Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Qupperneq 24
F yrir viku lagði Ben Ali forseti Túnis á flótta frá landi sínu og fékk hæli í Sádi-Arab- íu. Eftir því sem ég best veit komu þessir atburðir flestum alveg í opna skjöldu, enda hafði einræðið í Túnis verið talið standa föstum og öruggum fótum í rykmettum jarð- vegi Norður-Afríku. Það einræði var í höndum ríkisflokks sem hefur heitið ýmsum nöfnum gegnum tíðina. Síð- ustu áratugina hefur nafn hans ver- ið í líkingu við Lýðræðislegu stjórn- lagahreyfinguna, sem á frönsku er skammstafað RCD. Þessi ríkisflokkur hefur farið með stjórn landsins allt frá því Túnis fékk sjálfstæði frá Frökk- um 1956. Árið 1987 ýtti flokkslaukur- inn Ben Ali fyrirrennara sínum úr sæti forseta því hann þótti orðinn ellimóður. Rétt er að taka fram að stjórn Ben Alis og RCD í Túnis þótti ekki yfirmáta harðneskjuleg. Ekki í samanburði við margar aðrar einræðisstjórnir, fyrr og síðar. Raunar hefur að nafninu til ríkt lýðræði í Túnis en kosningar sem þar fóru fram hefðu ekki þótt lýðræð- islegar þar sem við þekkjum best til. RCD vann alltaf grunsamlega stóra sigra. Og þótt frelsi væri meira í Tún- is en sumum öðrum Arabaríkjum, þá var þar nú ritskoðun samt, og stjórn- arandstæðingar áttu á hættu að vera ofsóttir og jafnvel fangelsaðir. Nú á seinni árum hefur efnahagsástand verið helsti bágborið vegna vanhæfni einræðisstjórnarinnar, atvinnuleysi var mikið og mjög vaxandi óánægja með spillingu, klíkuskap og óstjórn. Mesta gremju landsmanna vakti mikið spillingarnet fjölskyldu og ná- inna vina Ben Alis, þar sem menn mökuðu krókinn á kostnað alþýðu landsins. Feitar stöður og pattaraleg- ir bitlingar stóðu þeim til boða sem forsetinn hafði velþóknun á. Almenn mótmæli hófust um miðjan desember og urðu á skömm- um tíma óviðráðanleg fyrir Ben Ali. Að hann skyldi hrökklast burt þótti hins vegar tíðindum sæta – því ein- skær mótmæli almennings hafa hingað til lítt dugað til að fella ein- ræðisöfl í ríkjum Afríku og Mið-Aust- urlanda. Valdarán hafa þar yfirleitt verið framin af herforingjum og/eða klíkum innan ríkisflokkanna sem ráða. HVAÐ ER LÍKT MEÐ TÚNIS OG ÍSLANDI? Eftir að Ben Ali flúði lýsti forsætis- ráðherrann Mohamed Ghannouchi því yfir að hann tæki við forseta- embættinu til bráðabirgða og ætlaði að mynda þjóðstjórn. Ghannouchi hefur nú hafist handa við að hand- taka ættmenni Ben Alis fyrir spill- ingu. Bersýnilega er hann að reyna að sýna landsmönnum að hann sé sá nýi kústur sem þurfi til að sópa út úr spillingarhreiðrum Ben Alis, þótt Ghannouchi hafi verið dygg- ur flokksmaður RCD alla sína tíð og forsætisráðherra Ben Alis undanfar- in 12 ár! Túnisar brugðust reiðir við þjóðstjórnarhugmyndum Ghann- ouchis og flestir aftóku að RCD fengi ráðherra í nýrri bráðabirgðastjórn. Ekki veit ég hvernig það endar – en þó hefur Ghannouchi nú sagt sig úr RCD og kveðst ætla að byrja með „hreint borð“. Æ háværari kröfur eru uppi í Túnis um að ríkisflokkurinn verði lagður niður í eitt skipti fyrir öll, svo þjóðin öll geti byrjað með hreint borð. Nú. Það er ekki meiningin að upphefja hér erlendar fréttaskýring- ar. Og ég er svo sem enginn sérfræð- ingur í málefnum Túnis. Ég verð hins vegar að viðurkenna að ég þykist sjá ákveðin líkindi með Túnis og Íslandi við þessar aðstæður. Ástæðan er ekki síst sú að und- anfarið hefur runnið betur upp fyr- ir okkur en áður hve mjög hinum ís- lenska Sjálfstæðisflokki hefur í reynd svipað til þeirra ríkisflokka sem farið hafa með völd í ýmsum „vanþróuð- um“ ríkjum undanfarna áratugi. Eins og RCD í Túnis. Nú ætla ég ekki að halda því fram að lýðræðið hér á Íslandi hafi verið jafn aumt og í Túnis. Alls ekki. Það væri fjarri öllum sanni. Og auðvit- að hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki gengið fram með jafn hörkulegum hætti og RCD í Túnis. Það væri líka fjarri öllum sanni að halda því fram. En þó höfum við á síðustu misser- um fengið framan í okkur ótal dæmi