Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Side 30
Atli Már fæddist í Reykjavík en ólst upp á Flateyri við Önundarfjörð til fjórtán ára aldurs. Hann lenti
í snjóflóðinu á Flateyri árið 1995, var
bjargað úr flóðarústunum en missti
föður sinn og bróður í flóðinu. Faðir
Atla, Sigurður Þorsteinsson, hefði orð-
ið fimmtíu og fimm ára sl. miðvikudag.
Atli Már var í Grunnskóla Flateyrar
og síðan í Hagaskóla í Reykjavík, lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 2001, stundaði nám í
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands,
lauk BA-prófi í stjórnmálafræði 2006
og lauk síðan MA-prófi í alþjóðasam-
skiptum frá Háskóla Íslands 2009. Þá
stundaði hann nám við Stýrimanna-
skólann í Reykjavík og lauk þaðan
prófum 2009.
Atli stundaði sjómennsku frá Flat-
eyri, Ísafirði og víðar frá Vestfjörðum
frá þrettán ára aldri, á bátum og togur-
um, starfaði hjá Fiskistofu með námi
á háskólaárunum og hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Hann hefur starfað við
upplýsingadeild utanríkisráðuneytis-
ins frá ársbyrjun 2010.
Atli skrifaði fyrir tímaritið Mann-
líf árið 2007. Hann situr í stjórn Félags
stjórnmálafræðinga.
Fjölskylda
Sambýliskona Atla er Guðrún Inga
Torfadóttir, f. 5.6. 1982, lögfræðingur
hjá Íslandsbanka.
Systkini Atla: Þorsteinn Sigurðs-
son, f. 11.8. 1977, lést í snjóflóðinu á
Flateyri 26.10. 1995; Berglind Ósk Sig-
urðardóttir, f. 21.11. 1979, starfsmaður
BSRB og nemi í bókmenntafræði við
Háskóla Íslands; Borgrún Alda Sig-
urðardóttir, f. 23.3. 1992, nemi við Fjöl-
brautaskólann í Garðabæ; Thelma Sif
Jónsdóttir, f. 17.8. 1999, grunnskóla-
nemi.
Foreldrar Atla: Sigurður Þorsteins-
son, f. 18.1. 1956, lést í snjóflóðinu á
Flateyri 26.10. 1995, sjómaður og for-
maður verkalýðsfélagsins Skjaldar á
Flateyri, og Sigrún Magnúsdóttir, f.
11.12. 1958, matráðskona og heilsu-
ráðgjafi, búsett í Garðabæ.
Daði fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann var í Grunn-skóla Siglufjarðar og stundaði
nám við Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra á Sauðárkróki, stundaði
síðar nám við Fjölbrautaskólann í
Ármúla og lauk þaðan stúdentsprófi
2009, auk þess sem hann hefur sótt
ýmis atvinnutengd námskeið, s.s.
sjómannanámskeið og námskeið á
lyftara.
Daði vann við rækjuvinnslu hjá
Þormóði Ramma á Siglufirði á ung-
lingsárunum og var þar rækjukóng-
ur í sex ár. Hann flutti til Reykjavíkur
2006 og starfaði þar hjá Eimskip árið
2006 og síðan hjá Granda með námi
á árunum 2006–2009. Hann er nú að
undirbúa eigin rekstur á Siglufirði.
Fjölskylda
Sonur Daða er Heimir Már Daða-
son, f. 13.10. 2004.
Systkini Daða eru Þórleif Guð-
mundsdóttir, f. 16.12. 1961, vinnu-
vélastjóri í Vestmannaeyjum; Davíð
Guðmundsson, f. 26.3. 1963, tölvun-
arverkfræðingur með eigin rekstur,
búsettur í Vestmannaeyjum; Una
Dögg Guðmundsdóttir, f. 6.3. 1977,
grunnskólakennari við Árbæjar-
skóla, búsett í Kópavogi.
Foreldrar Daða eru Guðmund-
ur Davíðsson, f. 9.10. 1942, bílstjóri,
búsettur í Garðabæ, og Lilja Krist-
ín Guðmundsdóttir, f. 16.2. 1951,
deildarstjóri við dagvist fatlaðra.
30 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 21.–23. janúar 2011 Helgarblað
Ingunn fæddist á Egilsstöðum snjóa veturinn mikla 1951 og ólst upp á Héraði. Hún lauk stúdents-
prófi frá Mennatskólanum á Akur-
eyri 1971, stundaði nám í tölvufræð-
um við Roosevelt University í Chicago
1972, lauk BA-prófi í sálar- og uppeld-
isfræði við Háskóla Íslands 1977, prófi
í uppeldis- og kennslufræði við Há-
skóla Íslands 1977, M.Sc.-prófi í sál-
arfræði við Gautaborgarháskóla 1981,
MFA-prófi frá Newcastle University –
námi í fagurlist 2006–2008 að afloknu
fjögurra ára fagurlistanámi við Mynd-
listarskólann á Akureyri 1998–2002.
