Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 16
1 Guðbjörg Matthíasdóttir 61 árs
Eignir: 4.049 milljónir kr.
Búseta: Vestmannaeyjar
n Guðbjörgu Magneu Matthíasdóttur
þarf vart að kynna en síðastliðin ár hefur
hún verið ríkasta kona Íslands sem og
skattadrottning Íslands. Auðæfi hennar
má rekja til eiginmanns hennar, Sigurðar
Einarssonar, og fyrirtækis hans Ísfélags
Vestmannaeyja. Hann lést langt um ald
ur fram árið 2000 en hann hafði stundað
útgerð í Vestmannaeyjum um árabil. Sagt
hefur verið að Guðbjörg hafi verið heppnasta
kona landsins í hruninu, en vegna samnings sem
hún hafði gert gat hún selt hluti í Glitni fyrir 3,5 millj
arða króna síðasta virka dag fyrir hrun. Í dag er hún helsti
eigandi Ísfélagsins hf. sem og Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins.
2 Kristján V. Vilhelmsson 59 ára
Eignir: 1.663 milljónir kr.
Búseta: Akureyri
n Kristján V. Vilhelmsson er ríkasti
karlmaður landsbyggðarinnar. Hann
er annar aðaleigenda og stjórnenda
Samherja, ásamt frænda sínum
Þorsteini Má Baldvinssyni, með 33
prósenta hlut í fyrirtækinu. Gengið
hefur vel hjá Samherja síðastliðin ár og
það er eitt stærsta sjávarútvegsfyrir
tæki Evrópu. Samherji og félög í eigu
Samherja hafa keypt margar fyrir
tækjaeignir á Íslandi á liðnum árum, meðal
annars Útgerðarfélag Akureyrar, BergHugin í
Vestmannaeyjum, stóran hlut í Olís og verktakafyrirtækið Jarðboranir svo
eitthvað sé nefnt. Kristján er kvæntur Kolbrúnu Ingólfsdóttur.
3 Þorsteinn Már Baldvinsson 61 árs
Eignir: 1.609 milljónir kr.
Búseta: Akureyri
n Þorsteinn Már Baldvins
son kemur fast á hæla
frænda sínum Kristjáni
hvað varðar auð. Hann
er stærsti hluthafi og
forstjóri Samherja, sem er
best stadda útgerðarfélag
Íslands. Starfsemi Samherja
teygir sig til fjölmargra landa
utan Íslands, en einungis þriðjungur
starfsemi fyrirtækisins fer fram hér á landi.
Eignarhaldsfélag Þorsteins, Steinn, sem heldur
utan um hlut hans í Samherja, á eignir upp á meira
en 2,8 milljarða. Steinn fékk 335 milljóna króna
arð inn í einkahlutafélag sitt árið 2011 vegna
hagnaðar Samherja árið á undan. Þorsteinn Már
er ókvæntur.
4 Jón Zimsen 66 ára
Eignir: 1.481 milljón kr.
Búseta: Dalabyggð
n Auðæfi Jóns Zimsen má rekja til arfs
frá föður hans Christian Zimsen, lyfja
fræðingi og stofnanda Laugarnes
apóteks. Öll systkini Jóns – Kristinn,
Nils og Else – eru mjög auðug en Jón
er þó sá eini sem býr á landsbyggðinni.
Faðir Jóns Christians sat meðal annars í
stjórn lyfjafyrirtækisins Pharmaco hf. Jón
er kvæntur Jóhönnu Halldóru Sigurðar
dóttur.
G
uðbjörg Matthíasdóttir, helsti
eigandi Ísfélagsins í Vest-
mannaeyjum, er langríkasti
íbúi landsbyggðarinnar sam-
kvæmt skatt- og útsvars-
skrá 2012, en hrein eign hennar árið
2011 nam fjórum milljörðum. Auðæfi
hennar má rekja til arfs sem og ótrú-
legrar heppni. „Korteri“ fyrir hrun
seldi hún hluti í Glitni fyrir 3,5 millj-
arða króna.
DV birtir í dag upplýsingar um rík-
ustu einstaklinga landsbyggðarinn-
ar en upplýsingar um eignir þeirra er
að finna í skatt- og útsvarsskrám fyrir
árið 2012. Aðeins þeir sem eiga meira
en 160 milljónir í hreina eign eru tekn-
ir fyrir. Séu hjón sem eru samsköttuð
talin saman eru einungis þrjátíu og
sex einstaklingar eða hjón sem eiga
meira en 160 milljónir í hreina eign
á landsbyggðinni. Samkvæmt úttekt
sem DV birti í október árið 2011 áttu
þá um 100 einstaklingar sem bjuggu í
Reykjavík einni meira en 180 milljónir.
