Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Side 10
L
íkt og kunnugt er skapaðist
mikil sundrung meðal lands-
manna er núverandi ríkis-
stjórn lagði fyrir Alþingi frum-
varp um breytingu á lögum
um veiðigjöld en í þeim eru tiltek-
in þau gjöld sem útgerðum ber að
greiða fyrir afnot af sameiginlegri
fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. Fjöl-
margir mótmæltu frumvarpinu og
voru forseta Íslands afhentar undir-
skriftir 35 þúsund Íslendinga sem
skoruðu á hann að synja lögunum
staðfestingar. Þrátt fyrir miklar mót-
bárur var frumvarpið samþykkt í
byrjun júlí síðastliðins og því ljóst að
ríkissjóður verður af dágóðum fjár-
hæðum en gert er ráð fyrir að tekjur
ríkissjóðs af veiðigjöldum lækki um
3,2 milljarða króna á þessu ári. Fyrir
þá upphæð hefði meðal annars ver-
ið hægt að sleppa því að setja legu-
gjald á sjúklinga Landspítalans,
halda framlögum til tækjakaupa á
Landspítalanum áfram, byggja Hús
íslenskra fræða og halda óbreyttu
framlagi til lista, Kvikmyndamið-
stöðvar Íslands og allra háskóla á Ís-
landi svo eitthvað sé nefnt.
Blaðamaður DV tók saman
nokkra hluti sem samtals hefðu kost-
að 3,187 milljarða – ekki langt frá
því sem lækkun veiðigjaldsins mun
kosta ríkissjóð á árinu.
Niðurskurður í
framlögum til lista
Gert er ráð fyrir að framlög til lista
lækki um 346,6 milljónir króna á
næsta ári frá fjárlögum 2013, að frá-
töldum launa- og verðlagshækkun-
um. Til að mæta markmiðum um
aðhald í útgjaldaramma mennta- og
menningarmálaráðuneytisins er gert
ráð fyrir lækkun um 61,6 milljónir
króna á framlögum til meðal annars
Bókasafnssjóðs höfunda, Tónlistar-
sjóðs, Barnamenningarsjóðs, Lista-
hátíðar í Reykjavík og Styrkja á sviði
listgreina. Þá munu framlög til verk-
efnisins Tónlist fyrir alla, Kynningar-
miðstöðvar listgreina, Íslensku óper-
unnar og Listahátíðar í Reykjavík falla
niður en um var að ræða tímabund-
in framlög upp á samtals 47 milljónir
króna. Eins verður framlag til styrkja
á sviði listgreina lækkað um 30 millj-
ónir króna, en fjárlög næsta árs gera
ráð fyrir að veittir verði styrkir fyrir
alls 34,6 milljónir króna.
Mikil lækkun á framlagi til
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Mestu munar þó um það að ákveðið
hefur verið að falla frá áformum um
250 milljóna króna hækkun framlags
sem veitt var í fjárlögum þessa árs
og var liður í svonefndri fjárfestinga-
áætlun fyrir árin 2013 til 2015. Fram-
lagið átti að skiptast á milli Út-
flutningssjóðs íslenskrar tónlistar,
Myndlistasjóðs, Hönnunarsjóðs,
Handverkssjóðs, Bókasafnssjóðs
höfunda, Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta, Starfsemi atvinnuleikhópa
og Tónlistarsjóðs.
Þá mun heildarframlag til Kvik-
myndamiðstöðvar Íslands lækka
úr 1.157 milljónum króna í 735,3
milljónir, eða sem nemur 421,9 millj-
ónum króna, og er framlag í Kvik-
myndasjóð hluti af þeirri fjárhæð.
Þar að auki verður fallið frá 470 millj-
óna króna hækkun á framlagi til
Kvikmyndasjóðs sem gert var ráð fyr-
ir í fjárlögum þessa árs og var hluti
fjárfestingaáætlunar fyrir árin 2013
til 2015.
Ekki nýtt húsnæði fyrir
endurhæfingu
Í fjárlögum næsta árs er gert ráð fyr-
ir talsverðum breytingum á rekstri
Landspítalans. Gert er ráð fyrir að
heildarútgjöld ríkissjóðs vegna
rekstrar spítalans muni nema 38.486
milljónum króna og þannig hækka
um 75 milljónir króna frá fjárlögum
síðasta árs, að frátöldum almennum
launa- og verðlagsbreytingum.
Hækkunin er því ekki nema um 0,19
prósent af heildarútgjöldum vegna
rekstrar spítalans. Tímabundið fram-
lag til tækjakaupa, sem nemur 600
milljónum króna, verður hins vegar
fellt niður en líkt og fram kemur í
frumvarpinu er nú unnið að endur-
mati á þörf Landspítalans fyrir tækja-
kaup næstu ára.