um stjórnarhætti og vinnubrögð sem eru svo vafasöm og óskemmtileg að í reynd má alveg líkja þeim við fram- ferði ríkisflokka í löndum þar sem lýðræði er annaðhvort lítt þróað eða eintóm blekking. MÚTUR OG PERSÓNUNJÓSNIR Um stjórnartíð Davíðs Oddssonar í Sjálfstæðisflokknum vitum við auð- vitað margt, en ég er smeykur um að ýmislegt sé þó enn ósagt um hvað þá hafi viðgengist í flokknum. Á hinn bóginn fengum við í nýrri ævisögu Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson mörg dæmi um svo ólýðræðisleg og spillingarþrung- in vinnubrögð að það sætir furðu að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki hafa verið látinn horfast rækilega í augu við það eftir útkomu bókarinnar. Eðlilegast væri náttúrlega að Sjálf- stæðisflokkurinn sjálfur skammaðist sín við lesturinn og ákvæði að taka í hnakkadrambið á sjálfum sér, en við slíku er ekki að búast af þeim flokki. Jafnvel þótt í bók Guðna Th. komi fram að það hafi þótt eðlilegt innan flokksins fyrir nokkrum áratugum að beita hreinum mútum, persónu- njósnum og öðrum óþokkabrögð- um í stjórnmálabaráttunni. Nú er talað um rannsóknarnefndir til að skoða hvaðeina sem miður hefur farið síðustu áratugina – en enginn hefur enn minnst á að réttast væri að skipa rannsóknarnefnd til að fara í saumana á starfsemi Sjálfstæðis- flokksins. (Og hinna flokkanna auð- vitað líka. Það mun margt ófagurt koma á daginn, ekki síst innan Fram- sóknarflokksins, þar sem spillingin blómstraði líka, og innan Alþýðu- flokksins á stundum. En Sjálfstæðis- flokkurinn mun vafalítið bera höfuð og herðar yfir alla aðra í spillingu og kúgunartilburðum.) Og í bók Guðna kemur m.a.s. fram að einu sinni var borin fram tillaga um það á þingi sjálfstæðis- manna að sjálfstæðismenn (karlar) ættu að leitast við að ganga eingöngu að eiga sjálfstæðiskonur. Þetta var að vísu ekki samþykkt, en það lýsir samt ótrúlegum hugsunarhætti að þessi tillaga skuli bara hafa komið fram. AÐ ÞVO AF SÉR ÓVÆRUNA Túnismenn eru nú byrjaðir að reyna að þvo af sér óværu RCD. Við Íslend- ingar sýnum hins vegar fá merki þess að vilja losa okkur við óþrifn- aðinn, gamlan og nýjan, sem spillt stjórnmálaöfl hafa makað okkur í. Gott skref væri að neyða Sjálfstæðis- flokkinn til að horfast í augu við for- tíð sína, og auðvitað ætti allra helst að leggja flokkinn niður – svo þung- ar eru syndir hans, bæði úr fortíðinni og frá tímum „góðærisins“. En það verður þó varla gert. Flokksmenn eru svo heilaþvegnir að þeir líta flestir á það sem eins kon- ar ígildi dauðans að ganga úr Sjálf- stæðisflokknum. Sorglegt dæmi um það mátti sjá um daginn í sjónvarp- inu þegar Ólafur Þ. Stephensen, rit- stjóri Fréttablaðsins, var spurður um hóp fyrrverandi sjálfstæðismanna sem nú leitast við að stofna nýjan flokk á hægri vængnum. Ólafur er sjálfstæðismaður af skárri sortinni, en samt gat hann ekki setið á sér að hreyta einhverjum hæðnislegum ónotum í þennan hóp – væntan- lega fyrir þá goðgá að geta hugsað sér að kljúfa hin helgu vé Sjálfstæð- isflokksins. Og var Ólafur þó vænt- anlega fenginn í sjónvarpsþáttinn sem blaðamaður sem gefa ætti sitt yfirvegaða álit á hvað væri að gerast í stjórnmálunum. En yfirvegað álit blaðamannsins fauk út í veður og vind þegar sjálfstæðismaðurinn tók yfir og hlaut að reyna að gera lítið úr þeim sem dirfðust að naga utan flokkinn hans – þótt Ólafur sé sjálf- ur væntanlega hreint ekki sáttur við allt sem sá flokkur hefur tekið sér fyrir hendur undanfarið. BEN ALI EKKI ORÐINN RITSTJÓRI Ég hef hins vegar iðulega bent for- stokkuðum sjálfstæðismönnum í hópi kunningja minna á að þeir þurfi sannarlega ekki að óttast að það sé eins og að deyja að ganga úr Sjálfstæðisflokknum. Þvert á móti myndi þeim reyndast það eins og nýtt líf. Alveg eins og ég hugsa að nú andi flestir Túnisar töluvert mikið léttar en áður, og líti á það sem nýtt líf ef þeir geta losnað við spilling- armaskínu RCD. Kannski við getum eitthvað af þeim lært. Og þótt