Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Blaðsíða 11
Milljarður fyrir SMS
Fréttir 11Helgarblað 25.–27. október 2013
Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári
www.lifandimarkadur.is
OKKAR
LOFORÐ:
Lífrænt og
náttúrulegt
Engin
óæskileg
aukefni
Persónuleg
þjónusta
Hágæða snyrtivörur úr lífrænum
efnum og að sjálfsögðu paraben fríar
Með því að velja
Dr. Hauschka
getur þú verið viss um
að þú sért ekki að nota
eiturefni á
húðina þína.
Dr. Hauschka
20% afsláttur af öllum Dr. Hauschka snyrtivörum til 31. desember
20%
afsláttur
!
Mikiðúrval
Paraben
fríar
vörur
n Jón Ásgeir og Ingibjörg græddu í Færeyjum n Seldu 50 prósenta hlut í verslanakeðjunni
E
ignarhaldsfélag í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar,
Ingibjargar Pálmadóttur
og tengdra aðila seldi 50
prósenta hlut í færeysku
verslanakeðjunni SMS í fyrra fyrir
nærri milljarð króna. Þetta kemur
fram í ársreikningi eignarhalds-
félagsins sem heitir Apogee ehf.
Honum var skilað til ársreikn-
ingaskrár ríkisskattstjóra þann 22.
október síðastliðinn. Ársreikn-
ingurinn er óendurskoðaður.
Rekur fimm Bónusverslanir
SMS rekur tíu verslanir í Færeyjum
og eru fimm Bónusverslanir þar á
meðal. Greint var frá sölu Apogee
ehf. á hlutnum í SMS í mars í fyrra
en kaupverðið var ekki tekið fram.
Jóhannes Jónsson, faðir Jóns Ás-
geirs, tjáði sig um söluna á fyrir-
tækinu við fjölmiðla og benti á að
áhugi forsvarsmanna Apogee lægi
annars staðar. Þeir Jóhannes og
Jón Ásgeir settu Iceland-keðjuna
svo á laggirnar á Íslandi.
Núverandi stjórnarmenn fé-
lagsins eru Ingibjörg Pálmadóttir
og systir Jóns Ásgeirs, Kristín
Jóhannesdóttir. Ingibjörg er
sömuleiðis framkvæmdastjóri
þess. Eigandi Apogee ehf. er
huldufélagið Moon Capital í
Lúxemborg en erfiðlega hefur
gengið að fá staðfest hver á það
félag. Moon Capital á hins vegar
hlutabréf í fjölmiðlafyrirtækinu
365 og er Ingibjörg Pálmadóttir
sögð vera eigandi 365.
Keypt af Ingibjörgu
Þó svo að Apogee hafi selt hluta-
bréfin í SMS á nærri milljarð
króna, tæplega 937 milljónir, þá
var rúmlega 180 milljóna króna
tap á rekstri félagsins í fyrra. Eign-
ir félagsins nema 920 milljónum
króna og skuldirnar nema rúm-
lega 340 milljónum króna.
Eitt af því sem Apogee gerði á
síðasta ári var að kaupa 30 pró-
senta eignarhlut í eignarhalds-
félaginu IP Studium, sem er í
eigu Ingibjargar Pálmadóttur,
fyrir tæplega 140 milljónir króna.
Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi félagsins. Ingibjörg er fram-
kvæmdastjóri beggja félaganna
og var með milljón krónur í laun
á mánuði út úr síðarnefnda fé-
laginu í fyrra, líkt og greint var
frá í fjölmiðlum fyrir skömmu. IP
Stud ium skilaði tæplega 112 millj-
óna króna hagnaði í fyrra og var
sá hagnaður að mestu tilkominn
út af hlutdeild í hagnaði Stöðvar
2. Nú hefur Apogee keypt hlut í IP
Studium, og þar af leiðandi fjöl-
miðlafyrirtækinu 365, eftir söluna
á SMS í Færeyjum.
Óljóst eignarhald
DV hefur fjallað umtalsvert um
eignarhaldið á Moon Capital
síðast liðinn ár. Félagið er stærsti
skráði hluthafi 365 með meira en
43 prósenta hlut. Eignarhaldið á
Moon Capital og þar með Apogee
og 365 er hins vegar óljóst.
Um mitt ár í fyrra reyndi DV
ítrekað að fá upplýsingar um
eignarhaldið á Moon Capital frá
Ingibjörgu Pálmadóttur og Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni en án ár-
angurs. Meðal þess sem komið
hefur fram í umfjöllun DV er að
á heimasíðu fjölmiðlanefndar er
Moon Capital sagt vera stærsti
eigandi 365 og Ingibjörg Pálma-
dóttir er sögð vera aðaleigandi
365. Hins vegar var Moon Capital
einnig eigandi Apogee sem hélt
utan um SMS-keðjuna í Færeyjum
og var Jóhannes Jónsson sagður
vera eigandi hennar. Eignarhaldið
á SMS og Stöð 2 var því í gegnum
sama félagið, Moon Capital, sem
skráð er í Lúxemborg. Jóhannes
Jónsson var hins vegar aldrei
sagður vera eigandi 365 og Ingi-
björg Pálmadóttir var aldrei sögð
vera eigandi SMS. Þarna er því um
misræmi að ræða.
Samkvæmt gögnum sem DV
hefur hins vegar undir höndum
er hluthafi Moon Capital sagður
vera European Market Services,
fyrirtæki í Bretlandi sem sérhæf-
ir sig í þjónustu við fjárfesta og
fyrir tæki. Eigendur þess félags
eru sagðir vera tveir: Eignarhalds-
félagið Remp Co. Ltd. í Nassau
á Bahamaeyjum og annað fé-
lag, Riverside Investment Corp,
sem er skráð á Seychelles-eyj-
um. Lengra hefur DV ekki getað
komist í að reyna að átta sig á
eignarhaldinu á Moon Capital
og þar með á Stöð 2 og færeysku
verslanakeðjunni áður en Apogee
seldi hlut sinn í henni. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Selt fyrir tæpan milljarð
Apogee seldi hlut sinn í færeysku
verslanakeðjunni SMS fyrir tæpan
milljarð í fyrra. Í kjölfarið keypti fé-
lagið hlutabréf í einu eignarhalds-
félagi Ingibjargar Pálmadóttur
fyrir nærri 140 milljónir.
„ Ingibjörg er
framkvæmdastjóri
beggja félaganna.