófaðar á dýrum í aðildar-
ríkjum sambandsins frá árinu 2013.
Ýmis dýraverndunarsamtök hafa
að undanförnu látið að því liggja
að embættismenn í Brussel séu að
kikna undan þrýstingi frá alþjóð-
legum snyrtivöruframleiðendum,
sem hafa farið fram á að banninu
verði frestað um fimm ár. Talsmaður
framkvæmdastjórnarinnar, Frede-
ric Vincent, sagði hins vegar að ver-
ið væri að meta áhrifin sem bannið
hefði. „Það er of snemmt að tala um
að banninu verði frestað, enn er mið-
að við árið 2013.“
Árið 2009 var samþykkt bann á
öllum snyrtivörum sem eru prófuð
á dýrum, með undantekningum þó.
Þá fengu snyrtivöruframleiðendur
sínu framgengt, en samkvæmt þeim
er ómögulegt að komast að raun um
eiginleika nokkurra nauðsynlegra
efna án þess að prófa þau fyrst á dýr-
um. Málamiðlunin var sú að snyrti-
vöruframleiðendur fengu þá fjögur
ár til að leita nýrra leiða til að prófa
þessi tilteknu efni. Nú biðja snyrti-
vöruframleiðendur um lengri frest til
að finna lausnir.
Barry Philips, vísindamaður hjá
dýraverndunarsamtökunum RSPCA,
segir beiðni snyrtivöruframleið-
enda um frekari frestun fáránlega.
„[Snyrtivöru]iðnaðurinn hefur vit-
að af þessu yfirvofandi banni í fjölda
ára. Hann átti að beita sér meira fyr-
ir því að finna aðrar leiðir til að prófa
vörur. Ef framleiðendur geta ekki
fundið ný efni til að setja í snyrtivör-
ur án þess að dýr þurfi að þjást, ættu
þeir að láta duga þau 10 þúsund efni
sem standa þeim nú þegar til boða.“
bjorn@dv.is
ESB staðfestir bann á snyrtivörum sem eru prófaðar á dýrum:
Þrengt að framleiðendum
Vilja banna grimmd gegn dýrum
Chrissie Hynde, söngkona The Pretenders,
hefur löngum talað fyrir banni á snyrtivör-
um sem prófaðar eru á dýrum.
„Þyrfti að vera
Ofurmenni“
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, sagði að hann „hefði þurft
að vera Ofurmennið“ – ef sögur um
að hann hafi stundað kynlíf með
24 konum í einu ættu við rök að
styðjast. Berlusconi sagði þetta við
þingflokksmenn Frelsisflokks síns á
fundi á miðvikudag. Ummælin þykja
mjög í ætt við öll önnur viðbrögð
Berlusconis við ásökunum um að
hann hafi borgað vændiskonunni
Ruby fyrir kynlíf á síðasta ári, en þá
var Ruby aðeins 17 ára. Berlusconi
hefur ítrekað reynt að sópa ásök-
ununum undir teppið með því að
hlæja að þeim, án þess að vísa þeim
algjörlega á bug.
Stjörnufans í
Hvíta húsinu
Það var mikið um dýrðir í Hvíta
húsinu í Washington þegar forseti
Kína, Hu Jintao, snæddi kvöldverð
með bandarísku forsetahjónun-
um, Barack og Michelle Obama. Að
beiðni kínversku sendinefndarinnar
sem fylgdi Hu Jintao var „bandarískt
þema“ í kvöldverðarboðinu með öllu
tilheyrandi. Spilaði þar djasshljóm-
sveit sem leidd var af goðsögninni
Herbie Hancock, auk þess sem fína
og fræga fólkið úr Hollywood prýddi
gestalistann. Lögð var áhersla á að fá
fólk af kínverskum uppruna, og því
sáust stjörnur eins og hasarmynda-
hetjan Jackie Chan og einnig leikar-
inn B.D. Wong, sem sumir kannast
við úr þáttunum Law and Order. Bill
Clinton komst einnig á gestalistann,
sem og söng- og leikkonan Barbra
Streisand.