við Íslendingar teljum sjálfsagt að hér sé lýðræðishugsun og lýðræðisvitund miklu sterkari en hjá Túnisum, þá má kannski skjóta því að líka að í Túnis virðist ekki hafa hvarflað að nokkrum manni að gera hinn brottrekna spillingarforseta Ben Ali að ritstjóra Moggans þeirra Túnisa. ÓVÆRAN Í TÚNIS OG Á ÍSLANDI Eitt dimmt og kalt kvöld í desem-ber fyrir um það bil fimm árum hringdi vinur minn í mig og spurði hvort ég vildi verða „statisti“ í myndbandi sem tónlistarmaður- inn Mugison væri að fara að taka upp. Mér fannst þetta prýðisgóð hugmynd og játti. Ég var á þeim tíma mikið að hlusta á Mugison og taldi næsta víst að hann yrði heimsfrægur. Tækifæri mitt til að komast í mynd á MTV var nú eða aldrei. Við vorum nokkrir strákar úr Grafarvogi sem vorum fengn-ir til þess að vera statistar. Einu fyrirmælin sem við fengum voru að mæta í Strandgötuna í Hafnarfirði klukkan 22.00 á föstudagskvöldi. Við áttum að vera í svörtum jakkafötum og hvítri skyrtu. Eitthvað heyrði ég minnst á Súfistan og taldi því næsta víst að mitt hlutverk fælist í því að standa ofursvalur við eitthvert bar- borð í bakgrunninum. Það eitt og sér fannst mér alveg nóg. Skyndilega staðnæmdust tveir bílar við Strandgötuna, þar sem við stóðum óstyrkir og biðum eftir því að dæmið byrjaði. Út úr bílunum stigu 10 stúlkur, allar klæddar í sams kon- ar búninga og greinilegt að þær voru allar þaulæfðir dansarar úr sama dansskólanum. Síðust út úr bíln- um steig kona sem var aðeins eldri en hinar. Þráðbein í baki og minnti helst á sjálfa „Baby“ úr kvikmyndinni Dirty Dancing. „Okei! Við ætlum að fara eldsnöggt yfir rútínuna, strákar og stelpur parið ykkur saman!“ kall- aði hún hátt og snjallt yfir hópinn. Skyndilega runnu á mig tvær grímur og ég fékk hroll eins og maður fær þegar kvíði hellist yfir mann. Önnur viðbrögð í þess- ari aðstöðu eru að teygja úr sér og byrja að geispa. „Ha!? Rútínuna? Hvað er hún að tala um?“ hugsaði ég með sjálfum mér og leit í kringum mig. Flestir skulfum við eins og lauf í vindi. Næstu mínútur þar á eftir fóru í að „fara eldsnöggt yfir rútínuna,“ með dansfélaganum. Sjálfur er ég álíka góður dansari og hornstaur sem rek- inn hefur verið ofan í frosinn mel til að halda uppi gaddavírsgirðingu. Við létum okkur hafa það og reyndum eins og við gátum að fylgja með. Fram hliðar saman, hliðar saman hliðar og allt það. Eftir nokkrar æfingar var komið að því að taka upp sjálft tónlistarmyndbandið. Mugison var mættur á svæðið ásamt tökuliðinu. Myndbandið var svo óra- langt frá hugmyndum mínum um að standa svalur við barborðið. Atriðið gekk út að Mugison rölti spakur um Strandgötuna og söng í myndavélina. Fyrir aftan hann skakklöppuðumst við gaurarnir svo með þaulæfðu dansstelpunum, og framkvæmdum eitthvað sem gæti kallast vals. Ég var mjög feginn þegar tökum lauk, um klukkan 1 eftir miðnætti. Leikstjórinn virtist vera þokkalega ánægður og ekki virtist Mugison vera að hafa miklar áhyggjur af þessu. Ég hafði komist í gegnum þessa mjög óvæntu þraut, sem hafði reynt á hug- rekki mitt og getuna til þess að læra dansspor undir óvenjulegum kring- umstæðum í kuldanum í Hafnar- firði. Nú var bara að bíða eftir mynd- bandinu. Það átti að verða tilbúið einhvern tímann á næstu vikum. Vikurnar liðu og ekkert bólaði á dansmyndbandinu mikla. Smám saman fór vorið að nálgast og ég var eiginlega búinn að gleyma myndbandinu. Allt í einu heyrði ég lagið hans góða í sjón- varpinu inni í stofu og stökk upp til að sjá atriðið. Nú var komið að þessu! Ég horfði og horfði. Myndbandið kláraðist og ég klóraði mér í haus- num. Við komum aldrei nokkurn tímann í mynd. Við höfðum verið klippt út. Þrír klukkutímar á jakka- fötunum að dansa vals á köldu desemberkvöldi urðu að engu. Mér fannst ég hafa verið notaður. 24 | Umræða 21.–23. janúar 2010 Helgarblað Trésmiðjan Illugi Jökulsson Helgarpistill Valgeir Örn Ragnarsson Mugison notaði mig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.