Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 2
2 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Hurðir brotnar
3 Íbúar voru í fastasvefni þegar sérsveit ríkislögreglustjóra
réðst inn á heimili hælisleitenda í
Auðbrekku í Kópavogi um klukkan
hálf sex að morgni fimmtudagsins
26. september síðastliðinn. Sérsveit-
armenn brutu upp dyr á herbergj-
um heimilisins
og handtóku
heimilismenn,
alls fimmtán
manns. DV
greindi frá
þessu á mið-
vikudag en í
grein blaðsins
kom fram að
mennirnir
hefðu ekki
fengið að klæða
sig áður en lögregla færði þá í varð-
hald á lögreglustöðinni Hverfisgötu.
Staðgreiddi húsið
2 Steinunn Guðbjartsdóttir, lögfræðingur og formaður
slitastjórnar Glitnis, staðgreiddi 90
milljóna króna einbýlishús sem hún
keypti af
Landsbank-
anum í júní í
sumar. Hús-
ið, sem er í
Seljugerði 1
í Bústaða-
hverfinu, er
tæplega 300
fermetr-
ar að stærð
og var hluti
af þeim
eignum sem
bankinn tók yfir frá Sparisjóðnum í
Keflavík. Þetta kom fram í DV á mið-
vikudag. Afsal hússins er dagsett
þann 6. júní síðastliðinn.
„Alltaf
dauðhrædd“
1 „Tilbúin í næstu lotu? Þetta er bara rétt að byrja.“
Svona hljóma ein skilaboð af fjöl-
mörgum sem Berglind Ýr Aradóttir
hefur fengið, undir nafni og nafn-
laust af netinu. Berglind telur að
fyrrverandi sambýlismaður henn-
ar, þjóðþekktur einstaklingur sem á
árum áður var
talsvert í sviðs-
ljósinu, sendi
henni skilaboð-
in. Berglind
sagði sögu sína í
DV á mánudag.
„Ég bý ein með
tvö börn og ég
er alltaf dauð-
hrædd,“ sagði
Berglind.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
30. 09. 2013
02. 10. 2013
02. 10. 2013
mánudagur
og þriðjudagur
30. september–1. október 2013
110. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
Vorum að taka upp nýja sendinguaf frábærum AEG ryksugum.
afslátt í nokkra daga.
Viljum gjarnan að sem flestir njóti þessað eiga afburða ryksugu og bjóðum því
Komdu og njóttu þess! // LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800// VERSLANIR UM LAND ALLT
RyksuguDagar
OPIÐ:
Laugardaga
frá kl.11-15
Nýttu ónýtu
matvælin
Sítrónur í klósettið 14
Fann annað
nafn á krossi
föður síns
n „Ógeðfellt“ n „Ég ætlaði bara ekki að trúa þessu“
Seldi sig
í kynlífsmaníu
n Reyndi að fyrirfara sér n Glímdi við geðraskanir
Hallgeir Ellýjarson
dauðhrædd“
n Íhugar að flýja land n Nektarmyndir af henni á Facebook n Lögreglan ráðalaus
n Ofsótt af fyrrverandi sambýlismanni
„Ég er alltaf
6–7
Berglind Ýr
Listakona
liggur í
tölvuleikjum
„Sama þótt fólk hlægi“ 23
Hann
eyðilagði
bara jólin Nuk hinn danski slapp 3
4
8–9
Frönskum
ketti lógað
2 Fréttir
2. október 2013 Miðvikudagur
Gæslan biðst
velvirðingar
„Landhelgisgæslu Íslands þykir
afar leitt og biðst velvirðingar á að
borgarbúar hafi orðið fyrir ónæði í
gærkvöldi [mánudagskvöld, innsk.
blm.] þegar eldvarnakerfi varð
skipsins Þórs fóru í gang,“ segir á
vef Landhelgisgæslunnar.
Viðvörunarkerfi varðskipsins fór
í gang á ellefta tímanum á mánu
dagskvöld og hélt vöku fyrir íbúum
miðborgarinnar og gamla Vestur
bæjarins. Lúðraþyturinn varði í um
korter og var ónæðið talsvert. En
gin hætta var þó á ferðum og er un
nið að því að finna orsökina og eftir
fremsta megni reyna að koma í veg
fyrir að þetta gerist aftur.
Magnús Orri
til Capacent
Magnús Orri Schram, fyrrverandi
þingmaður Samfylkingarinnar,
hefur verið ráðinn til Capacent
ráðgjafar. Á vef
Capacent kem
ur fram að þar
muni Magnús
starfa í hópi
ráðgjafa sem
sérhæfa sig
meðal annars
í stefnumótun
fyrirtækja.
