Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2013, Side 35
Fólk 35Helgarblað 25.–27. október 2013
mér ekki einu sinni einn konfekt
mola, það er annaðhvort eða. Ég
finn hvernig sykur gerir mig ofsa
lega þreytta. Þess vegna held ég mig
í þessu vegna þess að ég finn raun
verulega árangurinn. Að auki fer ég
í Kramhúsið, jógatíma og leikfimi
hjá hinni yndislegu ódrepandi Haf
dísi.“
Húmor gegn einelti
Edda útskrifaðist úr Bifröst síðast
liðið vor með próf í menningar
stjórnun og fjallaði lokaritgerðin
um gildi húmors á vinnustöðum.
„Ég ákvað strax að skrifa um húmor
sem stjórntæki á vinnustöðum en
ég hef líka haldið námskeið um
heilsufarslegan ágóða af því að
beita húmor, ef maður beitir hon
um rétt. Maður getur notað húmor
bæði til að gleðja og meiða.
Húmor getur einmitt verið
mesti skaðræðisvaldurinn í
eineltis málum. Og hvað gerir mað
ur, jú maður reynir auðvitað að
hlæja með þótt manni sárni. Í fyrsta
lagi þarf að greina húmorinn á
vinnustaðnum. Er hann nærandi
og sameinandi eða er hann sundr
andi og eyðileggjandi vegna þess að
hann getur verið svo kvikindislegur.“
Vill ekki lengur stuða aðra
Edda segist vera orðin mikið við
kvæmari fyrir því að stuða fólk með
kaldhæðnum húmor. „Ég er ekki að
segja að kaldhæðni sé alveg bönnuð
en ég kýs að beita minni kaldhæðni
eingöngu í vernduðum hópi,“ segir
Edda og hlær. „Mér var alveg sama
einu sinni sem ungur gamanleikari.
Ég reyndi að vera eins baneitruð
og ég mögulega gat í öllum ára
mótaskaupum og uppistandsat
riðum sem ég tók þátt í. Svo fannst
mér minn kaldhæðni húmor bara í
lagi alls staðar og hugsaði með mér
að ef fólk kynni ekki að meta hann
þá væri það bara húmorslaust. En
með auknum þroska þá fer maður
að átta sig á að maður vill ekki særa
annað fólk.“
Einelti í leikhúsinu
„Ég man eftir atviki þegar að ég var
eitt sinn sem oftar að vinna í leik
húsi að það hreinlega blæddi úr
hjartanu á mér í þessu tiltekna
verk efni af því að mér fannst nokkr
ir galgopar þarna svo andstyggi
legir við einn kunningja minn sem
virtist þó í fljótu bragði hafa gaman
af þessum húmor. Það endaði með
því að ég dró fórnarlambið afsíðis
og spurði hvort honum fyndist
þetta í rauninni fyndið. Þá leit hann
dapur á mig og sagði; nei veistu
mér finnst þetta alveg ömurlegt og
ég er líka á leiðinni út héðan,“ seg
ir Edda og bætir því við að atvik af
þessu tagi séu mjög algeng á vinnu
stöðum og að ekki sé tekið á þeim.
„Þetta eru sömu frekjudallarnir
sem geta vaðið uppi með alveg
ótrúlega meiðandi athæfi í formi
húmors. Fólk er svo oft uppfullt af
höfnun sjálft að það þarf að níðast
á öðrum.“
Húmor fyrir sjálfri sér
Nú eru Íslendingar jafnan þekktir
fyrir að vera kaldhæðin þjóð og eru
landsmenn einkar duglegir að gera
grín að sjálfum sér, eitthvað sem
Edda telur að sé mikilvægur eigin
leiki. „Það er svo gott að geta hleg
ið að sjálfum sér. Ég væri dauð úr
skömm ef ég gæti ekki hlegið að öll
um pínlegu atvikunum sem ég hef
lent í yfir ævina,“ segir Edda og gerir
þar góðlátlegt grín að sjálfri sér en
hún segist vera hrakfallabálkur af
verri gerðinni og staðfestir þá lýs
ingu með góðri dæmisögu síðar í
viðtalinu.
„Ég nota þetta sem fjársjóð til að
leyfa fólki að hlæja að mér með mér.
