Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað Auðlegðarskatturinn löglegur n Eigandi Stálskipa stefndi íslenska ríkinu H éraðsdómur Reykjavíkur sýknaði á fimmtudag ís­ lenska ríkið af kröfum Guð­ rúnar Helgu Lárusdóttur, eiganda og framkvæmdastjóra Stálskipa, sem krafðist þess að fá tæplega 36 milljóna króna auð­ legðarskatt sinn endurgreiddan frá ríkinu. Auðlegðarskattinn hafði hún greitt á þriggja ára tímabili, gjald­ árin 2010, 2011 og 2012. Höfðaði hún mál gegn ríkinu í upphafi árs til að láta reyna á lög­ mæti auðlegðarskattsins og við­ bótarauðlegðarskatts fyrir dóm­ stólum. Guðrún Helga byggði kröfu sína á því að skattastefna um auð­ legðarskatt stríddi gegn ákvæði 72. greinar stjórnarskrár Íslands um friðhelgi eignarréttarins og jafn­ ræðisreglu 65. greinar sömu laga. Einnig að löggjöfin um auðlegðar­ skatt færi í bága við mannréttinda­ sáttmála Evrópu. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á þetta og sýknaði í dag ís­ lenska ríkið af öllum kröfum Guð­ rúnar Helgu. Í dómi héraðsdóms kemur fram að samkvæmt stjórnar­ skránni sé eignarrétturinn sannar­ lega friðhelgur. Engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. „Þrátt fyrir það er þó heimilt að setja lög um almennar takmarkanir eignarréttar sem eigendur verða að þola bóta­ laust. Í ákvæðinu er ekki mælt fyrir um tiltekin mörk, hvorki í fjárhæð­ um né á aðra mælikvarða,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. n mikael@dv.is Kaupþing afsKrifaði 2,3 milljarða hjá ingvari n Borgaði 200 til 300 milljónir af 2,6 milljarða skuld Þ rotabú Kaupþings afskrifaði 2,3 milljarða króna skuld hjá Ingvari Vilhjálmssyni, fyrr­ verandi framkvæmdastjóra markaðsviðskipta Kaup­ þings. Þetta herma heimildir DV. Þrotabú bankans hefði getað sett Ingvar í þrot vegna skuldarinnar. Ingvar borgaði 200 til 300 milljón­ ir upp í skuld en eftirstöðvarnar, áð­ urnefnd upphæð, voru afskrifaðar. Ingvar var ákærður fyrir skatta­ lagabrot af embætti sérstaks sak­ sóknara fyrr á árinu en hann er talinn hafa sleppt því að telja fram fjár­ magnstekjur upp á rúmlega hálfan milljarð króna og losna þar með við að borga 50 milljónir í skatt til rík­ isins. Vefmiðilinn Kjarninn greindi frá því á fimmtudag að Ingvar hefði grætt þennan hálfa milljarð á stöðu­ tökum gegn íslensku krónunni fyrir hrunið árið 2008. Dæmdur til endurgreiðslu Ingvar var í árslok 2011 dæmdur til að endurgreiða þrotabúi Kaupþings 2,6 milljarða króna skuld vegna kúlu­ láns sem hann fékk frá bankanum til hlutabréfakaupa og var í persónuleg­ um ábyrgðum fyrir. Rétt fyrir banka­ hrunið 2008 var þessari persónu­ legu ábyrgð Ingvars, og annarra háttsettra starfsmanna Kaupþings, á kúluláninu rift. Komst Hæstiréttur Ís­ lands að þeirri niðurstöðu að sá gern­ ingur að fella niður ábyrgðina hefði ekki verið lögmætur. Ingvar var því dæmdur til að endurgreiða þrotabúi bankans umrædda 2,6 milljarða sem hann var persónulega ábyrgur fyrir. Endurgreiddi 200 til 300 milljónir Heimildir DV herma hins vegar að í stað þess að endurgreiða Kaupþingi umrædda 2,6 milljarða hafi Ingvar komist að samkomulagi við lög­ menn slitastjórnar bankans um að endurgreiða honum 200 til 300 millj­ ónir króna. Eftirstöðvar skuldarinn­ ar voru svo afskrifaðar samkvæmt heimildum DV. Afskriftin á skuldum Ingvars nam því 2,3 til 2,4 milljörð­ um króna en DV hefur ekki orðið sér úti um nákvæmar heimildir fyrir því hversu mikið Ingvar greiddi upp í skuldina, einungis að það hafi verið á bilinu 200 til 300 milljónir króna. Með þessari endurgreiðslu slapp Ingvar við að vera settur í gjaldþrot af slitastjórn Kaupþings. Þrátt fyrir þetta á Ingvar veru­ legar eignir, miklu meiri eignir en hann greiddi Kaupþingi til baka. Ingvar er barnabarn alnafna síns, Ingvars Vilhjálmssonar, stofnanda og eiganda útgerðarinnar Ísbjarnar­ ins, sem varð að HB Granda árið 1985 með sameiningu við Bæjar­ útgerð Reykjavíkur. Fékk hálfan milljarð í laun Á árunum 2004 til 2008 fékk Ingvar á bilinu 5 milljónir til 10 milljónir króna í laun í hverjum mánuði. Frá þessu er greint í skýrslu rann­ sóknarnefndar