Magnús settist á þing eftir
kosningarnar 2009 og var meðal
annars þingflokksformaður Sam
fylkingarinnar í fyrra. Hann féll
naumlega út af þingi eftir kosn
ingarnar í vor.
30 prósent með
einungis
grunnmenntun
Tæplega þrjátíu prósent þjóðar
innar í aldurshópnum 25 til 64
ára höfðu einungis lokið grunn
menntun, styttra námi en á fram
haldsskólastigi, í lok árs 2012
samkvæmt niðurstöðum úr
vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu
Íslands. Þetta kemur fram á vef
Hagstofunnar.
Í þessum hópi hefur fækkað
nokkuð á undanförnum árum,
en árið 2003 höfðu 34,6 pró
sent þjóðarinnar einungis lokið
grunnmenntun. Alls hafa 35,8
prósent íbúa mest lokið starfs
og framhaldsmenntun. Er þá átt
við nám á framhaldsskólastigi,
sem er að minnsta kosti tvö ár að
lengd, eða nám á viðbótarstigi.
Þá hafa 35 prósent íbúa á Ís
landi lokið háskólanámi á þessu
aldursbili. Háskólamenntuðum
hefur fjölgað talsvert frá árinu
2003, þegar þeir voru 27,7 pró
sent íbúa.
Í tölum Hagstofunnar kem
ur fram að mikill munur sé á
menntun íbúa höfuðborgar
svæðisins og landsbyggðarinn
ar. Á höfuðborgarsvæðinu hafa
24,4 prósent íbúa á aldrinum 25
til 64 ára eingöngu lokið grunn
menntun en 40,9 prósent hafa
lokið háskólamenntun. Utan
höfuðborgarsvæðisins hafa 37,8
prósent íbúa aðeins lokið grunn
menntun og 24,7 prósent lokið
háskólamenntun.
SérSveitin lagði
húSnæðið í rúStn Hælisleitendur voru í fastasvefni þegar sérsveitin gerði atlögu
Í
búar voru í fastasvefni þegar sér
sveit ríkislögreglustjóra réðst inn á
heimili hælisleitenda í Auðbrekku
í Kópavogi um klukkan hálf sex að
morgni fimmtudagsins 26. sept
ember síðastliðinn. Sérsveitarmenn
brutu upp dyr á herbergjum heimil
isins og handtóku heimilismenn, alls
fimmtán manns. Mennirnir fengu
ekki að klæða sig áður en lögregla
færði þá í varðhald á lögreglustöðinni
Hverfisgötu, né heldur að taka með
sér föt til skiptanna. Sumir þeirra voru
því á nærbuxum einum fata þegar
þeim var sleppt úr varðhaldi sex
klukkustundum síðar. Einhverjir sáu
sér ekki annað fært en að ganga um
fimm kílómetra leið aftur upp í Kópa
vog. Þetta staðfestir lögmaður tveggja
manna sem handteknir voru.
Öllum mönnunum fimmtán var
sleppt úr haldi sama dag og þeir voru
handteknir. Um var að ræða hælisleit
endur sem höfðu fengið herbergjun
um úthlutað af Reykjanesbæ sem er
með húsnæðið á leigu. Heimildir DV
herma að umræddir menn séu með
al annars frá Gana, Sómalíu, Sýrlandi,
Albaníu og Palestínu. Þeir íbúar sem
DV ræddi vissu ekki ennþá hvers
vegna þeir höfðu verið handteknir.
Friðrik Smári Björgvinsson, yfir
lögregluþjónn á höfuðborgarsvæð
inu, tjáir sig ekki um málið að öðru
leyti en því að aðgerðin hafi verið gerð
á grundvelli dómsúrskurðar. Spurður
út í hörku sérsveitarinnar og hvort nauðsynlegt hafi verið að brjóta upp velflestar dyr hússins, segir Friðrik að allar aðgerðir lögreglu séu í „sam
ræmi við aðstæður og eðli hvers máls fyrir sig.“ Hann gefur ekkert upp um það hvort rannsókn lögreglunnar beinist að öllum mönnunum eða ein
göngu hluta þeirra. Heimildarmaður DV sem þekkir til innan stjórnsýsl
unnar segir ólíklegt að allir íbúar hússins séu flæktir í lögreglurann
sókn. Um sé að ræða menn með ólík
an bakgrunn sem hafi sumir hverj
ir einungis búið á gistiheimilinu í nokkra daga áður en sérsveitin réðst til atlögu.
