Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2013, Page 47
Sigrast á hræðslu
við sykurmassa
n Systur gefa út Afmælisveislubók Disney
S
vo virðist sem fólk sé að átta
sig á því hvað sé hægt að gera
í kökuskreytingum og von-
andi hjálpar þessi bók enn
frekar og fær fólk til að sigrast
á hræðslunni við að vinna með sykur-
massa,“ segir Kristín Eik Gústafsdótt-
ir, stofnandi verslunarinnar og vefsíð-
unnar Allt í köku. Kristín Eik og systir
hennar Katrín Ösp ritstýrðu nýrri Dis-
ney-bók sem kom í verslanir í gær.
Disney vinsælt hjá börnunum
Bókin heitir Afmælisveislur og voru
systurnar með barnaafmæli í huga
þegar þær skrifuðu bókina. Hún er
unnin í samstarfi við Eddu útgáfu
sem hafði samband við Kristínu Eik
og Katrínu Ösp. „Það var mjög gaman
að vinna þessa bók með Disney. Þetta
eru allt persónur sem allir þekkja og
það er mjög vinsælt hjá börnunum að
fá Disney-tertu.“
Litríkt og skemmtilegt
Í bókinni eru hugmyndir að fjölda
skreytinga og útfærsla á afmælistert-
um en þær systur bjuggu til upp-
skriftirnar út frá persónum Disney.
Kristín Eik segir að það séu í raun
ekki margar tertuuppskriftir í bók-
inni heldur þessar hefðbundnu tertu-
og kökuuppskriftir. Meiri áhersla sé
lögð á skreytingar og útfærslurnar á
kökunum. „Þetta er allt mjög litríkt
og skemmtilegt. Flækjustigið í upp-
skriftunum er allt frá því að vera mjög
einfalt upp í mjög flókið. Það er ætl-
ast til að börnin geti tekið þátt í mörgu
sem er í bókinni og jafnvel gert það
sjálf,“ segir Kristín Eik.
Allir geta gert þetta
Eins og áður kom fram þá vonast
Kristín Eik til þess að bókin þjálfi
fólk í að vinna með sykurmassa en
hún segir að allir geti gert slíkar kök-
ur. „Fólk er mismunandi. Sumir eru
mjög flinkir í höndunum en aðrir
þurfa aðeins meira af hjálpartækjum.“
Aðspurð hvort eitthvað sé um
heilsuuppskriftir í bókinni seg-
ir Kristín að þær hafi nú ekki verið
mikið að hugsa um hollustuna þegar
þær settu bókina saman. „Við vor-
um meira að hugsa um að hafa þetta
skemmtilegt.“ n
Uppskrift úr bókinni
Afmælisveislur Disney:
n Tuma tígur súkkulaðistykki
Áhöld og efni:
n Lítil súkkulaðistykki
n Sleikjóprik
n Appelsínugulur súkkulaðihjúpur
n Pensill
n Appelsínugulur sykursandur
n Svartur súkkulaðihjúpur
n Brúsi með fíngerðum stút
Leiðbeiningar:
n Stingið sleikjópriki í súkkulaðistykkið
n Bræðið súkkulaðihjúpinn
n Penslið hjúpinn á súkkulaðistykkið
n Hellið sykursandi yfir súkkulaðihjúp-
inn áður en hann harðnar
n Bræðið svarta súkkulaðihjúpinn og
setjið í brúsa
n Sprautið tígurrendur á stykkið og
kælið í nokkrar mínútur
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Kristín Eik og Katrín
Ösp Bjuggu til uppskriftir
og skreytingar út frá Disney
persónum. MynD SigTryggur Ari
Lífsstíll 47Helgarblað 4.–6. október 2013
Komdu núna og kynntu þér 100 ára afmælistilboð Ford. Reynsluaktu vinsælasta bíl í heimi
búinn sparneytinni Ford EcoBoost vél sem hefur hlotið titilinn Engine of the Year, tvö ár í röð.
Ford Focus er einfaldlega frábær bíll. Spyrðu Focus eiganda – hann mun staðfesta það.
5 dYRa FRÁ
Station FRÁ
FORD focus
3.490.000 KR.
3.640.000 KR.
ford.is
Ford Focus 5 dyra/station, EcoBoost bensín 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,0/5,1 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 114/117 g/km. Fær frítt í stæði í Reykjavík í 90
mín. í senn. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
AFMÆLISPAKKI aÐ VERÐMÆti 320.000 KR.
FYLGiR FORD FOCUS Í oKtÓBER
Ford_Focus_180x255_08.07.2013_1.indd 1 01.10.2013 11:17:23