Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Síða 45
Lífsstíll 45Helgarblað 4.–6. október 2013
É
g stend á þeim krossgötum
í dag að vera ekki með nein
sérstök markmið önnur en
þau að lifa sæmilega heil
brigðu lífi. Fyrir þremur
árum setti ég mér metnaðarfull
markmið um að klífa hæstu fjöll
Íslands og Evrópusambandsins.
Og til þess að geta þetta varð ég að
létta mig um 40 kíló.
Öll þessi markmið hafa gengið
upp. Í þrígang hef ég gengið á
Öræfajökul í því skyni að toppa
Hvannadalshnúk. Tvisvar náði ég
langleiðina í 2.000 metra hæð en
í þriðja sinn tókst að toppa. Eyja
fjallajökull, Eiríksjökull, Snæfells
jökull og ótal fjöll hafa fallið að
fótum mér. Þann 21. september
síðastliðinn náði ég svo á Mont
Blanc. Þar með var bikar minn
tæmdur í bili. Dagskrárlok.
Það fylgir því tómleiki að vera
búinn að klífa þá 4.808 metra
sem Mont Blanc er. Mér líður eins
og fátt sé framundan. Þegar ég
gekk á Úlfarsfell í 580. sinn í vik
unni varð ég dálítið dapur. Þetta
var svona eins og ráðherraveiki
sem eru einkenni sem koma fram
þegar ríkis stjórn fellur og ráðherra
verður aftur þingmaður. Ég var
eins og Steingrímur J. Sigfússon
eftir kosningar. Eða kannski eins
og knattspyrnugoðið Eiður Smári
Gudjohnsen að spila á malarvell
inum á Flateyri eftir að hafa farið
á kostum á glæstustu leikvöngum
heimsins. Þar sem ég rölti á eftir
eiginkonunni með hundana í eftir
dragi um bæjarprýði Mosfellsbæjar
varð mér hugsað til baka. Þetta byrj
aði jú allt saman á Úlfarsfelli. Það
rifjaðist upp fyrir mér þegar ég fór
fyrstu ferðirnar upp. Ég hafði þurft
að stoppa minnsta kosti 20 sinnum
til að ná andanum. En upp komst ég
og mér leið eins og konungi hafs og
fjalla þegar ég leit yfir höfuðborgar
svæðið úr 305 metra hæð.
Smám saman hafði ég náð
upp þreki og kröftum með því að
fara næstum daglega á Úlfars
fell. Það voru hæg heimatökin þar
sem ég bý undir fjallinu. Sigrarnir
komu smám saman. Uppleiðin
tók klukkutíma í stað tveggja. Síð
an fór ég niður í hálftíma og loks
ins í 17 mínútur. Þá var ég tilbúinn
fyrir Hnúkinn og Mont Blanc.
Úlfars fellið hafði skapað mér þann
grundvöll sem þurfti til að ná upp
þreki og efla heilsuna.
Eftir því sem líður á skrif þessa
pistils eru að verða til ný markmið
í hausnum á mér. Ég mun hverfa
aftur til upphafsins og njóta þeirr
ar fegurðar sem fylgir göngu á Úlf
arsfellið. Jafnframt mun ég skjót
ast á Esjuna eftir ástæðum. Þá eru
uppi áform um að ganga á Herðu
breið og Snæfell. En ég þori ekki
að nefna nýja stóra markmið
ið sem er eins og suðandi fluga
í hausnum á mér. Það verður til
að byrja með leyndarmál hvaða
stóra fjall heimsins er næst í röð
inni. Kannski missi ég kjarkinn og
þá verður svo að vera. Kannski á
ég eftir að klífa mörg hærri fjöll en
Mont Blanc. Aðalatriðið verður þó
að vera sáttur á sínu bæjarfjalli. Ég
er mættur aftur á Úlfarsfell.
Síðastliðin tvö ár hef ég skrif
að nær vikulega pistla um barátt
una við holdið og það markmið að
klífa Mont Blanc. Langflestir hafa
tekið pistlunum vel en undantekn
ingar er að finna. Reglubundnum
skrifum lýkur hér með þótt pistlar
dúkki hugsanlega upp annað veif
ið. Baráttan með öllum sínum
sigrum og ósigrum heldur áfram.
Stærð sigranna fer ekki eftir hæð
fjallanna heldur ræður hugar
ástand þess sem tekst á við áskor
anirnar. Þetta er allt í hausnum. n
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
Aftur á Úlfarsfell
Á toppnum Á toppi Mont
Blanc ásamt Pierre leið-
sögumanni. DV-fáninn var
með í för. Mynd ReyniR TRausTason
„Smám saman
hafði ég náð
upp þreki og kröftum
með því að fara næst-
um daglega á Úlfarsfell.
Það voru hæg heima-
tökin þar sem ég bý
undir fjallinu.
Nýtur friðhelgis
í að vera skrýtin
n Ætlar að standa á haus á nýjum stað á hverjum degi n Solla tekur þátt í Meistaramánuði
fáránlega gott. En ef þú stendur
svona lengi á hvolfi þá þarf að gera
mótstöðuna, þá stendurðu bara
bein, upprétt með lokuð augun.
Það er mikilvægt að gera mótstöð
una sem er akkúrat öfugt við það
sem þú varst að gera,“ segir Solla.
Gló tekur þátt
Solla fagnar Meistaramánuðinum
og segist styðja hvers kyns átök sem
stuðla að bættari venjum og lífsstíl
fólks. Hún segir veitingastaðinn Gló
taka fullan þátt í átakinu. „Við erum
alltaf með meistarasjeik dagsins
en það er alltaf einhver tegund af
grænum sjeik og við reynum að hafa
sem minnst ávexti þannig að hann
er svolítið „hardcore“,“ segir Solla og
hefur sett á laggirnar sérstakt tilboð
í tilefni af meistaramánuðinum.
„Það er hægt að kaupa hráfæðirétt
dagsins og meistarasjeik á innan
við 2.000 kall og þá getur fólk fengið
sér léttan og hollan hádegismat. Við
viljum auðvelda fólki að hafa efni
á að taka sig í gegn. Hjá okkur get
ur fólk keypt fyrirframgreidd mat
arkort og þá ertu að fá 25% afslátt,“
segir Solla að lokum. n
„Ég get
alveg
staðið í hálftíma
solla eiríks Solla er marg-
verðlaunaður hráfæðikokkur og
rekur veitingastaðinn Gló ásamt
manni sínum, Elíasi Guðmunds-
syni. Mynd siGTRyGGuR aRi