Auk þessa hefur hún sótt aragrúa
námskeiða af ýmsu tagi.
Ingunn vann þjónustu- og iðn-
aðarstörf frá tólf ára aldri og sinnti
síðar kennslu- og uppeldisstörfum
með námi, m.a. á barnageðdeild hér
heima og í Gautaborg með háskóla-
námi. Hún kenndi einnig sálar- og
uppeldisfræði og var sálfræðingur hjá
Dagvist barna í Reykjavík 1981–84, var
fyrsti heilsugæslusálfræðingur á Ís-
landi við Heilsugæsluna á Kópaskeri
og á Raufarhöfn 1984–88, íþrótta-
kennari við Grunnskólann á Kópa-
skeri á sama tíma og sveitarstjóri í Öx-
arfirði 1988–98.
Ingunn átti þátt í ýmsum fram-
faramálum í Öxarfjarðarhéraði svo
sem stofnun Hitaveitu Öxarfjarð-
ar, Ferðamálasamtaka við Öxarfjörð,
stofnun Fjallalambs auk fjölda ann-
arra framfaramála í héraðinu. Hún
var vþm. með setu á Alþingi þar sem
hún lagði m.a. fram þingsályktunartil-
lögu til úrbóta í vegamálum, sem nú
loks eru orðnar að veruleika. Hún sat
í hreppsnefnd Presthólahrepps (síð-
ar Öxarfjarðarhrepps) og var oddviti
á árunum 1988–91, sat í Héraðsnefnd
Norður–Þingeyjarsýslu og í stjórn
Fjórðungssambands Norðlendinga
og var formaður þess 1990–92, auk
fjölda annarra nefnda og ráða, sótti
m.a. FAO-ráðstefnu til Hollands um
„Konur í dreifbýli“ fyrir Íslands hönd.
Ingunn er frábitin flokkspólitík og
óflokksbundin en fylgist með þjóð-
málum og heimsmálum og segir
skoðun sína þegar svo ber undir.
Yst er listamannsnafn Ingunnar
en á annan áratug hefur hún ein-
vörðungu helgað sig listinni og sýnir
í Bragganum í Öxarfirði, yst.is. Hún á
að baki sautján einkasýningar og jafn-
margar samsýningar hér heima og er-
lendis auk gjörninga.
Ingunn er femínisti og nýlist á hug
hennar allan auk mannræktar, söngs
og þjóðmenningar, djass og göngu-
ferða úti í náttúrunni.
Fjölskylda
Ingunn giftist 6.4. 1974 Sigurði Hall-
dórssyni, f. 5.8. 1951, lækni. Hann er
sonur Halldórs Sigurðssonar, f. 11.2.
1925, bónda á Valþjófsstöðum, og
k.h., Kristveigar Björnsdóttur, f. 2.1.
1927, húsfreyju og áður organista og
safnvarðar.
Börn Ingunnar og Sigurðar eru
Kristbjörg, f. 11.10. 1974, bæklun-
arlæknir en eiginmaður hennar er
Magnus Johansson rafmagnsverk-
fræðingur; Kristveig, f. 19.5. 1976,
söngkona og skipulagsverkfræðingur;
Halldór Svavar, f. 23.10. 1982 sjúkra-
þjálfari en eiginkona hans er Edda
Hermannsdóttir, nemi við Háskóla Ís-
lands og börn þeirra eru Emilía, f. 6.1.
2008, og Sigurður, f. 14.12. 2010.
Systur Ingunnar eru Birna Krist-
ín, f. 4.5. 1953, hjúkrunarforstjóri á
Eir í Reykjavík; Erla Kolbrún, f. 30.4.
1961, prófessor í hjúkrunarfræði við
Háskóla Íslands; Alma Eir, f. 11.8.
1963, heimilislæknir í Reykjavík og
kennslustjóri heimilislækninga á Ís-
landi.
Foreldrar Ingunnar eru Svavar
Stefánsson, f. 16.9. 1926, fyrrv. mjólk-
urbússtjóri á Egilsstöðum, og Krist-
björg Sigurbjörnsdóttir, f. 3.4. 1933,
áður talsímakona, ritari og rak blóma-
verslunina Stráið fyrst á Egilsstöðum
og síðar á Laugaveginum. Þau eru nú
búsett í Reykjavík.
Ætt
Svavar er albróðir Jónínu, móður Stef-
áns Þórarins Ingólfssonar arkitekts,
og hálfbróðir Einars, múrarameistara
á Egilsstöðum, föður Vilhjálms, skóla-
meistara á Egilsstöðum og silfurverð-
launahafa í þrístökki á Ólympíuleik-
unum í Melbourne í Ástralíu 1956,
föður Einars, margfalds Íslandsmeist-
ara í spjótkasti og meðal bestu spjót-
kastara í heimi á tímabili. Annar bróð-
ir Svavars var Þórarinn, smíðakennari
á Laugarvatni, faðir Stefáns, fyrrv. að-
alféhirðis Seðlabankans. Svavar er
sonur Stefáns, b. á Mýrum í Skriðdal
Þórarinssonar, b. á Randversstöðum í
Breiðdal Sveinssonar, bróður Bjarna,
afa Halldórs Halldórssonar prófess-
ors. Systir Þórarins var Þrúður, amma
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöf-
undar.
