Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Side 33
Við viljum fá alla með í stærsta alþjóðlega menningar- verkefni sem Ísland hefur ráðist í. Ísland er sérstakur heiðursgestur á stærstu bókasýningu heims í Frankfurt í Þýskalandi. Á annað hundrað íslenskra bóka kemur út á þýsku í tengslum við verkefnið auk þess sem fjöldi upplestra, myndlistarsýninga og tónleika verða um allt Þýskaland. Hápunkturinn verður á sjálfri Bókasýningunni í Frankfurt í október þar sem Ísland verður í aðalhlutverki. Hluti af glæsilegum sýningarskála Íslands verður helgaður íslenska heimilisbókasafninu sem er að mörgu leyti einstakt í heiminum. Við ætlum að bjóða gestum Bóka- sýningarinnar inn á íslensk heimili og leyfa þeim að sjá sem flest íslensk heimilisbókasöfn. Taktu ljósmynd eða myndband af þér við bókaskápinn þinn og vertu með! Við munum velja 30 bókaskápa og gera myndbönd þar sem eigendur þeirra segja frá uppáhalds- bókinni sinni. Þau myndbönd munu leika stórt hlutverk á sýningunni í Frankfurt. Þar, og á vefsíðunni okkar, verða líka sýndar eins margar ljósmyndir og kostur er. Auk þess verður dregið úr innsendum tillögum og þrír heppnir þátttakendur vinna ferð fyrir tvo á Bókasýninguna í Frankfurt í haust! Sendu okkur mynd af heimilisbókasafninu og þú gætir verið á leiðinni til Frankfurt í haust Svona tekur þú þátt Sendu myndina í tölvupósti á info@sagenhaftes-island.is eða á www.facebook.com /sogueyjan-island eða í umslagi til Sagenhaftes Island, Austurstræti 18, 101 Reykjavík Myndaðu bókasafn heimilis- ins í hvaða formi sem það er. Kynntu þér verkefnið og samkeppnina nánar á www.sagenhaftes-island.is F í t o n / S Í A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.