Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 16
16 Fréttir 4.–6. október 2013 Helgarblað
„Laus við hroka
og yfirlæti“
n Páll Matthíasson, nýr forstjóri, þykir skemmtilegur og með lúmskan húmor
P
áll Matthíasson hefur verið
ráðinn tímabundið sem for-
stjóri Landspítalans en líkt
og greint hefur verið frá sagði
Björn Zoëga starfi sínu lausu
síðastliðinn föstudag. Páll hefur starf-
að um langt skeið á opinberum sem
einkareknum sjúkrastofnunum, bæði
á Íslandi og erlendis, en hann vann til
að mynda sem sérfræðingur og yfir-
læknir í Bretlandi í áratug. Páll býr yfir
mikilli reynslu og fáir efast um hæfni
hans til að taka við starfinu, en hvað
segir fólkið sem þekkir hann best um
þennan nýja forstjóra Landspítalans?
Frábær námsmaður
„Ég get ekki kvartað,“ segir Matthías
Guðjónsson, faðir Páls, um son sinn.
„Ég gef honum tíu í öllu.“ Hann segir
Pál ávallt hafa staðið sig vel, enda sé
hann bæði duglegur og eljusamur.
„Hann var duglegur námsmað-
ur og alltaf hæstur í öllu. Þegar hann
útskrifaðist sem stúdent þá labb-
aði hann út með bunka af bókum og
viðurkenningum fyrir góðan náms-
árangur og það var líka þannig þegar
hann útskrifaðist úr háskólanum.“
Hann segir góðan árangur son-
ar síns þó ekki hafa einskorðast við
námið, hann hafi ávallt staðið sig vel
í þeim störfum sem hann hefur tekið
sér fyrir hendur.
„Það sýndi sig til dæmis þegar
hann bjó í London, en hann bjó þar í
tíu ár, því eftir þriggja ára dvöl þar var
hann fenginn til þess að taka við nýj-
um spítala sem var verið að byggja í
borginni.“
Gott barn
Matthías segir Pál hafa verið yndislegt
barn og að sem faðir hans geti hann
ekki annað en gefið syni sínum hæstu
einkunn.
„Hann var alveg dásamlegur
drengur, bæði duglegur og góður.
Nema hann var stundum dálítill
glanni þegar hann fór í fjallgöng-
ur með vinum sínum. En hann er
reglusamur og duglegur og var alveg
indælisbarn.“
En er hann ekki með neina galla?
„Svei mér þá, ég veit það ekki. Það
hafa allir einhverja galla en það er
ekkert sem mér dettur í hug.“
Borðar hafragraut í
Vesturbæjarskóla
Páll er kvæntur Ólöfu Björnsdóttur
myndlistarkonu og saman eiga þau
tvö börn; Valdemar, ellefu ára, og
Júlíu Sigríði, níu ára. Páll er mikill fjöl-
skyldumaður. Hann er eitt þeirra for-
eldra sem mætir oft í morgunstund
í grunnskóla barna sinna og fær sér
hafragraut með öðrum foreldrum og
börnum skólans. Einkar vinalegur
siður sem hugsaður er til að styrkja
tengslin við skólann og efla heilsu og
samkennd. Daginn eftir að tilkynnt
var um stöðuhækkunina fékk hann
vinalegar hamingjuóskir frá öðrum
foreldrum og tók þeim af mestu hóg-
værð þar sem hann sat og gæddi sér á
grautnum.
Mótorhjólatöffari í Lundúnum
„Palli er klár hugsjónamaður með
stórt hjarta og mikla réttlætiskennd.
Hann er mannvinur og góður hlust-
andi. Hann les mikið og hratt, hefur
mikinn orðaforða og það er erfitt að
vinna hann í Scrabble. Palli er mikill
keppnismaður og ég hef hann grun-
aðan um að vera illa við að tapa því
hann neitar að fara með mér í íþróttir
þar sem ég hef haft yfirhöndina eins
og í badminton,“ segir eiginkona Páls.
„Hann hefur gaman að því að fást
við flókin viðfangsefni og er mjög
praktískur. Dæmi um hve praktískur
hann er má nefna að hann keyrði um
allt á mótorhjóli þegar við bjuggum
í Lundúnum, ferðaðist alla leið til
Feneyja á tryllitækinu og var mótor-
hjólatöffari. Þegar við fluttum heim
skipti hann hins vegar um gír og fór
að ganga og hjóla í vinnuna. Hér eru
vegalengdir mun styttri og minni
umferð. Hann kom okkur svo upp sjö
manna stórfjölskyldubíl sem hann
kallar „strumparútuna“ og þar er
mikið sungið.“
Syngur eins og engill
En hver eru helstu áhugamál hans?
„Palli hefur yndi af tónlist og
hann syngur eins og engill þó hann
sé í Ljótakór. Hann er líka fyrir-
taks munnhörpuleikari og á það til
að grípa í hljóðfærið þegar hann
vill kæta fjölskylduna. Hann leggur
mikið upp úr útivist og íþróttum og
er öll fjölskyldan með í því og eltir
hann á skíði og um fjöll og firn-
indi því hann er mjög drífandi, með
mikinn sannfæringarkraft, skemmti-
legur félagsskapur og uppfinninga-
samur á nýja staði og næmur að
finna það áhugaverðasta í boði á
hverjum stað.“
Góður yfirmaður og mikill
húmoristi
Halldóra Ólafsdóttir er samstarfs-
kona Páls en hún er yfirlæknir á geð-
deild Landspítalans. Halldóra ber
Páli afar vel söguna.