Lög brotin
Lögmaður tveggja manna sem hand
teknir voru, segir að þeim hafi ekki verið gerð grein fyrir ástæðu hand
tökunnar, eins og lög um meðferð sakamála kveða á um. Af frásögn mannanna að dæma virðist sem fleiri lög hafi verið brotin við handtökuna, þar á meðal meðalhófsregla, jafn
ræðisregla og 93. gr. laga um meðferð sakamála, en þar segir: „Við hand
töku skal upplýsa þann sem hand
tekinn er um ástæður hennar.“ Lög
maður mannanna segir enn fremur að þeim hafi ítrekað verið neitað um lögfræðiaðstoð og túlkaþjónustu. Þeir íbúar sem DV hefur rætt við segja sömu sögu. Friðrik Smári segist ekki geta tjáð sig um einstaka mál en að tungumálaörðugleikar geti „gert það að verkum að hinn handtekni öðlast ekki fullan skilning á réttarstöðunni.“
Fréttastofa RÚV fjallaði um mál
ið þann 26. september en þá kom fram að Heilbrigðiseftirlit Hafnar
fjarðar og Kópavogs hefði þegar gert athugasemdir við húsnæðið Auð
brekku og sagt það óíbúðarhæft. Þrátt fyrir það hefur hælisleitendum verið gert að búa þar síðustu mánuði. Þrír menn voru ennþá í húsinu þegar blaðamann og ljósmyndara DV bar að garði á mánudag. Þar stóðu þeir umkringdir spýtnabraki og brotn
um hurðum. „Við vitum ekki hvað við gerðum. Hvers vegna vorum við handteknir? Hvers vegna þessi svaka
lega harka?“ spurði einn mannanna.
Einn handleggsbrotinn
Maður frá Albaníu sem kallar sig Ro
bert er einn þeirra sem handteknir
voru að morgni fimmtudags. Hann
var handleggsbrotinn, með hendina
í gipsi þegar sérsveitarmenn rudd
ust inn í herbergi hans. „Ég lá í rúm
inu mínu þegar sérsveitin braust inn í
herbergið mitt,“ segir Robert sem tek
ur fram að hann hafi beðið lögreglu
mennina vinsamlegast um að taka ekki hart á sér vegna meiðslanna, en þrátt fyrir það hafi þeir snúið upp á
hendi hans og handjárnað hann.
„Hann [sérsveitarmaðurinn]
hlustaði ekkert á það, snéri bara upp
á handlegginn og sagði: „Okkur er
sama um hendina á þér, hér stjórn
um við“,“ segir Robert og sýnir blaða
manni hvernig hann var tekinn lög
reglutaki þennan örlagaríka morgun. „Þeir sögðu mér aldrei hvers vegna
þeir væru að taka mig höndum.“
Hann kennir eymsla vegna þessa
og bendir blaðamanni á bólgu á þum
alfingri, þar sem hann kemur undan
gipsinu. Um þrjátíu lögreglumenn
tóku þátt í aðgerðinni, þar á meðal
fjöldi sérsveitarmanna, en þeir nutu
meðal annars liðsinnis fíkniefna
hunda.
Lögreglan hefur upplýst að lítil
ræði af fíkniefnum hafi fundist við leit
í húsinu sem og „eggvopn“. Heimildir
DV herma að þar hafi verið um eld
húshnífa að ræða en þeir eru nokkrir
á heimilinu. Einn mannanna ku hafa
játað á sig vörslu fíkniefnanna og telst
þeim hluta rannsóknarinnar því lok
ið. Símar mannanna og tölvur voru
gerðar upptækar en sá búnaður er ennþá í vörslu lögreglunnar.
Í leit að hjálp
„Þeir báðu okkur ekki einu sinni
um að opna dyrnar, brutu þær bara
upp,“ segir maður á fimmtugsaldri
að nafni Jamal sem hefur verið hér á
landi í fimm mánuði. „Þeir hefðu get
að bankað og látið okkur vita að lög
reglan væri komin. Það hefði ekki ver
ið neitt mál, við hefðum bara opnað dyrnar,“ segir hann og félagi hans,
Bilal, tekur undir. „Við komum ekki til þess að leita vandræða, heldur til þess
að leita að hjálp.“ Bilal sem er hálf
kvefaður eftir að hafa gengið frá lög
reglustöðinni á Hverfisgötu og upp
í Kópavog á nærbolnum einum fata
segir menn hafa fundið fyrir miklu
stressi þegar þeim varð ljóst að sér
sveitin væri að ryðjast inn í húsnæðið.
