Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Síða 41
Menning 41Helgarblað 4.–6. október 2013
„Náhirðin fær á baukinn“
Maður að mínu
skapi eftir Braga Ólafsson
„Vel skrifuð og
einlæg mynd“ „Kann ennþá að hræða“
This is Sanlitum
Leikstjóri: Robert Douglas
Joyland
Höfundur: Stephen King
Meistararnir mætast
L
aurent Cantet og James Gray
eru fæddir hvor sínum megin
Atlantshafsins og þykja með-
al helstu leikstjóra sinnar kyn-
slóðar, annar í Frakklandi og
hinn í Bandaríkjunum. Báðir gera
myndir sem segja frá utangarðsfólki
í menningarafkimum landa sinna,
hvort sem það er í innflytjendahverf-
um New York snemma á 20. öld eða í
stórborginni París í dag.
Laurent Cantet er fæddur árið 1961
í smábænum Melle í Vestur-Frakk-
landi. Fyrsta mynd hans, Mannauð-
ur (Ressources humaines) kom út
árið 1999 og segir frá manni sem fer
að vinna í verksmiðju sem faðir hans
hefur starfað hjá í 30 ár og lendir í deil-
um á milli stjórnar og starfsfólks. Can-
tet sló svo eftirminnilega í gegn með
myndinni Time Out (L'Emploi du
temps) árið 2001. Myndin er reyndar
talsvert á undan sínum samtíma hvað
umfjöllunarefni varðar, en hún fjall-
ar um mann sem er sagt upp í vinnu
sinni hjá ráðgjafarfyrirtæki. Í stað þess
að segja fjölskyldu sinni frá því ákveð-
ur hann í staðinn að þykjast mæta
til vinnu á hverjum degi og endar
með því að stofna píramídafyrirtæki.
Blaðið The Guardian telur myndina
eina af tíu bestu myndum áratugar-
ins, en að einhverju leyti má segja að
hún hafi fjallað um það sem átti eftir
að gerast nokkrum árum síðar.
Kynsveltar konur í sólinni
Næsta mynd Cantets, Til suðurs (Vers
Le Sud), var einnig á undan sínum
samtíma. Fjallar hún um eldri kon-
ur í Ameríku sem halda til Haítí til að
sofa hjá yngri mönnum. Er hún því á
svipuðum slóðum og myndin Para-
dís: Ást, sem undanfarið hefur not-
ið mikilla vinsælda í Bíó Paradís, en
mynd Cantets frá 2005 er almennt
talin betri.
Vinsælasta mynd hans til þessa er
myndin Bekkurinn (Entre les murs)
frá 2008, sem vann Gullpálmann
í Cannes það árið, líklega virtustu
kvikmyndaverðlaun heims. Myndin
segir frá kennara og bekk hans í fá-
tækrahverfum Parísar og minnir
um margt á þættina góðu The Wire,
þó með frönsku yfirbragði. Flestar
myndir Cantets eiga það sameigin-
legt að fjalla um samband manns við
vinnu sína, en í nýjustu mynd hans,
Foxfire, spilar hann annað stef. Hér
er sagt frá stelpum í verkamanna-
hverfi í New York-fylki á hinum
karllæga 6. áratug. Stelpurnar ákveða
að mynda sitt eigið leynifélag með
því að láta tattúera tófur á sig og lifa
eftir sínum eigin reglum, en allt fer á
verri veg þegar einn kallanna reynir
að nauðga einni stelpunni og kallar
yfir sig hefnd þeirra.
Nýr Martin Scorsese?
James Gray er fæddur og uppalinn í
New York-borg. Hann er af rússnesk-
um gyðingaættum og gerði sína fyrstu
mynd aðeins 25 ára að aldri. Nefndist
hún Little Odessa og segir frá leigu-
morðingja, leiknum af Tim Roth, sem
snýr aftur á heimaslóðirnar. Myndin
sló í gegn og fékk meðal annars
Silfurljónið í Feneyjum.
Næsta mynd hans kom ekki fyrr
en 2000. Nefndist hún The Yards og
skartaði meðal annars Mark Wahl-
berg og Joaquin Phoenix í aðalhlut-
verkum. Mark Wahlberg, sem einnig
er í miklu uppáhaldi hjá Baltasar
Kormák, sneri aftur í myndinni We
Own the Night ásamt Phoenix. Léku
þeir þar bræður sem voru ólíkir í út-
liti jafnt sem innræti, annar þeirra
er lögregluþjónn en hinn eiturlyfja-
sali. Joaquin Phoenix virðist vera fyrir
Gray það sem fyrst Robert DeNiro
og þá Leonardo DiCaprio voru fyrir
Martin Scorsese.
Phoenix er ef til vill þekktastur
sem keisarinn vondi Commodus í
Gladiator, en í myndum Gray bregð-
ur hann sér í hin ýmsu líki. Í Two
Lovers er hann ungur maður sem
þarf að velja á milli partístelpu sem
leikin er af Gwyneth Paltrow og
annarrar sem foreldrar hans hafa
valið fyrir hann í því markmiði að
sameina fatahreinsunarfyrirtæki for-
eldra beggja. Nýjasta mynd Gray hef-
ur hlotið mikið lof og fjallar um inn-
flytjendur í New York á 3. áratugnum
og hafa sumir jafnvel líkt henni við
forsöguna úr Godfather II.
