Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 40
40 4.–6. október 2013 Helgarblað
Getum við verið góð
við hvort annað?
Harmsaga
eftir Mikael Torfason
Listaverk sem þú
færð ekki nóg af
Grand Theft
Auto Vm e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Gáfur eru aðlaðandi
Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Sigríði Maríu
Egilsdóttur, sem fer með hlutverk í nýverð-
launaðri kvikmynd Benedikts Erlingssonar Hross
í oss. DV ræddi við Sigríði um vel heppnaðar
rökræður, sterkar konur og spænska blóðið sem
hitnar stundum í æðunum.
É
g held að Benni hafi tekið mikla
áhættu þegar hann ákvað
að bjóða mér þetta hlutverk.
Hann sýndi mér mikið traust
og maður metur það auðvitað
þegar maður leggur í svona vinnu,“
segir Sigríður María Egilsdóttir um
þá ákvörðun Benedikts Erlingsson-
ar leikstjóra að bjóða henni hlutverk
í kvikmyndinni Hross í oss. Sigríður
María þreytir þar frumraun sína í leik-
list í hlutverki hógværrar hestastúlku.
Hún segist hafa nýtt sér ömmu sína
sem fyrirmynd en þær hafa lagt stund
á hestamennsku saman frá því að Sig-
ríður María man eftir sér. Kvikmyndin
var frumsýnd á Íslandi í lok ágúst og
nýtur ómældrar velgengni á kvik-
myndahátíðum erlendis um þessar
mundir og vann til að mynda hin
eftir sóknarverðu Kutxa-New Direct-
ors-verðlaun á San Sebastian-kvik-
myndahátíðinni í september.
Fékk símtal í miðju flugi
Sigríði Maríu er minnisstæð sú
örlagaríka stund þegar Benedikt hafði
fyrst samband við hana en hún var
stödd í miðju flugi yfir Borgarfirðinum
þegar leikstjórinn hringdi í farsím-
ann hennar. „Sambandið var svolítið
óskýrt en ég náði að heyra hvað hann
var að segja og svaraði strax já. Mér
fannst þetta bara spennandi og hef-
ur alltaf langað að prófa að leika í bíó-
mynd. Ef maður reynir ekki eitthvað
þá fær maður heldur aldrei að upplifa
eitthvað. Þegar ég var lent fór síðan að
renna upp fyrir mér hverju ég hafði
verið að segja já við. Það var svona
pínu stress, hvort ég myndi geta þetta
og svona. En þetta var mjög skemmti-
leg upplifun að prufa að leika í svona
bíómynd,“ segir Sigríður María.
Leikarafjölskylda
Leiklistin er henni ekki alveg fram-
andi. „Leiklistin kemur úr ýmsum átt-
um í fjölskyldunni, pabbi og móður-
afi minn eru báðir leikstjórar,“ segir
Sigríður María en faðir hennar, Egill
Heiðar Anton Pálsson, hlaut nýverið
stöðu prófessors við hinn virta leik-
listarháskóla Ernst Busch í Berlín.
Foreldrar Sigríðar Maríu skildu þegar
hún var ung að aldri og er faðir henn-
ar giftur Margréti Vilhjálmsdóttur
leikkonu í dag.
Stelpur eiga erindi
Sigríður María, sem er 19 ára, ákvað
að taka sér árs frí frá skóla og starfar
nú hjá slitastjórn Landsbankans
ásamt því að kenna grunnskólanem-
um í Lindarskóla ræðumennsku –
starf sem henni bauðst eftir velgengn-
ina í Morfís-ræðukeppninni. „Þetta
er svona valfag og það er gaman að
segja frá því að þetta var alltaf svo-
lítið karllægur vettvangur en það hef-
ur verið að breytast á síðustu árum.
Það eru 18 krakkar í tímanum og 11 af
þeim stelpur þannig að kynjahlutfall-
ið er að breytast,“ segir Sigríður María
og telur stelpur eiga jafn mikið erindi
og strákar í ræðukeppnir og spurn-
ingakeppnir á borð við Gettu betur.
