Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Page 33
Við viljum fá alla með í stærsta alþjóðlega menningar-
verkefni sem Ísland hefur ráðist í. Ísland er sérstakur
heiðursgestur á stærstu bókasýningu heims í Frankfurt
í Þýskalandi. Á annað hundrað íslenskra bóka kemur út á
þýsku í tengslum við verkefnið auk þess sem fjöldi
upplestra, myndlistarsýninga og tónleika verða um allt
Þýskaland. Hápunkturinn verður á sjálfri Bókasýningunni
í Frankfurt í október þar sem Ísland verður í aðalhlutverki.
Hluti af glæsilegum sýningarskála Íslands verður helgaður
íslenska heimilisbókasafninu sem er að mörgu leyti
einstakt í heiminum. Við ætlum að bjóða gestum Bóka-
sýningarinnar inn á íslensk heimili og leyfa þeim að sjá
sem flest íslensk heimilisbókasöfn.
Taktu ljósmynd eða myndband af þér við bókaskápinn þinn
og vertu með! Við munum velja 30 bókaskápa og gera
myndbönd þar sem eigendur þeirra segja frá uppáhalds-
bókinni sinni. Þau myndbönd munu leika stórt hlutverk á
sýningunni í Frankfurt. Þar, og á vefsíðunni okkar, verða líka
sýndar eins margar ljósmyndir og kostur er.
Auk þess verður dregið úr innsendum tillögum og
þrír heppnir þátttakendur vinna ferð fyrir tvo á
Bókasýninguna í Frankfurt í haust!
Sendu okkur mynd af heimilisbókasafninu og þú gætir verið á leiðinni til Frankfurt í haust
Svona tekur þú þátt Sendu myndina í tölvupósti á info@sagenhaftes-island.is
eða á www.facebook.com
/sogueyjan-island
eða í umslagi til Sagenhaftes Island,
Austurstræti 18, 101 Reykjavík
Myndaðu bókasafn heimilis-
ins í hvaða formi sem það er.
Kynntu þér verkefnið og samkeppnina nánar á www.sagenhaftes-island.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A