Móðir Svavars var Ingifinna Jóns-
dóttir.
Kristbjörg er dóttir Sigurbjörns
Árnabjörnssonar, og Kristínar Einars-
dóttur.
Afmælisbarnið verður að heiman
í dag.
Jóhann fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavoginum. Hann var Digranesskóla, stundaði
nám við Menntaskólann í Kópa-
vogi og lauk prófum sem bakari frá
Iðnskólanum í Reykjavík.
Jóhann vann við smíðar, á
dekkjaverkstæði og bónaði bíla
á unglingsárunum með námi,
hóf störf við bakstur átján ára hjá
Smárabakaríi, starfaði síðan hjá
ýmsum bakaríum í Reykjavík, flutti
til Ísafjarðar 1994, vann þar eitt
sumar við rækjuvinnslu og í frysti-
húsi og við landanir, starfaði síðan
hjá Bakaranum á Ísafirði en hefur
verið bakari hjá henni Rut í Gamla
bakaríinu frá 1997.
Jóhann hefur sungið með Karla-
kórnum Örnum sl. fimm ár.
Fjölskylda
Eiginkona Jóhanns er Randí Guð-
mundsdóttir, f. 20.11. 1968, leik-
skólaliði.
Dætur Jóhanns og Randíar eru
Antía Björk Jóhannsdóttir, f. 16.9.
1992; Jóhanna Jóhannsdóttir, f.
28.9. 2000.
Systkini Jóhanns eru Halldór
Svansson, f. 14.9. 1955, húsasmið-
ur, búsettur í Kópavogi en kona
hans er Jóhanna Geirsdóttir og eiga
þau fjögur börn; Svava Svansdótt-
ir, f. 4.1. 1958, hjúkrunarfræðing-
ur í Edeltoft í Danmörku en maður
hennar er Jesper Viskum og á hún
þrjú börn; Vilhjálmur Svansson,
f. 3.4. 1960, dýralæknir á Keldum,
búsettur í Reykjavík en kona hans
er Áslaug Jónsdóttir og á hann tvö
börn; Svanborg Svansdóttir, f. 15.6.
1962, þjónustufulltrúi við Spari-
sjóðinn í Keflavík, búsett í Vogum á
Vatnsleysuströnd en maður henn-
ar er Bergur Álfþórsson og eiga þau
fjögur börn.
Foreldrar Jóhanns eru Svan-
ur Hvítaness Halldórsson, f. 1.3.
1935, leigubifreiðastjóri, búsettur
í Kópavogi, og Jóhanna Jóhanns-
dóttir, f. 12.9. 1935, fyrrv. skjala-
vörður við Landspítalann.
Ætt
Foreldrar Svans voru Halldór Pjet-
ursson, rithöfundur, ættaður af
Héraði, og Svava Jónsdóttir hús-
móðir, úr Borgarfirði eystra.
Foreldrar Jóhönnu: Jóhann
Ásmundsson, bóndi á Kverná í
Grundarfirði á Snæfellsnesi, og
Svanborg Rósamunda Kjartans-
dóttir, frá Vindási í Eyrarsveit, en
hún verður einmitt níutíu og fimm
ára á sunnudag.
Yst Ingunn St. Svavarsdóttir
Sálfræðingur og fagurlistaverkakona í Öxarfirði
Jóhann Dagur Svansson
Bakari við Gamla bakaríið á Ísafirði
85
ára
85
ára
Atli Már Sigurðsson
Stjórnmálafræðingur hjá utanríkisráðuneytinu
Daði Már Guðmundsson
Sundmaður á Siglufirði
Óli Heiðar Arngrímsson
Félagsliði og nemi í Reykjavík
60 ára á sunnudag
40 ára á föstudag
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag
30 ára á föstudag
Ó li ólst upp við sveitastörf að Teigi og að Stóru–Býlu í Innri–Akraneshreppi, starf-
aði tvö sumur við Vatnsfellsvirkj-
un, vann við Norðurál í tæp sex ár
en hefur starfað hjá Elkem Ísland í
Hvalfirði frá 2007.
Óli hefur starfað með jeppa-
klúbbnum 4x4 undanfarin ár.
Fjölskylda
Hálfbræður Óla, sammæðra, eru
Jökull Harðarson, f. 29.9. 1987,
starfsmaður hjá HB Granda á Akra-
nesi; Patrekur Harðarson, f. 14.4.
1998, nemi í Heiðarskóla.
Hálfsystir Óla, samfeðra, er
Halla Rún Erlingsdóttir, f. 16.7.
1999.
Foreldrar Óla: Valdís Heiðars-
dóttir, f. 26.1. 1961, deildarstjóri við
Sjúkrahús Akraness, og Arngrím-
ur Sveinsson, f. 8.3. 1949, d. 21.10.
2006, rútubílstjóri.