Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Blaðsíða 37
Fókus | 37Helgarblað 21.–23. janúar 2011
Hvað er að gerast?
n Brasilískt á Haiti Það verður mikið
um dýrðir á Kaffi Haiti við gömlu höfnina á
föstudagskvöldið. Þar syngur Jussanam Dejah
brasilíska söngva undir píanóleik Agnars Más
Magnússonar. Fjörið hefst klukkan 21.00 og
lýkur klukkan 23.00.
21
JAN
Föstudagur
22
JAN
Laugardagur
n Kristinn í Salnum Meistari Kristinn, tón-
leikar stórsöngvarans Kristins Sigmundssonar
og Jónasar Ingimundarsonar, verða haldnir
í Salnum í Kópavogi á laugardagskvöldið
klukkan 20.00. Miðaverð er krónur 3.500 en
af þessu vilja hvorki aðdáendur Kristins né
almennt söngáhugafólk missa.
n Diskókvöld á Players DJ Júlli mun halda
uppi fjörinu á laugardagskvöldið á Players. Það
vantar aldrei stuðið þegar Júlli mætir með sitt
víðfræga Júlladiskó en upp á það verður boðið
á laugardaginn. Það er frítt inn eins og alltaf
þegar Júlli þeytir skífum.
n Sniglabandið á Spot Ein allra vinsælasta
hljómsveit Íslands í gegnum tíðina, Sniglaband-
ið, verður með hörkuball á skemmtistaðnum
Spot í Kópavogi á laugardagskvöldið. Ballið
er eins konar Gauks-endurvaka en fólk sem
djammaði á Gauki á Stöng í gamla daga er
sérstaklega boðið velkomið.
n Bjartmar á Sódómu Bjartmar Guðlaugs-
son er fyrir löngu orðinn einn af ástsælustu tón-
listarmönnum Íslands frá upphafi. Hann verður
ásamt Bergrisunum með tónleika á Sódómu
á laugardagskvöldið en tónleikarnir hefjast
klukkan 23.00. Það er átján ára aldurstakmark
og kostar eitt þúsund krónur inn.
23
JAN
Sunnudagur
n Eivør í Langholtskirkju Hin frábæra
söngkona Eivør verður með magnaða tónleika
í Langholtskirkju á sunnudagskvöldið klukkan
20.00. Á þessum tónleikum gefst tækifæri til að
heyra nýja hlið á hinni einu sönnu Eivøru er hún
mætir með landsliðið í djassi með sér. Einnig
verða frumflutt ný verk, sérstaklega samin fyrir
tónleikana. Miðaverð er krónur 3.000 en miða
er hægt að nálgast á miði.is.
n Þynnkubíó á Prikinu Þeir sem vilja vera
vel afslappaðir á sunnudagskvöldið kíkja á
Prikið. Þar verður hið sívinsæla þynnkubíó en
myndin sem sýnd verður er What about Bob?
Prikið býður upp á popp með myndinni.
Stjörnufans í Feneyjum
Þau Johnny Depp og Angelina Jolie tilheyra slektinu í Holly-wood og þegar þau leiða sam-
an hesta sína í kvikmynd verður hún
sjálfkrafa stórviðburður. Þegar við
bætist að bæði tvö voru tilnefnd til
Golden Globe-verðlauna fyrir leik
sinn aukast væntingarnar enn frekar.
Florian Henckel von Donners-
marck á að baki hina frábæru Das
Leben der Anderen, Líf annarra, sem
vann Óskarsverðlaun sem besta er-
lenda mynd árið 2007.
Það er þó ekki hægt að setja að
The Tourist standi undir þessum
miklu væntingum. Þau Jolie og Depp
standa sig raunar ágætlega en að
kalla þetta verðlaunahæfa frammi-
stöðu er gjörsamlega út í hött.
Söguþráðurinn er barnalegur en
hefði hugsanlega virkað væri tónn
myndarinnar annar. Tónn myndar-
innar er þó í raun mjög óljós.