„Í fyrsta lagi þá er hann mjög góð-
ur yfirmaður vegna þess að hann er
mjög nálægur og er í tengslum við
starfsfólkið sitt. Hann þekkir fólk
með nafni, fer inn á deildir, fylgist
með og setur sig inn í málin,“ segir
hún og bætir við að miklar breytingar
hafi verið gerðar á geðsviðinu og að
Páll hafi verið virkur í öllu sem þeim
tengdist.
„Hann er mjög hvetjandi í svona
ferli. Hann setur sig vel inn í mál-
in, er mjög skipulagður og veit hvað
hann er að tala um. Svo er hann
mjög nálægur, sýnilegur og jákvæð-
ur og kemur fram við fólk af virðingu;
hann tekur öllum og hlustar á alla og
er laus við hroka og yfirlæti. Svo er
hann bæði skemmtilegur og mikill
húmoristi.“
Ber hagsmuni sjúklinga fyrir
brjósti
Halldóra segir gott að vinna með Páli
og líst afar vel á ráðningu hans í stöðu
forstjóra Landspítalans.
„Ég held að ef einhver geti valdið
þessu starfi þá sé það hann. Hann
hefur verið mjög farsæll hér sem
yfir maður á geðsviði og nýtur mik-
ils álits starfsfólks og ég held að það
sé ekki síst vegna þess að hann hef-
ur verið mjög nálægur og inni í öllum
málum. Svo ber hann hagsmuni
þeirra einstaklinga sem við erum með
í meðferð verulega fyrir brjósti og tal-
ar þeirra máli. Hann er líka alveg stór-
skemmtilegur og það er gaman að
vera með honum í félagslegu sam-
hengi. Ég kann ákaflega vel við hann
og mér finnst hann hafa mikla kosti
sem yfirmaður þannig að mér líst vel
á þessa ráðningu.“
Hefur lúmskan húmor
„Mér líst mjög vel á Pál og það er auð-
velt að vinna með honum af því að
hann er góður í samstarfi við aðra
og er mikill fagmaður auk þess sem
hann er mjög sterk persóna sem hef-
ur mikla réttlætiskennd og hefur trú
á mannskepnunni, eins og sagt er,“
segir Björn Zoëga um eftirmann sinn,
en eins og kunnugt er sagði Björn
nýlega upp starfi sínu sem forstjóri
Landspítalans. Hann segir Pál eiga
erfitt verkefni fyrir höndum.
„Hann á mjög erfitt verkefni fyrir
höndum en með átaki og stuðningi
þá er ég viss um að það tekst hjá hon-
um og öðrum á spítalanum.“
En hverjir eru helstu kostir Páls?
„Hann er mjög staðfastur og
traustur og trúr, bæði vinum og sam-
starfsfélögum. Það er mjög gott að
vinna með honum, hann er skemmti-
legur og hefur lúmskan húmor.“ n
Náms- og
starfsferill
Páll er fæddur í Reykjavík árið 1966 en
foreldrar hans eru Matthías Guðjónsson
verslunarmaður og Guðrún Guðjóns-
dóttir kennari. Hann er giftur Ólöfu
Björnsdóttur myndlistarkonu og saman
eiga þau tvö börn; Valdemar, ellefu ára,
og Júlíu Sigríði, níu ára.
Páll útskrifaðist úr Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1986 og tveimur árum síð-
ar hóf hann nám í læknisfræði. Árið 1994
lauk hann embættisprófi með fyrstu
einkunn frá læknadeild Háskóla Íslands
og varði kandídatsári sínu á Landspítal-
anum. Eftir kandídatsárið starfaði Páll
sem deildarlæknir á lyflækningasviði og
geðsviði Landspítalans auk þess sem
hann starfaði í héraði.
Árið 1997 hóf hann framhaldsnám í
geðlækningum við Maudsley-sjúkrahús-
ið í Lundúnum en sjúkrahúsið er stærsta
geðsjúkrahús Bretlands og er framar-
lega á sviði geðlækninga og rannsókna
á efninu. Páll bjó í Lundúnum í tíu ár
en að loknu framhaldsnámi starfaði
hann sem sérfræðingur og yfirlæknir
á bæði opinberum og einkareknum
sjúkrastofnunum þar í borg.
Árið 2006 lauk Páll doktorsprófi frá
Geðfræðastofnun Lundúnaháskóla
en hann er nú klínískur dósent við
læknadeild Háskóla Íslands. Hann hefur
starfað á Landspítalanum frá árinu
2007, fyrst sem yfirlæknir en frá 2009
sem framkvæmdastjóri geðsviðs með
setu í framkvæmdastjórn spítalans og
einn af staðgenglum forstjóra.
Nærmynd
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Keppnismaður Að
sögn eiginkonunnar er Páll
mikill keppnismaður og vill
helst ekki spila badminton
með henni. Mynd SiGtryGGur ari „Hann er líka fyrir-
taks munnhörpu-
leikari og á það til að grípa
í hljóðfærið þegar hann
vill kæta fjölskylduna.
„Hann er mjög sterk
persóna sem hefur
mikla réttlætiskennd og
hefur trú á mannskepnunni