Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 32
32 Fólk 4.–6. október 2013 Helgarblað
J
óhannes er fæddur og – að
mestu leyti – uppalinn í
Hafnarfirði en þegar hann
var sjö ára flutti móðir hans
með hann til Færeyja.
„Mamma er færeysk en foreldr-
ar hennar fluttu til Íslands svo hún
fæddist hér. Hana hafði alltaf lang-
að til að flytja til Færeyja og þar
sem hún var einstæð móðir og ekki
mikið bundin hérna heima ákvað
hún að flytja með mig út. Hún
eignaðist mig tiltölulega ung, var
bara átján ára þegar hún átti mig,
þannig að hún var bara rétt rúm-
lega tvítug þegar við fluttum.“
Jóhannes segist ekki hafa gert
athugasemd við flutningana á sín-
um tíma enda hafi honum líkað
dvölin vel.
„Þetta var merkileg reynsla. Við
bjuggum í Færeyjum í þrjú ár og ég
kynntist fullt af fólki svo þetta var
bara frábært. Ég gekk í skóla þarna
og tók þátt í grindhvaladrápi og
svona,“ segir Jóhannes og útskýrir
að grindhvaladráp felist í því að
standa við ströndina og grýta
Jóhannes Haukur Jóhannesson þurfti að sækja sér aðstoð lögfræðings
til að fá að leika í söngleiknum Grease með námi en frá því að hann útskrif-
aðist frá Listaháskóla Íslands hefur hann eingöngu glímt við lúxusvandamál.
Jóhannes er hálfur Færeyingur og segir engan Íslending gera jafngóða fær-
eyska eftirhermu og hann sjálfur, en þessum mikla fjölskyldumanni finnst
fátt skemmtilegra í leikhúsinu en að græta börn. Þrátt fyrir að vera femínisti í
dag var Jóhannes karlremba á sínum yngri árum, en eftir að hafa verið tekinn
í bakaríið af samnemendum sínum í Listaháskólanum og síðar eignast dóttur
sá hann heiminn í nýju ljósi. Blaðamaður DV hitti Jóhannes Hauk og ræddi við
hann um árin í Færeyjum, rokkstjörnudraumana og lífið í leikhúsinu.
Viðtal
Hörn Heiðarsdóttir
horn@dv.is
Ætlaði að verða
rokkstjarna
Bjó í Færeyjum
Jóhannes bjó í Fær-
eyjum sem barn og
segir Íslendinga afar
lélegar færeyskar
eftirhermur.
Myndir Sigtryggur ari