Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Síða 25
Sport 25Helgarblað 25.–27. október 2013
Stórleikur á Brúnni
Chelsea tekur á móti Manchester City n Tekst United að hrista af sér slenið?
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
N
íunda umferð ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu
fer fram um helgina og óhætt
að segja að hörkuleikir séu á
dagskránni. Stórleikur um-
ferðarinnar er vafalítið viðureign
bláu risanna í Chelsea og Manchester
City sem mætast á Stamford Bridge á
sunnudag. Bæði lið virðast vera kom-
in á gott skrið og eru fyrirfram talin lík-
legust til að landa titlinum í vor.
Einn útisigur City
Chelsea situr í 2. sæti deildarinnar
með 17 stig á meðan City er í 4. sætinu
með 16 stig. Deildarleikur þessara liða
á Brúnni í fyrra endaði með marka-
lausu jafntefli en City vann heimaleik-
inn 2–0. Chelsea hefur unnið alla fjóra
heimaleiki sína á þessari leiktíð með
samanlagða markatölu 10–2. Á sama
tíma hefur Manchester City gengið til-
tölulega illa á útivelli á þessari leiktíð;
liðið hefur unnið einn leik – gegn West
Ham um liðna helgi – gert eitt jafntefli
en tapað tveimur leikjum.
Gjá að myndast
Eftir síðustu umferð má segja að
ákveðin gjá hafi myndast milli sjö
efstu liða deildarinnar og annarra
liða. Fjögur stig skilja að Everton í sjö-
unda sætinu og Manchester United í
áttunda sætinu. United þarf að fara að
sýna sitt rétta andlit og það ætti liðið
að geta þegar það tekur á móti Stoke á
Old Trafford á laugardag. Stoke er í 16.
sætinu með 8 stig og ef United tekst
ekki að leggja Stoke að velli er ljóst að
pressan á David Moyes, stjóra United,
verður allt að því óyfirstíganleg.
United hefur ekki unnið heimaleik í
deildinni síðan 14. september.
Skyldusigur Arsenal
Arsenal og Liverpool sem spilað hafa
frábærlega á tímabilinu verða í eld-
línunni um helgina. Arsenal mæt-
ir nýliðum Crystal Palace á útivelli
og ætti að vinna þægilegan sigur.
Arsenal er á toppnum með 19 stig en
Palace í 19. sætinu með þrú stig. Liðið
hefur tapað síðustu fimm leikjum.
Liverpool, sem er í 3. sætinu, mæt-
ir WBA á Anfield á laugardag og er
ljóst að WBA-liðið er sýnd veiði en
ekki gefin. Liðið vann frábæran sig-
ur á Old Trafford fyrir skemmstu, en
hefur gert jafntefli í síðustu tveim-
ur leikjum sínum, gegn Arsenal og
Stoke.
Gylfi mætir nýliðum
Spútniklið Southampton ætti að
geta haldið velgengni sinni áfram
þegar liðið mætir Fulham á heima-
velli í síðdegisleiknum á laugardag.
Southampton er í 6. sætinu með 15
stig en Fulham í því fjórtánda með
10 stig. Gylfi Þór Sigurðsson og fé-
lagar í Tottenham mæta nýliðum
Hull á heimavelli á sunnudag en þá
fer einnig fram einn af athyglisverðari
nágrannaslögum tímabilsins þegar
Sunderland tekur á móti Newcastle. n
Hart barist Það má búast
við hörkuleik á sunnudag
þegar Chelsea tekur á móti
Manchester City. Bæði lið eru í
fínu formi og gætu vel landað
titlinum í vor.
Vissir þú …
… að ekkert lið hefur brotið af sér oftar
í deildinni en Southampton. Þeir hafa
fengið dæmdar á sig 115 aukaspyrnur.
… að Phil Jagielka,
leikmaður Everton,
hefur skorað
flest sjálfsmörk
af núverandi
leikmönnum ensku
deildarinnar, eða sex
talsins.
… að Newcastle hefur fengið á sig fjögur
skallamörk á þessari leiktíð, flest allra
liða.
… að tvö lið eiga enn eftir að halda
hreinu í ensku deildinni, botnliðin Sund-
erland og Crystal Palace.
… að Liverpool hefur átt sex skot í
tréverkið á marki andstæðinganna á
tímabilinu, flest allra liða.
… að Andros Townsend
hafði átt 27 markt-
ilraunir áður en
honum tókst að
skora sitt fyrsta
mark á tímabilinu.
… að Aston Villa hefur spilað
14 heimaleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni
án þess að halda hreinu.
… að Manchester United hefur aðeins
haldið tvisvar hreinu í síðustu ellefu
deildarleikjum.
… að Sergio Aguero skoraði sitt fyrsta
skallamark í ensku úrvalsdeildinni um
síðustu helgi. Hann hefur nú skorað 41
mark í deildinni.
„Gylfi skorar að sjálfsögðu“
S
jónvarpsmaðurinn góðkunni
Björn Bragi Arnarsson er
áhangandi Lundúnaliðsins
Tottenham.
Hann spáir sínum
mönnum örugg-
um sigri gegn Hull
og að Chelsea
vinni heimasigur á
Manchester City.
