Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2011, Side 56
Rólegur,
Jónas!
Stöðvar 2 menn
bestir í keilu
n Hersing fjölmiðlamanna sem færir
þjóðinni nýjustu fregnir af strákunum
okkar í HM í Svíþjóð nýtti fríkvöldið á
miðvikudaginn til að keppa innbyrðis
í keilu. Þar voru Stöðvar 2 menn
hlutskarpastir en það lið samanstóð
af íþróttafréttamanninum Herði
Magnússyni og tökumanninum
Birni Guðgeiri Sigurðssyni. Björn er
reyndar landsliðsmaður í keilu en
Hörður þótti koma gríðarlega á óvart
og var bestur þeirra sem eiga ekki
landsleik að baki í sportinu. RÚV-arar
lentu í öðru sæti en þar sýndi hinn
örvhenti Einar Örn
Jónsson skemmtileg
tilþrif. Henry Birgir
Gunnarsson og
Valgarð Gíslason
lönduðu bronsinu
fyrir hönd Frétta-
blaðsins og Vísis en
sprelligosarnir
á ÍBS þurftu
að sætta sig
við síðasta
sætið.
Kolla kúgast
n Sú nýbreytni varð í morgunþætt-
inum Í bítið á Bylgjunni að smökkun
á hákarli átti sér stað í beinni
útsendingu. Smakkararnir voru þó
ekki matgæðingar með kæstan hákarl
sem sérgrein heldur fólk sem aldrei
hafði lagt sér lostætið til munns.
Þau Kolbrún Björnsdóttir og Þráinn
Steinsson tækni-
maður fengu
það hlutverk að
bragða hákarl-
inn. Þráinn
komst frá sínu
verkefni átaka-
lítið en Kolbrún
fór mikinn og
kúgaðist með til-
heyrandi hljóðum.
Mun þetta vera
í fyrsta sinn sem
slík bragðkönnun
fer fram í beinni
útsendingu.
Hvorugur
matgæðingurinn
hyggst smakka
aftur.
Ósáttur við
gagnrýni
n Marteinn Þórsson, leikstjóri og
handritshöfundur Roklands, virðist
ekki vera sáttur við þá gagnrýni sem
myndin hefur fengið í fjölmiðlum,
kvartar hann yfir því á Facebook-síðu
sinni og spyr: „Er einhver menntaður
kvikmyndagagnrýnandi á landinu?“
Svo telur hann upp þrjá fjölmiðla
og kallar gagnrýnanda DV til að
mynda smalastrák. „Fréttablaðið:
Sagnfræðingur. Fréttatíminn: Eh, veit
ekki en hann kremaði yfir Kóngaveg.
DV: 18 ára smalastrákur.“ Þá telur
hann upp langa rullu af hugtökum
úr heimi kvikmynda-
vinnslu sem hann
kvartar yfir að
gagnrýnendur hafi
ekki spáð í. Þeirra
á meðal má finna
hugtök á borð við
temu, andhetjur,
mynduppbygg-
ingu og su-
bjektíva og
objektíva
notkun
myndavél-
arinnar.
Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrr-
verandi ritstjóri, staðhæfði á fimmtu-
dag á síðunni jonas.is að ekkert yrði
úr næstu Alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Reykjavík. „Alþjóðlega
kvikmyndahátíðin í Reykjavík verð-
ur ekki haldin aftur. Ríkið og borg-
in og ferðaþjónustuaðilar missa af
ótrúlegum tekjum, sem hafa verið af
þessari vinsælu hátíð. Í sex mánuði
reyndu aðstandendur hátíðarinnar
að fá menntaráðuneytið [til] að und-
irrita meðmælabréf með styrkbeiðni
til Evrópu … sem hefur gert hátíðina
kleifa.“
Lætur Jónas að því liggja að styrk-
beiðnin hafi aldrei verið send, og
verði því ekkert að styrknum. Jónas
segir að það sé Elíasi Jóni Guð-
jónssyni að kenna, en hann er að-
stoðarmaður Katrínar Jakobsdótt-
ur menntamálaráðherra. „En hann
er bara ómagi vinstri grænna úr há-
skóla og er óvinnufær. Málið dó á
borði hans og Katrínar eins og ann-
að,“ sagði Jónas um menntamálaráð-
herra og aðstoðarmann hennar.
DV hafði samband við Hrönn
Marinósdóttur, sem er stjórnandi
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík. Hrönn sagðist ekki skilja
þennan málflutning Jónasar, enda
eigi hann við engin rök að styðjast.
„Hátíðin á næsta ári er á sínum stað,
það er meira að segja búið að velja
dagsetningar og leggja drög að dag-
skrá,“ sagði Hrönn en henni var tals-
vert brugðið við að heyra þennan
orðróm um að hátíðin myndi ekki
fara fram á næsta ári. „Eina sem ég
get sagt er að það er enginn fótur fyr-
ir þessum orðrómi og það er alveg
ljóst að hátíðin mun fara fram, átt-
unda árið í röð.“
Kvikmyndaaðdáendur þurfa því
ekki að örvænta, Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Reykjavík mun fara
fram næsta haust – frá 22. september
til 2. október 2011. bjorn@dv.is
Framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðar hafnar ásökunum Jónasar Kristjánssonar:
„Enginn fótur fyrir þessu“
ÚTVEGUM
VEISLUSA
LI
FYRIR ÞOR
RABLÓT
GÓÐIR LANDSMENN, ÞORRINN NÁLGAST!
Hann hefst 21. janúar – Munið að panta tímanlega
Sími 553 7737 I www.mulakaffi.is
OKKAR LANDSFRÆGU
HJÓNABAKKAR OG ÞORRATROG
HENTA VEL FYRIR STÓRA
OG SMÁA HÓPA
KONUNGUR ÞORRANS
Í 48 ÁR
Vid blótum enn og aftur!
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 21.–23. JANÚAR 20119. TBL. 101. ÁRG. LEIÐB. VERÐ 595 KR.
Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi
hátíðarinnar Vill taka af allan vafa um
að kvikmyndahátíðin fari vissulega fram
næsta haust.