Þá fellur einnig niður 15 milljóna
króna tímabundið framlag vegna ný-
byggingar Grensásdeildar en þar fer
fram endurhæfing fyrir sjúklinga
sem tapað hafa færni, tímabundið
eða varanlega, vegna slysa eða veik-
inda. Stærsta breytingin er þó líkleg-
ast sú að lagt verður á gjald fyrir legu
á spítalanum en sjúklingar munu
greiða 1.200 krónur fyrir hvern dag
sem legið er inni. Áætlað er að legu-
gjald þetta muni skila 199,5 milljón-
um króna í ríkissjóð.
Hætt við Hús íslenskra fræða
Framlög til Háskóla Íslands munu
lækka um 321,8 milljónir króna, að
frátöldum launa- og verðlagshækk-
unum, frá fjárlögum þessa árs. Lagt
er til að skrásetningargjald nemenda
verði hækkað úr 60 þúsund krónum í
75 þúsund krónur en gert er ráð fyr-
ir sömu hækkun á skráningargjaldi
nemenda við Háskólann á Akureyri,
Landbúnaðarháskóla Íslands og Há-
skólann á Hólum.
Felld verður niður tímabundin
fjárheimild upp á 800 milljónir króna
vegna framkvæmda við Hús ís-
lenskra fræða en framkvæmdir eru
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
„Gert er ráð
fyrir að
tekjur ríkissjóðs
af veiðigjöldum
lækki um 3,2
milljarða króna
á þessu ári
10 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað
þegar hafnar. Fyrsta skóflustungan
var tekin í byrjun mars síðastliðinn
en búið er að grafa fyrir húsinu og
hefur holan staðið auð í allt sumar.
Í ljósi fjárlagafrumvarpsins er óvíst
hvernig framhaldinu verður hátt-
að en verktakafyrirtækið Jáverk, sem
átti lægsta boðið í verkið, hefur hótað
skaðabótamáli verði bygging hússins
blásin af. Hús íslenskra fræða var
hluti af fjárfestingaáætlun síðustu
ríkisstjórnar og átti að hýsa starfsemi
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum sem og Íslensku-
og menningardeild háskólans.
Þá mun framlag til Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna lækka um 128
milljónir króna og er það til þess að
mæta markmiðum ríkisstjórnarinn-
ar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í
fjárlögum þessa árs var framlagið
8.486 milljónir króna en gert er ráð
fyrir 8.358 milljónum króna í fjárlög-
um næsta árs.
Fjársveltir háskólar
Umtalsverður niðurskurður verður
hjá öðrum háskólum en Háskóla
Íslands sem og stofnunum þeim
tengdum en framlög til þeirra verða
alls lækkuð um 218,3 milljónir króna,
að frátöldum launa- og verðlags-
breytingum. Framlag til Háskólans
á Akureyri lækkar um 22,7 milljónir
en þar vegur þyngst niðurfelling á 30
milljóna króna tímabundnu fram-
lagi vegna rannsóknarmissera og
Veiðigjald eða niðurskurður?
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti sitt fyrsta fjárlagafrumvarp í vikunni. Ríkisstjórnin skar duglega niður til að skila
hallalausum fjárlögum. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvað afnám veiðigjaldsins á sumarþingi var ríkissjóði dýrkeypt. Á litríku
súlunni sést hverju hefði mátt hlífa við niðurskurði ef veiðigjaldið, sem skilað hefði 3,2 milljörðum króna, hefði ekki verið afnumið.
Ve
ið
ig
ja
ld
ið
3.
20
0.
00
0.
00
0
kr
.
Niðurfelling fjármagns
til byggingar Húss
íslenskra fræða
Sparar: 800 m.kr.
Niðurfelling fjármagns til
tækjakaupa á Landspítalanum
Sparar: 600 m.kr.
Lækkun á framlagi til
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Sparar: 422 m.kr.
Lækkun á framlögum til lista
Sparar: 347 m.kr.
Lækkun á framlögum til
Háskóla Íslands
Sparar: 322 m.kr.
Lækkun á framlögum til annarra háskóla
Sparar: 218 m.kr.
Legugjald á Landspítalanum
Sparar: 200 m.kr.
Lækkun á framlögum til LÍN
Sparar: 128 m.kr.
Lækkun á framlagi til Umhverfisstofnunar
Sparar: 78 m.kr.
Lækkun á framlagi til háskóla- og rannsókna
Sparar: 58 m.kr.
Hætt við nýbyggingu Grensásdeildar
Sparar: 15 m.kr.
fyrir óbreytt veiðigjald
n Draga hefði mátt úr niðurskurði ef veiðigjaldið hefði staðið n Hefði mátt kaupa ný tæki á LSH fimm sinnum
Þetta hefði mátt gera