Komin af hörkukvendum
„Ég byrjaði ekki að skilgreina mig
sem femínista fyrr en ég raunveru-
lega skildi hugtakið og það gerðist
frekar snemma eða í lok tíunda bekkj-
ar. Þá hafði einhver í fjölskyldunni
útskýrt fyrir mér hvað það þýddi. Ég
kem líka úr umhverfi þar sem kon-
urnar eru ofboðslega sterkar, ömm-
ur mínar úr bæði föður- og móðurætt
eru mjög sterkar konur, algjör hörku-
tól,“ segir Sigríður María en móður-
amma hennar er arkitekt að Bláa lón-
inu og mikil hestaáhugamanneskja.
„Hin amma mín er frá Spáni og kem-
ur frá einhverri ríkustu ætt af Kanarí-
eyjum, þá undir stjórn Francos. Pabbi
hennar var mikill fasisti og hún ákvað
að ganga gegn óskum hans og fara í
háskóla til að læra hjúkrun. Hún var
yngsta barnið og var þannig séð bara
fædd til að sjá um foreldra sína í ell-
inni, og átti ekki að fá að mennta sig
mikið. Hún flúði því til London og
kynntist þar íslenska afa mínum og
flutti með honum til Íslands og hefur
starfað hér sem hjúkrunarfræðingur
í um 40 ár. Mamma er auðvitað líka
mjög sterk en hún er lögfræðingur,“
segir Sigríður María en móðir hennar
er Herdís Hallmarsdóttir hæstaréttar-
lögmaður.
Jafnrétti á heimilinu
Að sögn Sigríðar Maríu er kynjajafn-
rétti haft að leiðarljósi í fjölskyldunni.
„Andrúmsloftið heima hefur alltaf
verið þannig að það ríkir jafnrétti
milli karla og kvenna. Fólk á að fá að
gera það sem það vill hvort sem það
er að vera heimavinnandi húsmóðir
eða heimavinnandi húsfaðir eða að
einbeita sér að starfsferlinum. Ég held
að uppeldið skipti mjög miklu máli
hvað þetta varðar. Það er erfiðara að
tileinka sér einhvern hugsunarhátt ef
maður hefur ekki verið alinn upp við
hann.“
Sigríður María telur ekki að karl-
mönnum stafi sérstök ógn af sterkum
konum almennt. „Maður hefur heyrt
þennan frasa að karlar séu ekkert
mjög hrifnir af gáfuðum konum. Þá
á móti segja konurnar í fjölskyldunni
að við séum heldur ekkert hrifnar af
karlmönnum sem eru ekki hrifnir af
gáfuðum konum. Ég held að þær hafi
bara valið ágætlega og orðið hrifnar af
mönnum sem voru einmitt hrifnir af
góðu gáfnafari og öðrum eiginleikum
í þeirra fari. Maður kann að meta það
sem er gott við hina manneskjuna,
maður elskar hana eins og hún er og
það er sönn ást. En ef maður er alltaf
að reyna að breyta hinni manneskj-
unni og vill að hún sé öðruvísi þá er
það ekki sönn ást að mínu mati,“ segir
Sigríður María en sjálf fann hún ástina
í sambýlismanni sínum í miðri undir-
búningsvinnu fyrir Morfís-keppnina.
Fann ástina í Morfís
„Við byrjuðum saman á afmælis-
daginn minn þann 1. nóvember
þannig að það er ár síðan við byrj-
uðum saman. Ég væri alveg vís til að
gleyma svona dögum en ekki núna,“
segir Sigríður María í léttum tón.
„Hann var einn af þremur þjálfurum
sem komu til þess að þjálfa Morfís-
liðið í Versló fyrir ræðukeppnina. Við
höfum bæði mikinn áhuga á seinni
heimsstyrjöldinni og öllu sem við
kemur henni. Ég hafði aldrei kynnst
neinum áður sem vissi jafn furðu-
leg lítilvæg smáatriði sem ég vissi og
fannst þetta spennandi. Þar varð ég
skotin í honum. Svo bara pössum við
ágætlega saman,“ segir hún ánægð en
parið flutti saman í sumar.