Þannig myndast oft svo skemmtileg
stemning. Við fjölskyldan og vin
ir mínir hlæjum mikið saman að
minni ógæfu,“ segir Edda brosandi
út að eyrum. „En ég hvet líka fólk til
að skrifa niður skemmtilegar sögur
af börnunum. Maður er svo fljótur
að gleyma.“
Allir geta verið fyndnir
En nú er fólk mismóttækilegt gagn
vart gríni. Mörgum finnst tilhugs
unin um að vekja athygli á sér
óbærileg og fólk getur hreinlega
verið feimið. Geta allir lært að vera
fyndnir? Edda er með gott ráð sem
flestir geta tileinkað sér: „Deildu
af einlægni brestum þínum! Segðu
frá einhverju pínlegu sem þú hefur
lent í eða einhverju sem þú skamm
ast þín kannski pínu fyrir en sem
hægt er að hlæja að. Það geta allir
beitt svoleiðis kímni.
En það útheimtir einlægni og
kjark. Það getur hver sem er feng
ið aðra til að hlæja með þessu móti.
Þetta er samt á þeim nótum að þú
ert ekkert að reyna að vera fyndinn
heldur ertu bara að gefa af þér.“
Edda bætir við að yfirmenn með já
kvæðan húmor njóti yfirleitt meira
trausts og velgengni í starfi.
Virðing og traust
„Rannsóknir eru að sýna fram á
að þeir stjórnendur sem gera góð
látlegt grín að sjálfum sér vegnar
miklu betur í starfi. Þeir njóta meiri
virðingar og trausts starfsmanna
og fá það besta út úr sínu starfs
fólki. Fólk sem er mjög valdamikið
eða frægt og löngu búið að fá sína
staðfestingu er auðmjúkasta fólkið,
finnst mér, og það hefur enga þörf
fyrir að vera hrokafullt og hefur ekki
áhyggjur af því að tapa virðingunni.
Margir háttsettir aðilar sem ég er að
þjálfa í ræðumennsku hafa áhyggj
ur af því að tapa virðingunni ef þeir
leyfa sér að gera grín að eigin lífi.
Ég meina, ber maður meiri
virðingu fyrir fólki sem er grafalvar
legt og steypt í stál þegar það er til
dæmis að halda ræðu? Það að deila
einhverju persónulegu úr eigin lífi
er frábær leið til þess að brjóta ís
inn. En maður á aldrei að byrja á
því að tilkynna að maður ætli að
segja fyndna sögu, það er dauða
dæmt.“
Vinsældir Jóns Gnarr
„Nú er fólk ennþá fussandi og
sveiandi yfir því að hann sé ekki
nógu virðulegur embættismað
ur en skoðanakannanir sýna að
fólk elskar hann bara meir og meir.
Það er bara mjög einföld skýring á
því. Hann er með einlægari mönn
um og grínistum sem ég hef á ævi
minni kynnst og gjörsamlega veður
beint inn í hjartað á manni.
Hann hefur sagt sögur sem eru
honum mjög erfiðar og endalaust
getað gert grín að sér og sínu lífi.
Alveg sama hversu margir eru bún
ir að reyna að koma honum inn í
embættismannastífnina þá gerir
hann það ekki. Getum við fengið
Besta flokkinn inn á Alþingi?“
Fær liðverki af sukki
Milli þess sem við Edda spjöllum
saman fær hún sér einn og einn
bita af spelthrökkbrauði á meðan
blaðamaður reynir að koma niður
heilli rjómatertusneið. Edda seg
ist uppskera líkamlega og andlega
vanlíðan ef hún leyfir sér að sukka
í sykri og mjólkurvörum. „Ég gæti
alveg eins hafa verið að hella í mig
landa eða annarri ólyfjan linnu
laust í marga sólarhringa, ég verð
svo timbruð eftir sykurfyllerí.