Flestir efnamenn þjóðarinnar virðast
þannig búa í Reykjavík eða þar í kring.
Fimm einstaklingar búsettir á
landsbyggðinni eiga meira en millj-
arð, samkvæmt skattskrám. Sé rýnt
í tölurnar sést að þeir fimm ríkustu
skera sig nokkuð úr hvað ríkidæmi
varðar.
Ríkissjóður verður af
um fimm milljörðum
Upplýsingarnar um hve miklar eign-
ir auðmennirnir eiga koma fram í því
hve mikið þeir borguðu í auðlegðar-
skatt. Skatturinn var settur fyrst á
árið 2010 fyrir árið 2009 en var breytt
við álagningu fyrir gjaldárið 2011. Þá
hækkaði hann úr 1,25 prósentum í
1,5 prósenta skatt á eignir yfir sjötíu
og fimm milljónir fyrir einstaklinga og
hundrað milljónir fyrir samskattaða
(hjón). Tekjur ríkissjóðs af skattinum
voru áætlaðar um fimm milljarðar
árið 2011.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra tilkynnti nú í sumar að auð-
legðarskattur yrði ekki framlengdur.
Bjarni sagði á sínum tíma að hann
teldi skattinn jafnvel brjóta í bága við
stjórnarskrá en því hefur verið haldið
á lofti að um hreina eignaupptöku sé
að ræða – fremur en skatt. Dómur sem
féll á fimmtudag, þar sem Guðrún
Helga Lárusdóttir, eigandi Stálskipa,
fór í mál við ríkið vegna auðlegðar-
skattsins, tekur af vafa um ólögmæti
skattsins. Ríkið var þar sýknað. Ekki
liggur fyrir hvort málinu verði áfrýjað.
Kvóti og arfur algengasta
uppspretta auðsins
DV varpar í dag ljósi á hvernig
fólkið, 36 ríkustu einstaklingar
á landsbyggðinni, auðg-
uðust. Í mörgum tilvikum
reyndist það auðgert en
þó eru nokkrir á list-
anum sem láta lítið
fyrir sér fara. Í mörg-
um tilvikum þar sem
litlar eða engar upplýsingar
fundust um viðkomandi auðmann
kom í ljós að auður þeirra er til kom-
inn vegna arfs.
Segja má að tvær meginskýringar
séu á því að fólkið á listanum auðgað-
ist jafn mikið og raun ber vitni. Margir
hafa auðgast vegna kvóta eða reksturs
í tengslum við sjávarútveg. Hin al-
gengasta ástæða þess að fólkið er
auðugt er arfur; fé sem fólk hefur erft
frá foreldrum sínum eða systkinum.
Þó allnokkrir á listanum hafi auðg-
ast vegna arfs eru nokkuð margir sem
brotist hafa til efna af eigin ramm-
leik. Þar má nefna Arngrím Jóhanns-
son, fyrrverandi eiganda flugfélagsins
Atlanta, og Ásgeir Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóra vöruþróunar-
sviðs Marel. Bersýnilegt er þó
að útgerð og tengd starfsemi
er uppruni bróðurparts
auðsins. Sé litið til aldurs-
samsetningar sést að ekki
er um nein unglömb
að ræða, en
meðal aldur
auðmanna landsbyggðarinnar er 64
ár. Einungis fjórir hafa ekki náð sex-
tugsaldri.
Aðeins einn í
Reykjanesbæ
Á kortinu hér til
hliðar má sjá
hvar ríkustu
einstak-
lingar
lands-
byggðarinnar búa en athygli vekur
að það eru helst þrír staðir sem stór-
eignarfólkið býr helst á: Akureyri,
Vestmannaeyjar og Ísafjörður. Sér-
staka athygli vekur þó hvar fáir auð-
menn finnast miðað við fólksfjölda,
en þar sker Reykjanesbær sig verulega
úr. Þrátt fyrir að tæp fimmtán þúsund
manns búi þar, samanber átján þús-
und á Akureyri, býr aðeins einn þar
sem kemst á lista þeirra 36 auðugustu
á landsbyggðinni. Annað svæði sem
sker sig úr er norðausturhluti landsins.
Enginn búsettur í Þingeyjarsýslum
eða á norðaustur horni landsins
kemst á listann.
DV mun á næstu dögum
og vikum fjalla áfram um
auðugustu Íslendingana
– þar sem sjónum verður
beint að byggðarkjörnum
á höfuðborgarsvæðinu. n
16 Fréttir 25.–27. október 2013 Helgarblað
Auðmenn landsbyggðar
n Lestu um 36 ríkustu Íslendingana á landsbyggðinni n Fáar konur á listanum
Hjálmar Friðriksson
blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is
4
8
9
10
36 ríkustu á
landsbyggðinni
1