Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Blaðsíða 10
10 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað
n Ekki hefðbundin kennsla fyrir þá sem ekki fermast
B
arnið mitt fær ekki hefð-
bundna kennslu af því að
nánast allur árgangurinn er í
fermingarfræðsluferðalagi á
vegum kirkjunnar,“ segir óá-
nægt foreldri barns í Lágafellsskóla
en fimmtudaginn í síðustu viku fóru
verðandi fermingarbörn á skólatíma
í ferðalag á vegum Lágafellskirkju.
Foreldrið er afar ósátt enda sé erfitt
fyrir börn á þessum aldri að vera skil-
in útundan. Jóhanna Magnúsdóttir,
skólastóri Lágafellsskóla, segir að til
standi að endurskoða hvernig staðið
er að slíkum ferðum á vegum kirkj-
unnar.
Erfitt að vera skilinn útundan
„Barnið mitt ætlar að fermast borg-
aralega og svo eru fimm önnur börn
sem ekki fóru í ferðalagið. Á fimmtu-
daginn voru þau hálfan daginn að
aðstoða við kennslu yngri barna í
skólanum og hálfan daginn að vinna
heimavinnu. Þau fengu ekki að fara í
íþróttir eða sérgreinar. Vegna þess að
Þjóðkirkjan ákveður að hafa ferðalag
á skólatíma!“ segir foreldrið og bend-
ir á að hefði fermingarfræðsluferðin
verið farin viku síðar hefði hún lent á
sama tíma og vetrarfríið í skólanum
og þá hefði ekki þurft að mismuna
neinum.
„Maður skilur ekki hvers vegna
ekki var hægt að hafa þetta þá. Mað-
ur fær á tilfinninguna að með þessu
sé verið að reyna að lokka krakkana
til að koma með og svo fermast, enda
erfitt að vera skilinn útundan og vera
öðruvísi á þessum aldri. Barnið mitt
fékk reyndar þau skilaboð í skólan-
um að „það mætti koma með“ en
forráðamenn fengu aldrei formlega
tilkynningu um þetta, hvorki að þetta
stæði til né að þeim sem ekki fermast
væri boðið að fara með. Á miðviku-
daginn kom bara póstur frá skólan-
um þar sem stóð að þeir sem ætluðu
að senda börn sín þyrftu að sækja um
frí í skólanum.“
„Við munum endurskoða þetta“
Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri
Lágafellsskóla, staðfestir að ekki hafi
verið hefðbundin kennsla fyrir þá
krakka sem ekki fóru í ferðalagið.
„Prógrammið var þannig að
krakkarnir fóru inn í bekki á leik-
skóladeildinni og í 1. og 2. bekk og
fengu að vera þar sem aðstoðar-
menn kennara þar sem þau hjálpuðu
yngri börnunum. Svo voru þau inni í
stofu með kennara fram til klukkan
12, þegar þó fóru í hádegismat, og þá
skipulögðu kennarar sjálfir hvað þeir
gerðu með hópnum. Ég veit að þau
voru eitthvað að spila og annað slíkt,“
segir Jóhanna og bætir við að málin
verði nú endurskoðuð.
„Reyndar er þetta í fyrsta sinn
sem það eru svona margir sem fara
ekki í þessa ferð. Yfirleitt hafa þetta
bara verið einn eða tveir nemend-
ur og það sem brást kannski svolítið
var það að við vissum ekki hvað þetta
voru mörg börn sem yrðu eftir. Það
varð bara misbrestur í samstarfi skól-
ans og kirkjunnar um hvernig eigi að
standa að öllum verkferlum í sam-
bandi við þessa ferð. En ég hef nú
óskað eftir því að fá fund með kirkj-
unni vegna þessarar ferðar. Við mun-
um endurskoða þetta núna.“
„Hefur verið svona í fjöldamörg ár“
Jóhanna segir lítinn fjölda þeirra
barna sem ekki fóru eina af ástæð-
um þess að ekki var hefðbundin
kennsla.
„Við vorum með sex krakka og þau
eru ekki einu sinni öll í sama bekk.
Reyndin hjá okkur er sú að ef barn
fer ekki í einhverja ferð og við still-
um upp hefðbundinni kennslu þá
sækja foreldrar gjarnan bara um leyfi
fyrir krakkana. Ég hugsa að upplifun
krakkanna sé sú að það sé verið að
refsa þeim fyrir að fara ekki í ferðina
af því að hinir eru að gera eitthvað
sem þeim þykir skemmtilegt og eftir-
sóknarvert og þess vegna höfum við
nú reynt að láta þau vera í einhverju
annars konar námi. Það er auðvitað
heilmikið nám sem felst í því að vera
aðstoðarmaður inni í bekk.“
En er eðlilegt að það sé farið í
svona ferð á skólatíma?
„Það er alltaf spurning um hvað
er eðlilegt og hvað er ekki eðlilegt.