Tónlistin er algjörlega óvið-
eigandi á löngum köflum. Hún er
yfirgengilega dramatísk og minnir
einna helst á bandaríska sápuóperu.
Eins og áður sagði eiga Angelina
Jolie og Johnny Depp engan stjörnu-
leik, en hins vegar var gaman að sjá
Steven Berkoff og Timothy Dalton í
aukahlutverkum.
The Tourist veldur þó á heildina
litið miklum vonbrigðum.
joningi@dv.is
„Ég vildi bara gera
Grænlandi er þó hægt að leita skjóls
í byggingum en vísindamaður sem
hafði dvalið fjórtán mánuði þarna gat
aldrei leyft sér að fara lengra en þrjú
hundruð metra frá húsinu bara svo
hann gæti forðað sér undan veðrinu.
Þeir sem verða fyrir þessu veðri
eru búnir að vera. Fljótandi íshella á
sjónum getur fokið eins og servíetta í
vindinum. Það eru til myndbönd sem
sýna þetta. Íshellan hreinlega rifnar í
sundur undan vindi og tekst svo á
loft. Ef þú ímyndar þér mann í þess-
um kringumstæðum þá á hann sér
litla von. Svo þegar lægir aftur þá frýs
allt á augabragði.“
Á tali við mörgæsir
En í þessu umhverfi, sem auðveld-
lega má segja vera með því fjand-
samlegasta á jörðinni, er að finna
dýrategundir sem hafa aðlagað sig
frábærlega. „Mögnuð dýr eins og
fílaselir, sæljón og mörgæsir. Það er
hreint ótrúlegt að sjá mörgæsirnar
kannski fimmtíu saman í einfaldri
röð og þær skoða mann allar. Mað-
ur stendur bara kyrr í smástund og
heilsar mörgæs og talar við hana.
Svo kemur næsta og goggar eitthvað
í skóna manns og svona gengur þetta
koll af kolli. Þetta er lyginni líkast.“
Þessi svæði í grennd við Suður-
skautslandið muni auðvitað líka taka
breytingum vegna hlýnunar, en það
sé ógerningur fyrir hann að fylgjast
jafn náið með því og hann hefur gert
á Grænlandi. Hvað þá með Græn-
land? Ætlar Ragnar að halda áfram?
„Auðvitað langar mig að halda
áfram með Grænland. Kannski
ekki alveg á sama hátt og hingað til.
Mögulega reyni ég að fylgjast nán-
ar með bráðnuninni sjálfri. Kannski
kemur til þess í nánustu framtíð að
byggð leggst af í einhverjum þorp-
um. Þá er kannski ekkert síður mik-
ilvægt að skrásetja borgarlífið á
Grænlandi, eins og til dæmis í Nuuk.
Það eru ungir krakkar í Nuuk sem
vita lítið sem ekkert um sína upp-
runalegu menningu. Þau þekkja ekki
sína fortíð sem veiðimenn. Þarna er
komið nýtt Grænland með fólki sem
hefur ekki einu sinni mikinn áhuga á
þessari arfleifð. Þetta er heimur með
rokktónlist og sólgleraugum,“ segir
Ragnar.
Á Grænlandi geti hlýnun og
bráðnun hæglega orðið til þess að
hægt verði að vinna þar olíu og verð-
mæta málma. „Það er allt sem bend-
ir til þess að þarna séu svo mikil
verðmæti að Grænlendingar, þessi
fimmtíu þúnd manna þjóð, geti orð-
ið langsamlega ríkust í heiminum.
Forvitnilegt.“
sigtryggur@dv.is
RAX Ragnar myndar
fyrir sjálfan sig.
MYND SIGTRYGGUR ARI
The Tourist
IMDb 6,1 RottenTomatoes 20% Metacritic 37
Leikstjóri: Florian Henckel von
Donnersmarck.
Handrit: Florian Henckel von Donnersmarck,
Christopher McQuarrie, Julian Fellowes.
Leikarar: Johnny Depp, Angelina Jolie, Paul
Bettany, Timothy Dalton, Steven Berkoff.
103 mínútur
Bíómynd
Jón Ingi
Stefánsson