Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 24
n Matthew Green er staðráðinn í að snúa genginu við n Fjöldi knattspyrnuiðkenda margfaldast
F
yrir marga hljómar það eins
og að vera í paradís að vakna
á hverjum morgni á fallegri
hitabeltiseyju sem er um-
kringd kristaltærum sjó.
Englendingurinn Matthew Green
er í þessum sporum en í stað þess
að sleikja sólina og slaka á allan
liðlangan daginn hefur Matthew
stórt og mikið verk að vinna: Losa
fótboltalandslið þjóðar sinnar við
stimpilinn versta landslið heims.
Unnu síðast árið 2008
Matthew er 41 árs og fæddur og
uppalinn í hafnarborginni Hull á
Englandi. Undanfarin sex ár hefur
Matthew, sem er kennaramennt-
aður, búið og starfað á Turks- og
Caicos-eyjum, sem samanstanda af
tveimur eyjaklösum sem rísa úr sæ
suðaustan við Bahamaeyjar. Verk-
efni Matthews er sannarlega risa-
vaxið því samkvæmt styrkleikalista
Alþjóðaknattspyrnusambands-
ins, FIFA, eru Turks- og Caicos-eyj-
ar með lélegasta fótboltalandslið
heims þar sem liðið er botnfrosið
í sæti 207. Þeim vafasama heiðri
deila eyjarskeggjar sem smáríkjun-
um San Marino og Bútan. Ísland í
þessum samanburði er í 46. sæti á
sama lista. Lið Matthews vann síð-
ast keppnisleik árið 2008 gegn St.
Luciu. Tvö ár eru liðin síðan hann
stýrði liðinu síðast í alvöru keppn-
isleik – ástæðan fyrir því að liðið
hefur ekki spilað fleiri leiki er sú
að það vantar hreinlega leikmenn í
landsliðið.
Lögregluþjónn og lögfræðingur
„Það halda allir að maður sitji bara
á ströndinni og sötri Pina Colada,“
segir Matthew í samtali við blaða-
mann breska ríkisútvarpsins,
BBC, sem heimsótti eyjarnar fyrir
skemmstu. „Ég vildi að svo væri en
það er bara allt of mikið að gera,“
segir hann.
Á Turks- og Caicos-eyjum búa
samtals 31 þúsund manns og þar
af er þriðjungur undir fimmtán ára
aldri. Og það sem gerir starf Matt-
hews erfiðara er að fæstir þeirra
sem spila fótbolta eru atvinnu-
menn í íþróttinni. Í landsliðinu
eru meðal annars lögregluþjónn,
lögfræðingur, kennari og smiður.
Gavin Clinton, 34 ára, er sóknar-
maður og í raun eini atvinnumað-
ur Turks- og Caicos-eyja. Hann er
markahæsti leikmaður liðsins frá
upphafi og spilar í annarri deildinni
í Víetnam með liði sem heitir
Mikado Nam Dinhis. Þó að Clinton
sé markahæsti leikmaður þjóðar
sinnar frá upphafi verður seint sagt
að hann hafi raðað inn mörkum
með landsliðinu. Hann hefur skor-
að fjögur mörk í átta landsleikjum.
Turks- og Caicos-eyjar eiga þó
nokkra efnilega knattspyrnumenn
en flestir þeirra eru á skólastyrkj-
um í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Þeir þurfa því að ferðast býsna langt
í æfingar eða fyrir leiki með lands-
liðinu. Sex áhugamannadeildir
eru starfræktar í landinu en flest-
ir þeirra leikmanna sem spila í
deildinni eru útlendingar og því er
ekki um auðugan garð að gresja hjá
Green þegar kemur að því að velja í
landsliðið.
Stofnað árið 1996
„Þetta eru frábærir strákar,“
segir Green um lærisveina sína í
landsliðinu. Hann er einn þriggja
starfsmanna í fullu starfi hjá
knattspyrnusambandi Turks- og
Caicos-eyja. Knattspyrnusam-
bandið var stofnað árið 1996 og fékk
inngöngu í Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið, FIFA, tveimur árum
síðar, eða árið 1998. Á þeim tíma
voru engir knattspyrnuvellir á eyj-
unum, engin deildarkeppni. Liðið
þurfti að bíða til ársins 2006 eft-
ir fyrsta sigri sínum en hann kom
gegn Cayman-eyjum í Karíbahafs-
bikarnum.
Þótti of lítill fyrir íþróttina
Einhverjir spyrja sig eflaust hvernig
á því stendur að fyrrverandi kennari
frá Hull á Englandi hafi orðið lands-
liðsþjálfari lítils og tiltölulega
óþekkts lands. Turks- og Caicos-
eyjar eru breskt yfirráðasvæði og
þegar Clinton var ungur gekk hann
með þann draum í maganum að
verða þekktur knattspyrnumaður.