Ég lít ömurlega út, fæ poka und
ir augun og verð gráleit í framan
þegar ég dett í sykurinn og hvítt
hveiti. Stundum finnst mér ég vera
orðin hálfgerður sykurróni og hætti
þar með að bera virðingu fyrir sjálfri
mér. En mér líður svo illa þannig
því ég verð svo þreytt og stirð og fæ
liðverki. Það hellist líka oft yfir mig
hausverkur og ennisholurnar stífl
ast á mjög stuttum tíma.“
Beinþynning gekk til baka
Edda segist hafa komist yfir marga
kvilla sem jafnan hafa verið taldir
ættgengir bara með því að breyta
mataræðinu. „Ég var með bein
þynningu sem hreinlega lagaðist og
gekk til baka þegar ég tók á því.
Ég fór að einbeita mér að
brokkolí og sesamfræjum og þarna
ertu að fá miklu meira kalk en þú
getur nokkurn tímann notað,“ seg
ir Edda sem leggur áherslu á að
kaupa lífrænt vottuð matvæli til að
forðast eiturefni og erfðabreyttar
lífverur.
Vakna upp við vondan draum
„Ég get ekki sannað að það séu
miklu fleiri vítamín í lífrænt vott
uðum eplum til dæmis en persónu
lega vil ég tóna niður skordýraeitrið
í mínu fæði, þess vegna reyni ég að
borða sem mest lífrænt. Við erum
að vakna upp við vondan draum
núna. Það er að koma í ljós að
svæðið í kringum stóriðjuverin í
Hafnarfirði er hreinlega hætt kom
ið vegna mengunar,“ segir Edda og
telur unnin matvæli með of miklu
af aukaefnum vera menguð á sinn
hátt og skaðleg heilsu manna.
„Hugsaðu þér nú kaldhæðnina
að ég skuli þrá í reynd hreint fæði,
samt finnst mér allt sem er óhollt
girnilegt.“
Pínir þetta í sig
„Lambakjötið okkar er mjög hreint
og við erum ekki búin að eyðileggja
fiskinn okkar með þungmálmum.
En mér finnst því miður grænmeti
frekar vont, nema litlu tómatarnir
frá Sólheimum finnst mér algjört
sælgæti. En mér leiðist yfirhöfuð að
borða grænmeti. Mig langar miklu
meira í eitthvað djúpsteikt og bras
að – eða sætt. Ég öfunda svo fólk
sem segist hlakka til að fara á salat
barinn alveg með glampann í aug
unum.
Mér finnst salatbar ekki girnileg
ur, ég þarf að taka sjálfa mig með
valdi og pína mig í þetta. Þess vegna
helli ég í mig grænum drykkjum á
morgnana því það er svo fljótlegt
og einfalt og af því að ég stend yfir
leitt við það þá kannski dett ég síð
ur í það yfir daginn að gúffa í mig
brauðmeti, sykri og ís og einhverju
sem fer ekki vel í mig – ömurlegt!“
Ástarsamband við Sólheima
Edda segist hafa samfélagslega
meðvitund að leiðarljósi þegar hún
festir kaup á bæði mat og snyrtivör
um og segist heilluð af samfélaginu
á Sólheimum í Grímsnesi þar sem
fatlaðir starfa í vernduðu umhverfi.
„Mér finnst það samfélagsleg
skylda að kaupa frekar heilnæmar
vörur af fötluðum einstaklingum.
Ég held að öllum finnist skipta
miklu máli að styðja við bakið á fólki
sem hefur ekki sömu möguleikana
og ég og þú. Sólheimar er auð
vitað einstakt fyrir bæri í heim
inum. Vörurnar þeirra eru ekki
bara á heimsmælikvarða, t.d.
snyrtivörurnar, heldur halda þeir
einstaklingar sem eru fatlaðir, full
komlega reisn sinni á Sólheimum
og lifa á listsköpun og með því að
rækta náttúruna.
Þetta er blandað samfélag af
bæði fötluðum og ófötluðum en
þar vinna bara allir saman. Ég
hreinlega elska Sólheima. Þarna
finnurðu líka best varðveitta
leyndarmálið í ferðabransanum:
gistiheimilið Brekkukot og ráð
stefnuhúsið Sesseljuhús, ótrúlega
flott hvort tveggja.“
„Maðurinn sem ég
var gift í 30 ár er
besti vinur minn í dag
„Ég er fíkill
og ef mér
þætti til dæmis
áfengi yfirhöfuð
gott þá væri ég
líklega alkóhólisti