Alþingis. Árið 2004 var Ingvar með tæplega 5,3 milljón­ ir á mánuði eða tæplega 64 milljón­ ir króna í árslaun; árið 2005 var hann með rúmlega 9,5 milljónir króna á mánuði eða sem nam 114 milljón­ um yfir árið; árið 2006 var hann með tæplega 10,5 milljónir á mánuði með 126 milljónir króna í árslaun; árið 2007 voru launin 8,2 milljónir eða rúmlega 98 milljónir og árið 2008 voru þau rúmlega 8,5 milljónir eða sem nam 102 milljónum yfir árið. Heildarlaun Ingvars á þessu fimm ára tímabili námu því rúmlega hálf­ um milljarði króna. Öll árin var hann meðal tíu launahæstu starfs­ manna Kaupþings, meðal annars næst launahæstur á eftir Hreiðari Má Sigurðssyni forstjóra árið 2008. Endurgreiðsla Ingvars á hluta af kúlulánaskuldinni nam því um það bil helmingi þeirra launa sem hann fékk frá Kaupþingi á árunum 2004 til 2008. Samningsstaða bankans Mörg dæmi eru um það eftir hrun að fjárfestar hafi samið við fjármálafyrir­ tæki vegna útistandandi skulda við þau. Í stað þess að greiða allar skuldir sínar, eða eignarhaldsfélaga sinna, við þessi fjármálafyrirtæki er aðeins hluti skuldarinnar greiddur og eftirstöðv­ arnar afskrifaðar. Í mörgum tilfellum er samningsstaða bankanna ekki góð í slíkum viðskiptum þar sem um er að ræða skuldir eignarhaldsfélaga með takmarkaðri ábyrgð. Þetta á til dæmis við í tilfelli Bjarna Ármannssonar sem árið 2009 samdi við slitastjórn Glitn­ is um að greiða henni tugi milljóna upp í um 900 milljóna króna skuld eignarhaldsfélagsins Imagina Invest­ ments við bankann jafnvel þó hann væri ekki persónulegum ábyrgðum fyrir þessum skuldum. Í tilfelli Ingvars Vilhjálmssonar voru hins vegar persónulegar ábyrgðir fyrir hendi. Samt slapp hann við að greiða um 90 prósent skuldarinnar við bankann. n Ingvar Vilhjálmsson Greiddi 200 til 300 milljónir króna upp í 2,6 milljarða króna skuld sína við Kaupþing sem hann var í persónulegum ábyrgðum fyrir. Eftirstöðvarnar voru afskrifaðar. „Með þessari endur- greiðslu slapp Ingvar við að vera settur í gjaldþrot af slitastjórn Kaupþings Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Telja spillingu vera útbreitt vandamál 67 prósent Íslendinga telja að spilling sé útbreitt vandamál inn­ an íslenska ríkisins. Þetta kem­ ur fram í könnun Gallup World. Íbúar í 108 af 129 löndum sjá spillingu sem alvarlegt vandamál hjá þarlendum stjórnvöldum. Verst þykir það í Tsjad, Bosníu og Hersegovínu, Tékklandi, Grikk­ landi, Kamerún, Hondúras, Indó­ nesíu, Keníu, Litháen, Nígeríu og Tansaníu. Þúsund fullorðnir einstak­ lingar frá hverju landi voru spurðir í rannsókninni sem var framkvæmd í fyrra. Auðlegðarskatturinn löglegur Guð- rún Helga, eigandi og framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Stálskia, lét reyna á lögmæti auðlegðarskattsins. Ráðgjar á vakt um helgina Drekaslóð hefur ákveðið að opna dyrnar fyrir skjólstæðingum sínum um helgina. Um hundrað manns eru á biðlista eftir viðtali hjá ráðgjafa og stöðugt bætist við biðlistann. Fjármagn skortir hins vegar til að bæta við starfsfólki og því var brugðið á það ráð að opna vakt um helgar, þar sem þrír ráð­ gjafar verða á vakt á milli klukkan ellefu og tvö á laugardögum. „Ekki verður hægt að panta tíma fyrir­ fram, fyrstur kemur fyrstur fær,“ segir Thelma Ásdísardóttir, ráð­ gjafi á Drekaslóð. „Við vitum að það er vont að vera búinn að taka ákvörðunina innra með sér og lyfta upp símanum til að panta viðtal en þurfa svo að bíða lengi eftir hjálpinni. Með þessu er fólki gefinn kostur á að fá að pústa að­ eins ef því liggur mikið á hjarta. Viðtölin verða þó styttri en hefð­ bundið er, eða um hálftími.“ Hún bendir þó á að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að þurfa að sitja lengi og bíða, verði aðsóknin mikil, því fólk fær upp gefinn tíma þegar það mætir. Innanríkisráðuneytið styrkti verkefnið, en enn vantar fjármagn til þess að klára það. „Hugmyndin var að halda þessari þjónustu úti í minnst sex mánuði en með þess­ um styrk getum við verið til staðar næstu sex laugardaga. Síðan verð­ um við bara að sjá hvað gerist.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.