Heitt blóð – spænskt blóð
Aðspurð hvort hún hafi erft eitthvað
af heita blóðinu frá Spáni verður Sig-
ríður María hugsi. „Ég hef ekki mikla
trú á því að vera að æsa sig þó að mað-
ur standi fast á sínu, þá fer rökræðan
yfirleitt út í einhverja vitleysu. Um leið
og einhver fer að öskra þá er sá um
leið búinn að tapa rifrildinu því þá er
hann bara búinn að missa stjórn á sér
og ekki lengur með tök á aðstæðun-
um.“
Sigríður María telur sig þó hafa
fengið góða þjálfun í að rökræða við
móður sína í miðri sjálfstæðisbarátt-
unni á unglingsárunum og að um-
ræður mæðgnanna verði tíðum eld-
fimar. Hún hlær þegar hún hugsar til
baka. „Þetta eru heitar en málefna-
legar umræður sem geta verið mjög
eldfimar. Okkur tekst stundum á ein-
hvern undraverðan hátt að búa til
rosalega eldfiman úlfalda úr algjörri
mýflugu. Mamma mín er mjög góð
í að rífast líka þannig að þegar okk-
ur lendir saman þá er alveg þriðja
heimsstyrjöldin í gangi, það ætlar
enginn að tapa, það er enginn að
fara að hafa rangt fyrir sér og það má
enginn missa sig! Það hefur verið góð
þjálfun í því. En það kemur fyrir að
maður missi sig svona eins og bara
allir gera,“ segir hún og brosir. „Það
þýðir ekkert að sýna óvirðingu í rök-
ræðum. Ef þú gerir það þá sýnirðu
bara fram á að þú hafir ekki mikið til
þíns máls. Að kalla mömmu mína ill-
um nöfnum er eitthvað sem er mér
fullkomlega fjarlægt. Mamma kenndi
mér að sýna fólki ákveðna virðingu
þegar ég er ósammála því, annars get
ég ekki búist við því á móti.“
Óhrædd við að kalla sig femínista
„Mér finnst þetta hugtak hafa fengið
dálítið óréttláta umfjöllun en ég á ekki
erfitt með að kalla mig femínista, ég er
alveg tilbúin til að taka þann slag við
þann sem fer að agnúast eitthvað út
í það við mig. Ég get verið mjög hörð
á mínu hvað það varðar,“ segir Sigríð-
ur María en hún telur jafnréttisbar-
áttuna hafa færst úr lagaumhverfinu
og yfir í félagslega umhverfið sem er
að hennar mati ekki jafn áþreifanleg
barátta. „Þrátt fyrir að við séum búin
að setja áþreifanleg lög um að kyn-
bundinn launamismunur sé ólögleg-
ur þá búum við samt við 10% óútskýr-
anlegan launamun milli kynjanna
sem sýnir að þrátt fyrir lögin þá þurf-
um við að vera að berjast fyrir ein-
hverju. Þetta eru hlutir sem eru ekki
eins áþreifanlegir en þeir eru til stað-
ar og við vitum af þeim. Femínismi
á alveg jafn mikið erindi á þetta svið
eins og hann átti áður fyrr, við þurfum
kannski að berjast á annan hátt til að
ná árangri á þessu sviði því þetta snýst
auðvitað allt um að ná árangri.“
Hræsni
„Mér finnst eitthvað hræsnislegt við
það að vilja ekki kalla sig femínista
heldur frekar jafnréttissinna bara
vegna þess að femínismi er kven-
legt orð. Hversu mikill jafnréttissinni
ertu í raun og veru ef þú vilt ekki láta
tengja þig við kvenlegt orð? Femín-
ismi stendur fyrir miklu meira en bara
réttindi fyrir konur, hann stendur fyrir
jafnrétti kynjanna sem þýðir að hann
snýr að ákveðinni jafnréttisbaráttu
karla líka sem hefur ekki verið eins
Svala Magnea Georgsdóttir
svala@dv.is
Viðtal
„Okkur tekst
stundum á
einhvern undra-
verðan hátt að búa
til rosalega eld-
fiman úlfalda úr
algjörri mýflugu
Sigríður María Egilsdóttir
„Andrúmsloftið heima hefur
alltaf verið þannig að það ríkir
jafnrétti milli karla og kvenna,“
segir Sigríður María. Mynd SiGTryGGur Ari