Joaquin Phoenix fitnar
Uppruni Gray kemur eins og áður
sagði víða fyrir í myndum hans, ekki
síst í gegnum þann mat sem fólk
neytir og er undir sterkum rússnesk-
um og gyðinglegum áhrifum. Hann
virðist hafa sérstakt dálæti á því að
gefa Phoenix að éta fyrir framan
myndavélarnar, svo að maður getur
næstum því séð hann bæta á sig eftir
því sem líður á myndina.
The Immigrant er sýnd á RIFF,
ásamt Two Lovers og Little Odessa.
Af verkum Cantets má sjá Mannauð,
Foxfire og hina umdeildu kynlífs-
ferðalagamynd Til suðurs. n
„Stelpurnar
ákveða að
mynda sitt eigið
leynifélag með
því að láta tattú-
era tófur á sig
Valur Gunnarsson
blaðamaður skrifar
n Lauren Cantet og James Gray á meðal gesta á RIFF
Mathákur Hann virðist
hafa sérstakt dálæti á því
að gefa Phoenix að éta.
James Gray Gerði sína fyrstu mynd aðeins
25 ára að aldri. MyNd dIAZWICHMANN PHOTOGRAPHy BCN
Gáfur eru aðlaðandi
mikið í forgrunni. Réttindi karla til
að fá að vera heimavinnandi hús-
feður, það er ekki hægt að setja lög
um það vegna þess að þeir mega
það auðvitað en þeir mæta kannski
mótlæti úti í samfélaginu sem hrek-
ur þá frá því sem þá langar raun-
verulega til að gera,“ segir Sigríður
María.
Skítug í lok dags
En hvað ætli þessi unga kona sem
hefur nú þegar mótað sér sterka
og upplýsta lífssýn geri til að stytta
sér stundir? „Mér finnst gaman að
halda matarboð og borða góðan
mat og drekka eitthvað gott með.
Mér finnst ekki gaman að fara út að
djamma,“ segir hún og gerir góðlát-
legt grín að sjálfri sér. „Uppáhalds-
mómentið mitt er þegar ég fer í 10
/11 eftir djammið og ég get valið
mér kanilsnúðapoka og farið svo
heim að horfa á mynd,“ segir hún
og brosir. Henni finnst gaman að
hafa sig til og vera fín út á við á eigin
forsendum. „Ég hef aldrei verið sér-
staklega mikill aðdáandi tískunnar
en mig langar alveg að líta vel út og
allt það. Ég er bara ekki að hanga
inni á einhverjum tískuvefsíðum
allan daginn. Ég er miklu meira í
því að fara bara á hestbak og vera
svolítið skítug í lok dagsins,“ segir
Sigríður María.
Asíuferð og lögfræðinám
Sigríður María horfir fram veginn
og stefnir á þriggja mánaða ferða-
lag um Asíu á næsta ári ásamt vin-
konu sinni áður en hún hyggur á
frekara háskólanám. „Við erum
mjög spenntar yfir þessu og ætlum
okkur að uppgötva heiminn og
læra á lífið og tilveruna. Við ætl-
um að gefa okkur góðan tíma í
hverju landi og stefnum á að heim-
sækja Suður-Taíland, Kambódíu,
Víetnam og aðeins að kíkja í Laos.
Það er nýbúin að geisa borgara-
styrjöld þarna og það verður fróð-
legt að sjá uppbygginguna og kynn-
ast sögunni þar. Náttúran er einnig
stórfengleg þarna. Síðan ætlum við
niður Malasíu en erum ekki búin
að plana mikið meira. Þetta eru svo
stór lönd og maður kemst ekki langt
á einum sólarhring.“
Kærastinn verður þó fjarri
góðu gamni meðan á ferðalaginu
stendur. „Hann er í Háskólanum
í Reykjavík í lögfræði núna og þarf
bara að einbeita sér að því á meðan.
Það er erfitt að hugsa til þess að vera
aðskilin í einhverja þrjá mánuði þar
sem við búum saman og erum búin
að vera rosalega mikið saman síðan
að við byrjuðum saman. En á sama
tíma þá getur söknuðurinn verið
góður inn á milli. Getur styrkt sam-
bandið líka.“
Stefnir á mastersnám
Það er ljóst að Sigríður María stefnir
á að feta í fótspor móður sinnar sem
er hæstaréttarlögmaður. „Planið
er að fara í lögfræði eftir ár og taka
bachelor í háskólanum. Svo langar
mig mjög mikið að fara til útlanda
til að taka masterinn en hvort ég fari
í einhverja framhaldslögfræði eða
bara eitthvað verður bara að koma
í ljós. En ég hef áhuga á lögfræðinni
og á meðan að sá áhugi er til staðar
þá held ég að ég stefni þangað.“
Sigríður María lætur sig dreyma
og er óhrædd að fylgja markmiðun-
um eftir. „Mér finnst gaman að
hugsa um framtíðina og skipu-
leggja. Hvort sem þau plön ganga
eftir eða ekki, það skiptir ekki öllu
máli. Það er alltaf hægt að hugsa
ný plön,“ segir hún brosandi að lok-
um. n