Hann æfði með borgarliðinu sem
margir aðdáendur enska boltans
ættu að þekkja, Hull City, en var
leystur undan samningi við félagið
þegar hann var aðeins fimmtán
ára. Hann þótti of lítill og var ekki
talinn eiga mikla framtíð fyrir sér í
fótboltanum. Því fór svo að hann
gekk menntaveginn og náði sér í
kennaramenntun. Árið 1998 flutti
hann til Bahamaeyja til að freista
þess að fá vinnu við kennslu. Það
bar árangur og fékk hann vinnu við
Temple Christian-menntaskólann
sem þekktur var á þeim tíma fyrir
góða fótboltaakademíu. Þar tók
hann að sér þjálfun kvennaliðs skól-
ans og er skemmst frá því að segja
að árangur Green hafi verið góður.
Liðið vann landskeppnina á hverju
ári frá 2001 til 2007. Green þjálf-
aði ekki einungis kvennaliðið held-
ur lék hann einnig með liði frá Ba-
hamaeyjum, Grasshoppers FC, þar
sem hann varð markakóngur árin
2000 og 2001.
Hreimurinn kemur upp um hann
Green, þessi mikli ævintýramaður,
ákvað árið 2007 að mögulega væri
kominn tími á nýja áskorun. Hann
sá auglýsingu frá knattspyrnusam-
bandi Turks- og Caicos-eyja þar
sem auglýst var eftir tæknilegum
ráðgjafa. Hann ákvað að sækja um
starfið og fór svo að hann landaði
draumastarfinu nokkrum vikum
síðar. Green vissi lítið um eyjarnar
en varð að vonum spenntur þegar
hann sá að meðalsumarhitinn þar
er 29 gráður. Það kemur eflaust
fáum á óvart að frægir einstaklingar
eins og Bruce Willis og Rio Ferdin-
and heimsækja eyjarnar reglulega
til að fá slökun frá amstri daglegs
lífs.
Green hefur það ágætt á eyj-
unum. Þar býr hann einn í tveggja
herbergja íbúð með frábæru útsýni.
Eftir að hafa verið í hitabeltinu, fyrst
Bahamaeyjum og svo Turks- og
Caicos-eyjum, undan farin fimmt-
án ár segir Green að honum líði
eins og hann sé heima hjá sér.
Þá sé honum tekið sem heima-
manni þó stundum skíni í gegn
að hann sé Englendingur. „Það er
helst hreimurinn sem kemur upp
um mig. Þegar ég verð reiður eða
spenntur – sem gerist nokkuð oft
– þá tala ég með sterkum enskum
hreimi,“ segir hann.
Fótboltaæði á eyjunum
Þó að tvö ár séu liðin frá síð-
asta landsleik þegar liðið steinlá
gegn Bahamaeyjum, 10–0, í
undankeppni HM er Green stað-
ráðinn í að spila fleiri leiki á næstu
mánuðum – og jafnvel ná í sigur.
Liðið fer senn að hefja undirbún-
ing fyrir undankeppni HM 2018.
Green segir að nú hafi eyjaskeggjar
tilefni til bjartsýni. „Á mjög fáum
árum hefur okkur tekist að búa til
mjög öflugt unglinga- og grasrótar-
starf,“ segir hann. „Nú eru um tutt-
ugu knattspyrnudeildir starfandi á
eyjunum en fyrir aðeins nokkrum
árum voru þær þrjár. Þetta hefur
ekki verið auðvelt en nú er fótbolti
orðin vinsælasta íþróttagrein-
in meðal ungmenna,“ segir Green
og það er engu líkara en að fót-
boltaæði hafi gripið um sig á eyj-
unum. „Nýr leikvangur var byggð-
ur fyrir nokkrum árum og nú eru
fimm hundruð ungmenni að æfa
fótbolta en þau voru færri en 100
þegar ég byrjaði,“ segir Green sem
vonast til þess að einhver þessara
ungmenna muni leiða landsliðið
á sigurbraut á næstu árum. Og um
leið losa þjóðina við stimpilinn
versta knattspyrnulið heims. n
24 Sport 25.–27. október 2013 Helgarblað
Stjórnar versta
landsliði heims
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Verstu
landsliðin
Samkvæmt FIFA
207. Turks- og Caicos-eyjar
207. San Marino
207. Bútan
206. Anguila
204. Makaó
204. Suður-Súdan
202. Cook-eyjar
202. Djíbútí
201. Sómalía
200. Andorra
Metnaðarfullur Matthew Green er staðráðinn í að losa þjóð sína við stimpilinn versta
knattspyrnuþjóð heims.
Á æfingu Hér sést hópu ungmenna á knattspyrnuæfingu með Green. Hann er í öftustu röðinni, fjórði frá hægri.
Náttúrufegurð
Turks- og Caicos-eyjar
eru þekktari fyrir
fallegar strendur og
kristaltæran sjó en
gott fótboltalandslið.
Verkefni Greens er að
breyta því.
Stórt verkefni Það er óhætt að segja að Green hafi tekist að rífa upp áhugann á fótbolta
meðal ungs fólks á Turks- og Caicos-eyjum.