Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 46
46 Lífsstíll 4.–6. október 2013 Helgarblað
Vafin í vetrarkápu
n Sykursætir pastellitir og kápur úr skáp kærastans
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
T
vö meginþemu eru áber-
andi í hausttískunni þegar
það kemur að yfirhöfnum:
Sykursætir pastellitir – ljós-
blár, gulur og bleikur. Svo
eru það allt of stórar yfirhafnir, kápur
sem virðast helst vera dregnar úr
skáp kærastans og virðast koma frá
nánast öllum fatamerkjum þetta
haustið. n
Ætlar þú að
splæsa í kápu?
10 atriði sem vert er að hafa
í huga
Þegar þú kaupir vetrarkápu eru nokkur
atriði sem vert er að hafa í huga; snið,
efni og hvenær á að nota kápuna. Oft
er gott að ráðfæra sig við fagfólk sem
starfar í verslunum varðandi sniðið.
1 Passaðu upp á að kápan passi vel yfir axlirnar.
2 Passaðu að kápan sé ekki svo þröng að það verði óþægilegt að
lyfta höndum og hneppa henni að þér.
3 Passaðu að ermarnar séu svo víðar að þú getir klæðst peysu
eða léttum jakka undir.
4 Passaðu að ermarnar séu nógu langar, svo þú lítir ekki út
fyrir að hafa vaxið upp úr kápunni.
5 Skoðaðu hvort tölurnar séu ekki örugglega fastsaumaðar
á þótt þú hneppir að þér og frá og ef
belti fylgir, að efnið leggist fallega að
kápunni þegar því er lokað.
6 Íhugaðu einnig hvernig þú ætl-ar að nota kápuna og veldu rétta
sniðið út frá því, kápa sem nær niður á
kálfa passar jafn vel við buxur og pils.
7 Ef þú ert stórvaxin klæða ein-föld og bein snið þig líklega betur
en tvíhnepptar kápur eða aðrar sem
eru miklar um sig. Kápur sem teknar eru
saman í mittið klæða smávaxnar konur
sérstaklega vel. Þá geta ökklasíðar káp-
ur verið glæsilegar á hávöxnum konum.
8 Ef þú ert að leita að léttari kápu skaltu velja kasmírull eða ullar-
blöndu sem er léttari en 100% ull.
9 Ef þú ert að leita að klassískri kápu þá skaltu forðast djarfa
liti eða mynstur og halda þig við
klassíska liti, svarta, dökkbláa, brúna
og kameltóna sem eru tímalausir, og
einfalt snið.
10 Hugsaðu vel um kápuna þína svo hún endist lengur. Farðu með
hana í þurrhreinsun og hengdu hana
upp á herðatré frekar en snaga. Þegar
axlasniðið heldur sér ekki lengur aflag-
ast kápan og virðist úr sér gengin.
Kápur dregnar úr skáp kærastans
MulberryMugler Céline Af Mr. Newton
Rochas Af The Sartorialist Gucci
Hermés
Theyskens‘
TheoryRochas
Sykursæ
tir
pastelli
tir
Góð ráð varðandi heilbrigt hár
Lauren Conrad heldur úti heima-
síðu undir eigin nafni og fegurð er
hennar fag. Á dögunum gaf hún
lesendum sínum góð ráð varðandi
hvernig má örva hárvöxtinn og
halda lokkunum gljáandi af heil-
brigði og fegurð.
1. Prófaðu vítamín fyrir
óléttar konur
Flest vítamín sem ætluð eru ólétt-
um konum innihalda bíótín,
ásamt járni og fólínsýru, sem er
sagt stuðla að heilbrigðum hár-
vexti. Bíótín mun ekki aðeins
hjálpa hárinu að vaxa hraðar held-
ur munu húð og neglur einnig
styrkjast.
2. Haltu þig við heilbrigt
mataræði
Eins og þú kannski veist þá hefur
kornmeti og matvæli rík af kalsí-
um og amóníusýrum örvandi
áhrif á hárvöxtinn. Það er gott að
borða kjúkling, egg, papriku, hvít-
lauk, lauk, jógúrt, haframjöl og
spergilkál. Það er einnig hægt að
fá bíótín úr hnetum, sérstaklega
möndlum og salthnetum, soja-
baunum og fiski.
3. Nuddaðu hársvörðinn
Þegar hársvörðurinn er nuddaður
eykst blóðflæðið til hans þannig
að næringarefnin komast hraðar
að. Þegar þú ferð í sturtu gæti því
verið gott ráð að nudda hárið um
leið og þú þværð það.
Þrjár leiðir að
fögrum lokkum
Fegurðarráð Bjarkar
Á hinn full-
komna varalit
Björk Eiðsdóttir ritstjóri tímarits-
ins Man fer ekki út úr húsi án þess
að nota maskara, en önnur feg-
urðarráð hennar eru helst þau að
drekka ótæpilega mikið af vatni,
ganga á fjöll og hlægja mikið.
Hvaða vörur notar þú daglega?
„Maskara frá Max Factor, EGF-
húðdropa og svo er ég nýbyrj-
uð að nota varalit en ég eignaðist
hinn fullkomna varalit á dögun-
um, Chanel nr. 57.“
Hvað gerir þig hamingju-
sama? „Börnin, vinnan og
vinirnir í réttri blöndu. Og
hláturinn, það er ekkert
mikilvægara en að hlæja.“
Hvað fær þig alltaf
til að hlægja? „Selma
Björnsdóttir, besta vin-
kona mín. Henni tekst
að láta mig hlægja í
ótrúlegustu aðstæðum
og jafnvel þótt
allt hafi farið
úrskeiðis.“