Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2014, Blaðsíða 36
36 Skrýtið Sakamál Helgarblað 26.–29. september 2014
A
ð morgni laugardagsins
10. apríl, 2004, rak maður
sem bjó í grennd við Reg
ents Canal í London aug
un í bláa ferðatösku sem
rak undan straumi í síkinu. Maður
inn var á leið til vinnu og gaf sér því
ekki tíma til að kanna þetta nánar.
Það gerðu aftur á móti nokkrir
unglingar mörgum klukkutímum
síðar, klukkan þrjú um eftirmið
daginn nánar tiltekið, þar sem
þeir gengu eftir síkisbakkanum
í Islington. Taskan vakti forvitni
þeirra og með langri grein tókst
þeim að draga töskuna að bakkan
um. Þegar þeir opnuðu töskuna brá
þeim heldur betur í brún og höfðu
samband við lögregluna. Inni
haldið var höfuðlaus búkur blökku
konu.
Minnti á annað mál
Aldur konunnar var talinn vera á bil
inu 18 til 30 ár og við fyrstu sýn virt
ist sem hún hafði dáið að minnsta
kosti tveimur dögum fyrr. Lögreglan
hófst þegar handa við að finna það
sem vantaði af líkama konunnar og
bað fólk að gefa sig fram ef það teldi
sig búa yfir upplýsingum sem varp
að gætu ljósi á málið.
Ekki reyndist unnt að úrskurða
um banamein konunnar en fund
urinn minnti óneitanlega á mál
Paulu Fields, 31 árs vændiskonu, en
sundurlimaðar líkamsleifar hennar
höfðu fundist á sömu slóðum í sík
inu fjórum árum áður. Höfuð Paulu
hafði aldrei fundist og sömu sögu
var að segja af morðingja hennar.
Eðlilega velti lögreglan fyrir sér
þeim möguleika að morðingi Paulu
hefði látið á sér kræla á ný.
Augljós vísbending
Lögreglan fann, 14. apríl, höfuð
fórnarlambsins og útlimi og gat bor
ið kennsl á það. Um var að ræða 27
ára sómalíska vændiskonu, Nasra
Ismail.
En það sem kom lögreglunni á
sporið var að bláa ferðataskan var
merkt eigandanum og lögreglunni
því í lófa lagið að hafa upp á hon
um. Innan skamms var í haldi lög
reglunnar bróðir eigandans, Dani
el Archer, 53 ára bótaþegi sem bjó
í íbúð bróður síns í Poole í Dorset.
Daniel var færður á lögreglu
stöðina og yfirheyrður og tveimur
dögum síðar var hann ákærður fyrir
morðið á Nasra Ismail.
Íbúð bróður Daniels var rann
sökuð hátt og lágt enda talið að lík
Nasra hefði verið sundurlimað þar.
Bar við sjálfsvörn
Þegar réttarhöldin yfir Daniel hófust
8. nóvember, 2005, lýsti hann sig
saklausan af morði og bar við sjálfs
vörn. Hann viðurkenndi að hafa
tekið Nasra á löpp við King's Cross
í London 17. mars og farið með
henni í íbúð bróður síns. Þar greiddi
hann henni 20 sterlingspund fyrir
kynmök, þá nýbúinn að fá örorku
bæturnar í hendur.
Daniel sagði að þá hefði Nasra
heimtað meira fé – afganginn af
bótunum. Hann hefði neitað og
Nasra hefði þá sótt hníf inn í eld
hús. „Hún otaði hnífnum að mér til
að hræða mig. Ég fór þá inn í eldhús
og náði í kúbein,“ sagði Daniel.
Tók strætó
Daniel sagðist hafa látið höggin dynja
á Nasra þangað til hún hneig niður og
hann heyrði í henni dauðahrygluna.
Síðan sundurlimaði hann líkama
Nasra, tróð líkamshlutunum í ferða
tösku og tók strætó niður að Regents
Canal þar sem hann losaði sig við allt
heila klabbið.
Hinn 23. nóvember, 2005, komst
kviðdómur að niðurstöðu á innan við
klukkutíma – Daniel Archer var sekur
um morð.
Málalyktir urðu þær að Daniel yrði
að dúsa á bak við lás og slá í að minnsta
kosti 30 ár áður en hann gæti svo mikið
sem íhugað að sækja um reynslulausn.
Þegar þar að kemur verður hann farinn
að nálgast nírætt. n
Fór með líkið í
strætisvagni
n Daniel Archer borgaði vændiskonu fyrir kynlíf n Viðskiptunum lauk með morði
Fannst sundurlimuð Síðasti viðskiptavinur Nasra Ismail gekk af henni dauðri.
Daniel Archer Greip
til kúbeins í viðskiptum
við vændiskonu.
„Ég fór þá inn í eldhús
og náði í kúbein
Leitin að Alice
skilar engu
Umfangsmikil leit hefur verið
gerð undanfarnar vikur að
breskri skólastúlku, Alice Gross.
Fjölskylda hennar hefur sent frá
sér yfirlýsingu þar sem hún biðl
ar til stúlkunnar að koma heim.
„Ef þú ert þarna einhvers stað
ar, komdu til okkar, þar sem þú
átt heima,“ segja þau og biðja al
menning að gefa upp allar upp
lýsingar sem hann kann að hafa
um hvarf hennar. Lögregluna
í London grunar að maður að
nafni Arnis Zalkalns beri ábyrgð
á hvarfi Alice. Arnis er dæmdur
morðingi og hefur verið búsettur
í Bretlandi. Hann finnst ekki og
telur lögregla hann vera farinn úr
landi. Hann var dæmdur fyrir að
myrða eiginkonu sína árið 1998
í Lettlandi. Bakpoki Alice Gross
fannst 2. september við ána
Brent, en stúlkan hvarf 28. ágúst.
Ekki farið fram á
dauðarefsingu
Ekki verður farið fram á dauðar
efsingu yfir Bandaríkjamannin
um Justin Ross Harris sem hefur
verið ákærður vegna dauða sonar
síns, Cooper.
Málið vakti mikla athygli
þegar það kom upp í sumar en
sonur hans, sem var 22 mánaða,
lést eftir að hafa verið skilinn
eftir í bíl í um sjö klukkustundir
í steikjandi hita. Saksóknarar
telja að Justin hafi skilið son sinn
eftir í bílnum að yfirlögðu ráði en
sjálfur heldur hann fram sakleysi
sínu. Dánarorsök Coopers var of
þornun.
Verði Justin fundinn sekur
gæti hann átt yfir höfði sér lífs
tíðarfangelsi.
Misnotaði
sjúkling
Bandarískur hjúkrunarfræðing
ur, Paul Bugarcic, hefur verið
dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir
kynferðis brot gegn sjúklingi sem
hann annaðist.
Umræddur sjúklingur, ung
kona, varð fyrir heilaskaða eftir
að hafa lent í vinnuslysi árið 2011
og er hún ófær um að ganga eða
tala – hvað þá verjast kynferðis
glæpamönnum. Fjölskylda kon
unnar hafði komið fyrir mynda
vél í herbergi hennar með það
fyrir augum að fylgjast með fram
förum konunnar. Brotin áttu sér
stað í janúar og var Bugarcic loks
dæmdur í vikunni. Niðurstaðan
var 15 ára fangelsi sem fyrr segir.