Þetta hefur náttúrulega verið svona í
fjöldamörg ár en ég mun leggja það
til núna að þetta verði ekki fram-
ar á skólatíma og ég hef þegar tjáð
sóknarprestinum það.“ n
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
„Misbrestur í
sambandi skólans
og kirkjunnar“
Lágafellskirkja Þeir sem ekki
fóru í ferð á vegum kirkjunnar
fengu ekki hefðbundna kennslu
í skólanum. Myndir Sigtryggur Ari
Lágafellsskóli Jóhanna Magnúsdóttir,
skólastjóri Lágafellsskóla, segir að málin
verði endurskoðuð fyrir næsta ár.
„Illa farið með börn
á skólaskyldualdri“
„Ég hef barist mjög mikið á móti þessum aðskilnaði í almennum grunn-
skólum og það er náttúrulega mjög illa farið með börn á skólaskyldualdri
að lunginn úr árganginum sé bara tekinn út og hinir séu þá látnir daga
uppi í einhverri vitleysu,“ segir Jóhann Björnsson, kennslustjóri borgara-
legrar fermingar hjá Siðmennt. Hann segir ekki eðlilegt að fermingar-
fræðsluferðir á vegum kirkjunnar séu farnar á skólatíma.
„Mér finnst að það eigi að fara þetta í frítímum um helgar af því að
kennurum er gert að kenna ákveðinn dagafjölda á ári en þarna eru ein-
hverjir dagar, ég held að það séu yfirleitt tveir, sem falla út. En þetta er
réttlætt á þeim forsendum að það séu bara foreldrarnir sem séu að fá leyfi
fyrir börnin sín og að þetta leyfi sé ekkert öðruvísi heldur en það ef ein-
hver þarf að skjótast út á land eða fara til útlanda eða eitthvað svoleið-
is. Í slíkum málum er það nefnilega yfirleitt venjan í íslenskum skólum
að skólastjórar neita nemendum ekki um frí en þá náttúrulega held-
ur kennslan bara áfram eða það er allavega eitthvað eðlilegt skólastarf í
gangi. Og þó þetta sé réttlætt eins og hvert annað frí þá er alltaf spurning
um það hvort foreldrar hafi í raun samband við skólann og biðji um frí
fyrir börnin sín eða hvort það fari bara allir.“
„Við
munum
endurskoða
þetta
Ungmenni
á landsmóti
Um helgina verður landsmót
æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar
haldið í Reykjanesbæ. Fimm
hundruð unglingar og á annað
hundrað leiðtogar og sjálfboða-
liðar taka þátt í mótinu að þessu
sinni. Fókusinn á landsmótinu
verður á fátækt á Íslandi og
krakkarnir ætla að safna fé fyr-
ir Framtíðarsjóð Hjálparstarfs
kirkjunnar.
Stálheppnir lottóspilarar:
Ætluðu að selja
til að grynnka á
skuldum
Sjaldan eða aldrei hafa jafn
margir verið nálægt því að fá 5
réttar í Lottóinu og síðastliðinn
laugardag en þá komu 232 miðar
fram með 4 réttar tölur. Tölurn-
ar sem dregnar voru út voru all-
ar mjög lágar en þær voru 3 4 5
7 10 og bónustalan 25. Í tilkynn-
ingu frá Íslenskri getspá kemur
fram að það hafi komið starfs-
fólki þar því töluvert á óvart að
einungis 2 miðar voru með allar
tölurnar réttar og var annar mið-
inn 10 raða sjálfvalsmiði ásamt
Jóker en hinn miðinn áskriftar-
miði þar sem 3 raðir eru í áskrift.
Tvær raðirnar af þremur eru töl-
ur sem eigendur dreymdi fyrir og
ein röðin er afmælisdagar fjöl-
skyldunnar.
Vinningsröðin að þessu sinni
var röð sem eiganda hafði dreymt
fyrir um 20 árum og sett í áskrift
og nú skilaði sá draumur sér
skemmtilega til baka. Þessi fjöl-
skylda var nýbúin að vera með
fasteignasala í heimsókn til að
verðmeta húsnæði sitt því þau
ætluðu að minnka við sig til að
draga úr skuldum en nú ætla
þau að vera áfram í húsinu sínu
og greiða niður áhvílandi skuld-
ir og leyfa sér svo jafnvel að fara
í einhverja dýra framandi utan-
landsferð sem hjónin hefur lengi
dreymt um.
Hinn vinningshafinn var ung
fjölskyldukona frá Akranesi,
þriggja barna móðir, sem er með
miða í áskrift. En þar sem veðr-
ið á Skaganum var svo gott í síð-
ustu viku ákvað konan að bóna
bílinn, fór í Olís og keypti sér bón
og ákvað að taka að auki 10 raðir
og Jóker í viðbót við áskriftar-
miðann sem hún á. Það var svo
sannarlega ferð til fjár. Það var
svo á laugardagskvöldið sem
hún veitti því athygli að margir
vinir hennar á Facebook voru að
spyrjast fyrir um hver hefði keypt
sér Lottómiða í Olís á Akranesi
og unnið pottinn. Konan fór þá
út í bíl og náði í miðann sinn og
ætlaði ekki að trúa sínum eig-
in augum – var hún virkilega sú
heppna? – búin að vinna sér inn
rúmlega 31 milljón króna og gæti
nú keypt sér draumabílinn og
fjölskyldan orðið skuldlaus.