„Þegar þú kemur fram við menn eins
og ótínda glæpamenn án þess að fót
ur sé fyrir því kremurðu hjarta þeirra,“
segir Bilal.
„Maður veltir því fyrir sér með
mannréttindi þessara einstaklinga,
hvort allt sé leyfilegt undir því yfirskini
að um sé að ræða erlenda borgara?“
Þannig spyr Helga Vala Helgadóttir,
lögmaður tveggja hælisleitenda frá
Albaníu, sem handteknir voru í að
gerð sérsveitarinnar. Staðfest er að skjólstæðingar hennar báðu lögreglu
um að fá að tala við lögfræðing strax klukkan sex um morguninn, en því
ku hafa verið neitað ítrekað. „Ég hef
fengið staðfestingu fyrir því, að strax
klukkan sex um morguninn voru þeir
að sýna nafnspjaldið mitt og óska eftir
því að fá að tala við mig, en fengu ekki og því var ekkert svarað,“ segir Helga
Vala. Sjálf reyndi hún að ná tali af
mönnunum tveimur um leið og hún
sá fréttirnar um handtökurnar í fjöl
miðlum að morgni fimmtudags.
„Eins og dýr“
„Ég hafði samband við lögregluna
strax fyrir tíu þegar ég frétti af hand
tökunni og óskaði eftir því að fá að
koma og tala við mína menn og fékk
ekki. Þegar ég var búin að bíða í tvo og
hálfan tíma í viðbót þá hringdi ég aft
ur og óskaði aftur eftir samtali við Karl Steinar sem annaðist málið og fékk þá
„Þú getur ekki tekið
fimmtán manns og
hent þeim á nærbuxunum
inn í fangageymslur bara
vegna þess að þeir eru frá
einhverju ákveðnu ríki.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Brotið og bramlað
Jamal, Robert og Bilal
sváfu í herbergjum sínum
þegar sérsveitin braut
upp dyr og handtók þá.
Mynd Sigtryggur Ari
Miðvikudagur
og fiMMtudagur
2.–3. október 2013
111. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
Stendur
á haus á
hverjum degi
n Uppátæki í Meistaramánuði
Steinunn Guðbjartsdóttir
Staðgreiddi
glæSihúSið
n 90 milljóna einbýlishús n 300 fermetrar í Bústaðahverfi
n Ævintýraleg laun slitastjórnar
„Þetta
er mitt
einkamál
8–9
Jón Ásgeir
er í vanda
Eignir fjölmiðlaveldisins 365 rýrar Skytturnar þrjár
Alfreð, Aron og Kolbeinn fara á kostum
Stórtækur í atvinnulífinu
Sonur
alla ríka
græðir
9
14–15
4
23
n Niðurskurði beint gegn hallarekstri
Bankarnir
látnir borga
brúsann
Fyrstu fjárlög Bjarna Ben
6–7
Kattavinur
Kaupir Klám
n Býður íslenskum konum allt að 50 þúsundum fyrir nektarmyndir
N
ýr djarfur íslenskur sam-
skiptavefur býður íslenskum
konum á aldrinum 20 til 40
ára allt að fimmtíu þúsund
krónum fyrir nektarmynd-
ir af þeim. Umsjónarmaður síðunn-
ar heitir Jens Kristjánsson, Íslending-
ur búsettur á grísku eyjunni Ródos.
Þar kveðst hann búa með tíu köttum
á heimili sínu auk þess sem dag-
lega heimsæki 10–20 flækingskettir
garðinn hans. „Ég sé líka um flækinga
í nágrenninu og þar er ég líklega með
20–30 ketti á fóðrum.“
Kattavinurinn Jens kom einnig að
rekstri sambærilegrar síðu sem hét
Purple Rabbit fyrir nokkrum miss-
erum. Sú síða var afar umdeild og
vildu femínistar og fulltrúar Stígamóta
meina að þar væri stunduð vændis-
starfsemi. Jens þvertók fyrir allt slíkt á
sínum tíma þegar umræðan kom upp.
Áskriftarsíða
Nýja síðan heitir Sexy Iceland og var
hún opnuð í júní síðastliðnum. Þar er
að finna tugi myndaalbúma frá, að því
er virðist, mestmegnis íslenskum not-
endum síðunnar. Flest þeirra eru þó
læst fyrir áskrifendur. Mánaðaráskrift
að síðunni kostar 19 dali, um 2.200
krónur, en notendum býðst ókeypis
áskrift gegn því að þeir birti „heitar og
skemmtilegar“ myndir í albúmi. Þá fá
allar konur ókeypis aðgang gegn því
að þær birti af sér raunverulega prófíl-
mynd.
