Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Blaðsíða 14
Ó líkt flestum herlausum ríkj- um hefur Ísland ekki enn full- gilt samninginn um alþjóðlegt bann við klasasprengjum. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi utanríkisráðherra, undirritaði hann í desember árið 2008 en Ísland er, að Vatíkaninu undanskildu, eina herlausa ríkið í Evrópu sem ekki hef- ur fullgilt hann og ekki er skuldbund- ið að þjóðarrétti til að virða og uppfylla ákvæði samningsins. Wikileaks-skjöl úr sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi benda til þess að árið 2007 hafi íslensk stjórnvöld ætlað að leggjast gegn bann- inu. „Ísland hefur ekki tekið endanlega afstöðu til klasasprengjumálsins en vill ekki styðja algjört bann við notk- un þeirra,“ segir í greinargerð sendi- herra Bandaríkjanna frá því í maí árið 2007 en þá var ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins að láta af störfum, þar sem Valgerður Sverrisdóttir, Geir H. Haarde og Dav- íð Oddsson höfðu gegnt störfum ut- anríkisráðherra. Fram kom þó í sendi- ráðsskjölunum að líklega myndi Ísland fylgja Norðmönnum að málum og nokkru eftir að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir varð utanríkisráðherra tók Ísland afgerandi afstöðu gegn vopnunum. Klasavopn mikilvæg fyrir NATO Í greinargerð sendiráðsins frá 22. maí árið 2007 kemur fram að á fundi með starfsmanni utanríkisráðuneytisins hafi bandarískir embættismenn bent á að bann við klasasprengjum gæti haft verulega neikvæð áhrif á starf- semi Atlantshafsbandalagsins auk annarra hernaðaraðgerða sem Ísland hefur lýst yfir stuðningi við. Hér hef- ur líklega verið átt við Íraksstríðið þar sem klasasprengjur kostuðu fjölda óbreyttra borgara lífið. Fulltrúi utan- ríkisráðuneytisins sagði íslensk stjórn- völd standa í þeirri trú að Bandaríkin væru mótfallin hvers kyns aðgerðum til takmörkunar á notkun klasasprengja, en stjórnvöld ætluðu líklega að leggja áherslu á afvopnunarmál þegar reynt yrði að fá sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar yrði Ísland, sem aðili að NATO, að horfast í augu við raunveruleikann þegar hernaðarmál væru annars vegar. Mannúðlegar sprengjur Í júlí árið 2008 virðist lítið hafa breyst í þessum efnum. Þá var ný stefna Bandaríkjanna í málefnum klasavopna kynnt fyrir fulltrúa utanríkisráðu- neytisins og samkvæmt sendiráðs- skjali gerði hann engar athugasemdir við stefnuna. Samkvæmt nýrri stefnu Bandaríkjanna var áfram litið á klasa- sprengjur sem mannúðleg og lögmæt vopn sem gegndu mikilvægu hlut- verki í hernaði. Jafnframt er tekið fram í kynningu stefnunnar á vef varnar- málaráðuneytis Bandaríkjanna að notkun klasasprengja dragi úr mann- falli bandarískra hermanna og „geti bjargað lífi Bandaríkjamanna“. Þá er sú afstaða Bandaríkjanna tíunduð að klasasprengjur séu hættulausari fyrir óbreytta borgara en ýmis önnur vopn. Samkvæmt stefnunni ber samt hern- um skylda til að huga að því að klasa- sprengjur valdi sem minnstum skaða á óbreyttum borgurum og árið 2018 taka gildi takmarkanir á magni þeirra ósprungnu klasasprengja sem Banda- ríkjaher áskilur sér rétt til að skilja eftir í jörðu. Þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld hafi ekki hreyft sérstökum mótbár- um við stefnu Bandaríkjanna í þess- um efnum var Ísland eitt þeirra 125 ríkja sem undirrituðu alþjóðlegan samning um bann við klasasprengjum þann 3. desember árið 2008. Ísland tók þátt í samningaferlinu en með samn- ingnum var þróun, framleiðsla, notk- un, birgðasöfnun og afhending klasa- sprengja bönnuð. Fjölmörg valdamikil ríki voru mótfallin banninu og skrifuðu ekki undir sáttmálann, svo sem Banda- ríkin, Kína, Rússland og Ísrael. Bitna sérstaklega á börnum Klasasprengjur eru sérstaklega skað- legar óbreyttum borgurum í ljósi þess að þær innihalda margar smásprengj- ur sem dreifast yfir stór svæði og geta sprungið árum og áratugum eftir að átökum lýkur. „Þegar til lengri tíma er litið stafar óbreyttum borgurum meiri hætta af þessum vopnum en hermönn- um,“ segir í pistli eftir John Holmes, að- stoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna á sviði mannúðaraðstoð- ar, sem birtist í íslenskri þýðingu á vef upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. „Þau eru börn- um sérstaklega skeinuhætt. Forvitni er börnum eðlislæg og vopnin minna oft á leikföng. Þegar smásprengjurn- ar springa deyja börnin, særast eða verða fyrir áfalli sem varir alla ævi.“ Ís- lendingar hafa lagt lóð sín á vogarskál- arnar þegar kemur að hreinsun svæða sem menguð eru af klasasprengjum. Sem þátttakandi í NATO og stuðnings- aðili Íraksstríðsins hefur Ísland þó lagt blessun sína yfir stríðsrekstur þar sem klasasprengjum er beitt. n 14 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað Vildu ekki banna klasasprengjur n Vopnin mikilvæg í hernaðaraðgerðum sem Ísland studdi Forvarnarstarf Börn í Líbanon eru frædd um það hvernig varast megi klasasprengjur. Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is 21. 10. 2013 „ Ísland hefur ekki tekið endan- lega afstöðu til klasa- sprengjumálsins en vill ekki styðja algjört bann við notkun þeirra. Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is mánudaginn 28. október, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg Karólína Lárusdóttir Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Höll undir bandaríska utanríkis- stefnu Sendiráðsgögn sem afhjúpuð voru, þökk sé Bradley Manning og Wikileaks, sýna að ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokksins og Framsóknarflokksins var mótfallin banni við klasasprengjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.