Laugardagur
Crystal Palace - Arsenal 0–2
„Crystal Palace hefur verið hörmulegt og
var í þokkabót að reka stjórann. Arsenal
vinnur þennan leik örugglega og heldur
toppsætinu.“
Aston Villa - Everton 2–1
„Everton hefur byrjað tímabilið mjög vel og
bara tapað einum leik. Christian Benteke
verður hins vegar stjörnubrjálaður í þessum
leik og tryggir heimamönnum öll stigin.“
Liverpool - WBA 2–1
„Liverpool tapaði fyrir WBA á heimavelli á
síðustu leiktíð og vill hefna fyrir það. WBA er
hins vegar með fínt lið og er ósigrað í síðustu
fimm leikjum í deildinni þannig að þetta
verður tæpt.“
Man Utd - Stoke 3–0
„Svartsýnustu menn hefðu ekki getað spáð
fyrir um þessa byrjun United í deildinni –
aðeins þrír sigrar í átta leikjum og það á móti
Swansea, Crystal Palace og Sunderland. Nú
hrökkva þeir hins vegar almennilega í gang
og vinna öruggan sigur.“
Norwich - Cardiff 1–1
„Hér vonast maður auðvitað eftir sigri Arons
Einars og félaga en ég held að þetta verði
jafntefli. Segjum samt að Aron Einar skori
Cardiff-markið.“
Southampton - Fulham 2–2
„Southampton er spútniklið deildarinnar það
sem af er og hefur bara tapað einum leik á
tímabilinu. Fulham byrjaði tímabilið hrotta-
lega en hefur unnið tvo góða sigra í röð og þeir
sækja stig hér. Berbatov skorar.“
Sunnudagur
Sunderland - Newcastle 1–1
„Ég held að það sé jákvætt fyrir Sunder-
land að hafa losað sig við Paulo Di Canio.
Gus Poyet er toppmaður en spurningin er
bara hvort Sunderland-liðið sé nógu gott
til að halda sér uppi. Newcastle er með
flotta leikmenn en ég spái því að í þessum
nágrannaslag nái Poyet í sitt fyrsta stig með
Sunderland.“
Chelsea - Man City 2–1
„Bæði lið voru að spila úti í Meistaradeildinni
í vikunni og unnu fína sigra. Þessi leikur getur
farið hvernig sem er en ég ætla að tippa á
Chelsea-sigur í hörkuleik. Við munum líka sjá
rautt spjald.“
Swansea - West Ham 1–0
„Swansea spilaði í Evrópudeildinni í vikunni
og ég held að þessi leikur verði ekki mikið fyrir
augað. Leikmenn Swansea gera hins vegar
nóg til að skila stigunum þremur í hús.“
Tottenham - Hull 4–0
„Hull er með ágætis lið og ég á von á því að
þeir verði efstir af liðunum þremur sem komu
upp í vor. Það er hins vegar kominn tími á
stóran sigur hjá mínum mönnum í deildinni og
hann kemur núna. Gylfi skorar að sjálfsögðu.
Ég er mjög hrifinn af Tottenham-liðinu í dag .“
Tekur Pulis
við QPR
Tony Pulis, fyrrverandi
knattspyrnustjóri Stoke, þykir lík-
legastur til að taka við liði Crystal
Palace í ensku úrvalsdeildinni. Ian
Holloway var á miðvikudag látinn
bera ábyrgð á því að Palace hafi
ekki gengið sem skyldi í deildinni
í haust. Liðið er í næst neðsta sæti
með einn sigur eftir átta leiki.
Pulis hefur verið atvinnulaus síð-
an hann var rekinn frá Stoke í vor.
Menn halda líklega að hann geti
náð betri árangri með Palace.
Skrifaði undir
hjá Löwen
Einn besti þýski handknattleiks-
maðurinn heitir Uwe Gens heimer.
Hann spilar fyrir Guðmund Guð-
mundsson hjá Rhein-Neckar
Löwen. Undanfarið hefur hann
verið orðaður við þýska meist-
araliðið Kiel og Spánarmeistara
Barcelona. Þær sögusagnir komu
ekki í veg fyrir að kappinn rit-
aði nafn sitt á nýjan samning við
Löwen, sem gildir til ársins 2016.
Guðmundur er hins vegar á för-
um frá félaginu. Hann tekur næsta
sumar við danska landsliðinu.
Leikmenn fá
bónus
Leikmenn íslenska landsliðsins í
knattspyrnu hafa átt í viðræðum
við KSÍ um bónusgreiðslur ef liðið
kemst á HM í Brasilíu á næsta
ári. Þetta kemur fram í Morgun-
blaðinu. Þar er haft eftir Geir
Þorsteinssyni, formanni sam-
bandsins, að leikmenn muni
njóta góðs af árangrinum, líkt
og knattspyrnuhreyfingin öll, ef
liðinu tekst ætlunarverk sitt. Ís-
land mætir Króatíu í tveimur leikj-
um um laust sæti á HM í næsta
mánuði. KSÍ fær rúmlega milljarð
króna í tekjur frá FIFA ef það tekst.