Aðeins tvö skilyrði eru þó fyrir því
að konur fái greitt fyrir nektarmyndir
samkvæmt auglýsingunni. Annað er
að konan stofni prófíl utan um mynd-
ir sínar á síðunni og sé áhugasöm um
að taka virkan þátt í því samfélagi sem
þar er að myndast. Annað skilyrði er
að staðfestingarmynd fylgi mynd-
unum sem hún selur síðunni. Þeirri
mynd er ætlað að sanna að konan
sé konan á myndinni sem hún er að
selja.
Til að taka þessa staðfestingar-
mynd þarf kona að hlaða niður ló-
gómynd síðunnar og prenta út og taka
mynd þar sem hún heldur á myndinni
fyrir framan sig eða til hliðar við sig.
Andlitið þarf ekki að sjást né heldur
þarf konan að vera þekkjanleg á stað-
festingarmyndinni. „Hins vegar er at-
riði að líkami þinn sjáist, enda er það
tilgangur staðfestingarmyndar að
sýna og sanna að líkaminn sem sést á
staðfestingarmyndinni sé sá sami og
sá líkami sem sést á öðrum myndum.“
Vill djarfar myndir
Jens kveðst vilja kaupa myndasett, það
er 10 til 50 myndir af konum í einu og
fyrir það greiðir hann 20–50 þúsund
krónur. Nokkrar þeirra þurfa að vera
saklausar „teaser“-myndir sem kon-
an birtir í albúmi sínu og eru öllum
aðgengilegar. „Svo eru hinar djarfari.
Djarfari myndir eru það heitar að
þær má ekki sýna opinberlega.“
Jens segist vera að leita fyrst og
fremst að „smekklegum en sexý
myndum“ af „alvöru íslenskum kon-
um“ í svokölluðum áhugamannastíl.
Ekki sé gerð krafa um eitthvað tiltek-
ið líkamlegt atgervi kvennanna. Þær
megi vera stórar, smáar, feitar, mjóar
og „allt þar á milli, svona eins og ís-
lenskar konur eru.“
Í upplýsingakafla síðunnar
segir að greiðslurnar séu ekki
svartar. Greiðslur fyrir myndirnar
fara í gegnum íslenskan banka, af
bankareikningi umsjónarmanns
síðunnar og yfir á bankareikning
viðkomandi.
„Snyrtilegur vefur“
Sexy Iceland er sagður samskipta-
vefur fyrir gagn- og samkyn-
hneigða, einstaklinga, pör/hjón,
áhugafólk um makaskipti, fjöl-
kvæni, BDSM, og annars konar „al-
ternative lifestyles“ sem og alla aðra
sem leita nýrra kynna með spjall,
vináttu, rómantík eða skyndikynni
í huga. Af lýsingunni að dæma má
því segja að Sexy Iceland sé klámút-
gáfa af öðrum þekktum íslenskum
stefnumótavef, Einkamál.is. „Sexy
Iceland er snyrtilegur vefur.“
DV hafði samband við Jens vegna
síðunnar en hann baðst undan við-
tali. Hann segir Sexy Iceland vera
ókláraðan vef, á svokölluðu beta-próf-
unarstigi, og hluta af stærra verkefni
sem verið sé að vinna í.
Skuggahliðar
DV veit um dæmi þess að síðunni hafi
verið beitt sem hótunartæki í sam-
skiptum fólks sem slitið hefur sam-
vistir. Þá gangi hótanirnar út á það að
fyrrverandi maki hótar að stofna prófíl
á síðunni í nafni fyrrverandi kærustu
eða kærasta þar sem þeir hyggist síð-
an birta nektarmyndir í leyfisleysi.
Það gæti þó reynst þrautin þyngri ef
fyrirkomulag Sexy Iceland um stað-
festingarmyndir heldur vatni.
Rannsóknardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu var ekki kunn-
ugt um síðuna þegar DV spurðist fyrir
um málið en Friðrik Smári Björgvins-
son yfirlögregluþjónn segir að hún
verði skoðuð. n
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Djarfir notendur Hér má sjá skjáskot af
vefsíðunni þar sem einn notandi hefur sett inn
svokallaðar „teaser“-myndir. SkjÁSkot af Sexy IcelanD
kattavinur á Ródos Jens Kristjánsson rekur síðuna en hann býr á Ródos í Grikklandi ásamt fjöl-
mörgum köttum. Hann er reiðubúinn að greiða konum tugþúsundir fyrir nektarmyndir. MynD facebook